Þjóðviljinn - 10.06.1981, Qupperneq 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILjrNN Miðvikudagur' 10. júni 1981
Atli á
skotskóm
Atli Eðvaldsson skoraði eitt
fjögurra marka Borussia Dort-
mund þegar liöiö sigraði Ein-
tracht Frankfurt, 4-0, í Bunde-
sligunni vestur-þýsku um helgina
siðustu. Þess má geta að Frank-
furt-liðið er núverandi bikar-
meistari. Mark Atla var annað i
röðinni
Borussia Dortmund á nú i
harðri keppni viö Borussia
Mönchenglabach um sæti i
UEFA-keppninni á næsta
keppnistimabiji. Liðin mætast um
næstu helgi og fæst þá úr þvi skor-
ið hvort þeirra hnossiö hreppir.
íþróttír (3 íþróttir fg íþrottir
/•V
staðan
Staðan i 1. deildinni eftir
sigurleik Breiðabliks gegn Vik-
ingi i gærkvöldi (1-0) er þannig:
Valur .... .5 3 1 1 12-5 7
Vikingur.. .5 3 11
Breiöabíik.5 2 3 0
ÍBV........5 2
ÍA.........5 2
KA.........4 2
Fram .....5 0
KR.........5 1 1
Þór ......4 1
FH.........5 0
6-3
Skagamenn
útreið gegn
fengu slæma
V alsmönnum
Öllum á óvart tóku Valsarar Skagamenn i
karphúsið þegar liðin mættust á Skaganum sið-
astliöinn laugardag, sigruðu 4-0. Valsmennirnir
áttu slakan leik gegn KA og var búist við þvi að
þeir yrðu harðskeyttu liði ÍA auöveld bráð, en
annað varð uppi á teningnum...
Heimamenn voru öllu atgangs-
harðari i byrjun og á 16. min
fengu þeir sannkallað dauðafæri.
Kristján óð upp kantinn, gaf fyrir,
en skot Guðbjörns hafnaði i þver-
slá. Skömmu seinnna fór gott skot
Sigþórs rétt yfir Valsmarkið.
Mattias Skagamaöur
Hallgrimsson lék sinn
fyrsta leik á tslands-
mótinu I ár með Val á
Akranesi og skoraöi
eitt mark.
Næstu minúturnar voru eintómur
þæfingur i vallarmiðjunni og ekk-
ert um almennileg marktækifæri.
Það kom þvi eins og þruma úr
Akranes...O
Valur.....4
heiðskiru lofti þegar Matthiasi
tókst að skora fyrir Val á 35. min.
Sigurður Lárusson hugðist
senda knöttinn aftur til Bjarna,
en Matthias var fljótur að átta
sig, náði knettinum, lék á Bjarna
og skoraði, 1-0.
Jafnræði hélst með liðunum
áfram i seinni hálfleiknum, en
þegar um 18 min voru til leiksloka
opnuðust skyndilega allar flóð-
gáttir i vörn Akurnesinganna.
Knötturinn barst til Þorgrims
Valsara Þráinssonar rétt utan
teigs 1A. Þorgrimur var ekkert að
tvinóna við hlutina og þrumaði
boltanum viðstöðulaust i Skaga-
markið, 2-0. Nú tók Valur öll völd
á vellinum og sótti án afláts. Þor-
steinn Sigurðsson fetaði i fótspor
félaga sins Þorgrims á 80. min og
skoraði með laglegu langskoti, 3-
0. Á lokaminútunni var Þorsteinn
aftur á ferðinni þegar hann
renndi sér i gegn um Skagavörn-
ina og upp að endamörkum. Hann
renndi boltanum siðan á Val
Valsson, óvaldaðan á markteig,
og Valur átti ekki i ýkjamiklum
erfiðleikum með að skora, 4-0.
Akurnesingarnir eru i daufara
lagi þessa dagana, hafa ekki náð
sér fyllilega á strik siðan þeir
burstuðu Eyjamenn fyrir nokkru.
Reyndar var ósigurinn gegn Val
alltof stór, en ÍA-liðið gaf illa eftir
i lokin. 1 leiknum gegn Val stóð
Jón Alfreðsson sig ágætlega og
eins var Kristján Olgeirsson
sterkur að venju.
1 jöfnu Valsliði bar einna mest á
Sigurði markverði, Dýra og Þor-
steini, sem átti sinn besta leik
með Val það sem af er árinu.
—IngH
ÍBK með „fullt hús"
Keflvikingar héldu sinu striki i
2. deildinni í fótbolta á laugardag-
inn. Þeir lögðu þá Skallagrim að
velli og er IBK nú með fullt hús
stiga.
Skallagrimsmenn sóttu mjög
undan golunni i fyrri hálfleiknum,
en fengu samt á sig mark i byrjun
leiksins. Óli Þór Magnússon var
felldur innan vitateigs og úr vit-
inu skoraði Sigurður Björgvins-
son. Skömmu seinna jafnaði
Björn Jónsson fyrir Borgarnes-
liðið, 1-1.
