Þjóðviljinn - 27.05.1981, Page 10
10 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Miðvikudagur 27. mai, 1981
Vinnu-
vernd
Er vinnuvernd tiskufyrirbæri
eða nauðsynleg viðbrögð við
breyttum aðstæðum. Hvað er
vinnuvernd og hvaða hliöar vinn-
unnar eru kannaðar?
Þessum spurningum er reynt
að svara i bæklingi sem þeir Ari
Skúlason, Einar Baldvin Baldurs-
son og GylfiPállHersirhafatekið
saman. Bæklingurinn tengist
vinnuverndarkönnun sem iðn-
aðarmenn eru nú að gera, en
hann ætti að veita öllum sem
áhuga hafa upplýsingar um eðli
og viðfangsefni vinnuverndar.
1 inngangi kemur fram að
meðalaldur karlmanna fer nú
lækkandi, eftir að hann hafði f arið
stöðugt hækkandi fyrri hluta
aldarinnar. Dánartiðni 40 ára
karla í Danmörku hefur aukist
um 20% siöasta áratug. Orsak-
anna er m.a. að leita til vinnu-
slysa og sjúkdóma sem efna-
mengun og vandamál henni tengd
leiða af sér.
Viðfangsefni vinnuverndar eru
greind f fjóra flokka: Vinnuálag,
óheilnæm vinnuskilyrði, mengun
á vinnustað og streita. 1 bækl-
ingnum er fjallað um þessa
flokka og heilsutjón semaf þeim
leiðir. Sagt er frá Exposymálinu i
Danmörku, sem er dæmi um
miklar deilur sem urðu vegna
hættulegs efnis sem nota er i iðn-
aði. Um streitu er sagt að helstu
orsakir séu launaform, t.d. akk-
orð og bónus, vinnubrögð t.d.
hraði, vinnutimi, vinnuumhverfi,
og skipulagning vinnunnar. Það
kemur fram að vaktavinna sé
talin einn versti streituvaldurinn.
Hún truflar eðlilega hrynjandi
likamans, og samskipti fólks
verða erfiðari við sitt félagslega
umhverfi. Vaktavinnufólk hefur
fleiri veikindadaga en aðrir, en
það leitar sjaldnar til læknis. 1
bæklingnum segir að baráttan
gegn streitu (sem er mjög algeng
meðal verkafólks og reyndar
annarra) sé fyrst og fremst bar-
átta fyrir breytingum á vinnu-
staðnum, fyrir styttingu vinnu-
timans og breyttri skipulagningu
vinnunnar. Gegn mengun — fyrir
heilsugæslu, sem miðast við
þarfir verkafólks.
Verkalýðsfélögin munu sjá um
að dreifa bæklingnum til sinna
félagsmanna. — ká
Formleg
próf í
fyrsta sinn
Tónlistarskóla Skagafjarðar-
sýslu var siitið sunnudaginn 3.
mai s.l. i fimmta sinn. Þar komu
fram nemendur og létu einleik og
samleik á pianó, gitara og blokk-
flautur. Á efnisskrá voru iög eftir
Clementi, Bach, Beethoven,
Strauss ofl. höfunda. Einnig söng
Karlakórinn lleimir nokkur lög.
Kennsla á vegum skólans fer
fram á sex stöðum, en kennslu-
svæðið nær frá Fljótum i Skaga-
firði og hringinn að Sauárkróki.
Nemendur hafa verið frá 120—160
ár hvert.
1 ár tóku allmargir stigspróf við
skólann og er það i fyrsta skipti
sem formleg próf eru tekin við
hann. Stigsprófin nú voru forstig,
1. stig og 2. tig. Við próf er lögð
til grundvallar námsskrá útg. af
menntamálaráðuneytinu og hefur
verið kappkostað að fylgja henni'
sem ýtarlegast. Prófdómarar
voru þeir Gjuðjón Pálsson og Elias
Þorvaldsson, báðir frá Siglufirði.
Skólastjórinn er Ingimar Pálsson
en kennarar auk hans Einar
Scliwaiger, Anna Jónsdóttir,
Guðni Björnsson og Margrét
Jónsdóttir.
Við skólaslitin kom fram, að
Ingimar Pálsson, sem hefur verið
skólastjóri frá þvi að skólinn tók
til starfa, hefur fengið leyfi frá
störfum til að stunda framhalds-
nám á Italiu næsta skólaár. Hefur
hann falið Einari Schwaiger
pianókennara að annast störf þau
er að faglegri stjórnun skólans
lúta, en Margrét Jónsdóttir mun
annast önnur störf skólastjóra. I
haust kemur væntanlega að
skólanum tékkneskur kennari,
Jiri Hlavacek að nafni.
