Þjóðviljinn - 25.11.1980, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 25. nóvember 1980.
Frá Olympfumótinu í skák:
Jafntefli viö Spánverja
- tap fyrir Búlgörum
íslenska kvennasveitin vann Belgíu og Sviss
Frá Einar Karlssyni á Mötlu.
Spánverjar voru and-
stæðingar okkar í þriðju
umferð Ólympíuskák-
mótsins. Lengi vel voru
góðar horfur á sigri okk-
ar manna en í tímahraki
undir lok fyrstu setu lék
Jóhann Hjartarson illa af
sér og varð hann að
gefast upp.
Helgi Ólafsson lék á fyrsta
boröi viö del Corral. Spánverj-
inn tefldi af hræöslu, þvingaöi
fram uppskipti sem leiddu til
steindauörar jafnteflisstööu.
Sömu sögu var aö segja af
viöureign Margeirs Pétursonar
viö Pomar á þriöja boröi. Allt
var drepiö sem hægt var aö
drepa og þeir sömdu e. ir
skamma hriö um jafntefli.
Betur gekk framan af hjá
þeim Jóni L. Arnasyni og
Jóhanni sem báöir höföu hvitt á
ööru og fjóröa boröi. Jón vann
reyndar glæsilega eins og sést
hér á eftir, en eins og áöur er
sagt missti Jóhann af yfir-
buröasigri sinum eftir aö hafa
haft yfirburöa stööu frá byrjun.
Viöureign Islendinga og Spán-
verja lauk þvl meö jöfnu 2—2.
Hvítt Jón L. Arnason
Svart Bellon (Stórmeistari)
Spáni.
Caro-Cann vörn.
1 e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4.
Rxe4 Rf6 5. Rxf6 skák gxf6
(þannig hefur t.a.m. Larsen
teflt meö góöum árangri) 6. c3
Bf5 7. Rf3 Rd7 8. g3 Da5.
Eins og siöar kemur I ljós er
þetta flakk drottningarinnar af-
skaplega vafasamt.
9. De2!
Hindrar 9... Da6 eöa 9... Db5.
9... e6
10. Bg2 h5 11. Rh4 Bh7 12. 0-0
Be7 13. Hel 0-0-0 14. a4 f5 15. b4
Dc7 16. Dxh5 Rf6 17. Dxf7 Bg8
18. Dg6 Hef8 19. Bf4 Dd7 20. b5!
Rh5.
(20. ... Bg6 kemur 21. Rxg6
Hxh5 22. Rxc7 skák Kb8 23. Bf4
c5 24. Dxe5 og vinnur).
21. Bxc6 Bxc6 22. Be5! Bf7 23.
Habl! Bd6 24. Bxd6 Dxd6 25.
Rxf5! Dd7 26. Re7 skák Dxe7 27.
Dd3 og svartur gafst upp.
A sunnudag var svo teflt viö
Búlgara og var þaö „dökkur
dagur” sagöi Ingi R. Jóhanns-
son, liösstjóri Islensku sveitar-
innar — þvi aöeins hálfur vinn-
ingur náöist út úr leiknum.
A fyrsta boröi fékk Friörik,
sem nú tefldi I fyrsta sinn á mót-
inu, strax verra út úr byrjuninni
i skák sinni viö Ermenkov og
var kominn meö gjörtapaö tafl
er hann féll á tlma.
Helgi ólafsson var kominn
meö yfirburöa stööu þegar hon-
um sást yfir möguleika and-
stæöingsins slns, Tringovs stór-
meistara, á snjöllum millileik
og endaöi sú skák I jafntefli.
Jón L. Arnason missteig sig I
flókinni stööu meö timahrakið
yfir sér og tapaöi þannig fyrir
Popov.
Margeir Iék af sér peöi I byrj-
uninni og lenti i krappri vörn.
Skákin fór I biö en sýnist gjör-
töpuö.
Jón L. Arnason
Islenska sveitin hefur því
fengið9 1/2 vinning út úr fjórum
fyrstu umferöunum.
Litiö er enn aö marka stööu
efstu liöa, en væntanlega veröur
slagurinn á milli Sovétmanna
sem á sunnudag unnu Júgóslava
og Ungverja, sem hafa á aö
skipa harösnúnu liöi meö
Portisch á fyrsta boröi.
Islenska kvennasveitin hefur
rétt úr kútnum i siðustu tveim
umferöum. A laugardag unnu
þær Belga meö tveim vinning-
um gegn einum og á sunnudag
Sviss meö sömu útkomu. Sveitin
hefur hlotið 5,5 vinninga af 12
mögulegum.
Frl er I dag, mánudag.
