Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 25.07.1981, Blaðsíða 19
Helgin 25. — 26. júlí 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 19 jeppa sem hann ók. Hvaöa skyld- um hafa bílaleigur aö gegna i þessu sambandi? Skyldu fleiri þeirra hafa leigt sama erlenda aðilanum stóra bila til langs tima i sumar? Það væri gaman að fá að vita hvort sú kjaftasaga sem gengur á milli áningarstaða sé sönn, að um mánaðamót júni — júli i sumar hafi komið fljúgandi til landsins tuttugu manna hópur erlendra ferðamanna. 1 farangri þeirra á að hafa verið nesti til tæplega tveggja vikna ferðar um landið. Hvað segja farmenn um það, sem varla fá að flytja með sér skinku- bita inn i landið? Er kannski ekki sama hver á I hlut? Ég vona aila- vega að þessi saga sé ekki sönn. En hversvegna er verið aö amast við þessum ferðamáta? Til þess liggja ýmsar ástæður. 1 fyrsta lagi er hér verið aö brjóta lög. 1 öðru lagi eru tekjur íslendinga af viðskiptum við þessa aðila ákaflega rýrar. Þeir koma með flest sem til þarf að utan. t þriðja lagi eru þessir hópar ekki undir islenskri leiö- sögn og i fjórða lagi hafa þeir orðið uppvisir að þvi að gista utan eftirlitssvæða til að losna við að borga (en nota sér svo alla þjón- ustu hjá tjaldsvæðum). Þeir eru þvi mjög viðsjárverðir frá náttúruverndarsjónarmiði. t þessu sambandi er rétt að geta þess, aö hjá flestum islensku ferðaútgeröunum sem annast flutninga ferðamanna er yfirleitt reynt og gott starfsfólk, sem reynir i hvivetna að sjá til þess að islenskri náttúru sé ekki ofgert, enda er samstarf landvarða við það meö ágætum. Það er mun betra að hafa stjórn á 40 manna hópi i rútu undir islenskri farar- stjórn, en fjórum 10 manna hópum án islenskrar leiðsagnar. Það segir sig sjálft. Enn eitt má benda á i þessu sambandi. Dálitið hefur boriö á að undirbúningi hópa sem t.d. koma frá Þýskalandi, sé mjög ábótavant. Sem dæmi get ég nefnt hóp sem kom til landsins á vegum þýskrar ferðaskrifstofu með eitt fjölritað blað til leiðsagnar. A þvi blaöi var enginn greinarmunur geröur á Keflavikurveginum og Gæsavatnaleið, enda lauk ferð- inni i Jökulsá á Fjöllum inn undir Dyngjujökli, og má mildi heita að ekki hlaust slys af. Ætli forsjá reyndra manna hér sé ekki betri kostur? Hjakkað í sama farinu Brot útlendinga á náttúru- verndarlögum, svo sem eggja-og fuglataka, steinataka og nám annarra náttúruminja hafa einn- ig veriö til umræöu undanfarið. Nú er hér ekkert nýnæmi á ferðinni. Sennilega er fullseint i halann gripiö i þessum efnum. Það hefur þegar oröiö stórskaði. En hvers vegna er á hverju sumri fjallað um þessi mál eins og aö hér sé um nýnæmi að ræða? Ef gildandi lög og reglugerðir Brotá náttúruverndar- lögum er ekkert nýnæmi. Það hefur þegar orðið stórskaði. En hvers vegna er á hverju sumri fjallað um þessi mál eins og hér sé um eitthvað nýtt að ræða ? Aðkoma i Eldgjá i ágúst 1978. Það er greinarhöfundur, Tryggvi Jakobsson scm Htur yfir ósómann. — Ljósm. Jón Gauti Jónsson. Er óeðlilegt að hugsa sér að þeir sem beina hingað ferða- mannastraumi taki á sig einhvern kostnað af gæslu lands? Náttúruverndarráð hefur markvisst verið rúið fjátframlögum á sama tíma og umsvif hafa aukist. um þessi efni eru ófullnægjandi, þá er hér verk að vinna. Gjörið svo vel, þingmenn! En það er e.t.v. ekki á góðu von ef sýslu- menn gera sér að góðu aö selja erlendu stórskotaliði leyfi til að grisja islenska fuglastofna. A.m.k. hlær sá borgari sem sitja þarf tvo sólarhringa I fangelsi fyrir vangoldna stööumælasekt að þeim viðurlögum sem gerð hafa verið heyrin kunn við brotum á náttúruverndarlögum. Þaö væri annars gaman að fá upplýsingar um örlög mála og dóma þar sem fjallað hefur veriö um brot á náttúruverndarlögum. Hér verður ekki lagður dómur á það hvort með þeim sem koma og fara úr landi er nægilegt eftirlit, en er hugsanlegt aö einhverju þurfi aö breyta? Uppbygging tjaldstæða Hér sannast eins og viða annarsstaðar að kapp er best með forsjá. Það veröur að vera hægt að taka þannig á móti þeim ferðamönnum sem hingað koma, aö öllum sé sómi sýndur, lslandi, tslendingum og ferðamönnunum sjálfum. Þvi miður hefur gætt of mikillar einhæfni i vali viðkomu- staða og litiö verið gert til þess aö miðla straumnum á mismunandi staði. Auðvitað vantar hér markvissa uppbyggingu. Þaö er ekki nokkur glóra að taka við álika fjölda ferðamanna i Landmanna- laugum, með þeirri aöstööu sem þar er, og kemur i þjóðgarðinn i Skaftafelli, sem talist getur sam- bærilegt við fullkomnustu tjald- svæði i Evrópu. Og þó helmingi færri komi