Jafnræði var með liðunum i
seinni hálfleiknum, en Skalla-
grimur átti þó öllu hættulegri
færi. Undir lokin urðu markverði
Skallagrims á mistök, missti frá
sér knöttinn og Öli Þór skoraði
sigurmark Keflvikinga, 2-1.
— IngH
Reynir nældi
Keynismenn úr Sandgerði
kræktu sér i 2 dýrmæt stig norður
á Húsavik um helgina þegar þeir
sigruðu Völsung, 1-0. Ómar
Björnsson skoraði mark-ið
skömmu fyrir leikslok eftir mikla
sóknarhrinu Völsunganna.
tvö stig
Leikurinn var fremur jafn
lengstum, en Völsungar tóku öll
völd i sinar hendur eftir að einum
Reynismanna hafði verið visað af
leikvelli, en það dugði ekki til...
- IngH
Hagur Englendinga
vænkaðist verulega
— í HM-keppninni eftir sigur
gegn Ungverjum
Trevor Brooking átti stórleik með
enska liðinu I Ungverjalandi og
skoraði 2 mörk.
Vonir enskra um að komast i
úrslitakcppni HM f fótbolta á
Spáni fengu byr undir báða vængi
siðastliðinn laugardag þegar þeir
lögðu Ungverja að velli i
Budapest, 3-1. Möguleikar Eng-
lendinganna virtust ekki lengur
til staðar cftir ósigur þeirra gegn
Sviss, en fljótt skipast veður i
lofti.
West Ham-leikmaðurinn
Trevor Brooking náði forystunni
fyrir enska á 19. min þegar laust
skot hans hafnaði i stöng og inn,
1-0. Undir lok fyrri hálfleiks tókst
Ungverjum aö jafna og var þar að
verki miðherjinn Garbar.
Brooking náði aftur forystunni
fyrir England um miðbik seinni
hálfleiks, skoraði með glæsilegu
langskoti, 2-1. A 73. min var
dæmd vitaspyrna á Ungverja
þegar Keegan var brugöið innan
teigs. Keegan tók sjálfur spyrn-
una og skoraði af öryggi, 3-1.
Ron Greenwood, einvaldur
enska liösins, var að vonum
ánægöur meö sina menn aö leiks-
lokum og sagöist alltaf hafa full-
yrt að England yrði með i úrslit-
um HM og þar myndi liðið verða.
Hann gerði nokkrar breytingar á
liði sinu fyrir leikinn gegn Ung-
verjum, setti Neal, McDermott,
Thompson og Brooking inn i stað
Francis, Sansom, Osman og
Wilkings, sem allir léku gegn
Sviss. Enska liðið var annars
þannig skipað: Clemence, Neal,
Mills, Watson, Thompson,
Coppell, McDermott, Robson,
Brooking, Mariner og Keegan.
Staðan i riðlinum er þannig:
England ........63 12 11—6 7
Rúmenfa..........5 2 2 1 4—3 6
Ungverjaland .... 4 2 1 1 6—6 5
Sviss............4 1 1 2 6—7 3
Noregur..........5 1 1 3 4—9 3
Standard
varð
bikar-
meistari
Lið Asgeirs Sigurvinssonar,
Standard Liege, tryggði sér um
helgina sigur i bikarkeppninni i
Belgiu þegar liöið lagði Arnór
Guðjohnsenogfélaga i Lokeren aö
velli, 4-0. Leikurinn fór fram á
Heyssel-leikvanginum i Brílssel
að viöstöddum um 50 þúsund
áhorfendum.
Asgeir varð fyrir þvi óhappi i
byrjun leiksins aö meiðast á hné
og þurfti hann að yfirgefa leik-
völlinn. Lokeren náði fljótlega
undirtökunum. Pólverjinn
Lubanski átti kollspyrnu i stöng
og leikmenn Standard björguöu á
linu. Þvert gegn gangi leiksins
skoraði siðan Standard og var þar
að verki Sviinn Ralf Edström, 1-0.
Leikmenn Lokeren létu mót-
lætið ekki á sig fá og klóruðu i
bakkann. í upphafi seinni hálf-
leiks skoraöi siðan Daeren annað
mark Standard og þá upphólst
einstefna á mark Lokeren.
Nokkru seinna var dæmd vita-
spyrna á Lokeren og úr spyrnunni
skoraði Tahamata. Siðasta mark-
ið skoraði Onal, 4-0. Stórsigur
Standard i höfn.
Arnór Guðjohnsen var ekki i
byrjunarliði Lokeren i þessum
leik, en kom inná um miðbik
seinni hálfleiks og stóð sig ágæt-
lega.
Vegna meiðslanna er fremur
óliklegt aö Asgeir leiki á Laugar-
dalsvellinum 17. júní eins og til
stóð, en það mál mun væntanlega
skýrast innan tíöar.
Standard Liege sigraöi I slag Is-
lendingaliöanna I Belglsku bikar-
keppninni. Ásgeir bar sigurorö af
Arnóri...