Þjóðviljinn - 07.07.1981, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVIL.JINN Þriftjudagur 7. júli 1981
á dagskrá
>Grátstafir og upphrópanir um aðstöðu
sjúkra og hrjáðra geta aflað lýðfylgis en
færa okkur sjaldan nær skynsamlegri lausn
á vanda þeirra
Meðferðar-
heimilið við
Kleifarveg
Rekstur Meöferöarheimilisins
við Kleifarveg hefur verið á dag-
skrá Utvarpsins og amk fjögurra
dagblaða sfðustu vikur.
Astæðurnar má rekja til þess aö
1. jiínf sl. samþykkti Fræðsluráð
Reykjavíkur svohljóðandi tillögu
sem sérkennslufulltrUi Fræðslu-
skrifstofu borgarinnar hafði
kynnt ráðinu og fært rök fyrir:
„Frá 1. september 1981 verði
nUverandi meöferðarheimili
breytt í dagskóla fyrir 10 nem-
endur með atferlistruflanir. Jafn-
framt dagskdlaunum verði starf-
rækt á Kleifarvegi 15 göngudeild
fyrir bráðatilvik (nemendur, sem
brotið hafa brýr aö baki sér í
heimaskóla vegna atferlistrufl-
ana).
Starfslið:
l.skólastjóri (kennslusk. 20 viku-
st).
3 kennarar (kennslusk. 26.67
vikust).
1 ráöskona (40 vikust. í 9
mánuði).
1 uppeldisfulltrúi (40 vinnust. i 9
mánuði).
A göngudeild, svo og f dag-
skólum og dagdeildum, starfi 1
sálfræöingur og 1 félagsráð-
gjafi.”
Áður en tillaga þessi var sam-
þykkt hafði yfirmaöur sérkennsl-
unnar f Reykjavík tjáö Fræöslu-
ráði að hugmyndir um þessa
breytingu heföu veriö kynntar
þeim aðilum sem á sinum tfma
gáfu hiísnæðiö til rekstrar með-
ferðarheimilis fyrir taugaveikluð
börn og hefðu þeir ekki verið mót-
fallnir þeim.
Á sama fundi var samþykkt
svohljóðandi tiUaga sem Sigurður
Tóm asson lagði tram :
„Fræösluráð samþykkir að fela
fræðslustjóra í samráði við stjórn
Heimilissjóðs taugaveiklaöra
barna og stjórn Hvítabandsins að
hef ja undirbUning að stofnun nýs
meðferðarheimilis fyrir tauga-
veikluð börn f tengslum við
Bustaðaskóla í Reykjavik og skal
við það miöað að þaö taki til
starfa haustið 1982. Skal við það
miöað að hUsið að Kleifarvegi 15
verði selt og andvirðiö notað til
þess að fjármagna sto|nkostnaö.
Rekstur heimilisins skal tryggöur
f samráði við menntamálaráðu-
neytið, enda er tryggur rekstur
forsenda farsæls starfs. Á meðan
hið nýja heimili er ekki tekiö til
starfa getur fræösluráð falUst á
tiUögur Þorsteins Sigurðssonar
um aö á Kleifarvegi 15 verði
starfræktur dagskóli.”
Báðar þessar tillögur voru
samþykktar með atkvæðum
márihlutans f Fræðsluráði.
Þar sem viö sem aö samþykkt-
inni stdðum höfum sætt þungu
ámæli f blaðaskrifum, siöan hUn
var gerð, þykir mér tilhlýðilegt
að skýra forsendur hennar
nokkrum orðum fyrir þeim sem
láta sig málið varða.
1). Starfsfólk heimilisins og
sérfræöingar um meðferð af þvi
tagi, sem þar fer fram( hafa frá
þvf að starfsemin hófst haustið
1974 gagnrýnt borgaryfirvöld
fyrir naumar fjárveitingar til
hennar. Samstaða um fjárveit-
ingu, sem gerði kleift að ráöa að
heimilinu sérmenntað starfsfólk
sem rækiheimilið alltáriö, hefur
hvorki náðst hjá fyrrverandi eöa
núverandi meirihluta. 1 mati á
störfum heimilisins, sem starfs-
fólk Sálfræöideilda skóla i
Reykjavik sendi Fræðsluráði með
bréfi dagsettu 8. apríl, er talið að
það sé „ábyrgöarhluti af
Fræðsluskrifstofu Reykjavikur
að láta ómenntað starfsfólk bera
ábyrgð á meðferð barna, sem
talin eru i' þörf fyrir sérfræöilega
aðstoð”.