I Heröubreiöarlindir má telja það allt of mikiö miðað við núverandið aðstæöur. Það eru ýmsir staðir, einkum á hálendinu sem eru i hættu vegna átroönings. Samt fullyrði ég að viö gætum tekið enn fleiri feröamenn en nú koma til landsins; til þess þarf bara betra skipulag. Hér er höndlaö með auölind og hún er ekki ótæmandi frekar en fiskistofnarnir i sjónum umhverf- is landið. Ef við berum saman aðstöðuna i Skaftafellsþjóð- garöinum og t.d. á tjaldstæöum viö Stöng i Þjórárdal, i Mývatns- sveit, eða i Herðubreiðarlindum er óliku saman aö jafna. Sist vil ég lasta aðstöðuna i Skaftafelli, en óneitanlega kemur manni á óvart hve rikulega hefur verið veitt úr mörgum sjóðum þangað i samanburði við önnur svæði, jafnvel þó þau heiti friðland eins og Herðubreiöarlindir. En aðstaða á borð við þá sem er i Skaftafelli ætti aö vera mun viðar. Hún laðar til sin fólk og léttir þar meö á ofnýttum svæöum. Þeir staöir veröa að vera vel valdir. Ég vil benda á einn. Það er sundlaugin i Þjórsár- dal. Góð tjaldsvæöi þar myndu ekki aðeins létta á Þjórsárdal, heldur einnig Fjallabaki og þar með talið Landmannalaugum um leið, þvi þangaö yrði aðeins þægi- leg dagsferð frá tjaldstæðunum. Þetta kostar peninga, kunna menn nú að segja,og vist er það. Það er i raun aödáunarvert hvaö Náttúruverndarráð hefur getað gert i Þjóögarðinum i Skaftafelli. Hér þarf bara að skipuleggja og gera áætlanir. Náttúra tslands og framtiö ferðamannaþjónustu á landinu er i húfi. Allt fyrir peningana AUt kostar peninga, aukinn feröamannastraumur lika. Hann krefst bættrar þjónustu og aukins eftirlits. Og loks er komið aö stóru atriði sem vert er að minnast litilsháttar á, það er gæsla lands i ljósi aukinnar ferðamanna- þjónustu. Fyrirkomulag þessara mála nú er þannig að vfðast hvar kostar Náttúruverndarráð gæsl- una. I þjóðgöröunum er það eitt um hituna (fyrir utan Þingvelli), en annarsstaðar i samkrulli viö Skógrækt rikisins eöa Ferðafélag tslands og Ferðafélag Akureyrar. Þaö er f rauninni dálitið merki- legt aö ferðafélögin sem aöeins hafa byggt skála á vinsælum ferðamannastöðum, flesta löngu áður en fjöldaferðamennska nútimans hófst, skuli þurfa að greiða gæslu landsvæöa sem rikisvaldið hefur friðað. Afnot af húsnæði þeirra og aðstöðu ætti að vera nóg framlag fátækra feröa- félaga til þessara mála. Hús- varsla i skálunum veröur hvort eö er sifellt minni hluti af starfi landvarða þegar búið er aö stofna svo og svo stór friölönd umhverfis þessi hús. A þá Náttúruverndar- ráö eitt að borga? Þaö yröi eflaust ekki mikil hrifning á þeim bæ ef til þess kæmi. Stofnunin hefur á undanförnum árum verið markvisst rúin fjár- framlögum á sama tima og umsvif hennar hafa sifellt aukist. Það kann að verða veröugt umhugsunarefni hvernig slikt getur gerst. Ætli það sé fjárveit- ingavaldinu einu að kenna, eða ætli hlutleysi ráösins eigi ein- hvern hlut að máli? Spyr sá sem ekki veit. Annars væri gaman aö sjá hlutfallslegan samanburð á fjárveitingum til Náttúruvernd- ar- og Ferðamálaráðs á siðast- liðnum árum. En m.ö.o. er óeðlilegt að hugsa sér aö þeir sem beina hingað auknum ferðamannastraumi taki á sig einhvern kostnað af gæslu lands? Hvernig sem má hugsa sér þau mál, er hér liklega enn eitt verkefnið sem rikisvaldið verður að beita sér i. Hvernig væri að hugsa þessi mál til enda og skipu- leggja? Hér hefur litið veriö minnst á feröalög tslendinga sjálfra um landið. Það er reyndar kapituli útaf fyrir sig, en I ljósi þess aö feröaskrifstofur reyna nú I æ rikara mæli að hvetja tslendinga til aö feröast um eigið land sýnist ekkert benda til annars en að aukning verði á þvi sviöi I fram- tlöinni. t raun þarf alls ekki aö gera greinarmun á islenskum og erlendum ferðamönnum hvað heildarskipulag þessara mála varöar. Arekstrarlaus sambúö fólks í Skaftafelli bendir til þess. Ekki veröur annað sagt en aö verulegur árangur hafi náöst I þvl aö hvetja lslendinga til bættrar umgengni, en betur má ef duga skal. Það er auðfundið að landinn kann að meta þaö aö koma á snyrtileg tjaldsvæði með góðri snyrtiaðstööu. og reglan er ein- föld: Að skilja við tjaldstaðinn eins og maður vildi koma að honum. Hér að framan hefur vlða veriö komið við og sjálfsagt má ýmis- legt finna að, einu sleppt en öðru ofaukið. Hér eru ekki á feröinni annað en hugrenningar land- varöar sem reynt hefur að fylgjast með þeirri umræðu sem farið hefur fram aö undanförnu og finnst hann hafa eitthvaö til málanna að leggja. Tryggvi Jakobsson landvörður, Skaftafelli. j

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.