Þjóðviljinn - 19.02.1981, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. febrúar 1981.
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
vidtalid
Sauðar-
svipinn ég
þekki... .
Stefán hefur nú svaraö þessu
skensi meö svofelldri visu:
Uppruninn leynir sér ekki
— enn held ég vökunni.
Sauðarsvipinn ég þekki
sem er á stökunni.
Rætt við Ólaf E.
Stefánsson ráðunaut
Kjarn-
fóðurgjöf
minnkuð
miðað við
afurðir
— Jú, þaö helstust 12 kúabú úr
lestinni á sl. ári af þeim, sem
halda skýrslur. Ég hélt aö sú
fækkun yröi nú meiri. Svo mælti
Ólafur E. Stefánsson, naut-
griparæktarráöunautur er viö
inntum hann eftir skýrsluhaldi
nautgriparæktarfélaganna.
— Hvað berast ykkur skýrsl-
ur frá mörgum búum?
— Þau eru 877 og ef um félags-
bú er að ræöa þá teljum viö það
eitt bú.
— Hver er meðalbústærðin á
þessum 877 búum?
— Siðastliðið ár var meðalbú-
stærðin 24.5 kýr en árið 1979 var
hún 25.5 kýr. Fækkunin hefur
þannig að meðaltali orðiö 1 kýr
á bú og getur ekki talist mikið.
Ef við tökum út úr þær, sem við
köllum árskýr þar var meðaltal
þeirra á bú 1980 19.9 en var 20.8
1979. Þar er fækkunin sú sama,
eða sem svarar 1 kú. Meðalnyt
heilsárskúa 1980 var 3834 kg. en
árið áöur 3887 kg. Mismunurinn
er þannig 53 kg. á kú. Aftur á
móti hækkaði mjólkurfitan milli
þessara ára úr 4.16% 1979 i
4.21% 1980 og sú breyting kom
einnig fram hjá samlögunum.
En svo er það þetta með kjarn-
fóðurgjöfina, sem er dálitið
áhugavert, hún er 650 kg. núna
en var áður 881 kg. Og þá er það
meðaltalið yfir reiknaöar árs-
kýr, sem maður leggur nú
kannski meira upp úr. Þá var
mjólkin 3769 kg. en var árið áð-
ur 3809. Þarna munar réttum 40
litrum. Kjarnfóðurgjöfin i þessu
Ólafur E. Stefánsson
tilviki er ósköp svipuð, eöa 643
kg. á móti 870 kg. Þetta sýnir
nátturlega alveg glögglega að
kjarnfóöurgjöfin hefur stórlega
minnkað miðað við afurðir. Ég
geri ráð fyrir þvi, þó maður viti
það nú kannski ekki alveg, að
þessi minnkun verði mest siðari
hluta ársins og yfir sumarið. Og
kannski hefur kjarnfóðurgjöfin
hjá sumum bændum verið það
mikil að kjarnfóðrið hafi ekki
alveg nýst. Mér finnst þetta at-
hyglisverðar niðurstöður.
— Hvað helduröu að mjólkur-
framleiðendur á landinu séu
margar alls?
— Ég þori nú ekki að fullyrða
þaö alveg en þeir voru komnir
niður i 2500 minnir mig, fyrir
tveimur árum eða svo. En
þarna höfum við þó upp undir
900 bændur sem halda skýrslur
og þeir eiga meira en helming
kúnna i landinu. A þessum bú-
um er samdrátturinn ekki meiri
en hérhefur komið fram, hvern-
ig sem menn vilja skýra það. Og
hjá þessum mönnum er ekki um
mikla fækkun gripa að ræöa og
þá veröur maður nú eiginlega
að gera ráð fyrir þvi, að þeir
„Það er engin nögl á reiminni!”
Lengsti '.zebrahestur i heimi — eöa hvað? Nei. Höfuðið er á Dusty og
afturendinn á Smog, sem báðir eiga heima i dýragarðinum I Chess-
ington i Englandi.
hafi hreinsað úr það lélegra en i
staðinn verið með það mikið i
uppeldi, að það hafi vaxið upp i
sköröin þó að það sé ekki i fullu
samræmi við skýrslur um upp-
eldi árið áður. En almennt séð
finnst mér að segja megi, að
mjólkurframleiðendur hafi far-
ið afar mikið eftir þvi, sem um
var beðið. Og þegar þessu
marki er náð þá finnst mér að
bændur eigi að fá eins mikið fyr-
ir mjólkina og unnt er. Og þá á
ég við það, að mjólkurframleið-
endur standi ekki undir útflutn-
ingi á sauðfjárafurðum.
Mér sýnist að með þessu sé
nokkurnveginn náð jafnvægi
milli framboðs og eftirspurnar.
Og raunar held ég að það jafn-
vægi hafi verið fyrir hendi flest
ár hér áður, að þegar hætta
sýndistá þvi að 10% útflutnings-
uppbæturnar nægöu ekki að þá
svöruðu menn þvi þannig að
þeir drógu úr framleiöslunni.
Það var bara allra siðustu árin,
þegar fóðurbætirinn varð svona
ódýr, að þessi kraftur kom á
framleiðsluna.
— Þessar ráðstafanir, sem
gerðar voru til þess að draga úr
framleiðslunni hafa þá e.t.v.
verkað fljótar og meir en menn
hafa búist við?
— Já, ég býst viö þvi og eigin-
lega undarlega fljótt þvi undir-
búningurinn hefur sjálfsagt ekki
mátt styttri vera. Og málið fór
illa i ýmsa bændur i byrjun og
það er eiginlega fyrst núna sem
þeir vita hvernig þetta kemur
út, enda voru ýmsir óvissuþætt-
ir i þessu lengi vel.
—mhg
Hafa skaltu hugfast, aö eigi fýk-
ur þakið af húsi þínu tvisvar í
sama rokinu.
Hér var á dögunum birt visa,
sem ort var i tilefni erindis
Stefáns Aöalsteinssonar um
uppruna húsdýra á tslandi. Vis-
an var á þessa leið:
Komin er fram kenning snjöll
kosta hlaðin lindum,
i beinan karllegg erum öll
útaf norskum kindum.
Veðrið
Allir tala um veðrið, en enginn
gerir neitt við þvi!
Mark Twain
Þessi börn...
Borðsiöir:
— Hvað þarf ég að segja þér
oft aö borða ekki með hnifnum,
Siggi, segir mamma þreytt.
— Já, en mamma, gafallinn
iekur!
Það eru ekki allir sem hafa ráö
á einkaskíðakennara!....
Góði, hættu aö monta þig af þessu
tvöfalda beinbroti —eftir þvisem ég
veit best varstu meö gipsið þegar^
þú komst!
Skíðadellan - Ur dagbók Gunnu Jóns - IH
A leiö niður brekkuna komumst við aö raun
um, að stéttaskiptingin er lika við lýði I
skiöalandinu...
i barnum um kvöldið eru iþróttaafrekin
rædd og borin saman.......
Areynslan við hina göfugu iþrótt reyndist
hafa bagaleg áhrif á eiginmanninn...
(Teikningar Markúsar i ,,Stern”)
Ekki þarf mikið
til, að draumar
saklauss barns
gufi upp!