Þjóðviljinn - 19.06.1981, Síða 2

Þjóðviljinn - 19.06.1981, Síða 2
, z SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. júní J981 KÆRLEIKSHEIMÍLIÐ vidtalid Þau hljóta að vera að stækka. Það þarf ekki að ýta þeim lengur. Kirkjuþing í Finnlandi: Deilt um fóstur- eyðingar A kirkjuþingi sem haldiö var i Turku i Finnlandi á s.l. hausti höfðu allmargir karlkyns ræöu- menn gagnrýnt harðlega konur sem krefjast frjálsra fóstureyð- inga og m.a. kallað þær morö- ingja. Mikko Juva, erkibiskup, (evangelisk-lúterskirkjan) tók á þinginu svari kvennanna og likti ræðumönnum við gamlar striðshetjur. Hann sagði að menn sem hefðu drepið i striði heföu engan rétt til að kalla þær konur morðingja, sem af ýms- um neyðarorsökum hefðu látið framkvæma fóstureyðingu. Sagði erkibiskupinn að sin meg- inhugsjón væri að tala máli þeirra sem minna mættu sin, þeirra sem beöið heföu skipbrot og jæirra sem gagnrýndir væru af hinum sterku og sí-kfelldir af siðapostulum. (Fréttabréf biskupsstofu) Þjóðhátiöarleikur ykkar var 42... —Hb5, og þvi svarar Helgi með 43. d5. Þiö eigiö leikinn. Hringið á morgun, fimmtudag, i sima 81333, milii kl. 9 og 18. FÚÚÚ....A ekki einhver is? Æ, þessar töflur.. Þessi blaðaúrklippa úr Morgun- blaðinu frá þvi um helgina er ansi töflufróð. BLÖO OQ TÍMARIT Ægir, rit Fiskifélagsins, 5. . tölublað þessa árs er komið f út. — í Ægi er að þessu sinni' að finna margar töflur varð- an'dl fiskana, hagnýtingu hans og aflaverðmæti, fram leiðslu sjávarafurða ofl. Eru essar töflur margar. Að iessu sinni er Ægir alls um 50 síður. Má heita að blaðið sé jagt undir þessar töflur. Er í>ar að sjálfsögðu míikinn i Rætt um skipulagsmál við Anniku Almquist og Miu Björk á ráðstefnu norrænna félagsfræðinga Eru óskir kvenna hunds- aðar? Það þarf ekki að fara i neinar grafgötur með það að hiugað til hafa konur haft ákaflega litið að segja til um það hvernig nán- asta umhverfi þeirra og fjöl- skyldunnar litur út og hvaða möguleika til heilbrigðs lifs um- hverfið hefur upp á að bjóða. Skipulagsmál eru ekki talin til svokallaðra „kvennamála ”. Þar eru karlar einráðir og raun- ar ekki hvaða karlar sem cr, heldur fyrst og fremst tækni- menntaðir karlar, sem hafa vanist þvi að leysa öli mál á tæknilegan máta, líka mannleg samskipti. En allt breytist. Nú eru konur farnar að krefjast þe ss að á þær sé hlustað þegar um er að ræða skipulagningu byggðar. Reyndar eru raddir þeirra harla veikar ennþá en hækka vonandi. Eða svo segja Sviarnir Annika Almquist félagsfræö- ingur og Mia Björk arkitekt sem eru um þessar mundir staddar hér á landi á ráðstefnu norrænna félagsfræöinga en yfirskrift ráðstefnunnar er : Valkostir i áætlanagerð og skipulagsmálum. Er fjallaö um málið út frá mörgum sjónar- miðum, m.a. sjónarmiðum kvenna. 1 þvi skyni starfar á ráðstefnunni sérstakur kvenna- hópur. Hann er fjölmennur, um 35 manns flest konur en þar eru lika meö nokkrir karlar. Annika og Mia eru að vinna að könnun- arverkefni i Sandviken.litlum bæ skammt norðan við Stokk- hólm, um áhrif kvenna á skipu- lag byggðar. Þær segja nu les- ' endum nánar frá verkefni sinu | og nugmyndum. Annika: Þetta verkefni okkar er hluti af stærra verki sem bæjaryfirvöld eru aö láta vinna um þaö, hvernig ibúar ákveð- inna svæða hafa eða geta haft áhrif á umhverfi sitt. Mia: Það má segja að bak- grunnurinn að rannsókn okkar sé könnun sem sálfræöingurinn Maria Nordström hefur með höndum. Hún bað nemendur i 9. bekk að lýsa „draumabústaön- um”. Greinilegur munur kom fram á óskum pilta og stúlkna. Strákarnir töluðu um marga bila og stereógræjur og bar- skápa. Þeir nefndu