Þjóðviljinn - 26.05.1981, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 26. maí 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Hríngiö í síma 81333 kl. 9—5 alla virka daga, eða skrífið Þjóðviljanum
frá lesendum
Stóriðj uskrýmslið
Orkumál þjóðarinnar eru nú i
brennidepli, eftir að Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra
lagði fram á Alþingi langtima-
áætlanir sinar i raforkumálum
þjóðarinnar.
1 þessum áætlunum sinum
gerir ráðherrann ráð fyrir þvi i
stuttu máli, að islenskt frum-
kvæði verið i orkufrekum
iðnaði, og virkjað vatnsafl verði
tvöfaldaö á næstu 10-15 árum,
sem orkufrekan iðnað nefnir
ráðherrann m.a. magnesium,
pappir, oliuhreinsun o.s.frv. Þá
sagði ráðherrann ennfremur að
rikisstjórnin myndi leggja
áherslu á að um islensk fyrir-
tæki yrði að ræða, en á hinn bóg-
inn yrði nauðsynlegt að hagnýta
sér erlenda tækniþekkingu, og
jafnvel gæti markaðssamvinna
við erlenda aðilja verið æskileg.
Þannig var frá þessu sagt i
fjölmiðlum, og það var lesið og
hlustað, og ekki bar á öðru en að
fólk tæki þessu vel, nú ætti loks-
ins að gera stórátak og lang-
timaáætlanir i raforkumálum
og hafa annan háttinn á en
þegar lagt var t.d. út i Kröflu-
ævintýrið sællar minningar. En
hvað skeður þá? Rýkur þá ekki
allt i einu upp eins og hundur
Sverrir Hermannsson, og
byrjar að spangóla og heimta að
iðnaðarráðherra fari frá vegna
svika við þjóðina? Og hver
skyldu nú þessi svik vera? Þau
eru i stuttu máli, að ráðherrann
vill ekki láta reisa 20 álver eða
eitthvað álika stóriðjugums, og
afhenda útlendingum orkulindir
þjóðarinnar, sem heitir hins-
vegar á máli þeirra stóriðju-
manna: „Stórhuga atvinnulif
með frjálsu einstaklingsfram-
taki”, þ.e. að þjóðin fái að reyna
krafta sina með aðferðum
frumskógarins.
Eiga landsmenn i alvöru að
trúa þvi að Sjálfstæðisflokkur-
inn, eða réttara sagt „Geirs-
brotið” vilji afhenda orkulindir
þjóðarinnar útlendum auð-
hringum i formi stóriðju með
svipuðum afleiðingum og þegar
Alverið i Straumsvik var reist,
og sjálfstæði þjóöarinnar raun-
veruiega skert með þeim
smánarsamningi.
Þaö væri þokkalegt aö fá inn i
landið 20 önnur fyrirtæki á sama
taxta fram að aldamótum.
Þetta minnir óneitanlega á
Suður-Ameriku og önnur lönd,
þar sem auðhringarnir valsa
um auðlindir þessara þjóða eftir
vild sinni, þar sem þeir riku
verða rikari og fátæku fátækari.
Er þetta það ástand sem Sverrir
Hermannsson vill leiða yfir þjóö
sina, þar sem hann sat á hús-
burstinni og spangólaöi að Hjör-
leifi Guttormssyni og rikis-
stjórninni?
Þau fyrirtæki, sem þjóðin
reisir með sinni dýrmætu orku,
eiga að vera undir. isl. hús-
bóndavaldi. Hinsvegar eigum
við að sjálfsögðu aö hagnýta
okkur erlenda tækniþekkingu
þar sem skortir hjá okkur, og sá
sjálfsagði varnagli sleginn að
hagkvæmur markaður verði
fyrir orkuna i fyrirtækjum er
lúti islensku forræði.
Að athugun slikra iðnaðar-
kosta er nú unnið út frá isl.
Pennavinur
Blaðinu hefur borist bréf frá
pólskum stúdent Grzybowksi
Artur að nafni. Hann óskar eftir
þvi aö eignast pennavin á Is-
landi. Hann er 18 ára og hefur
mikinn áhuga á tónlist, rokki og
poppi, og hefur hann sérstakt
dálæti á Bitlunum. Hann getur
skrifað á ensku, rússnesku og
pólsku.
Þeirsem haf a áhuga, vinsam-
legast skrifið til,
GRZYBOWSKIARTUR
UL: Wygoda 6
PL. -32-020 Wieliczka
Poland.
forsendum, og J>á einnig höfð i
huga dreifing sliks iðnaðar, ekki
siður en virkjanir eins og segir i
viötali við iðnaðarráðherra i
Þjóðviljanum nýlega.
