Þjóðviljinn - 07.07.1981, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN
Þriðjudagur 7. júli 1981
Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i áfgreiðslu blaðsins I sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
55
Held að Tal meini ekki innst inirí þaö sem hann sagdi
„Frestuninni ekki beint gegn Karpov
— segir Friðrik Ólafsson forseti FIDE vegna ummœla sovéskra skákmanna verið að tina þessi ummæli til, til
að sýna fram á að ég sé með ein-
„Þessi ummæli sovéska skák-
sambandsins og einstakra
sovéskra skákmanna munu ekki
ráða þvi, hvernig og hvort þetta
deiiumál mun leysast. Þessir að-
ilar hafa ekki öii völd á þvi hvern-
ig þessum máium mun af reiða,
að minnsta kostihafa þessir sömu
aðilar látið i það skina að þetta
mál kæmi þeim ekkert við”, sagði
Friðrik óiafsson forseti FIDE,
þegar borin voru undir hann þau
ummæli sovéskra skákmanna,
varðandi frestun heimsmeistara-
einvigisins, sem birt voru i Þjóð-
viljanum um siðustu helgi.
„Þessi ákvörðun min um frest-
un einvigisins var aldeilis ekki
beint gegn Karpov sem slikum,
og ég held að hann misskilji dálit-
ið það sjónarmið mitt að frestunin
var einmitt gerð til þess að spilla
ekki fyrir hugsanlegri lausn á
máliKortsjnojs er ég var orðinn
hræddur um að gæti rekist á við
opnun einvigisins. Karpov kemur
þvi aðeins inn i þetta mál sem
kaldhæðni örlaganna og mér þyk-
ir leitt ef hann tekur þvi þannig að
þessari frestun sé beint gegn hon-
um.”
Friðrik sagðist enn ekki hafa
fengið nein svör frá sovéskum yf-
irvöldum varðandi beiðni sina um
að fjölskylda Kortsjnojs fengi að
fara úr landi.
„Ég er bundinn óskum keppenda
varðandi val á aðaldómara en
ekki á váradómara, og ásetning-
ur minn með vali á dómurum var
sá að velja trausta og áreiðanlega
menn, sem ég þekki og veit að
hafa unnið sin störf með prýði
eins og Guðmundur Arnlaugsson
hefur gert og allir skákmenn
þekkja til. Ég er dálitið hissa á
Tal, að tala um algjört brot á
reglum og geðþóttaákvörðun af
minni hálfu. Ég þekki Tal einung-
is af góðu og við erum góðir vinir.
Ég held þvi að innst inni meini
hann þetta ekki ef hann skoðar
hverjar sjálfþóttaákvarðanir.
„Mitt sjónarmið er að það sé
skákheiminum fyrir bestu að
þetta mál leysist. Þetta er búið að
valda alltof lengi karpi, deilum,
þrasi og ólgu i skákheiminum.
Það er ekki i samræmi viö okkar
stefnumið og þær hugsjónir
sem FIDE hefur innan sinnar
stofnskrár og i sinum lögum að
skákin sé þjóðum sameiningar-
tákn”, sagði Friðrik Ólafsson.
-lg-
MFjör” íHöllinni:
Mikið tjón
Drjugar skemmdir uröu
á hljómleikum nýbylgju-
manna í Laugardalshöll á
föstudag að sögn Gunnars
Guðmannssonar hjá Höll-
inni. Stólar voru eyðilagð-
ir, rúður brotnar, og
skemmdarverk framin á
salernum, að sögn Gunn-
ars, enda drykkjuskapur
með ólíkindum. Verið var
að meta tjónið f gær og
urðu úrslit þau, að for-
svarsmenn máttu greiða
10.000 nýkróna skaðabæt-
ur.
Gunnar var fáoröur um gang
hljómleikanna, kvaðst vera orð-
inn of gamall til að skilja þessi
mál, en bætti þó viö, að þetta væri
mesta ógeö sem hér hefði komiö
inn.
Á hljómleikunum kom fram
um tugur rokkhljómsveita,
þ.á.m. Fræbbblarnir og Þeyr, og
sóttu þá 12—1300 manns, mest
unglingar undir tvitugu. Miðinn
kostaði 70 kr., og var óvist um
fjárhagsleg úrslit er rætt var i
gær við Guðna Rúnar Agnarsson,
forstöðumann hljómleikanna,
umboðsmann Þeys, umsjónar-
mann Afanga með meiru, en hann
sá vart fram á að afgangurinn
dygði i launagreiðslur starfs-
manna og ekki til að greiða þeim
hljómsveitum sem fram komu.
Munar þar mest um væntanlegar
tjónagreiðslur til Hallarinnar að
sögn Guðna. Viðstödd lögregla
kvað drykkjuskap vart heiftar-
legri en gengur og gerist á venju-
legum unglingasamkomum, en
einsog venjulega hefði fámennur
minnihluti spillt fyrir öðrum gest-
um. Hinsvegar var lögreglan
sammála starfsmönnum Hallar-
innar um að umgengni hefði veriö
hroöaleg. Um sex lögreglumenn
voru á staðnum. —m
Jafngildir
heilum lítra
af hreinum
appelsínusafa
frá Florida
Mjólkursamsalan í Reykjavík
Einn Brunamanna ræðst frammá sviðið og otar hljómmikilli, en tann-
lausri vélsög. — Ljósm. — eik —
Málning á veggjum; Steinpúr Guðmundsson dyravörður i Höilinni er
áhyggjufuliur. — Ljósm. — eik —
Hlj ómsveit
handjámuð
Þau fáheyrðu tiðindi gerðust á
nýbylgjuhljómleikunum i Laug-
ardalshöll á föstudagskvöldið aö
ein hljómsveitanna sem fram átti
að koma var handjárnuð i heilu
lagi og flutt i fangageymslur lög-
reglunnar, þarsem hljómsveitar-
félagar máttu flestir dúsa um
nóttina. Varð þetta fyrir tilstilli
forstöðumanns hljómleikanna,
Guðna Rúnars Agnarssonar, sem
kunnur er, a.m.k. i poppheimin-
um, fyrir umsjón sina með þætt-
inum Aföngum i útvarpinu.