2) Menntamálaráðuneytið
hafnaði með bréfi dagsettu 13.
apríl sl. frekari þátttöku f rekstri
meöferðarheimilisins við Kleifar-
veg með þeim rökum að það væri
stofnað og starfrækt til að annast
lækningu og meðferö taugaveikl-
aðra barna en ekki vistun vegna
skólasóknar f sérskdla fjarri
heimilum nemenda. Nýgerð
áætlun um rekstrarkostnað
miðað við núverandi verölag og
starfrækslu fyrir 6 börn i sólar-
hringsvistun allt árið hljóöar upp
á 1.8 — 1.9 miljdnir króna.
Ennfremur er vert að hafa f
huga að á heimilinu fer ekki fram
kennsla en hinsvegar aöstoö við
heimanám. Skóla sækja börnin i
sérdeild i' Laugarnesskóla.
Árangur af starfi meðferöar-
heimilis sem þessa er að sjálf-
sögöu afarerfittað meta. 1 blaða-
skrifum hefur þaö verið talið bera
vott um góðan árangur að 8 af
þeim 16 börnum sem á heimilinu
hafa veriö undanfarin 3 ár hafa
fariö heim eða í fóstur og sest i' al-
mennan skóla. Ég veit satt að
segja ekki hvað liggur að baki
slíku mati — og hvers vegna ekki
má allt eins telja að árangur sé
góður ef um 4 slík börn er að ræða
eða til aö mynda 12. Saman-
burður við árangur af öðrum Ur-
ræðum er ekki fyrir hendi og þvf
ekki tilneins konar mælikvarði til
að meta hann með.
Aö þessu athuguðu ætti engan
að þurfa að undra þótt fulltnlar I
Fræösluráði hafi viljað leita nýrra
leiöa í umræddri starfsemi. Meö
framkvæmd þeirra tillagna sem
fulltrUar meirihlutans stóðu að
gat að minu mati unnist margt:
1) Aukið og betra skdlahald
fyrir nemendur með atferlistrufl-
anir í tengslum við „göngudeild”
þar sem gert er ráð fyrir sál-
fræðingi og félagsráðgjafa i fullu
starfi — i stað þeirrar takmörk-
uðu sálfræðiráðgjafar sem
Kleifarvegsheimilið hefur notið.
2) Uppbygging á samtengdu
starfi dagskdla (BUstaðaskóla)
og meöferðarheimilis, sem gæti
bæöi eflt tengsl og samstarf
fræðslu-og má»ferðaraðilanna og
skapað grundvöll fyrir hag-
kvæmum rekstri innan ramma
grunnskólalaga og reglugerðar
um sérkennslu með ótviræöri
skyldu rikisins til að greiða sinn
hlut af kostnaði.
3) . TrUverðugt mat fengist á
þörf fyrir sólarhringsvistun
skólabarna sem eru i meðferð
vegna taugaveiklunar. Slik börn
hljdta að sjálfsögðu aö jafnaði aö
vera best komin hjá foreldrum
sinum sem venjulega er ekkert
um að láta þau frá sér. Sdlar-
hringsvistun utan foreldra-
heimilis er neyðarUrræði.
4) Samaburö mætti fá á þvi
neyöarUrræði að vista umrædd
börn á stofnun eins og meöferðar-
heimilinu við Kleifarveg og
vistun á einkaheimilum. Þó ber
að hafa i huga I þessu sambandi,
að engan veginn er vist að for-
eldrar hlutaðeigandi barna fáist
tU að samþykkja sllkt fyrirkomu-
lag og það viðhorf er raunar oft
rikjandi hjá foreldrum þegar um
sli'ka vistun á stofnun sem
Kleifarvegsheimilinu er að ræða.
Ég fæ ekki séö að þau æsiskrif
og svfviröingar, sem beinst hafa
að okkur sem samþykkt höfum
tillögur aö þessu lUtandi geti
gagnast taugaveikluðum börnum I
Reykjavlk og foreídrum þeirra. A
hinn bóginn efast ég ekki um að
höfundar hafa sjálfir talið skrif
sin þjóna slikum tilgangi.