Áhug
amenn um
k vikmy ndagerð:
Mikið
starf
fram-
undan
Aö undanförnu hefur veriö
heldur hljótt um Samtök áhuga-
manna um kvikmyndagerö
(SAK), en I slöustu viku minntu
samtökin rækilega á tilveru slna
meö blaöamannafundi og útgáfu
SAK-blaösins, 2. tölublaös þessa
árs. 1 blgerö er öflugt starf næstu
mánuöi: fundir, námskeiö og
samkeppni um gerö merkis fyrir
SAK.
Stjdrnarmenn SAK á blaöamannafundinum: f.v. Sveinn A. Sveinsson,
Marteinn Sigurgeirsson og Kristinn Guöjónsson. Ljósm. — gel—
Marteinn Sigurgeirsson, forseti
SAK, sagöi blaöamönnum undan
ogofan af sögu samtakanna, sem
voru stofnuð haustið 1978 og hafa
þegar haldið tvær kvikmyndahá-
tíðir áhugamanna. Kvikmynda-
háti'ðin er árlegur viðburður, og
verður næst haldin I febrúar 1981,
I tengslum við þing SAK, sem
einnig er haldið árlega.
SAK hafa haldið uppi samskipt-
um við norræn samtök, Nordisk
KRISTINN REYR:
Hluttekning
Helsærð rjúpa hrópar ekki
á hjálparstofnun sér til llknar.
Ósköp eru að vita
og við sem spennum byssugikkinn
vildum ekki
vera r júpan.
Skinin bein á skjánum hérna
skjögra um og gráta af hungri.
Ósköp eruaðvita
og við sem eigum fullt hús matar
vildum ekki
vera beinin.
Strokufangi úr striðsþjónustu
stendur fyrir dyrum úti.
Ósköp eru að vita
og við sem göddum fangaklefann
vildum ekki
verafanginn.
Kristinn Reyr
Smalfilm og tvisvar sent myndir i
keppni þangaö.
1 bftjöi skiptin fengu
Islenskir þáttcakendur brons-
verðlaun. Kristberg Óskarsson
fyrirmyndina „Listaverk” I Nor-
egi 1979, og Benedikt Sveinsson
fyrir „Dimman hlátur” I Finn-
landi 1980. Um þessar mundir eru
samtökin að sækja um inngöngu I
UNICA, sem er alþjóðlegur fé-
lagsskapur áhugafilmara og
starfar I tengslum viö UNESCO.
Tveir kvikmyndaklúbbar eru
skráðir i' SAK, en stefnt er að þvi
að stofna fleiri klúbba. Erlendis
eru samtök, hliðstæð SAK, venju-
lega byggð upp sem samband
starfandi klúbba, en hér eru flest-
ir meðlimanna „klúbbleysingj-
ar” og hefur þaðháð starfseminni
nokkuð, að sögn Marteins. Ahugi
á kvikmyndagerð er mikill hér-
lendis, og fer vaxandi. Þátttaka i
námskeiðahaldi SAK hefur þó
verið dræm hingað til, og taldi
Marteinn það hljóta að stafa af
þvl að áhugafólkið hefur ekki
sameinast I klúbba og veit
kannski ekki um tilveru SÁK.
Vetrarstarfsemi SAK hefst
með rabbfundi I Alftamýrarskóla
27. nóv. n.k. kl. 20.30. Þar munu
félagar og aðrir áhugamenn ræða
um samtökin, tilgang þeirra og
starfið framundan. I desember
veröur haldið námskeið I hand-
ritagerð, og námskeið verða
einnig haldin I janúar (klipping
mynda) og febrúar (hljóð-
vinnsla). Námskeiðin verða hald-
in I Alftamýrarskóla, og geta þeir
sem áhuga hafa á þátttöku fengið
frekari upplýsingarhjá Marteini I
slma 40056 eða Sveini Andra I
síma 31164.
Sem áður segir er fyrirhuguð
samkeppni um merki samtak-
anna. Þarf það aö vera táknrænt
fyrir SAK og stafirnir SAK méga
gjarnan vera með. Merkinu á að
skila á blaði (A4), merktu dul-
nefni, en rétt nafn höfundar fylgi
með í lokuðu umslagi. Skilafrest-
ur er til 5. janúar, og tillögurnar
skal senda I pósthólf SAK, Box
1347, 121 Reykjavik.
SAK-blaðið er málgagn sam-
takanna og birtir að jafnaði frétt-
ir af starfinu, auk greina um
kvikmyndagerð áhugamanna um
ýmis tæknileg vandamál þar að
lútandi. Inýja tölublaðinu er m.a.
greint frá myndunum sem sýndar
voru á hátiðinni I febrúar s.l. og
birtar umsagnir dómnefndar um
hverja mynd. Nokjcrir ungir pilt-
ar úr Hafnarfirði fengu fyrstu
verölaun I yngri flokki hátiðar-
innar fyrir myndina Fyrsta ástin.
