Þjóðviljinn - 30.06.1981, Síða 5
Þriðjudagur 30. júni 1981. ÞJÓÐVILJINN — SIDA 5
Jöfn staða á
kosningadegi:
i dag er gengiö til kosn-
inga í Israel. Fyrir
skemmstu leit svo út sem
Líkúdblökk Begins hefði
náð sér á strik í vinsældum
með sérkennilegri blöndu
af kosningamútum (lækk-
un tolla og skatta á lúxus-
vörum fram yfir kosning-
ar) og hernaðaryfirgangi í
Líbanon og irak. En sam-
kvæmt síðustu skoðana-
könnunum eru Líkúd og
Verkamannablökkin f
stjórnarandstöðunni nokk-
uð jafnar að fylgi; gætu
báðar fengið rösklega 40
þingsæti af 120. Það er því
mjög tvísýnt um það# hver
fær aðstöðu til að mynda
stjórn í ísrael.
Begin og Peres hafa ekki sparaö stóryrði i kosningaslagnum.
Skiptir það máli hver
sigrar í Israel í dag?
Það er ekki sist sjálfur kosn-
ingaslagurinn siðustu daga, sem
hefur dregið hægrisamsteypu
Begins niður i vinsældum. Ungir
stuðningsmenn hans hafa hleypt
upp fundum stjórnarandstæðinga
og jafnvel brennt flokksskrifstof-
ur þeirra. Peres, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, hefur kallað
stuðningsmenn Begins fasista, en
Begin svarar i sömu mynt og
heldur þvi blákalt fram að stjórn-
arandstæðingar hafi sjálfir skipu-
lagt árásir á sig til að hressa upp
á lélega útkomu i skoðanakönn-
unum!
Af leitstaða
Israel er um marga hluti illa
statt. Verðbólgan er gifurleg og
atvinnuástand slæmt i ýmsum
greinum. Eina „afrek” Begins er
sérfriður við Egypta, en sá áfangi
hefur alls ekki verið notaður til að
halda áfram i „sögulegri mála-
miölun” við hina arabisku
granna. Þvert á móti hefur Begin
haldið áfram að efla Gyðinga-
byggðir á hernumdu landi á vest-
urbakka Jórdanár og hefur ekki
boðið upp á neinar þær áætlanir
um sjálfstjórn Palestinuaraba,
sem þeir væru liklegir til að virða
viðlits.
ísrelar hafa sterkan mótbyr
á alþjóðlegum vettvangi, ekki sist
vegna loftárásar sinnar á kjarn-
orkuver i Irak fyrir skemmstu.
Að visu munu t.d. Bandarikja-
menn gráta það þurrum tárum að
írakir verða fyrir tjóni, en þeir
eru engu að siður gramir vinum
sinum i Israelsstjórn vegna þess,
að loftárás þessi torveldar fram-
gang þeirra áforma Haigs utan-
rikisráðherra að tosa ýmsum
„ihaldssömum” Arabarikjum inn
i hernaðarsamvinnu við sig.
Báðir sekir
Eftir sigurinn i sjö daga striö-
inu 1967 naut Israel allmikillar
virðingar, ekki aðeins vegna þess
að her þess hafði sigrað miklu
stærri heri, heldur vegna sam-
yrkjubúa og annarra félagslegra
tilrauna sem vöktu áhuga
margra. Nú hefur sd mynd viða
þokað fyrir hinu ágenga her-
námsveldi, sem hefur mjög reynt
á þolrifin jafnvel á hinum velvilj-
uðustu meðhaldsmönnum. Og
þetta er ekki sök Menachems
Begins eins. I blökk með Verka-
mannaflokki þeirra Peresar og
Rabins er litill vinstrisósialista-
flokkur sem Mapam heitir. Einn
af leiðtogum hans, Elizer Ronen,
segir i nýlegu viðtali á þessa leiö:
„Við verðum nú að greiða fuilu
verði fyrir þá stefnu sem allar
stjornir hafa fylgt siöan 1967. Við
höfum blekkt fólkið til að halda að
hægt væri að halda hernumdu
svæðunum, að hægt væri aö
tryggja varanlegan frið án þess
að leysa mál Palestinuaraba.”
Þetta er sjálfsgagnrýni, þvi að
allt til sigurs Begins 1977 stjórn-
aði Verkamannaflokkurinn land-
inu og Mapam var með i stjórn.
Það var Verkamannaflokkurinn
sem eftir hernaðarsigurinn byrj-
aði á þeirri landvinningastefnu að
stofna Gyðingabyggðir á her-
numdu svæðunum — stefnu sem
Begin hefur siöan fylgt fram af
mikilli hörku.
Elizer Ronen gefur til kynna, aö
i þessu stórmáli skipti ekki miklu
hvor sigrar i kosningum i dag,
Verkamannablökkin eða Likud.
Munurinn er sá helstur, að Begin
vill halda öllu þvi hernumdu
svæði og öllum þeim Gyðinga-
byggðum sem nú hafa verið reist-
ar meðan Peres vill halda sumum
nýiendum — og jafnvel styrkja
þær. Mapam er gagnrýnni á þá
stefnu sem fylgt hefur verið, en sá
flokkur er ekki öflugur. Hvoru-
tveggja landvinningastefnan get-
ur að sjálfsögðu verið stórhættu-
leg.
Munurinn
Þó er einn umtalsverður munur
á. Peres vill ekki ganga svo langt
i nýbyggðamálum og innlimunar-
stefnu að Gyðingar verði minni-
hluti i rikinu. Það gæti hinsvegar
vel átt sér stað, ef Begin fær að
ráða lengur, að Gyðingabyggð-
irnir á hernumdu svæðunum yrðu
einskonar „óafturkræf” staö-
reynd — vegna pólitiskra áhrifa
vaxandi fjölda þjóðernissinnaðra
og heittrúaðra landnema.
