Þjóðviljinn - 14.08.1981, Blaðsíða 6
(i SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 14. ágúst 1981
Útboð
Alþýðusamband Austurlands óskar eftir
tilboðum i að byggja 19 sumarhús að Ein-
arsstöðum á Völlum.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen h.f. Ármúla 4,
Reykjavik og á skrifstofu Alþýðusam-
bands Austurlands Egilsbraut 25, Nes-
kaupstað, gegn 1000 króna skilatryggingu.
Tilboðum ber að skila til Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen h.f. eigi siðar en 9.
september n.k.
Alþýðusamband Austurlands
Sálfræðingur
Ráðuneytið óskar eftir að ráða sálfræðing
til starfa við fangelsin. Starfstimi og
starfshlutfall eftir samkomulagi.
Umsóknir með upplýsingum um náms-
feril og fyrri störf sendist fyrir 25. ágúst
nk.
Dóms- og kirkiumálaráðuneytið,
12. ágúst 1981.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða LOFTSKEYTAMANN/
SÍMRITARA tii starfa i Neskaupstað.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá
starfsmannadeild og stöðvarstjóra i Nes-
kaupstað.
Laus staða
Staða iþróttaíulltrúa er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerli opinberra starfsmanna.
Umsóknum, er veiti vitneskju um menntun og fyrri störf,
séskilað til menntamálaráðuneytisins fyrir f4. september
n.k.
Menntainálaráðuneytið,
12. ágúst 1981.
Minning
Skeggi
Ég tel það sé erfitt að minnast
Skeggja Ásbjarnarsonar svo vel
sé, svo margbrotinn persónleiki
var hann i lifanda lifi. Ef eitt orð
væri látið nægja, þá kemur mér i
hug orðið þakklæti. Slikur ágætis-
maður var hann. Ég var nefni-
lega eitt sinn nemandi hans og
skildi að þar fór næmur persónu-
leiki, sem hafði að leiðarljósi orð-
in mannvirðing og mannást. Það
þarf þó nokkuð til að vera slikur
yfirburða maður að bjóða nem-
endum sinum upp á að taka þá
sem jafningja, en það gerði al-
mUgamaðurinn Skeggi Ásbjarn-
arson. Skeggi hélt að visu ekkert
sérstaklega upp á mig sem nem-
anda, þó-einkunnin væri sU besta i
bekknum, þvi að hann leitaðist
alltaf við að styrkja þá.er stóðu
höllum fæti. Þó leyfði hann mér
stundum að lesa svona aukalega
ljóð og hældi hann mér þá fyrir
ákveðna hrynjandi, og bætti svo
við: ÞU lest þetta eins og þU skilj-
ir ljóðið. En auðvitað var það
bölvuð vitleysa, þvi að vissulega
þurfti ég að læra eins og aðrir. Ég
Ásbjamarson
veit að Drottinn hefur tekið vel á
móti manninum Skeggja Ás-
bjarnarsyni. Ég tel að ég eigi það
þér að þakka, að ég skuli eiga al-
veg flekklaust lif. Skeggi var
nefnilega meira en kennari. Hann
tamdi sér að vera faðir bekksins,
en það get ég ekki sagt um aðra
þá kennara, sem ég hef rekist á á
llfsleiðinni. Ég vona að ég tali
fyrir munn allra þinna nemenda,
þegar ég segi: ÞU vildir varða
leið nemenda þinna og það heit
þitt hef ég aldrei brotið. t dag er
kvaddur mikill mannvinur og ég
kem ekki að tómum kofanum hjá
almenningi, þvi að hann var einn
af mörgum ágætum fræðurum
rikisUtvarpsins. ÞU er kvaddur i
dag af einlægri virðingu, þvi að
sá, sem hefur efni á að bera virð-
ingu fyrir öðrum, ber sennilega
ávallt mesta virðingu fyrir sjálf-
um sér. Þvi sá sem ekki ber virð-
ingu fyrir sjálfum sér, hann á
ekkert handa öðrum. ÞU fórst of
snemma, en eflaust hefur drott
inn viljað fá þig, til að gera birt-
una hinumegin meiri. Ég hef
þessi orð ekki fleiri. En þó hefði
aðeins eitt orð verið nægjanlegt
frá mér. Það er orðið þakklæti.
Blessuð veri minning Skeggja Ás-
bjarnarsonar, barnakennara.
Steinar Benediktsson
Minning:
Sigurður Harðarson
Kveðja frá Iðnskólanum 1 Reykjavík
Sigurður Harðarson stundaði
nám i bókagerðardeild á liðnum
vetri og hugði á framhaldsnám i
bókbandi næsta vetur. Sigurði
sóttist námið vel, hann var vel
látinn jafnt af nemendum sem
kennurum. Á undanförnum árum
hafði Sigurður unnið margvisleg
störf. Ákvörðun hans um nám i
bókbandi byggðist þvi á reynslu
og yfirvegun. Félagar Sigurðar i
bókagerðardeildinni telja hann
hafa verið hæglátan, jákvæðan,
traustan og raungóðan mann.
Nemendur, kennarar og annað
starfslið skólans vottar aðstand-
endum samUð vegna þessa svip-
lega fráfalls.
