Þjóðviljinn - 25.07.1981, Side 12

Þjóðviljinn - 25.07.1981, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 25. — 26. júll 1981 Spakmæli, orðskviðir og djúphugsuð heilræði um ferðir á hjólhestum Mundu það, að tveir fætur eru hverjum gir betri. bað er lika rétt að tvö hjól rétt- sköpuð eru betri en tiu girar. Stýri er til stefnu haft. Hjólreiðamaður a ekki að fara lengra á dag en hann kemst. Hann á hinsvegar að fara heldur lengra en hann'vill. bannig kem- ur ferð hans á hjólhesti honum i stað leiðinlegra kennara i heim- speki, siðferði og mannlegum þroska. _ Skiptu hafurtaski þinu á bakið og bögglaberann. baö er ekki rétt siðerni að aðeins annar ykkar beri hita og þunga dagsins. • Sá sem hjólar upp langa brekku má búast við þvi, að innan skamms bruni hann i sönnum munaði niður dalverpiö hinum- megin. bannig kemur ferð á hjól- hesti honum i stað fyrirheita um annað lif. • Ef það rignir og þú ert eins og hundur af sundi dreginn, skaltu hugsa til þess meö gleði, hve gaman það verður að vera orðinn þurr á morgunn. Ef að þú hefur ekiö yfir héra- grey, sem stökk yfii veginn, þá skaltu að sönnu minnast hans með samúð i hjarta, en hinsvegar máttu hressa hug þinn á þvi, að lán var þetta atvik hjá þvi að stima með illa virkar hand- bremsur á fúllyndan skoskan tudda. Ef þú færð ekki karlhjól ef þú þarft karlhjól og kvenhjól ef þú þarft kvenhjól þá skalt þú kæra þig kollóttan: hvað er ein stöng milli kynja? Ef að þú ert i leit að ættartrénu og kemur til Irlands, þá gáðu að þvi, að það þýðir ekki að spyrja um Mýrkjartan kóng. Hann er ekki heima. Hinsvegar geturðu reynt að tala við Gýnes ölbónda eða dóttur hans Maltdögg — þó ekki fyrr en kvölda tekur og hjól dagsins eru hætt að snúast. Ef þú ert á ferð i grannlöndum þar sem boðið er upp á B og B (Húm og morgunmat), þá skaltu ekki láta hugfallast þótt frú O’Casey, sem er þér á vinstri hönd, framundan, sé búin að fylla hús sitt. Snúðu við og farðu niður afleggjarann til frú Joyce. jafnvel þótt hann sé á hægri hönd. bvi eins og Brendan Behan hefði get- að sagt: betri er vis tebolli að kvöldi en heiðarvegur sem er til alls vis. • Ef það springur hjá þér á is- lenskum malarvegi og þú hefur gleymt bótum og limi, þá þakk- aðu forsjóninni fyrir að þú skulir ekki hafa sprungið á Frakklandi — það er nefnilega vist að þú ert búinn að gleyma frönskunni þinni hafir þú nokkru sinni kunnað hana. Sá sem leggur upp i langferð á hjóli skal að visu kunna að lima yfir gat á slöngu. Einnig er gott að hann viti að heimurinn hefur ekki farist þótt keðjan sé farin af. Allar aðrar bilanir eru flóknari en svo að það sé hægt að ætlast til þess að þú sért við þeim búinn. Huggaðu þig við það, að heimur- inn er fullur af mönnum sem hafa nautn af að sanna að þeir kunni ráð við tæknilegum vanda. Ef þú lendir i þvi að fela þeim á hendur sérkennilega bilun á hjólhesti þinum skaltu gleðjast i hjarta þinu yfir þvi, að þeir nota ekki tæknivitið á meðan til að búa til atómsptengjur. Ösár rass er meira virði en fæt- ur án harðsperra. • Ef þú ert handtekinn fyrir ölvun við akstur á reiðhjóli, þá skaltu bjóða lögreglunni upp á þau býti, að hún handtaki hjólið en aki þér heim. Lögreglan verður fegin og mun ætla að hún hafi sjálf kveðið upp þennan Salómonsdóm. Ogsem ég sagði þér i upphafi, sonur sæll, eða dótt r prúð: tveir fætur eru hverjum gir betri.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.