Þjóðviljinn - 13.02.1981, Page 6
6 StÐA — ÞJÖÐVILJINN
ÚTBOÐ
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík
óskar eftir tilboðum i
málun
60 raðhúsaibúða i Hólahverfi. útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu V.B. frá og með
föstud. 13. febr. gegn 300 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu V.B.
Suðurlandsbraut30, mánud. 2. mars kl. 15.
Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik.
F orf allakennari
óskast
Kennara vantar til að kenna stærðfræði i
7.-9. bekk i Gagnfræðaskólanum i Mos-
fellssveit nú þegar.
Upplýsingar gefa skólastjóri og yfirkenn-
ari i sima 66186.
Laus staða
Staða lektors í ensku i heimspekideild Háskóla Islands er
laus til umsóknar. Sérstök áhersla er lögð á nútimamál og
málvisi.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrlsu um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknír, svo
og námsferil sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið, 10. febrúar 1981.
Laus staða
Staða lektors i uppeldisfræðum i félagsvisindadeild Há-
skóla Islands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir.svo
og námsferil sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu Hverfis-
götu 6, 101 Reykjavik, fyrir 10. mars nk..
Menntamálaráðuneytið, 10. febrúar 1981.
Forstöðumaðiir
framkvæmdadeíldar
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða for-
stöðumann fyrir framkvæmda- og
rekstrardeild við embætti bæjarverk-
fræðings.
Verkefni deildarinnar verður umsjón og
eftirlit með byggingarframkvæmdum,
gatnagerð og rekstrarverkefnum. Áskilin
er verkfræði- eða tæknifræðimenntun
ásamt reynslu á þessu sviði.
önnur menntun ásamt mikilli og hald-
góðri reynslu kemur þó til greina.
Nánari upplýsingar veitir bæjarverkfræð-
ingur.
Umsókir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist undirrituðum eigi
siðar en 24. febr. 1981.
Bæjarstjóri
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garöabæ
ónnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmiöi.
Gerum föst verötiiboö
SÍMI53468
Fyrirspurnir á Alþingi:
Hvenær verða sett lög
um skoðanakannanir?
þingsjá
Lækkun vaxta
Friðrik Sóphusson hefur beint
eftirfarandi fyrirspurn i þremur
liðum til viðskiptaráðherra:
,,1) Hvernig hafa raunvextir i
bönkum breyst á innlánahlið og
útlánahlið frá áramótum?
2) Eru ráðgerðar hækkanir á
þjónustugjöldum banka?
3) Með hvaða hætti ætlar rikis-
stjórnin að lækka vexti 1. mars?”
Til fjármálaráðherra beinir
Friðrik eftirfarandi spurningu:
„Hvenær stefnir rikisstjórnin
að þvi að veita greiðslufrest af
tollum? Hve mikinn? Hve lang-
an?”
Þarf opinberar
hækkanir?
Þá hefur Friðrik Sophusson
einnig beint eftirfarandi fyr-
irspurn til fjármálaráðherra:
,,1) Hvaða áætlaðar hækkanir á
gjaldskrá eftirtalinna B-fyr-
irtækja lágu til grundvallar fjár-
hagsáætlun þeirra i fjárlögum
þessa árs? a) Póstur og simi, b)
Rikisútvarpið, c) Rafmagnsveit-
ur rikisins, d) Skipaútgerð
rikisins.
2) Hvaða breytingar þarf að
gera á hækkunaráætlunum miðað
við breyttar forsendur til aö fjár-
hagsáætlanir fyrirtækjanna
standist?”
Farandverkafólk
Karl Steinar Guðnason hefur
beint eftirfarandi spurningu til
félagsmálaráðherra:
„Hinn 18. mars 1980 skipaði
félagsmálaráðherra nefnd til að
kanna gildandi lög og reglur um
kjör og aðbúnað farandverka-
fólks, þ.m.t. erlends farand-
verkafólks, hér á landi og gera
tillögur til úrbóta i þeim efnum.
1 fréttatilkynningu er frá þvi
greint, að nefndin skuli skila áliti
innan þriggja mánaða.
1) Hefur nefndin skilað áliti?
2) Ef svo er, hvaða tillögur ger-
ir nefndin til útbóta á málefnum
farandverkafólks, þ.m.t. erlends
farandverkafólks hér á landi?
Afkoma ríkissjóðs
Matthias A. Mathiesen hefur
beint eftirfarandi fyrirspurn til
f jármálaráðherra:
„Hvenær má vænta skýrslu
fjármálaráðherra um afkomu
rikissjóðs 1980, samkvæmt bráða-
birgðatölam rikisbókhalds?”
— Þ-
Tillaga 3 Sjálfstœðisþingmanna:
Verðbœtur af
námslánum
verði frá-
dráttarbœrar
Fjölmargar fyrirspurnir hafa
verið lagðar fram á Alþingi
siðustu daga. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir þessum fyr-
irspurnum.
Reglur um
skoðanakannanir
Alexander Stefánsson hefur
lagt fram fyrirspurn til forsætis-
ráðherra um almennar skoðana-
kannanir er hljóðar svo:
„Hvað liður undirbúningi að
setningu reglna eða laga um
almennar skoðanakannanir skv.
