Þjóðviljinn - 19.06.1981, Síða 5

Þjóðviljinn - 19.06.1981, Síða 5
Föstudagur 19. júnl 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Símaskráin 1981: Letrið stækkað! Margir sem að undanförnu hafa orðið að gripa til gleraugnanna i hvert sinn sem þeir flettu sima- skrá munu varpa öndinni fegin- samiega þegar þeir fá nýju skrána þar sem letrið hefur vcrið stækkað um 10%. Þetta var unnt með þvi að færa dálkana saman á siðunum og setja strik á milli tii aðgreiningar i stað breiða bilsins. Brotið er óbreytt frá 1980, en blaðsiðutal hefur aukist um 64 siður, upplagið er 105 þúsund ein- tök. Simaskráin verður afhent simnotendum frá og með n.k. mánudegi- 22. júni og gengur i gildi 1. júli n.k. Afhending á höfuðborgarsvæðinu verður nánar auglýst i dagblöðum, en þegar er farið að senda skrána út á land til dreifingar. Númer neyðar- og öryggissima eru nú á forsiðu kápunnar innan- verðri og efri hluta baksiðu utan- verðri. Skrá um ný og breytt númer á höfuðborgarsvæðinu er aftast og leiðarvisir um sjálfvirkt val til útlanda á bls. 10-13. Knattspymu- námskeið í Breiðholti Knattspyrnunámskeið fyrir krakka, sem fæddir eru 1971, 1972 og 1973, hefst i dag á vegum Iþróttafélagsins Leiknis i Breið- holti og fer innritun fram kl. 17 við íþróttahús Fellaskóla. Gjaldið er kr. 150 og má greiða það i tvennu lagi, 100 kr. við innritun og 50 kr. siðar. Námskeiðið verður á þriðju- dögum og fimmtudögum og lýkur 27. ágúst. Forstöðumaður þess er Hörður Hinriksson iþróttakenn- aranemi. Dansinn er dýr: Tvær miljónir gamlar fyrir tvær minútur Höfðum ekki efni á því, segir um- sjónarmaður Þjóðlífs „Okkur þykir vissulega leiðin- legt að hafa ekki getað tekið þetta dansatriði upp, en við höfum ekki efni á þvi”, sagði Sigrún Stefáns- dóttir, umsjónarmaður Þjóðlifs, en eins og fram kom i Þjóð- viljanum i gær hafði tsienski dansflokkurinn æft írumsaminn dans fyrir þáttinn, þegar hætt var viðupptöku, vegna peningaleysis. Að sögn Sigrúnar var atriðið tveggja minútna langt og átti að kosta tæplega tuttugu þúsund ný- krónur skv. samningum Leikara- félagsins. „Við höfðum ekki þá peninga”, sagði Sigrún. Sigrún sagði ennfremur að það hefðu verið gagnkvæm mistök sjónvarpsins og dansflokksins að ganga ekki frá greiðslusamningi fyrr en komið var að upptöku, en þegar ljóst hefði verið hversu dýrt atriðið yrði hefði ekki verið um annað að ræða en hætta við. „Orn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri dansflokksins sagðist sjálfur myndu hafa sam- band vegna greiðslu fyrir æfingarnar en það gerði hann aldrei”, sagöi Sigrún. „Þess i stað barst bréf frá Leikaraíélag- inu þar sem krafist var tvöíaldrar greiðslu miðað við samningana.” Sigrún sagði að samkvæmt 5. grein samningsins ætti að greiða 50% af grunnþóknun auk launa fyrir æfingar, þegar ekki yrði af upptöku, en i bréfinu hefði Leik- arafélagið farið fram á íulla grunnþóknun. „Þetta þykja mér heldur leiðinleg vinnubrögð,” sagði Sigrún Stefánsdóttir að lnk- Þátttakendur.kennararog túlkur.Frá vinstri: Kári Halldór, Pétur Einarsson, Kristbjörg Kjeid, Sigrið- ur Hagalin, Ritva Hoimberg, Sigurður Skúiason, Kaisa Korhonen, Guðrún Ásmundsdóttir, Þórhaliur Sigurðsson, Sigmundur örn Arngrimsson og Sigurveig Jónsdóttir. Maðurinn sem felur sig á bakvið Guðrúnu Ásmundsdóttur er Gunnar Eyjólfsson. Framhaldsmenntun fyrír leikara Tvelr Finnar kenna íslenskum leikurum Leiklistarskóii tslands hefur að undanförnu gengist fyrir nám- skeiði fyrir starfandi leikara i samvinnu við Norrænu leiklistar- nefndina og er þetta i fyrsta sinn sem námskeið af þessu tagi er haldið hér á iandi. Kennarar á þessu námskeiði eru tveir Finnar, þær Kaisa Kor- honen, sem er lslendingum að góðu kunn frá þvi i fyrra, er sýn- ing hennar á ..