Grátstafir um aöstöðu
sjUkra og hrjáðra geta aflað kjör-
fylgis — en færa okkur sjaldan
nær skynsamlegri lausn á vanda
þeirra.
1. jUlf 1981
P.S.
Eftir að þessi grein var skrifuð
birtist i Þjóðviijanum ýtarieg yf-
irlitsgrein um þetta mál eftir
Þorstein Sigurðsson sérkennslu-
fulltrúa (2. júli). Þangað geta
þeir sem vilja sótt nánari upplýs-
ingar um þróun þess og stöðu.
Sá meirihluti sem myndaðist i
borgarstjórn fyrir áframhaldi á
óbreyttum rekstri virðist ekki
hika við að taka á sig þá þungu
ábyrgð, sem starfsfólk sálfræði-
deildannna hefur lýst á hendur
Fræðsluskrifstofunni fyrir þann
rekstur. Þverstæðukennt er hins-
vegar að þeir hinir sömu sérfræö-
ingar og raunar margir fleiri
virðast helstu hvatamenn þeirrar
niöurstöðu. 6. júli,
H.B.
** I
erlendar
bækur
Hannah Arendt:
Eichmann in Jerusal-
em.
A Report on the Banality
of Evil. Revised and
enlarged edition.
Penguin Books 1979.
Sagan af réttarhöldunum yfir
Eichmann I Jerúsalem er sigilt
verk, lýsing á tæknivæddu vél-
menni og glæpastarfsemi sem
mensk skynjun getur ekki náö.
Þaö er bUiö aö skrifa margt um
þetta rit og það er þegar oröiö
lykilritum ekki aöeins Eichmann
heldur um samskonar fyrirbrigði
inUtfma samfélögum, þessi stein-
dauðu tæknivæddu vélmenni, sem
geta hvenær sem er gengiö slóð
Eichmanns og enn lengra.
Hannah Arendt var meðal
þeirra höfunda, sem áttaði sig
snemma á ýmsum hættu-
merkjum um yfirvofandi
óhugnað, sem greina mátti á
fyrstu áratugum eftir fyrri
styrjöld, en var þegar of seint aö
bregöast við.
Daniel Yergin:
Shattered Peace.
The Origins of the Gold
War aud the National
Security State. Penguin
Books 1980.
Þótt nokkur ár séu umliöin frá
þvi þessi bók kom út I fyrstu
(1977), þá á hún einmitterindi nú,
þegar viss öfl vinna aö þvi að
auka á spennuna milli stórveld-
anna og fylla fólk af hálfleygum
og tortryggni i garð þeirra sem
vilja halda uppi slökunarstefn-
unni. Höfundurinn er meðal
þeirra fáu manna, sem hafa
kynnt sér forsendurnar að kalda
striðinu af nákvæmni og raunsæi
og veit alveg um hvað er að ræða.
Bókin hlaut mjög lofsverða dóma
þegar hún kom út hjá þeim mönn-
um sem ekki voru alteknir yfir-
borðskenndum áróðri og sveim-
uðu um i einhverskonar mogga- *
moldviðri þekkingarleysis og for-
heimskunar. Höfundurinn hefur
einstakt vald á þessu viðtæka
efni, sem hann fjallar um og
kemur efninu til skila á greinar-
góðan og skýran hátt.
Walter Koschatzky: Die
Kunst der Zeichnug
Technik, Geschichte,
Meistenverke.
Deutsher Taschenbuch
Verlag 1981.
Höfundurinn er kunnur list-
fræðingur og skrifar hér bók um
teikninguna, sem er e.t.v. upp-
runalegasta form myndlistar.
Höfundurinn skilgreinir hugtakið
teikning, einkenni hennar, gæöi
og tækni. Siöan fjallar hann um
efniö sem notaö er til teikningar.
Þarnæst ræöir hann um þróun og
myndbreytingar þessarar listar
allt frá fyrstu rissum á hellis-
veggi I árdaga. Fjölmargar
myndir fylgja i texta og á sér-
prentuöum myndsiðum, bæði i
svart/hvitu og litum.
Þetta er vönduð og góð handbók
i þessari fornu og nýju listgrein
og gæti komið mörgum að gagni,
sem fást við þessa iðju.
ThePenguin Atlas of
African History.
Colin McEvedy.