þingsályktan er samþykkt var á
siðasta Aiþingi 23. mai 1979?”
Könnun á
tekjuskiptingu
Jóhanna Sigurðardóttir hefur
beint eftirfarandi fyrirspurn til
félagsmálaráðherra:
„Hvað liður framkvæmd þings-
ályktunar um kannanir á tekju-
skiptingu og launakjörum sem
samþykkt var á Alþingi 28. aprii
1980?”
Lán til
ibúðabygginga
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
heíur beint fyrirspurn i þremur
liðum til félagsmálaráðherra um
lán til ibúðarbygginga. Fyr-
irspurnin er svohljóðandi:
,,1) Hvenær veröur skamm-
timalánum og lausaskuldum
vegna ibúðabygginga breytt i föst
lán til lengri tima?
2) Hvernig verður fjármagns
aflað til hinna föstu lána?
3) Hver verða kjör hinna föstu
lána: a) vextir, b) lánstimi?”
Húshitunaráætlun
Þá hefur Þorvaldur Garðar
beint eftirfarandi fyrirspurn i 4
liðum til iðnaðarráðherra um
húshitunaráætlun:
„D Hefur verið gerð húshit-
unaráætlun fyrir timabilið
1981—1983 um nýtingu innlendra
orkugjafa til húshitunar i stað
oliu,svosem gertskal samkvæmt
14. gr. laga um jöfnun og lækkun
hitunarkostnaðar, nr. 53 frá 28.
mai 1980?
2) Hvaða tillögur eru um
framkvæmdir i orkumálum, sem
nauðsynlegar teljast til þess að
sem flestir landsmenn búi viö
innlenda orkugjafa eða njóti orku
frá oliukyntri fjarvarmaveitu i
árslok 1983?
3) Hver er áætlaður kostnaður
framkvæmdanna?
4) Hvernig skiptast fram-
kvæmdirnar: a) milli ára, b) meö
tilliti til innlendra orkugjafa og
oliu til fjarvarmaveitna?”
Rikisábyrgð Flugleiða
Kjartan Jóhannsson hefur lagt
fram fyrirspurn til samgöngu-
ráðherra er hljóðar svo:
„Með hvaða hætti hafa Flug-
leiöir hf. efnt skilyröi þau, sem
sett voru við ákvöröun um heim-
ild til rikisábyrgðar v.egna
lðntöku fyrirtækisins?”
Þrir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt fram frum-
varp um breytingu á tekju- og
eignaskattslögum er varðar
skattaf rádrátt námsmanna.
Frumvarpiö felur i sér tvenns
konar breytingar og gerir fyrri
breytingin ráð fyrir aö námsfrá-
dráttur sem ekki nýtist meðan á
námistendur veröi frádráttarbær
eftir að námi lýkur. Segja flutn-
ingsmenn i greinargerö að I
mörgum tilvikum nýtist ekki
námsmannafrádrátturinn vegna
tekjuskorts.
Þá gerir frumvarpið ráð fyrir
að vextir og veröbætur af náms-
lánum verði frádráttarbær á
sama hátt og lán vegna húsbygg-
inga. Eins og kunnugt er þá eru
nú einungis vextir og verðbætur
erstafa af lánum vegna bygginga
eða kaupa á ibúðarhúsnæði, sem
koma til frádráttar tekjum. 1
greinargerð segja flutningsmenn
að vegna hertra endurgreiðslna
námslána sé ljóst að greiðslu-
byrði þeirra er ljúka langskóla-
námi eigi eftir að aukast og af
þeirri staðreynd taki frumvarpið
mið.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru Friðrik Sóphusson, Halldór
Blöndal og Matthias Á. Mathie-
sen.
— Þ
Þingmenn Vesturlands:
Graskögglaverksmiðja
verði í Borgarfirði
Þingmenn Vesturlandskjör-
dæmis hafa lagt fram á Alþingi
tillögu þess efnis að rfkisstjórn-
inni verði faliö að undirbúa þátt-
töku rfkisins f stofnun og rekstri
graskögglaverksmiðju i Borgar-
firði i samvinnu við heimaaðila.
I greinargerð með tillögunni
kemur fram að mikill og eindreg-
inn stuðningur er við þessa tillögu
meöal heimamanna. 1 greinar-
gerðinni kemur jafnframt fram
að nd eru starfandi 4 verksmiðjur
er sinna fóöuriönaði ieigu rikisins
auk einnar i einkaeign. Þá er i
undirbUningi bygging gras-
kögglaverksmiðju i Saltvik i
Suður-Þingeyjarsýslu og Hólmin-
um I Skagafirði.
A siðasta ári voru framleiddar
12548 lestir af graskögglum, 400
lestir af mjöli og 350 lestir af
graskögglum I þeim verksmiöj-
um er nU starfa. Heildarfram-
leiðsla af hraðþurrkuðu fóðri var
þvi 13208 lestir. Stjórnskipuð
nefnd hefur komist að þeirri
niðurstööu að auka beri afköst
hins innlenda fóðuriðnaöar i um
þaö bil 40 þúsund tonn árlega og
að æskilegt væri aö þvi marki yrði
náð 1990.
— þ