Þjóðviljinn - 30.06.1981, Side 10

Þjóðviljinn - 30.06.1981, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 30. júni 1981. íþróttirLA íþróttir - íþróttír \T J ■ umsjón: INGÓLFUR HANNESSOnI J Úr einu í annað Helga Halldórsdóttir, KR. Helga slgraði í sjöþraut Helga Halldórsdóttir, KR varö sigurvegari i hinni nýju sjöþraut á Islandsmótinu i fjöl- þrautum, sem fram fór i Laugardalnum um helgina sið- ustu. Hún hlaut 4646 stig, sem jafnframt er tslandsmet. í öðru sæti varð Valdis Hallgrims- dóttir, KA með 4591 stig. • •• og Elías í tugþraut Elias Sveinsson, Armanni varð Islandsmeistari i tugþraut á fjölþrautamótinu meö 6341, sem er hreint ótrúlega slakur árangur. I öðru sæti varö IR-ingurinn Stefán Þ. Stefáns- son með 5538 stig. Þeir félag- arnir voru einu keppendurnir i þrautinni. Óvirðing Þegar lið leika á hinum svo- kölluðu Fögruvöllum i Laugar- dal er ávallt hætta á að leikhlé verði i lengra lagi. Úr hófi keyrði þó s.l. laugardag i viður- eign Vals og Þórs. Þá teygðist leikhléið i 20 min. og á meðan himdu áhorfendur i rigningar- úðanum. Slikt má alls ekki koma fyrir og er hrein óvirðing viö þá knattspyrnuáhugamenn sem sækja völlinn, sama hvernig viðrar. Þetta ættu dóm- arar og forráðamenn liðanna að athuga. • Heimsmet i stangarstökki Sovétmaðurinn Polyakov setti um helgina nýtt heimsmet i stangarstökki i landskeppni So- vétrikjanna og Austur-Þýska- lands. Hann stökk 5.82 m og bætti met Frakkans Thierri Vigneron um einn cm. Bjössi heidur sínu striki Björn Borg, sænski tennis- snillingurinn, stefnir nú ótrauð- ur á sigur i Wimbletonkeppninni i sjötta sinn i röð. Hann hefur ekki tapað leik i keppninni frá þvi 1975, 39 leikir án taps. Frá- bært afrek. 1 4. umferðinni um helgina sigraði Bjössi Vitas Gerulaites frá Bandarikjunum i hörkuleik, 7-6, 7-5 og 7-6. Hættulegustu keppinautar Svians, John McEnroe og Jimmy Connors, sigruðu einnig i sinum leikjum. Vfldngar sýndu enga meistaratakta en sigruðu samt KR 2:1 Víkingur er enn á toppi 1. deild- arinnar i knattspyrnu. A sunnu- dagskvöldið siöasta sigraöi liöiö KR meö tveimur mörkum gegn einu og þurftu Vikingarnir ekki aö sýna ýkja mikil tilþrif til þess aö krækja i bæöi stigin. Þaö má segja aö slikur sé háttur meist- araliöa, aö sigra jafnvel meö slökum leik. En þaö er önnur saga. Strax i byrjun leiksins á sunnu- daginn voru Hæðargaröspiltarnir komnir meö forystuna. A 8. min hrökk knötturinn til Lárusar inn- fyrir vörn KR og hann skoraði af öryggi, 1-0. KR-ingar áttu fullt eins mikiö í spilinu úti á vellinum, en vantaöi ákveðni og kraft þegar vitateigur andstæðinganna nálg- Þorsteinn skoraði 4 mörk i IVIarkahátíð Valsmanna Framherjinn ungi i Valsliöinu, Þorsteinn Sigurösson, var heldur betur i stuöi þegar Valur rót- burstaði Þór frá Akureyri I 1. deildinni á laugardaginn, 6-1. Hann skoraöi 4 marka Vals, en haföi aldrei áöur skoraö nema eitt mark i leik. Sannkallaöur gull- leikur hins 21 árs gamla verslunarmanns. Fyrri hálfleikurinn einkenndist mest af miöjuþófi, en Valsararnir voru með undirtökin frá fyrstu min. til hinnar siðustu. 1- o: Þorsteinn fékk knöttinn innfyrir vörn Þórs og skoraði næsta auðveldlega af markteig. 1 seinni hálfleiknum jukust yfirburöir Vals enn og þegar 12 min. höfðu verið leiknar fór mörkunum hreinlega aö rigna. 2- 0: Hilmar Harðarson prjónaöi sig laglega i gegnum Þórsvörnina, Eirikur varði skot hans, en Þor- steinn skallaði i mark af stuttu færi. 3- 0: Hilmar var aftur á feröinni skömmu seinna, á 61. min. gaf á Njál sem skallaöi i Þórsmarkið. Laglega gert. 4- 0: A 64. min. brunaði Þorsteinn upp kantinn, gaf fyrir markið. Hilmar náði til knattarins á vita- punkti, snéri sér við og skoraði með lausu skoti, sem hafði við- komu i einum varnarmanni Þórs á leiöinni i netið. 5-0: A 80. min. hugðist Þorsteinn gefa knöttinn fyrir mark Þórs, en boltinn stefnti beint á Eirik, markvörð Þórs. Hann missti knöttinn klaufalega frá sér og inn i markið!! 5- 1: Þegar rúm minúta var til leiks- loka fékk Bjarni Sveinbjörnsson háa sendingu inn fyrir Valsvörn- ina, lék á Sigurð markvörð og skoraði i autt markiö. 