Stór-Israel með meirihluta ibú-
anna réttlitla Araba og gyðing-
legan minnihluta sem einn nyti
fullra réttinda — slikt sögulegt
stórslys er meiri likur á að takist
að forðast ef að hin um margt
ráðvillta stjórnarandstaða tekur
við af Begin, sem hefur sterkar
tilhneigingar til að skoða póli-
tiskar staðreyndir fyrst og fremst
út frá guðfræöi hins rétttrúaða
Gyðings.
— áb.
Grískir
frímúrarar
Allra veðra von í íran
Beheshti og liðsoddar hans
myrtir í Teheran
Ajatolla Beheshti og
mikill fjöldi víröingár-
manna Islamska lýðveldis-
flokksins í Iran fórust í
mikilli sprengingu sem
varð í höfuðstöðvum
flokksins á sunnudags-
kvöld/ Auk Beheshti/ sem
var forseti hæstaréttar,
flokksleiðtogi og einn af
handhöfum forsetavalds-
ins, fórust tíu ráðherrar,
tuttugu þingmenn og alls
um sjö tugir manna.
Þegar þetta er skrifað hafa ekki
borist fregnir af þvi að einhver
samtök hafi lýst sig ábyrg fyrir
þessari afdrifarikri sprengirigu.
Fyrstu viðbrögö málgagns Is-
lamska byltingarflokksins voru
þau að nefna til skjalanna banda-
riska samsærismenn, en það hafa
veriö nokkuð sjálfkrafa viðbrögð
i þeim herbúðum að kenna þeim
„mikla Satan” um alla hluti. Hitt
er svo ekki óeðlilegt, aö gera ráö
fyrir, að aðþrengdir fylgismenn
Banisadr forseta, sem nú hefur
farið um hrið huldu höföi, eftir aö
þingið svipti hann embætti, hafi
staöið að tilræði þessu. En all-
margir vinir og stuöningsmenn
forsetans hafa verið handteknir
undanfarna daga.
,/ Pláss á himnum"
Ekki er ýkja langt siöan að
mynd Banisadr hékk uppi i svotil
hverju heimili i Iran viö hliöina á
mynd af Khomeini erkiklerk.
Forsetinn var reyndar undir
verndarvæng Khomeinis allt frá
þvi þeir voru saman i útlegð i
Paris. En nú hefur Khomeini
sjálfur gengið fram i þvi að for-
dæma forsetann sem var. Og á
dómsmálaráðuneytinu i Teheran
hangir auglýsing með skopmynd
af Banisadr: þar segir að hans sé
leitað og fái sá sem grípi dólginn
að launum „pláss á himnum”.
Va Idatafl
Beheshti og hinn lslamski lýð-
veldisflokkur hans, hafa allt frá
þvi að flokkurinn náði meirihluta
á þingi i fyrra grafiö undan for-
setanum með ýmsum hætti. Það
valdatafl sýndist á enda fyrir
skemmstu: forsetinn settur af og
á flótta. En nú er allra veðra von
og þá ekki sist er þaö Iiklegt, að
mikil hjaöningavig hefjist milli
stuðningsmanna tslamska lýð-
veldisflokksins og svo stjórnar-
andstöðuhópanna tveggja, Þjóð-
fylkingarinnar og Mujahedin
Khalq (sem eru oröaðir við sós-
ialisma).
Fréttir frá Iran hafa veriö æsi-
legar undanfarna daga, en ekki
enn farið mikið fyrir nánari út-
listun á ástandinu þar. 1 stuttu
máli sagt hafði valdatafliö milli
Beheshtis og Banisadr öðru
fremur staðið um það, hver yrði
hlutur kerka og Kórans i irönsku
byltingunni. Banisadr er þá tal-
inn forystusauður þeirra sem hóf-
samari teljast, og um leið þeirra
sem ekki vilja að Iranir brenni
allar brýr að baki i samskiptum
við Vesturlönd.
Beheshti naut skamma
sigursins yfir forsetanum
stund
sæta illum
grun
Hneykslismál og
myrkraverk tengd ítölsku
f rímúrarastúkunni P-2
haf a komið af stað miklum
deilum og umræðum á
Grikklandi. Þar hafa blöð
birt lista yf ir f rímúrara og
komið m.a. niður á nafn
f orsætisráðherrans, Georgs
Rallis.
Biskupastefna grisku rétttrún-
aðarkirkjunnar lýsti frimúrarf
þegar árið 1933 „andkristin, heið-
in trúarbrögð” og hefur kirkjan
ekki tekiö þá afstöðu aftur. Kirkj-
an hefur nú farið þess á leit við
stjórnvöld, að rannsókn fari fram
á frimúrarastúkum „i ljósi þess
lærdóms sem draga má af nýleg-
um afhjúpunum”.
Þrir þingmenn sósialista hafa
og farið þess á leit viö stjórnina,
aö rannsókn verði hafin vegna
blaðafregna frá Róm, um að
stúkubræöur i P-2 hafi komið við
sögu valdaráns herforingja i
Grikklandi árið 1967. Félagar i
P-2 hafa m.a. verið sakaöir um
samsæri um að kippa þingræði úr
sambandi á ltaliu.
Þingmennirnir vilja einnig að
efnt sé tilýtarlegrarrannsóknar á
áhrifum frimúrara á stjórnkerfi,
dómstóla og her landsins.
(Irish Times)