hvaö þeir vildu vinna og hvaða tekjur þeir myndu hafa. Fyrir þeim var heimiliö fyrst og fremst staður þar sem hægt var að hvila sig og stunda ýmiss konar lúxussport. Stúlkurnar litu hins vegar á ^TejmJHð^ei^^nnusta^^g^ta^^ Annika Almquist félagsfræðingur og Mia Björk arkitekt. Þær eru báðar fulltrúar á ráðstefnu norrænna félagsfræðinga i Reykjavik, sem lýkur í dag. Mynd: —eik. þar sem fjölskyldan gæti gert eitthvað saman. Þær héldu sig við raunhæfar óskir s.s. það hvernig skipuleggja ætti eldhús- ið og þær veltu fyrir sér tilvali og notkun á herbergjum. Annika: Þessa rannsókn má skoöa sem dæmi um það hvern- ig æ betur koma fram ólikar óskir og þarfir karla og kvenna i skipulagsmálum og menn eru aö byrja að átta sig á. Svo er fyrir að þakka kvennahreyfing- um og kvennarannsóknum sem þrýsta á um aö hlustað sé á kon- ur. Þar sem þetta rannsóknar- sviö er nýtt er við margan vanda að etja og kannski þurfa að koma til nýjar rannsóknar- aöferðir svo unnt sé aö komast að raun um hið sérstæða i mis- munandi kjörum karla og kvenna og þar sem hægt er að sjá og skilja kjör kvenna frá þeirra eigin sjónarhóli. Út frá þessum forsendum setjum við fram tvær kenningar sem viö munum leitast við að færa sönn- ur á. 1. Að konur og karlar séu i uppeldinu þjálfuö til að gegna ólikum hlutverkum. Konur til að sjá um endurnýjun og endur- framleiðslu (reproduktion) en karlar um framleiöslu. Við skipulagningu er þessu tvennu Það er engu lengur að treysta i þessari Allaballaborg. Ungling- arnir ófullir á 17. júni! stillt upp sem andstæðum og allt sem tilheyrir endurnýjuninni, þ.e. þörfum heimilanna eins og konur skilgreina þær, er látið vikja fyrir þörfum framleisl- unnar eöa atvinnuveganna. 2. Þar sem skipulagning er hluti af framleiðslunni er aug- ljóst aö hún og þarfir hennar eiga greiðari aðgang aö ráða- mönnum en þarfir heimilanna. Skilyrði kvenna til að koma skoðunum sinum á framfæri og láta taka mark á þeim eru þess vegna slæm. Mia: Ég vil lika minnast á könnun i smáhúsahverfi þar sem karlar og konur voru spurð hvers vegna þau völdu einmitt þessa tegund bústaöar. Körlum fannst mikilvægast að með þvi móti gátu þeir ávaxtað pening- ana sina skynsamlega en konurnar nefndu að þar væru betri skilyröi fyrir börn, um- hverfið væri aðlaöandi o.s.frv. Reyndar kom i ljós að oft höfðu konurnar verið neyddar til að flytja. Mia: Það eru einkum mið- aldra karlmenn sem sitja i skipulagsnefndum og heimilið er alls ekki þeirra vinnustaður. Samt eru það þeir sem ákvarða kjör og lff kvenna og barna á heimaslóðum. Annika: Það er lika greinilegt að miklu auðveldara er að fá fram kröfur sem karlar setja fram svo sem um biiastæöi og umferð heldur en ef konur vilja t.d. fá leiksvæði fyrir börn. Við getum lika haft i huga að konur með smábörn hafa miklu minni tima en karlar til að koma á borgarafundi þar sem á að koma á framfæri óskum ibú- anna. Og málið sem konur taia og eiga yfir að ráða nær ógjarn- an eyrum ráðamanna. Þær Annika og Mia sögðust i könnuninni myndu biðja fólk aö skilgreina aöstæður og kjör i nánasta umhverfi (heimili, hverfi, bæjarhluti) frá fjórum sjónarhornum. í fyrsta lagi hvers vegna viðkomandi fluttist einmitt þangað, hver heföi tekiö um þaö ákvörðun o.s.frv..! öðru lagi hvernig gengi að stunda bæöi vinnu og fjölskyldulif með þvi aö búa þarna. t þriöja lagi hvernig fólkið sé sett félagslega, og að lokum eru menn beðnir að lýsa „draumahverfinu”. —hs < Q O Ertu með málbandiö, Folda? ^ Gat nú skeð, og við sem vorum rétt búin að venja okkur á að tef la (Qubg)

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.