Þjóðviljinn - 30.06.1981, Page 15
Þriöjudagur 30. júni 1981. ÞJÓÐVILJINN — glDA 15
Hringiö í síma 81333 kl. 9—5 alla
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
Or Dallas — þokkapilturinn JR og eiginkona hans Sue Ellen. '
Lesanda finnst þakkarvert að þeir hjá sjónvarpinu hlifftu okk-
ur við þættinum á 17. júni.
Yfirhafnir
týnast í
Laugardals-
höll
Óhressir gestir
á Jónsmessuhátið Bandalags is-
lenskra listamanna i Laugar-
dalshöll hringdu og vildu koma
á framfæri kvörtun vegna
fata,,geymslu” i Höllinni.
Þessir þrir gestir höfðu eins
og aörir hengt yfirhafnir sinar i
anddyrinu eins og ráö virðist
fyrir gert. Svo kom á daginn að
engin sérstök gæsla var i fata-
henginu, óg þvi erfitt að hafa
uppi á eigum sinum að lokinni
hátið. Afleiöingin varð sú að
þremenningarnir fóru yfir-
hafnarlausir heim.
Auglýsíngar og Dallas
Lesandi hringdi
i tilefni af þvi aö i föstudags-
blaði Þjóðviljans var bréf föður
um auglýsingafargan á Laugar-
dalsvelli 17. júni.
Hann vildi koma þvi á fram-
færi að hann gat vel umborið
auglýsingarnar i sjónvarpinu að
kvöldi þess sautjánda, þótt þær
hefðu veriö meö mesta móti, af
þvi að þjóðinni hefði veriö hlift
við Dallas. Samkvæmt vikudeg-
inum heföi sá þáttur átt að vera
á dagskrá.
Ekki hafði lesandi horft á
rokkþáttinn i dagskrárlok, en
sér heföi svo sem fundist meira
við hæfi að hafa eitthvert þjóö-
legra efni i staðinn.
Atján ára frönsk stúlka sendi
okkur bréf og baö okkur að
koma nafni sinu á framfæri en
hún hefur áhuga á að eignast is-
lenska pennavini. Hún heitir
Þeir sem tóku flikur þessar i
misgripum eru vinsamlegast
beönir að skila þeim til hús-
varðarins i Laugardalshöllinni,
en þær eru: skær-blá kven-
mannskápa, karlmannsfrakki
úr leðri og karlmannsleður-
jakki.
Florence Leapon og heimilis-
fang hennar er:
14 Rue Michel Ange
92160 Antony
France
Óskað eftir pennavinum
Umsjón: Ellý Ingunn Ármannsdóttir
og Eik Gísladóttir
AÐ BUA TIL BÁT
Barnahornid
Sumarmynd
f sumar getur þú safn-
að steinum, jurtum og
öðrum smáhlutum, sem
þú finnur á ferðalögum
eða annarsstaðar í sum-
arfríinu. Síðan geturðu
límt hlutina á blað eða
pappa og skrifað lita
ferðasögu hjá og sagt
hvers vegna þú geymir
hlutina þína. Kannski eru
þeir tengdir skemmtileg-
um stöðum og minning-
um um þá.
(Við hjá Þjóðviljanum
viljum nota tækifærið og
hvetja ykkur til að senda
okkur slíkar sögur og
leyfa þannig fleirum að
njóta þeirra.)
Sagaðu til trébút. Kjölur-
inn má vera úr tómri
tannkremstúpu, sem þú
klippir upp í og neglir á.
Negldu síðan nagla í bát-
inn og vef ðu bandi um þá.
Lengir
hláturinn
lífið?
ólafur Ragnarsson, lengst til
hægri á myndinni, sér um
þáttinn „Lengir hláturinn
lifið?” Hann er hér viö upp-
töku þáttarins ásamt þeim
Bessa Bjarnasyni og Ragnari
Bjarnasyni. Stjórn upptöku er
i höndum Tage Ammendrup.
Sjónvarp
O kl. 21.00
Skopteiknarinn Storm P.
Fyrir skömmu lauk i
Norræna húsinu sýningu á
teikningum danska skopteikn-
arans Storm P. Þeir sem
misstu af henni ættu að geta
bætt sér það upp aö einhverju
leyti með þvi að horfa á sjón-
varpið i kvöld, en kl. 20.35
hefst sænsk heimildamynd um
hann.
Stór hluti teikninga Storms
P. er af ýmiss konar uppfinn-
ingum, og með einni mynd
fylgir þessi útskýring:
UNDRARÖRIÐ — Fyrir fólk
sem á samleið smáspöl er
þetta vindlarör ómetanlegt,
þvi að þá geta margir nýtt
sama vindilinn. Hægt er að
tengja við rörið um 50 slöngur,
en ef fólk hefur hvorki slöngur
né vindla við höndina hefur
rörið mjög litið notagildi. Þó
er hægt aö nota það sem
innanhússsima með smá-
breytingu.
Sjónvarp
kl. 20.35
Sjónvarpið kveður með kvikmynd:
Don't look
11
now
Áður fyrr á árunum:
Unaður á Ingjaldssandi
Sjónvarpið kveöur okkur
fyrir sumarfriið meö bresku
kvikmyndinni Don’t look now
— Eigi má við öllu sjá. Leik-
stjóri er Nicholas Roeg og
aðalleikendur þau Julie
Christie og Donald Suther-
land.
Nicholas Roeg byrjaði feril
sinn sem kvikmyndatöku-
maður og vann t.d. sem slikur
viö myndirnar The System,
Faranheit 451, Far from the
Madding Crowd, Perform-
ance, þar sem hann var jafn-
framt aðstoðarleikstjóri,
Walkabout, leikstjórn og kvik-
myndataka, og myndinni i
kvöld leikstýrði hann 1973 en
hann hefur snúiö sér að leik-
stjórninni á seinni árum.
jO. Sjónvarp
’O’ kl. 22.00
Julie Christie fer með aftal-
hlutverk í kvikmyndinni I
kvöld, leikur eiginkonuna
Lauru. A þessari mynd er hún
i hlutverki annarrar Lauru, —
i Doctor Zivago.
„Don’t look now” er ekki
talin viö hæfi barna, en hún er
ógnvekjandi á stundum —
byggð á dulmagnaöri sögu
eftir Daphne du Maurier.
Öhætt er að lofa áhorfendum
að þeim veröur haldið viö
efnið, þvi að spennan er stig-
andi allt til enda.
1 þættinum i dag les Guðrún
Guðvarðardóttir frásögu sina
um tveggja daga dvöl á Ingj-
aldssandi og segir þar frá
landi og lýð fyrr og nú.
Ingjaldssandur er litil sveit
og fámenn, en um margt
merkileg. Landfræðilega til-
heyrir sveitin önundarfirði,
en stjórnfræðilega Dýrafirði,
þar eð hún telst til Mýra-
hrepps og sagði Guðrún að það
væri sjálfsagt vegna auöveld-
ari samgangna við þaö svæði.
„Unaður á Ingjaldssandi”
er aftcins partur úr lengri
feröasögu frá árinu 1974. Guð-
rún hefur síðan 1966, að tveim
undanteknum sumrum, lagt
land undir fót á Vestfjöröum
og er að verða búin að labba
allan þann landshluta ef frá
eru taldir nokkrir smáblettir,
sem hún hyggst líka ætla að
kynna sér.
• Útvarp
kl. 11.00
Guðrún Guövarðardóttir segir
útvarpshlustendum frá
Ingjaldssandi.