Þremur systrum” var sýnd hér á Listahátið, og Ritva Holmberg, leikstjóri og leikritahöfundur. Pétur Einarsson, skólastjóri Leiklistarskóla Islands sagði á fundi með blaðamönnum að nám- skeið af þessu tagi væru mjög þýðingarmikil fyrir leikara, og standa vonir til að unnt verði að bjóða fleiri starfsgreinum innan leikhússins upp á slika fram- haldsmenntun. Kaisa og Ritva hafa báðar kennt við Leiklistarháskólann i Helsingfors, jafnframt þvi sem þær hafa unnið við leikhúsin. Varðandi aðferðir þeirra sagði Kaisa að þær byggju ekki yfir neinni ákveðinni aðferðarfræði eða formúlu, þær ynnu út frá manneskjunni sjálfri, reyndu að skilja og skynja eiginleika leikar- anna og hjálpa þeim við að velja sér túlkunarleiðir i samræmi við það. „Mér finnst islenskir leikarar likjast Finnum um margt. Hins vegar er erfitt hér og nú að segja fyrir um árangur svona nám- skeiðs, þetta er langtimaþróun og ef til vill kemur það ekki fram nærri strax hver áhrif þetta heíur á hvern og einn”, sagði Kaisa. Leikararnir sem þarna voru staddir voru sammála um að námskeiðið hefði verið mjög gef- andi og skemmtilegt. „Þær hafa verið mjög næmar og hjálpað okkur við að reyna að finna okkur sjálf — vinda ofan af okkur þvi sem okkur er ekki eðli- legt.en hefur safnast fyrir á iöng- um tima,” sagði Kristbjörg Kjeld, og Gunnar Eyjólfsson bætti við: „Þetta eru ekki nýjar aðferðir. Þær byggja á ýmsum rótgrónum aðferðum i leiktúlkun sem eru sannar og sigildar, og þær eru ákaflega góðir kennarar.” Það voru 10 leikarar sem kom- ust inn á þetta námskeið, og eru þeir atvinnuleikarar frá Leikfé- lagi Reykjavikur, Leikfelagi Ak- ureyrar og Þjóðleikhúsinu. Kári Halldór Þórsson er túlkur nám- skeiðsins, en nákvæm þýðing er mjög mikilvæg þegar unnið er með hugtök og huglægar útskýr- ingar og leiðbeiningar. Þær Ritva og Kaisa halda héðan til Finn- lands nú að loknu námskeiðinu, þar tekur Kaisa við starfi sem einn af þremur leikhússtjórum og leikstjórum Lilla Teatern og KOM-leikhússins, sem verða rek- in i mjög náinni samvinnu frá og með haustinu. þs Frá setningu norræna féiagsfræðingaþingsins I Háskóla tslands. Um 200 manns sitja þingið. Mynd: -eik Norrœnir félagsfrœðingar þinga i Reykjavík: Skipulagsmál í brennidepli A sunnudag hófst i Reykjavik ráðstefna norrænna félagsfræð- inga en hún er haldin annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndum. Er þetta i fyrsta skipti sem ráðstefn- an er haldin hér á landi. Um 200 þjóðfélagsfræðingar sitja þing þetta sem lýkur 19. júni. M'örg mál verða tekin til meðferð- ar en yfirskrift ráðstefnunnar er „Valkostir i áætlanagerð og skipulagsmálum.” Fjórir fyrir- lestrar verða fluttir auk þess sem sérstaklega verður gerð grein fyrir i umræðuhópum félags- fræðilegum rannsóknum á Is- landi. Tiu vinnuhópar verða starfandi á ráðstefnunni þar sem fjallað verður um eftirfarandi málaflokka: Félagsleg og hagræn áætlanagerð, fiskveiðisamfélö| nútimaleg verkaskipting, þróu iðnaðarsamfélagsins, kreppa o atvinnuleysi á Norðurlöndun lýðræði og skipulagning, lifskji: og þjóðfélagsþróun, rannsóknir stöðu kvenna, valkostir i skipi lagi heilbrigðismála og tækni o skipulag vinnustaða. Lægra símskeytagjald til