Þjóðviljinn - 30.06.1981, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 30. júnl 1981.
Flugfar
og bílar
á einum
farmiða
Flugleiðir og Bifreiðastöð ts-
lands hafa tekið upp samstarf
um sölu farmiða á ákveðnum
leiðum innanlands. Farþegum
gefst nd kostur á farmiðum, þar
sem ekið er aðra leiðina en flog-
ið hina. He'r er um að ræða hefð-
bundnar leiðir I byggð og einnig
leiöir um öbyggöir, svo sem
Fjallabaksleið, sem er I tengsl-
um við flug til og frá Hornaf irði,
Sprengisandsleiö og Kjalveg,
sem eru í tengslum við flug til
og frá Akureyri og ennfremur
eru ferðir til og frá Isafiröi, þar
sem flogið er aðra leiðina en ek-
ið hina.
Þær leiðir um óbyggðir, sem
að ofan greinir, verða eknar
jUli-sept, og fer aö sjálfsögðu
eftir færð hvenær þær feröir
geta hafist. I ferðum um
Sprengisand og Kjöl er leiösögn
og nesti innifalin i veröi. Fjalla-
baksleið veröur ekin i júli og
ágiístog þd gist að Kirkjubæjar-
klaustri. Á leiðinni verða helstu
náttUruundur skoðuð.
Til þess að gefa nokkra hug-
mynd um verö slikra ferða þar
sem ekið er aöra leiðina en flog-
ið hina eru eftirtalin dæmi:
Reykjavik — Akureyri —
Reykjavlk, 535 kr. Reykja-
vík/Um Sprengisand — Reykja-
vik, 824 kr. Reykjavlk — Akur-
eyri/Um K jöl/R eykjavik, 824
kr. Reykjavlk — Hornarfjörður
— Reykjavlk, 613 kr. Reykjavik
— Hor na f j ./F j a lla b ak s-
leiö/Hornafj. — Rvlk. 658 kr.
Reykjavfk — lsafjörður —
Reykjavik, 565 kr.
t ofangreindum verölista er
flugvallarskattur innifalinn og
verð gilda fyrir einstaklinga,
höpa og hjón. Helmingsafsláttur
er fyrirbörn innan 12 ára. Fyrir
ungbörn er greitt 10% af far-
gjaldi. Með þessu samkomulagi
BSl og Flugleiða opnast n^r
ferðamöguleiki fyrir landsmenn
og aðra, sem áhuga hafa fyrir
fa-ðum af þessu tagi. — mhg
Heimilisiðnaðar-
✓
félag Islands
Grósku-
mikið starf
Aðalfundur Heimilisiðnaðar-
félags tslands var nýlega hald-
inn og lét þá Stefán Jónsson,
sem verið hefur formaður um 13
ára skeið af formennsku en I
hans stað var kjörin Jakobina
Guöm undsdóttir.
Eimig gengu Ur stjórninni
Sofffa Þórarinsdóttirkennari og
Sigriöur Gisladóttir kennari
og voru þeim öllum þökkuð mik-
il og góö störf I þágu félagsins.
Auk Jakobinu skipa nú stjónina
Sigriður Halldórsdóttir varafor-
maður, Soffia Jónsdóttir gjald-
keri, Kristin Tómasdóttir ritari,
Kristín Jónsdóttir, Elinbjört
Jónsdóttir og Siguröur Einars-
son. 1 varastjórn eru Valgeröur
Tryggvadótör, Stefán Halldórs-
son og Kristin Jónasdóttir.
Þessi eru helstu atriöin i
starfsemi H.I.:
Arsritið Hugur og hönd, sem
kom út i 15. sinni á árinu 1980. I
þvi eru birtar uppskriftir og
fróðlegar greinar. Þvi fylgir nú
efnisyfirlit fyrir alla árganga.
Upplagið var 6500.
Heimilisiönaöarskólinn er að
Laufásvegi 2. 1 skólanum eru
rekin styttri og lengri námskeið
i ýmsum handmenntagreinum.
A siðastliðnu skólaári sóttu um
550 nemendur námskeiö skólans
i samtals 28 námsgreinum.
Verslun félagsins, Islenskur
heimilisiðnaður, á 30 ára afmæli
á þessu ári og veröur þess
minnst i' haust. Arið 1980 varð
versluninni erfitt eins og flest-
um fyrirtækjum I landinu.
Dvalarheimiliö Hvammur (t.h.) er áfast sjúkrahúsinu — Myndir: Vlkurblaðið.
Vígður Hvammur, heimili aldraðra
26 íbúar
fluttír inn
Hið nýja glæsilega dval-
arheimili aldraðra á Húsa-
vik var vígt 20. júní sl. við
hátiðlega athöfn að við-
stöddu miklum fjölda
gesta. Sóknarpresturinn
sér Björn H. Jónsson vígði
heimilið og gaf því nafnið
HVAMMUR. Þá flutti for-
maður stjórnar dvalar-
heimilisins Egill Olgeirs-
son ræðu/ þar sem hann
rakti aðdraganda að bygg-
ingunni og framkvæmdir
við hana.