Penguin Books 1980.
t þessum atlas eru 59 kort af
Afriku á ýmsum timum, allt frá
þvi fyrir 175.000.000 ára og til
ársins ca. 2000 e. Kr. Texti fylgir
hverju korti. NU eru I Afriku 45
riki, sem eiga að heita sjálfstæð
og eru þau mun fleiri en sjálfstæð
riki I Evrópu sem munu vera um
30. Kortabók þessi er mikill úr-
dráttur Ur landfræðilegri og
mannfræöilegri sögu þessarar
myrku álfu. Þótt hér sé talsvert
af upplýsingum um álfuna þá
vantar mikið á og þvi er það galli
á Utgáfunni aö ekki skuli fylgja
knöpp bókaskrá, þar sem leita
mætti frekari upplýsinga.
Volvo:
Nýtt aftur- :
sætí eykur I
öryggið j
Verkfræðingar Volvo I
verksmiðjanna hafa kynnt ■
nýjar tegundir aftursæta, I
sem eiga að auka öryggi far- I
þega sem sitja i aftursætum I
ef árekstur verður. I slikum ■
tilvikum hefur viljaö við I
brenna að farþegarnir renni I
undir beltin, eða aö beltin I
færðust upp fyrir mjaðmir ■
farþeganna meðhættu á inn- I
vortis meiðslum.
Volvo hefur meö þessa >
reynslu i huga hannað nýja J
tegund aftursæta, nýjungin I
felst i kUlu, sem komið er I
fyrir neðan viö fremri brún ■
framsætisins, sem tryggir að J
farþeginn renni ekki undan ,
beltinu. Er þetta liöur I um- i
fangsmiklum tilraunum |
Volvo verksmiðjanna i þá átt |
að auka öryggi farþega. ,
Sláturfélag j
Suðurlands i
frá Skúla- !
götu j
Sláturfélag Suðurlands ,
ráðgerir aö flytja höfuð- ■
stöðvar sinar i Reykjavik frá I
Skúlagötu i Laugarnes á I
næstu 5 - 6 árum. Aðalstarf- ■
semi félagsins á höfuðborg- I
arsvæöinu hefur, frá þvi fé- I
lagið var stofnað 1907, fariö |
fram að Skúlagötu 20, en þar ■
var þá reist sláturhús, frysti- I
hús, kjötvinnsla og heild- I
söludreifingaraðstaða á |
eignarlóð.sem félagið keypti •
á stofnárinu.
A áratugnum 1950 - 1960 I
voru gerðar, af hálfu |
Reykjavikurborgar, skipu- ■
lagsáætlanir um uppbygg- I
ingu kjötiðnaðarsvæðis á I
Kirkjusandi og i Laugarnesi I
og jafnvel gert ráð fyrir að ■
reist yrði sláturhús á svæð- I
inu. Fallið var frá slátur- I
húsabyggingunni enda þró- I
unin orðin sú, að sláturhúsin *
eru reist i kjötframleiðslu- I
héruðunum og engin slátrun I
fer nú lengur fram innan >
borgarmarkanna. 1 fram- J
haldi af skipulagsáætluninni I
hefur Sláturfélaginu nú verið I
úthlutað 22.000 ferm. lóð i 1
Laugarnesi. Þangað hyggst J
félagið flytja höfuðstöðvar I
sinar i Reykjavik og verður I
reist þar frystihús, kjöt- J
vinnsla, heildsöludreifingar- J
aðstaða og skrifstofubygg- I
ing. — mhg
Fatlaðlr tll j
Kaup- I
manna- j
hainar
t næstliðnum mánuði stóðu I
Samvinnuferðir-Landsýn og I
Sambandið fyrir kynnis- og I
skem mtiferð 30 fatlaðra ein- ■
staklinga. Voru hóparnir I
tveir, 15 manns frá Sólheim- I
um í Grimsnesi og 15 nem- I
endur Ur efstu bekkjum *
öskjuhliðarskól a, ásamt I
kennurum og fararstjórum. I
Farið var til Kaupmanna- I
hafnar og tók hvor ferð 10 1
daga.
Feröaskrifstofan veitti I
hópnum ókeypis flugfar I
fram og til baka en Sam- ■
bandið greiddi 45 þús. kr. I
fyrir uppihaldskostnaö. I
Fyrri hópurinn fór utan 19. •
júni' en hinn siöari 23. júni. J
— mhg I