Frá skólaslitum F jölbrautaskólans I Breiðholti I Bústaöakirkju á föstudag.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
163 nemendur brautskráðir
Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti var slitið í
Bústaðakirkju föstudaginn
22. maí en hann hefur nú
starfað í rétt sex ár. Nem-
endur voru 1421 að tölu sl.
skólaár og brautskráðust
nú 163/ en stúdentsprófi af
fjögurraára brautum lauk
71 nemandi. Stúdenta-
hópurinn skiptist þannig
eftir sviðum: almennt bók-
námssvið 28/ heilbrigðis-
svið 6/ Iistasvið2/ uppeldis-
svið 4/ viðskiptasvið 31/ en
Alma Kobbelt
Þrátt fyrir ys og þys i
Bústaðakirkju á föstu-
dag tókst okkur — gei að
króa af nokkra ný-
stúdenta frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti.
Fyrst stoppuðum við ölmu
Kobbelt, sem hafði, eins og
skiljaniegt er, um annað aö hugsa
en tala við blaðamenn. Hún gai
sér þó tima til að segja okkur að
hún hefði brautskráðst af viö-
Þóra Þórisdóttir og Hildur systir hennar.
skiptasviði og ætlaöi sér i meina-
tækni.
Tveir ungir menn voru i óða önn
að bera saman bækur sinar i einu
horninu i anddyrinu. Þeir reynd-
ust vera fráíarandi og væntanleg-
ur formaður nemendafélagsins
og voru að undirbúa formanns-
skiptin. Sá fráfarandi heitir
Gunnar Baldvinsson og var aö
brautskrást að viöskiptasviði, en
hann var rokinn áður en ráðrúm
vannst til að spyrja hann um
framtíðina. Hinn nýi formaður
nemendafélagsins er Egill Ólafs-
son og stundar nám á bóknáms-
sviði. Hann sagði aö formanns-
starfið væri umsvifamikið, um
1400 nemendur væru i skólanum
og þátttaka þeirra i félagslifinu
góð yfir heildina.
— Kemur formannsstárfið ekki
niður á náminu?
— Jú, sérstaklega i byrjun þeg-
ar maður er að komast inn i þetta
alltsaman. En ég var búinn að
gera ráð fyrir þvi og ætla mér
bara lengri tima; ætli ég braut-
skráist ekki héðan eftir svona eitt
og hálft ár.
Nýr formaður nemendafélagsins
og sá fráfarandi, Egill ólafsson og
Gunnar Baldvinsson.
Síðast náðum við i Þóru Þóris-
dóttur þar sem hún kom ásamt
Hildi systur sinni til skólaslit-
anna.
— 1 hvaða námi varst þú?.
— Félagsfræði.
— Og hvað með framtiðina?
— Ekkert ákveðið með það —
jú, jú, ég ætla að halda áfram i
námi, en hef ekki ákveöið hvar.
Og þar meö var Þóra farin, enda
klukkan orðin 5 og athölnin að
byrja.
— A
enginn stúdent braut-
skráðist af hússtjórnar-
eða tæknisviði að þessu
sinni. Bestum árangri náði
Einar Malmberg af við-
skiptasviði/ stjórnunar-
braut hlaut 154 einingar.
Tveir fyrstu læknaritararnir,
sem hlotið hafa menntun á
íslandi, brautskráöust nú frá FB.
Aðrar nýjungar við skólann,
báðar tengdar hússtjórnarsviöi,
eru grunnnám i matvæla- og
mannelsisfræðum, sem metið
verður til styttingar á iðnnámi i
matreiðslu og til 75% styttingará
iönámi i framreiðslu. Þá hefur
heilbrigðisráðuneytið gefið út
reglugerö um réttindi og nám
matartækna. Er þar veitt full
viöurkenning þriggja ára náms-
braut hUsstjórnarsviðsins. Einnig
hófst þetta skölaár reglubundin
fullorðinsfræðsla við FB og inn-
rituðust 230 nemendur á 3 náms-
svið: listasvið, tæknisvið og viö-
skiptasvið.
Byggingarframkvæmdir
Tveir merkir áfangar náðust i
byggingarframkvæmdum við FB
á nýliðnu skólaári. Lokið var við
sundlaugar skólans og fullgeröur
stór áfangi i félagsaðstöðu nem
enda á jarðhæð sundlaugarbygg-
ingarinnar, I Undirheimum. Þar
er 500 fermetra rými ætlað til
matsölu og félagsstarfsemi og
mun það I framtiðinni verða
aukið um helming. Þá hefur
borgarstjórn samþykkt að bygg-
ing iþróttamannvirkis verði
forgangsverkefni og byrjað á þvi
eins fljótt og auðið er. Nýlega
hefur svo verið boðin út E-álma
Fjölbrautaskólann, sem er höfuð-
bygging hans og mun tengja þær
Utálmur sem þegar hafa verið
byggðar. Fyrra framkvæmda-
stigi á að verða lokið að mestu i
mars ’82.
—A