Þjóðviljinn - 19.06.1981, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 19.06.1981, Blaðsíða 15
Föstudagur 19. júnJ 1981 ÞJÓÐVILJINN — gtÐA 15 Hringiö í síma 81333 kl. 9—5 alla daga, eða skrifið Þjóðviljanum lesendum Tálknfírðmgar eru óhresslr með öryggis- og læknamál tbúi á Tálknafirði hafði sam- band við okkur og vildi gjarnan koma eftirfarandi á framfæri, þó að ekki væri til annars en vekja athygli á þvi bága ástandi i brunavörnum og læknaþjón- ustu, sem rikir viða úti um land: Tálknfirðingurinn sagðist hafa farið að hugsa alvarlega um þær lélegu brunavarnir sem tiltækt er að beita á staðnum er eldur kom upp þar i verkstæði i s.l. mánuði. Athugasemd vegna fyrirspumar Lesandi Þjóöviljans og vel- unnari á Selfossi hringdi vegna fvrirspurnar i lesendadólki sl. þriðjudag, þar sem Magnús H. Magnússon var spuröur hvers- vegna bróðir hans, menntaður húsasmiöur, væri simstöðvar- stjóri á Hvolsvelli. Sagðist Sel- fyssingurinn harma að lesa slikt i „Blaðinu okkar” þar sem hér væri ómaklega sneitt að þeim bræðrum. Umræddur sim- stöðvarstjóri hefði verið sim- ritari áður og starfað hjá Póst og sima mestallan sinn starfs- aldur og Magnús bróðir hans hvergi komið nærri ráðningu hans. Slökkvilið á Tálknafirði samanstendur af sjálfboðalið- um og hefur yfir að ráða aðeins einni dælu á hjólum, en enginn brunabill er á staðnum. Er bruni sá varð, er áður er nefndur, var þvi kallað á bruna- liðið frá Patreksfirði, sem hefur yfirbrunabil aðráða. Ekki er sú bifreið þó kraftmeiri en svo, að eigandi áðurnefnds verkstæðis, sem staddur var i Reykjavik er eldurinn kom upp, var kominn til Tálknafjarðar á undan brunaliði Patreksfjarðar, að visu með einkaflugvél. Eldurinn kom upp kl. 12.10 og meira en klukkutimi leið áður en billinn komst á leiðarenda. Tálknfirðingurinn sagðist ekki vilja hugsa til enda hvað gerst gæti, ef eldur kæmi upp i ibúðarhúsi þar, að næturlagi t.d. ef ekkert yrði gert til úrbóta i brunamálum. Svo er það læknisþjónustan. 1 Tálknafirði er enginn læknir og verða ibúar að fara til Bildu- dals aö leita hans. Þar er til við- tals einu sinni i viku læknir frá Patreksfirði, en þar eru starf- andi tveir ágætir læknar. Tæplega hálftima akstur er milli Tálknafjarðar og Bildu- dals ef allt er i lagi með vegina, en á veturna er æði oft annað hvort illfært eða ófært milli þessara staða. Það gefur þvi auga leið að ekki er auðhlaupið að þvi fyrir gamalt og lasburða fólk að leita sér lækninga, né heldur ófriskar konur eða konur með ungabörn sem þær þurfa með i ungbarnaskoöun. Þar að auki hafa ekki allir bil til eigin afnota. Tálknfirðingurinn sagði að lokum, að meira að segja væri ekki hægt að fá send lyf frá lækninum á staðinn. Verkalýðs- félagiðhefðireynt að fá Kaupfé- lagið á Tálknafirði til að vera þar milliliöur, en af einhverjum ástæðum hefði- það ekki tekist, enda þótt slikur háttur væri hafður á sums staðar úti um land. / Urkynjað skallapopp? Tónlist er eitt af þvi sem fólk deilir um — endalaust að þvi er virðist. A.m.k. er val á tónlist i útvarp búið að vera sigilt rif- rildisefni i lesendadálkum blaða svo lengi sem viö munum eftir og hér kemur enn ein athuga- semdin varöandi tónlist og er nú borgarstjórn sökuð um smekk- leysi i þessum efnum. Þaö er 4913-1038 sem skrifar: Einhverra hluta vegna hélt ég að vinstri meirihlutinn i borgar- stjórn væri menningarlega sinnaður. Þvi rak ég upp stór augu þegar ég las að reykviskri æsku yröi boðið upp á úrkynjað- asta skallapopp Hlj.pl.