Margar ræður voru fluttar á-
samt árnaðaróskum. Þá bárust
heimilinu margar gjafir. Haustið
1972 stofnuðu nokkrir áhugamenn
félag til styrktar málefnum aldr-
aðra i Þingeyjarsýslum og á
Húsavik. Hlaut það nafnið
„Styrktarfélag aldraðra i Þing-
eyjarsýslu”. Fyrsti formaður
þess var Björn Friðfinnsson þá-
Sá landskunni hagyröingur Egill Jónasson er meðal fyrstu fbúanna I
Hvammi og gefur hér einni starfsstúlkunni I nefiö.
verandi bæjarstjóri á Húsavik.
Sameignarfélag dvalarheimilis
aldraðra i Þingeyjarsýslu var svo
formlega stofnað 28. janúar 1976.
Stofnendur voru Húsavikurkaup-
staður ásamt öllum hreppum
sýslunnar frá Ljósavatns- og
Barðdælahreppi að vestan, til
Húsvikingar og fleiri Þingeyingar við veisluborð vigsluhátiðarinnar.
L
Gestir hlýða á ræðuhöld I borösal.
Raufarhafnar og Fjallahrepps að
austan. Þaö eru 13 sveitarfélög
með tæplega sexþúsund ibúa.
A fyrsta fundi þessa nýja félags
var ákveðið að fyrsta verkefnið
yrði að reisa heimili i tengslum
við Sjúkrahúsið á Húsavík. Siöar
yrði stefnt að byggingu minni
heimila eða ibúða viða i héraðinu.
Fyrsta skóflustungan að hinu
nýja heimili var tekin 20. ágúst
1976. Stöðugt hefur verið unnið við
framkvæmdir siðan og fyrstu ibú-
arnir fluttu inn 2. mai sl.
Þessi fyrsti áfangi er um 965
ferm. að grunnfleti og rúmir 1100
rúmm. Aðalhluti hússins eru
þrjár hæðir og kjallari. 1 þessari
aðalbyggingu eru 17 ibúðir sem
hver um sig er um 47 ferm. aö
stærð. Þær samanstanda að
tveimur herbergjum, eldhúsað-
stöðu og snyrtingu. Gert er ráð
fyrir að i húsinu öllu geti búið allt
að 44 ibúar.
í þeim hluta sem nú er kominn i
notkun eru 11 ibúðir, auk stakra
herbergja og ibúar alls 26. Húsiö
er teiknað af Hróbjarti Hró-
bjartssyni arkitekt. Verkfræöi-
teikningar annaðist Verkfræöi-
stofa Norðurlands á Akureyri og
rafmagnsteikningar Egill 01-
geirsson tæknifræðingur á Húsa-
vik. Byggingarstjóri var Jón Ár-
mann Árnason. Húsið kostaði 9.9
milljónir króna og eignaraðilar
lögðu fram 35% þess fjár, sem
þykir mjög gott.
Þá má geta þess að á bygging-
artimanum hefurheimilinu borist
900 þús. króna frá einstaklingum
og félögum. 1 húsinu er auk ibúö-
anna sameiginlegur borðsalur,
setustofa með sjónvarpi, bóka-
safn og sitthvað fleira til sameig-
inlegra afnota. Einnig er gert ráð
fyrir ýmisskonar þjónustu s.s.
fót- og handsnyrtingu, hár-
greiðslu, endurhæfingaraðstöðu
meö tilheyrandi böðum, vinnusal-
ir fyrir verndaðan vinnustað,
rúmgóðir föndurkrókar ofl.
Forstöðumaöur i Hvammi er
Hörður Arnórsson.
ÞB Ilúsavik.
d
Hjólreiðar á gangstéttum:
Slysahætta fyrir blinda
A aðalfundi Blindrafélagsins,
sem haldinn var 21. þ.m. var vak-
in athygli á erfiðleikum þeim,
sem skapast myndu fyrir blinda
og sjónskerta, ef hjólreiðar yröu
leyfðar á gangstéttum. Var þvi
beint til stjórnar félagsins að
vekja athygli dómsmálaráð-
herra, lögreglustjórans I Reykja-
vik, Umferðarráðs og Hjólreiða-
kldbbs Reykjavlkur á máliþessu.
Jafnframt kom það fram á
fundinum, að skilningur rikti á
þvi nauðsynjamáli 'aö bjarga
börnum og unglingum úr þeirri
dauðahættu, sem þau eru i, þegar
þau fara út i umferö, þar sem
ökumenn eru algjörlega óvanir
hjólreiðafdlki.
Fundurinn bendir einnig á, aö
erfiðleikar vegna þessarar
bráðabirgðalausnar á vanda hjól-
reiðaumferðarinnar bitnar ekki
einungis á blindum og sjónskert-
um, heldur einnig öldruöum,
hjólastólafólki og öörum þeim,
sem óhægt eiga með að bera sig
um.
Þarf þvi að leggja rika
áherslu á aö kenna ungu hjól-
reiðafólki aösýna fulla tillitssemi
gagnvart þessum hópum I um-
ferðinni og yfirleitt öllu gangandi
fólki.
—mhg