Þeir hafa siðan verið iðnir við
kolann.og við siðustu úthlutun úr
kvikmyndasjóði fengu þeir kr.
200.000.- til að ljúka myndinni
Feilpústið, sem þeir hafa nú full-
gert og sýndu blaðamönnum á
fundinum. Þetta var I fyrsta sinn
sem áhugamenn hafa fengið
styrk úr kvikmyndasjóði, og
myndin er þvi timamótamark-
andi, ef svo má orða það.
Feilpústiöer 25 minútna, leikin
kvikmynd, tekin á 8mm litfilmu,
og tileinkuð „riddurum göt-
unnar”. Aðstandendur hennar,
Hallur Helgason, Asgrimur
Sverrisson og Helgi Már Jónsson,
sögðu að myndin hefði kostað
400.000 kr.Þeir eru allirnemendur
Flensborgarskóla. Skólabróðir
þeirra Jón Rafn Bjarnason samdi
tónlist fyrir myndina, og koma
tvö lög út á plötu innan skamms,
en tónlistin var tekin upp i Hljóð-
ritanum.
Þeir félagarnir eru ekki af baki
dottnir, og næsta mynd þeirra
verður væntanlega frumsýnd I
janúarlok. Hún fjallar um hlaup-
ara og handritið er samið af
skólasystur þeirra Ur Flensborg.
Myndin verður væntanlega af
svipaðri lengd og Feilpústið, og
nemendafélag Flensborgar mun
borga brúsann.
—ih
Mjólkur-
framleiðsla
minnkar
um 19,2%
Eins og fram hefur komiö hér I
blaöinu varö verulegur samdrátt-
ur á innveginni mjólk hjá
mjólkursamlögunum I október
miöaö viö sama mánuö i fyrra.
Samtals tóku þau á móti 7,8 milj.
ltr. nú en 9,6 milj. Itr. I fyrra. Er
þetta 19,2% samdráttur.
Þegar einstök samlög eru at-
huguð kemur I ljós, að mestur
hefur samdrátturinn orðið hjá
mjólkursamlaginu á Blönduósi,
eða um 34% en þar næst kemur
mjólkursamlagið á Höfn með
30,6%. Hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna varð mjólkin um 17,2%
minni og svipuð varð útkoman
hjá Eyfiröingum. Hjá mjólkur-
samlaginu I Borgarnesi varö
samdrátturinn 23%, á Hvamms-
tanga 23,7%, á Sauðárkróki 21,2%
og á Húsavik 19,3%.
I sept. varð samdráttur á
mjólkurframleiðslunni 8,2%
miðaö við sama mánuð 1979.
Fyrstu 10 mánuði þessa árs
hafa mjólkursamlögin tekið á
móti 93 milj. ltr. af mjólk á móti
101 milj. ltr. I fyrra og er minnk-
unin 7,3%.
Sala á nýmjólk og rjóma hefur
nokkuöaukist þaðsem af er árinu
en undanrennusala svo til óbreytt
frá I fyrra. Smjörsalan varð mun
minni fyrstu 9 mánuði ársins (en
svo kom útsalan) en sala á feitum
ostum varð um 22,5% meiri en I
fyrra. —mhg
Nemendaskipti eru eftirsótt
Nemendaskipti þjóðkirkjunnar
(ICYE—International Christian
Youth Exchange) hafa nú starfaö
um tuttugu ára skeiö. Löngum
hafa tslendingar sent miklu fleiri
en tekiö er á móti til ársdvalar, en
biliö eykst sifellt. Þetta ár eru 22
islenskir unglingar ytra I öllum
heimsálfum, en 17 erlendir eiga
hér ársdvöl.
Næsta árhinsvegar er gert ráö
fyrir aö metiö jafnist, aö þvi' er
fram kemur I Fréttabréfi
Biskupsstofu, 18 komi og 18 fari.
Hingaökemur fólk frá Austurriki,
Belglu, Finnlandi, Frakklandi,t
Þýskalandi, Svlþjóö, Sviss, Astr-
alíu, Nýja Sjálandi, Mexico og
Bandríkjunum. Héöan fara ung-
lingar til flestra sömu landa.
Þegar er fariö aö sækja um
þátttöku I nemendaskiptum
næsta ár, en umsóknarfrestur er
til 15. des. Skrifstofa ICYE er i
Hallgrlmskirkju og er opin dag
hvern frá kl. 13—16, simi 24617.
Agdst Þór Arnason veitir starfinu
forstööu. Tók hann viö 1 haust af
Hinrik Hilmarssyni.
Mikileftirsókn unglinga er eftir
nemendaskiptum, hins vegar er
tæplega nægjanlegt framboö af
heimilum til aö taka á móti
erlendum skiptinemum. Þaömun
þó álit flestra, aö sllk gistidvöl sé
ánægjuleg og áhugaverö revnsla.