útgáf- unnar hf. á 17. júni. Er hægt að sýna ungdómnum meiri fyrir- litningu á sjálfum þjóðhátiðar- degi íslendinga? Barnahornid Hér kemur mynd af öskubusku, pabba hennar og prinsinum, sení Vilborg Daðadóttir, 7 ára, á Bolungarvik sendi Barna- horninu, og giskum viö á, að hún hafi séö öskubusku á leiksviði. V eiðivör ðurinn ný mynd eftir Ken Loach Kvikmynd kvöldsins Veiði- vörðurinn er heldur betur hvalreki á fjörur kvikmynda- unnenda. Hún var gerð árið 1979 og er leikstýrt af hinum kunna breska leikstjóra Ken Loach (Hann gerði m.a. myndina Cathy come home og Fálkann). Eitthvað vafðist fyrir Bretum að sýna þessa mynd enda Ken Loach þekkt- ur fyrir þjóðfélagsgagnrýni og skarpa sýn á samfélagiö. Veiðivörðurinn lýsir einu ári i lifi veiðivarðar. Náttúru Yorkshire er lýst á afar fal- legan hátt, en spurningar umeign á landi, karlmenskuna og vald karlmannsins innan fjölskyldunnar koma einnig við sögu. Aðalpersónan George er fyrrum verkamaður sem vann i stáliönaðinum, en hefur nú gerst veiöivörður á herragarði i eigu hertoga (þessir Eng- lendingar). Verkefni veiði- varðarins er að sjá til þess að nóg sé af fasönum þegar veiði- timabilið hefst og að reka alla ókunnuga út af eigninni. Við segjum ekki meira, en i sið- asta hefti sænska kvikmynda- timaritsins Chaplin er fjallað um Ken Loach og myndir hans. Þar er Veiðivarðarins sérstaklega getið sem spenn- andi verks. -ká. ■tO/- Sjónvarp <CF kl. 22.25 Erindi um kvennamál fyrr og nú Vilborg Sigurðardóttir kennari flytur erindi um kvennamál fyrr og nú i kvöld kl. 21.30. Ekki tókst Þjv. að ná tali af Vilborgu, en við getum okkur þess til að erindið sé flutt I tengslum við 19. júni, en svo sem kunnugt er fengu konur kosningarétt á þeim degi árið 1915. Vilborg skrifaði á sinum tima ritgerð um kvenréttinda- baráttuna og hún var einn af stofnendum Rauðsokkahreyf- ingarinnar. Af þessum stað- reyndum leyfum við okkur að draga þær ályktanir að erindiö fjallium þróun kvennabarátt- unnar og hvetjum alla til að leggja eyrun við, enda ekki á hverjum degi sem kvenna- Vilborg Sigurðardóttir. málin eru tekin fyrir i radióinu fremur en annars staðar. Útvarp kl. 21.30 Lögreglan í Kaliforníu Wicker i Kaliforniu nefnist þáttur sem er á dagskrá sjón- varpsins I kvöld kl. 21.15. Það er þekktur enskur sjónvarps- maður sem kynnir gósen- landið Kaliforninu fyrir sjón- varpsáhorf endum. Kalifornia er rikið sem fóstraði Ronald Reagan Bandarikjaforseta, þar var hann um skeið rikisstjóri. í Kaliforniu eru höfuðstöðvar kvikmyndaiðnaðarins, þar átti hippahreyfingin sitt blómaskeið og þaðan koma berin og ávextirnir sem við fáum yfir vetrarmánuðina. í Kaliforniu er einnig að finna dökku hliðarnar á bandarisku samfélagi og það er hluti þeirra sem Wicker ætlar að kynna okkur. Hann fylgist i þessum þætti með starfi lög- reglunnar, þar á meðal segir frá konum sem gengið hafa i lögregluna oý fá þar þjálfun i meðferð skotv 'pna og annars sem nauðsynleýt þykir þar vestra. •áJÞ Sjónv O kl- 21.1.1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.