Iðnskóiinn i Reykjavik,
Ingvar Asmundsson.
Kvikmy ndaef tirlitið:
Ekki vald til að banna
sýningu fólki yfir 16 ára
Menntamálaráðuneytið hefur
sent frá sér eftirfarandi greinar-
gerð um skoðun kvikmynda hér á
iandi, sem kvikmyndaeftirlits-
mennirnir Hulda Valtýsdóttir,
Erlendur Vilhjálmsson og Jón A.
Gissurarson hafa óskað eftir að
komið sé á framfæri:
„Vegna misskilnings sem gætt
hefur i blaðaskrifum að undan-
förnu um hlutverk og starfssvið
kvikmyndaeftirlitsins, er ástæða
til að gera nokkra grein fyrir
þessum atriðum.
Kvikmyndaeftirlitið starfar
samkvæmt ákvæðum i 58. grein
laga um vernd barna og ung-
menna frá 1969 og 52. grein reglu-
gerðar frá 1970 um sama efni. 1
58. greininni segir svo m.a.:
„Enga kvikmynd má sýna
börnum innan 16 ára aldurs,
nema að undangenginni at-
hugun, .... Ráðherra tilnefnir, að
fengnum tillögum barnaverndar-
ráðs, ... menn til fimm ára i senn
til að annast skoðun kvikmynda.
Skoðunarmenn skulu meta
hvort mynd geti haft skaðleg
áhrif á siðferði eða sálarlif barna
eða á annan hátt. Skulu þeir
ákveða, hvort mynd sé óhæf til
sýningar börnum innan 16 ára
aldurs eða á tilteknum aldurs-
skeiðum innan þess aldurs. Tveir
skoðunarmenn hið fæsta skulu
skoða hverja mynd. Greini þá á,
skal hinn þriðja kveða til, eftir þvi
sem nánar verður ákveðið i
reglugerð og ræður þá meiri
hluti, hvort banna á mynd eða
ekki.” (Eins og áður segir nær
slikt bann aðeins til barna að 16
ára aldri.)
Ekki aflar það barni innan
ákveðins aldurs heimildar til að-
gangs að kvikmyndahUsi, þar
sem sýnd er mynd, sem bönnuö er
börnum á þess aldri, að það sé I
fylgd meö fullorðnum eöa þeim
sem heimild hafa að sjá viðkom-
andi kvikmynd. Barnaverndar-
nefndir á viðkomandi stöðum
skulu hafa eftirlit með, að aðeins
séu þar sýndar börnum kvik-
myndir, sem kvikmyndaeftirlitið
hefur leyft... RikisUtvarpið
annast skoðun kvikmynda, sem
það sjónvarpar.”
í reglugerð frá 1970 segir svo
m.a. i 52. grein: „Enn fremur
bera foreldrar eða aðrir forráða-
menn ábyrgð á að börn sjái ekki
slikar myndir (þ.e. myndir bann-
aðar börnum).
Skoðun fer fram i Reykjavik.
Heimilt er þó ráðherra að ákveða
að skoðun fari fram utan Reykja-
vikur. Orskurður skoðunarmanns
skal fylgja hverri mynd og gildir
hann hvarvetna á landinu.”
1 58. grein laga um vernd barna
og ungmenna er ábyrgð lögð á
herðar dyravarða og eftirlits-
manna samkomustaða ásamt
forstöðumanni að Urskurði kvik-
myndaeftirlitsins sé framfylgt að
viðlögðum sektum, nema þyngri
refsing liggi við að lögum .
Lögum samkvæmt hefur kvik-
myndaeftirlitið þvi ekkert vald að
banna sýningu kvikmynda fólki
eldra en 16 ára.
Þess má geta að 1980 barst
kvikmyndaeftirlitinu bréf frd
menntamálaráðuneytinu vegna
tilmæla frá dómsmálaráðu-
neytinu. Var þess óskað að
skoðunarmenn gerðu lögreglu-
stjóra aðvart.kæmu kvikmyndir
til skoðunar sem ætla mætti að
brytu i bága við ákvæði 210
greinar almennra hegningarlaga,
en grein þessi bannar birtingu á
klámi og dreifingu þess.
Þetta hafa skoðunarmenn gert.
Kvikmyndaeftirlitið hefur engin
afskipti af málinu framar, enda
er þá verið að fjalla um algert
sýningarbann en ekki einungis
fyrir börn innan 16 ára aldurs.”
Laus staða
Staða æskulýðsíulltrUa skv. 4. gr. laga nr. 24/1970 um
æskulýðsmál er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknum, er veiti vitneskju um menntun og fyrri störf
séskilað til menntamálaráðuneytisins fyrir 14. september
nk.
Menntamálaráðuneytið, 12. ágúst 1981.
Laus staða
Staða tækja-og dýravarðar við liffræðiskor verkfræði- og
raunvisindadeildar Háskóla íslands er laus til umsóknar.
Um erað ræða hálfa stöðu. Starfið er einkum fólgið i við-
halditækjaogeldi dýra. Nánari upplýsingar eru veittar i
sima 85433.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir sendist inenntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6,
101 Reykjavik, fyrir 7. september nk.
Menntamálaráðuneytið,
13. ágúst 1981.