Aðsögn liðsmanna Bruna bé béi
en svo nefnist umrædd hljóm-
sveit, voru málsatvik á þá leið, að
rétt áður en hljómsveitin átti aö
koma fram birtist Guðni ásamt
lögreglumönnum, og tilkynnti
hljómsveitinni, aö ekkert yrði úr
framkomu hennar. Urðu hljóm-
sveitarmenn fáir viö, en kröfðust
leyfis að tilkynna þessa ákvörð-
un á sviðinu, sem var neitað.
Reiddist þá einn Brunamanna, og
brotnuðu tvær rúður, ennfremur
dreifðist máling um svæðið (m.a.
ájakka ljósmyndara Þjóðviljans)
og var drengur handtekinn og
færður á brott. Nokkrir hljóm-
sveitarmenn aðrir undu ekki neit-
un forstöðumannsins við beiðni
þeirra um að fá aö tilkynna
ákvörðun hans á sviðinu, og tókst
þeim að komast aö hljóðnemum á
allvigalegan hátt og tilkynna þar
um málib, en voru síðan hand-
járnaðir og fluttir i fangageymsl-
ur, og með þeim aðrir félagar
hljómsveitarinnar, sem ekki
höfðu beitt sér, og auk þess ein-
hverjir sem hjá stóðu og á horföu.
Fjórir félagsmanna gistu of nótt
að lögreglunnar.
Bruni bé bé i miöjum gjörningi á
Borginni. — Ljósm. Loftur Atli.
Bruni bé bé flytur svonefnda
hljóðgjörninga, og munu flestir
aðstandenda stunda nýlistarnám.
Meðal atriða i þeim gjörningi
sem fyrirhugað var að flytja á
tónleikunum var að hella máln-
ingu yfir einn þeirra og kveikja i
öðrum, en að sögn Brunamanna
skyldi gætt fyllsta öryggis við
þessar athafnir, og engin hætta
hér á ferðum.
Við gjörninginn eru höfð ýmis
hljóð, úr hljóðfærum og frá vélum
ýmisskonar, þarámeðal viðarsög
allmikilli, en búið þannig um
hnútana, að skemmdir verða ekki
af, hvorki á mönnum né öðrum
tækjum, og hafði tannarblaðið
t.d. verið tekið af söginni.
Þeir Brunamenn höfðu ekki
fengið öll sin tæki aftur þegar siö-
ast fréttist og óvist hvort yrði.
Að sögn hljómsveitarinnar, var
meðferð lögreglunnar allóþyrmi-
leg, en þó verst, að engin ástæöa
var gefin fyrir banninu og eftir-
farandi handtökum. Guðni Rúnar
hefði samþykkt alla dagskrá
hljóösveitarinnar einsog hún vill
kallast, fyrirfram, og ekki gert
neinar athugasemdir fyrren rétt
áður en hljóðgjörningurinn skyldi
gerður. Una þeir félagar illa sin-
um hlut, en þessir atburðir urðu
m.a. til þess, að hljómsveitin gat
ekki komið fram hjá Leigjenda-
samtökunum á Menntaskólatún-
inu daginn eftir, auk þess sem
hljómsveitin fengi ekki greiddan
efniskostnað og það annað sem
um var samið við Guðna Rúnar.
Guðni Rúnar sagöi i samtali við
blaðið i gær, að það væri rétt, að
hann hefði vitað um og samþykkt
það sem hljómsveitin ætlaði að
flytja, en litist þannig á ástandið,
að hlutirnir væru að fara úr bönd-
um hjá Brunamönnum, og auk
þess hræddur við, að þeir æstu
áhorfendur meira upp en orðið
var, og hefði hann þvi ákveðið að
banna gjörning sveitarinnar.
Lögregla og húsverðir hefðu haft
áhyggjur af atriðunum, en
ákvöröunin væri þó sin. „Ég
stend á ákvörðun minni” sagði
Guðni. „Þetta var að magnast
upp i hasar.” Lögreglan hefði vit-
aö hvað hún átti aö gera þegar
óspektir þróuðust, en það hefði þó
verið sin ósk að þessir menn yrðu
fjarlægðir, og hefði hann reynt
sjálfur til. Guðni sagði rétt, að
samiö heföi verið um greiðslu
kostnaðar af upptroöslu, en
reikningurinnhefði veriðhærri en
til stóö, og auk þess hefðu orðiö
þær skemmdir af völdum hljóm-
sveitarinnar, að hann treysti sér
ekki til að borga reikning þeirra,
alls 5000 kr.
Brunamenn ihuga nú málshöfð-
un i samráði við lögfræðing. —m