Þjóðviljinn - 26.05.1981, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐViLJINN Þriðjudagur 26. mal 1981
Við erum á efri svölum
Pavarotti:
Fæst við
fleira en
aríurnar
ttalska söngvaranum vinsæla
Pavarotti er ýmislegt fleira til
lista lagt en að sperra sig við
ariur. I fristundum sinum
heima hja pabba og mömmu i
Modena fæst hann t.d. við að
mála og þykir þónokkuð lið-
tækur við það verk.
A meðfylgjandi myndum sést
Pavarotti annarsvegar við trön-
urnar að mála verk sem er til
orðið fyrir áhrif frá hlutverki
hans í óperunni „Tosca” og
hinsvegar með foreldrunum i
Modena.
Helgi /
gegn \
lesendum
Hér heima er útigangsfólk
barasta á hrakhólum. Það er
einhver munur i New York segir
hann Arni Johnsen i Mogganum
sinum. Þar er, segir hann,
„slangur af útigangsfólki sem
villlifa útigangslifi”. Einhvers-
staðar er frelsi manna virt sem
skyldi!
viðtalió
Rætt við Þórgunni
Eysteinsdóttur
búfræðing
Skemmti-
legt og
fjölbreytt
nám
Bændaskólanum á Hvanneyri
var slitift fyrir skömmu, enda
ekki seinna vænna að senda
htífræðingana heim i sauð-
hurðinn eða til bústarfa, ætli
þeir sér ekki annað. Alls voru
brautskráðir54búfræöingar þar
af 14 stúlkur. Tvær þeirra dúx-
uftu og tókst Þjóðviljanum að ná
tali af annarri þeirra, Þórgunni
Eysteinsdóttur frá Arnarvatni í
Mývatnssveit, en hún hlaut
verðlaun frá Búnaðarsamband-
inu við uppsögn skólans.
— Það fréttist hingað suður
að þið hefðuð staðið ykkur vel
stelpurnar, er það í fyrsta sinn
sem konur ,,dúxa”?
Bændaskólinn á Hvanneyri.
„Nei, það hefur komið fyrir
áöur.”
— Hvernig er námið i Bænda-
skólanum, lagðir þú áherslu á
eitthvað sérstakt?
„Ég var i almennri búfræði i
einn vetur.en þetta var i siðasta
sinn sem boðið er upp á eins
vetrar nám. Hér eftir verður
það tvö ár. Við lærðum margar
greinar, en sumar þeirra eru nú
ekki efnismiklar. Það var m.a.
kennd liffræði, búfræði og bú-
stjórn, jarðrækt og fleira. Þetta
var fjiSbreytt nám og skemmti-
legt.”
— Ætlar þú að halda áfram
ná nt i?
„Ég get ekki haldið áfram i
bændaskólanum, það er ekki
boðið upp á framhald, nema
fyrir þá sem hafa stúdentspróf,
þeir kom ast i búvisindadeildina.
Það kemur vel til greina að fara
i eitthvert nám t.d. garðyrkju”.
— Kunnirðu ekki vel við þig á
Hvanneyri?
„Jú, þarna var gott félagslif
og gott að vera.
— Hvað er svo framundan,
ætlaðu að taka við búi á Amar-
vatni?
„Það verður nú ekki i nánustu
framtið hvað sem siðar gerist. i
sumar ætla ég að vinna á
hótelinu i Reynihlið, en sé svo til
hvað verður.”
—ká
Ný von fyrir þá sem
fá brunasár:
Húðlíki -
unnið úr
hákörlum
m.a.
Ar hvert deyr mikill fjöldi
fólks af völdum eldsvoða i ver-
öldinni og of oft, að þvi er
læknar álita, vegna þess að svo
mikill hluti húðarinnar brennur
að li'fsnauðsynleg likamsstarf-
sem truflast. Mikilvægur vökvi
gufar upp og varnir likamans
gegn bakterium verða sára-
Iitiar. Til að koma i veg fyrir
þetta hafa læknar reynt að
græða yfir brunasárin skinn af
ósködduðum likamshlutum
sjúklingsins, en oft er svo litið
eftir að það er ekki nóg og þá
verða þeir að notast við húö af
svinum eða nýlátnu fólki. En
yfirleitt er reynslan sú, að
likaminn afneitar þessum utan-
aðkomandi vefjum eftir 3—25
daga. Akjósanlegasta lausnin
væri að finna upp e.k. gervi-húð,
en þvi marki hefur visinda-
mönnum ekki tekist að ná, þar
tii nú fyrir u.þ.b. mánuði siöan
aö hópur visindamanna á rann-
sóknarstofu i Boston lýsti yfir,
að þeir hefðu með góðum
Ilér sýnir visindamaður okkur
húðlfkiö.
árangri búið til skinnliki úr
frumlegri blöndu: nautgripa-
húð, hákarlabrjóski og plasti.
Húðliki þetta hefur verið
notað á 10 sjúklinga á aldrinum
3—60 ára. Allir voru þeir með
þriðja stigs brunasár á 50—90%
af yfirborði likamans. 16 mán-
uðir eru liðnir siðan húðliki var
grætt á fyrsta sjúklinginn og
likamsstarfsemi hefur ekki hjá
neinum þeirra afneitað þvi, né
hefur sýking myndast við
igræðsluna. Varnarkerfi
likamans virðist þannig ekki
bregðast við húðlikinu sem
utanaðkomandi efni, og óþarft
er að gefa sjúklingunum lyf þar
að lútandi. Auk þess verður litið
um ör eftir að sárin eru gróin.
Gerð húðlikis er enn á til-
raunastigi og meiri rannsóknir
og visindalegar tfiraunir þarf að
gera áður en það verður fáan-
legt viða um heim.
(SnaraðúrTime)
Nær 20%
grunn-
skólanema
skráðir í
KFUM
ogK
1 fréttabréfi biskupsstofu er
birtur samanburður á fjölda
þátttakenda i starfi KFUM og K
og fjölda nemenda i grunn-
skólum (7—15 ára) i starfs-
hverfum samtakanna i Reykja-
vik og bæjum á Reykjanesi.
Niðurstöður eru að i Reykjavík
eru 19,3% af grunnskólanemum
skráðir i KFUM og K og 13,0%
virkir þátttakendur i starfinu. í
nágrannabæjunum Garðabæ,
austurhluta Kópavogs, Sel-
tjarnarnesi, Keflavik og Sand-
gerði eru 24,4% skráðir og 14,5%
virkir. Athygli vekur mikil þátt-
taka grunnskólanemenda i
Sandgerði, en þar eru 52,5%
skráöir og 34% virkir i sam-
tökunum.
Molar
Listin að vera hamingju-
samur er fólginn i þvi að hugsa:
Verra gæti það verið!
Le Liweng
Sá sem ekki leyfir sér stund-
um að vera latur getur ekki
verið frjáls maður.
Cicero
Allir voru lesendur sammála
um leikinn 30. b7xa6 enda kom
vart annaft til greina. Helgi
svarar með 31. Hbl-el og þrýstir
nú óþægilega á riddarann á e7.
n
<
Q
O
Þh
- y -i -
Zú ðefur heirrt að \
bestiujörðin zeefur /
zent zapparat J )
zhingað? J *
zhérna zá mánan?
/ýzjá, og klikk klik-
II zmyndaapparat ztil