Bandaríkjanna I gær lækkaði gjald fyrir orðið i simskeytum til Bandarikjanna. Lækkunin nemur 28,2% og er orðagjaldið nú 2,80 kr. i stað 3,90. Fastagjald verður áfram 32,30 kr., en söluskattur er innifalinn i þessum upphæðum. Sem dæmi um áhrif þessarar lækkunar má taka að 10 orða skeyti lækkaði um 15,4% og 25 orða skeyti um 21,2%. Lækkun þessi er vegna nýrra og hag- stæðra samninga við simafyrir- tæki vestan hafs. Forseti íslands —y A Strandir og í Dali Forseti tslands Vigdis Finn- bogadóttir leggur á laugardaginn af stað i ferð um Dali og Stranda- sýslu og mun m.a. taka þátt i menningarvöku Strandamanna i Hólmavík og Arnesi. 1 fylgd með forsetanum verða Vigdis Bjarnadóttir fulltrúi á for- setaskrifstofunni og eiginmaður hennar Guðlaugur Tryggvi Karlsson og er feröaáætlun i meginatriðum eftirfarandi: Laugardaginn 20. júni verður fyrst ekið að Byggðasafni Dala- manna að Laugum, en siðan i Búðardal þar sem verður gist. A sunnudag verður farið fyrir Strandii; komið við á Staðarfelli og Skarði, en hádegisverður snæddur i Saurbæ. Eftir hádegi verður haldið til Hólmavikur. Þar hefst menningarvaka Stranda- manna með þvi að forseti opnar sýningu á málverkum eftir Isleif Konráðsson. Gist verður á Hólmavfk. A mánudag verður fariö i báts- ferð til Grimseyjar á Steingrims- firði og þaðan siglt til Drangs- ness. Siðan verður ekið til Hólma- vikur með viðkomu á Laugarhóli i Bjarnarfirði. A þriðjudaginn veröur ekið norður i Arnes, þar sem fluttur verður hiuti af menn- ingarvöku Strandamanna og á miðvikudag haldið til Reykja- vikur með viðkomu á Borðeyri. 14 sæmdir fálkaorðu Forseti islands sæmdi 17. júni eftirtalda menn heiðursmerki hinnar islensku fálkaorðu: Berg G. Gislason, fram- kvæmdastjóra, riddarakrossi, fyrir störf að flugmálum, Guðjón Guðmundsson, rekstrarstjóra Rafmagnsveitna rikisins, ridd- arakrossi, fyrir störf i þágu raf- orkumála, Guðmund Danielsson, rithöfund, riddarakrossi, fyrir bókmenntastörf, Guðrúnu A. Simonar, söngkonu, riddara- krossi, fyrir störf að tónlistar- málum, Halldór Sigfússon, fv. skattstjóra, riddarakrossi, fyrir embættisstörf, Helgu Björr.sdótt- ur, riddarakrossi, fyrir störf að liknar- og félagsmálum, Hjálmar R. Bárðarson, siglingamála- stjóra, stórriddarakrossi, fyrir embættisstörf, Hjört E. Þórarins- son, bónda, Tjörn i ;Svarfaðardal, riddarakrossi, fyrir störf að fé- lagsmálum, Séra Jón Auðuns, fv. dómprófast, stórriddarakrossi, fyrir embættisstörf, Kristján J. Gunnarsson, fræðslustjóra i Reykjavik, riddarakrossi, fyrir störf að fræðslumálum, Laufeyju Tryggvadóttur, formann Nátt- úrulækningafélags Akureyrar, riddarakrossi, fyrir störf að fé- lagsmálum, Pétur Sæmundsen, bankastjóra, riddarakrossi, fyrir störf að iðnaðarmálum, Snorra Jónsson, fv. forseta Alþýðusam- bands Islands, riddarakrossi, fyr- ir störf að félagsmálum, og Þór Magnússon, þjóðminjavörð, riddarakrossi, fyrir embættis- störf. Aukatekjur Vinniö ykkur inn allt að 1000 krónum aukalega á viku með auðveldum heima- og fristundastörfum. Bæklingur með um þaö bil 100 tillögum um hvernig hefja skuli auðveldan heimilisiönaö, verslunarfyrirtæki, umboðs- sölu eða póstpöntunarþjón- ustu verður sendur gegn 50 dkr. þóknun. 8 daga réttur til að skila honum aftur er tryggður. Buröargjöld eru undan- skilin, sé greitt fyrirfram, en sendum líka i póstkröfu og þá að viöbættu burðargjaldi. HANDELSLAGER- ET Allergade 9 — DK 8700 — Horsens Danmark.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.