Andstæðingar þessa frum-
varps telja þvi býsna margt til
foráttu. Þaö sé allt of seinvirkt,
og hvað eigi svo aö gera viö alla
þessa orku, þegar hún loksins er
komin i gagnið? Væri ekki nær
að drifa þetta af sem fyrst, láta
erlenda auðhringi um þessar
framkvæmdir fyrir okkur með
sinu ótakmarkaða auðmagni?
Og þá um leiö að losa okkur við
framleiðsluna?
Þetta segja stóriðju-
mennirnir. Auövitað þurfum við
að losna við okkar framleiðslu
og það á hagstæðum kjörum, en
með þvi að fara i kjaftinn á
hringavaldinu veröum við
aldrei annaö en fátækir þrælar
þeirra herra, þrátt fyrir það
land sem við búum i og þau lifs-
gæði sem það hefur upp á að
bjóða.
Það sem við verðum að leggja
áherslu á i framtiðinni er aö
selja orkuna sem mest úr landi i
unnum vörum, eignast harða og
duglega sölumenn sem vinna
okkur nýja markaði, ekki ein-
ungis á okkar gömlu mörkuðum
heldur lika á svæðum þriðja
heimsins þar sem þjóðirnar eru
smám saman að rétta úr
kútnum til vaxandi velmegunar
og sjálfstæðis. Þannig eigum við
að flytja út þá hættu sem af at-
vinnuleysi stafar, og vissulega
gæti komið i vaxandi tölvu-
væddum heimi hringavaldsins,
ef við gætum ekki að okkur.
Það er þannig sem við eigum
að standa að okkar dýrmætu
orkulindum. Nýta þær fyrst og
fremst i okkar þágu, en ekki
1 á t a n e i n
STÓRIÐJUSKRÝMSLI hræða
okkur, og standa á okkar eigin
fótum sem sjálfstæð þjóð.
Páll Hildiþórs.
VOR
Hér sendi ég sögu eftir
mig/ sem heitir Vor. Svo
sendi ég líka teikningu
um vorið og sumarið.
Einu sinni var strákur
sem hét Pétur. Hann átti
heima í húsi með garði.
Hann var að leika sér á
grasinu við húsið sitt.
Skýin voru hátt uppi á
himninum. Hann sagði:
Bara að Anna komi til
mín að leika sér. Og þá
kom Anna. Hún átti
heima í rauðu húsi með
Ijósrauðri hurð. Sólin
skein beint í augun á
henni. Pétur fór að leika
sér við hana og þau fóru í
marga leiki og sólin
skein.
Andrea Hólm
Fífuseli39
7 ára ísaksskóla
Barnahornid
Kvöldvaka
A kvöldvökunni i kvöld
verða tekin fyrir tvö efni,
annars vegar þáttur sem nefn-
ist: „ÞU vorgyðja svifur úr
suðrænum geim”, 150 ára
minning Steingrlms Thor-
steinssonar skálds. Gunnar
Stefánsson tók saman dag-
skrána og talar um skáldið.
Elva Björk Gunnarsdóttir les
úr ljóðum Steingrims og Axel
Thorsteinsson rekur minn-
ingar um fóður sinn.
Ennfremur verða sungin lög
við ljóð skáldsins.
Og hinsvegar verður flutt
dagskrá sem nefnist:
„Sumardagur á Höfn i Horna-
firði fyrir hálfri öld”. Torfi
Þorsteinsson I Haga segir frá
og Baldur Pálmason les.
Útvarp
kl. 20.20
Steingrimur Thorsteinsson
skáld
Litli barnatíminn
I útvarpi kl. 17.20 er litli
barnatiminn i umsjá Sigrúnar
Björgu Ingþórsdóttur.
Margrét Lilja Guðmundsdótt-
ir niu ára segir frá kúnum i
sveitinni og les söguna um
Anægða—Pétur og ön-
uga—Pétur úr bókinni
„Amma, segðu mér sögu” eft-
ir Vilberg Júliusson.
Útvarp
%/|# kl. 17.20
Jónas Haralz Hjalti Kristgeirsson
Stefna Milton
Friedmans
1 sjónvarpi i kvöld kl. 21.50
mun ögmundur Jónasson
fréttamaður stjórna umræðu-
þætti sem ber heitið: „Stefna
Miltons Friedmans og
reynslan af henni”. 1 umræðu-
þættinum taka þátt þeir Hjalti
Kristgeirsson hagfræðingur
og Jónas Haralz bankastjóri.
Undanfarnar vikur hafa
verið sýndir i sjónvarpi þættir
um kenningar Miltons Fried-
mans sem báru yfirskriftina
„Frelsi til að velja” og kemur
þessi umræðuþáttur i kjölfar
þeirra þátta. Vafalaust verður
allfróðlegt að heyra hvað
þessir tveir hagfræðingar hafa
um málið að segja og nokkuð
öruggt að þeim mun bera eitt-
hvað á milli um ágæti frjáls-
hýggjunnar.
jO> Sjónvarp
‘'CT kl. 21.50