6- 1: A siðustu minútunni þrumaði Valur Valsson að Þórsmarkinu, Eirikur varði, en missti tuðruna frá sér. Þorsteinn var enn mættur á réttan stað og potaöi boltanum i Þórsmarkið. Búið spil. Þórsararnir léku allir langt undir getu að þessu sinni og aldrei örlaði á þeirra helsta vopni, bar- áttukraftinum. Viö segjum bara eins og kerlingin: Það gengur betur næst. Njáll átti afburöagóðan leik i Valsliðinu, stórskemmtilegur leikmaður. Þorsteinn skoraði 4 mörk án þess að hafa mikiö fyrir þvi. Sævar er traustur miðvörður (stopper), i sannkölluðum lands- liðsklassa. Þá átti Þorgrimur ein- hvern sinn besta leik með Val i stöðu miðvallarleikmanns. Loks ber að geta hins knáa og leikna miöherja, Hilmars Harðarsonar sem skoraði eitt mark og lagði upp tvö. Sem sagt, Valssigur með bravör. —IngH aðist. A 11. min átti Helgi Helga- son gott skot á mark KR, en Stefán varði vel. Nokkru seinna straukst kollspyrna Lárusar rétt framhjá KR-markinu. A 35. min átti Sæbjörn sannkallaða gull- sendingu upp vinstri kantinn á Elias. Hann lék að vitateignum, skaut, Diðrik hálfvarði og boltinn hrökk til Óskars, sem átti ekki i miklum erfiðleikum með að pota honum i netið úr þröngri stöðu, 1-1. KR-ingar hófu seinni hálfleik- inn meö látum, staðráönir i aö komast yfir. Það var þvi eins og köld vatnsgusa i andlit þeirra þegar Lárus skoraði annað mark Vikings á 48. min. Hann fékk knöttinn úr útsparki Diðriks inn- an vitateigs KR og skoraði með fallegu skoti, 2-1. Laglega gert hjá Lárusi og að sama skapi grát- legt fyrir varnarmenn KR. Eftir þetta dofnaði mjög yfir leiknum, Vikingarnir héldu fengnum hlut án mikilla átaka. KR-ingarnir léku oft á tiðum þokkalega kpattspyrnu i þessum leik, einkum var Elias ógnandi á vinstri kantinum þar sem hann Framhald á 14. siðu. Lárus Guðmundsson hrelldi oíi KR-vörnina með hraða sinum og leikni. Hann skoraði 2 mörk i leiknum og er nú markahæstur i 1. deildinni. Island hafnaði / 1 á EM í golfi í Skotlandi 12. sætinu Þorsteinn Sigurðsson var f sannkölluðu marka- stuði gegn Þór, kom boltanum fjórum sinnum i net norðanmanna. lslandsmeistarinn, Hannes Ey- vindsson, og félagar hans náðu frábærum árangri á Evrópu- meistaramóti áhugamanna i golfi. tslenska golflandsliöið varð i 12. sæti á Evrópumeistaramóti áhugamanna, sem lauk um helg- ina á St. Andrews vellinum i Skot- landi. Landinn lék um 11. til 12. sætið gegn Austurrikismönnum á sunnudeginum og unnu þeir aust- urrfsku viðureignina 5-2. Björg- vin og Hannes sigruðu f tviliða- leiknum og Hannes vann i einliða- leiknum. Aðrir leikir töpuðust. Segja má að ævintýrið hafi byrjað fyrir alvöru þegar strák- arnirlögöuNorðmenn að velli 5-2 og unnu sér þar meö rétt til að leika um 9. til 12. sætin. I fyrri hluta þeirrar rimmu töpuöum við fyrir Hollendingum 3-4 eftir æsi- spennandi keppni. Siðan töpuðum við fyrir Austurrikismönnum, eins og áður var sagt frá, og 12. sætið varð Islands. Mun betri árangur en áður hefur náðst hjá islensku golflandsliði á EM. Fyrir aftan okkur uröu m.a. Portúgalir, Luxemborgarar, Belgar, Finnar, ttalir, Spánverj- ar og Norðmenn. — IngH Framararnir sluppu naumlega fyrir horn Fram krækti i 2 dýrmæt stig i 1. deildar- slagnum norður á Akureyri um helgina. Þeir léku gegn KA og sigruðu 1-0. Þaö var Guð- mundur Torfason sem markiö mikilvæga skoraöiá 75. min. Hann fékk sendingu frá Al- bert Jónssyni og skoraöi af harðfylgi úr mjög þröngri stöðu, 1-0. Bæði liðin komu til leiksins ákveðin i að sigra og varhvergi gefið eftir. Marktækifær- in létu fyrir bragðið á sér standa. A siðustu min. fyrri hálfleiks missti Aðalsteinn, mark- vöröur KA, knöttinn frá sér, en Erlingi tókst að koma honum burt af hættusvæðinu á sið- ustu stundu. KA náði nokkuð góðum tökum á leiknum i seinni hálfleik og Gunnar Gislas. og Hinrik fengu báðir góð tækifæri til markaskorunar, en þau misfórust. Framarar skoruðu siðan mark sitt þegar langt var liðið á leikinn og það sem eftir var sóttu heimamenn án afláts og árangurs. Vörn Fram var föstfyrir og stóð af sér öll áhlaup KA-manna. Guðmundur varði mark Fram af snilld allan leikinn og Marteinn stjórnaði varnar- leiknum. 1 framlinunni bar mest á Pétri Ormslev. Hjá KA voru Gunnar Gislason og Erlingur sem brimbrjótar og Gunnar Blön- dal barðist vel að vanda.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.