Þjóðviljinn - 04.09.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 4. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Minning
Gunnar Benediktsson
rithöfundur
F. 9. okt. 1892 — D. 26. ágúst 1981
Einhvern tima laust fyrir 1930,
þegar ég var aö fá nasasjón af
veröldinni i kringum mig og
ásaka máttarvöldin fyrir aö láta
mig fæöast einmitt þegar allir
merkisatburöir höföu gerst og
engir áttu eftir aö gerast.bárust
tiöindi austur isveitir af ógurlega
guölausum klerki, sem byggi á
Saurbæ eins og Hallgrimur
Pétursson foröum. Þessi frétt
orkaöi talsvert á mig, þvi aö
hversdagsleikinn var svo yfir-
þyrmandi i þann tiö i afskekktu
hverfi austur i Holtum. Ég haföi
heyrt getiö um eldgos, styrjaldir,
hafís, útilegumenn og drauga,
sem nú voru úr sögunni eins og
allt annaö spennandi, en aldrei
heyrt minnst á guölausan klerk.
Hann var mér hugstæöur um
stund, og ég reyndi aökomast aö
því, i hverju villa hans væri fólg-
in, en fólk var tregt til aö fræöa
mig um þá hluti. Ég komst þó á
snoöir um aöhann bæri brigöur á
ritninguna og aö Kristur væri rétt
feöraöur. Þetta þóttu mér mikil
tiöindi, og mig tók aö gruna aö
heimurinn væri ekki jafnleiöin-
legur og mér haföi virst. Nokkr-
um árum eftir rosafréttina varö
mér ljóst aö guölausi presturinn
haföihvorki veriö guölaus né búiö
á Saurbæ á Hvalf jaröarströnd.
Gunnar Benediktsson var
hraustmenniog vinnuþjarkur um
dagana og lá aldrei á sjúkrahúsi
fyrstu 87 ár ævinnar. Hann var
bóndasonur fæddur aö Viöboöi á
Mýrum I Austur-Skaftafellssýslu
9. okt. 1892rfjórum árum siöar ai
meistari Þórbergur leit heims-
ljósiö á Hala nokkru austar.
Gunnarvarðstúdent frá MR 1917,
kandidat I guöfræöi 1920 og
prestur til Grundarþinga i Eyja-
firöi sama ár og bjó aö Saurbæ i
Eyjafirði. Hann sagöi af sér
prestskap 1931, fluttist suður og
stundaöi eftir þaö ritstörf.kennslu,
verkamannavinnu, erindis-
rekstur, stjórnunarstörf á ýmsum
stigum og boöun, sósialisma i
ræöu og riti.
Gunnar kom úr foreldrahúsum
hlaöinn rétttrúnaöi 19. aldar og
setti sér ungur aö gerast kenni-
maöur. 1 Játningum segir hann
m.a.: „Þegar ég 21 árs er að
leggja út á lifsbrautina meö
ákveöiö mark fyrir augum... þá
viröast mér meinsemdir mann-
lffsins liggja i vanrækslu þess aö
ala böm upp i kristilegum anda
og kristilegum bróöurkærleika1'.
Þess vegna veröur „allt samlff
milli heimilismanna, millinábýla,
milli sveita, milli þjóöa, kalt og
kærleikslaust.Til þess aö bæta úr
þessu tók ég þá ákvöröun aö
veröa prestur og hafa áhrif á
þekkingar- og tilfinningalif landa
minna.”
Stefnuskrá umbótamannsins,
Gunnars Benediktssonar, var
ekkert merkileg á sinum tima,
snemma á öldinni. Þá voru Is-
lendingar hugumstórir og sam-
einaðir i fátækt sinni og fáfræöi
um félagsmál. Auövaldiö átti þá
ekki marga talsmenn hérlendis.
Agúst H. Bjarnason reistiþvi nið-
stöng I Yfirliti yfir sögu manns-
andans, Karl Finnbogason i
landafræöinni, sem börnum og
unglingum var kennd, og Guö-
mundur bróðir hans barðist fyrir
menntun alþýöunnar, og kirkjan
var áhrifamikil stofnun. „Það er
margt sem til þess bendir, að
aldrei I allri sögu mannkynsins
hafi nokkurt rikisverndaö trúar-
bragöafélag staöið i jafninnilegu
sambandiviö dýpstu menningar-
hræringar þjóöarinnar og barist
fyrir þeim af jafnfölskvalausri
einlægni og þjóðkirkja íslands á
tveimur fyrstu tugum þessarar
aldar”, segir Gunnar Benedikts-
son á einum staö, og hann gekk i
þjónustu heimsundursins. Þriöji
áratugurinn var mikill reynslu-
timi fullvalda samfélagi á Islands
þegar kreppur og góöæri, hags-
munaárekstrar og stéttabarátta
ráku hvort annaö. Kennimaöur-
inn Gunnar komst aö raun um aö
samfélagsbreytingar voru nauö-
synlegri mönnum til sáluhjálpar
en fyrirbænir eins og á stóö. ,,Þaö
skipulagsform,sem áttiviöfram-
leiösluhætti 18 aldarog barist var
fyrir aö koma i framkvæmd á-19.
öld.hlýtur nú meö öllu aö vera úr-
elt”.
Eitt sinn var Gunnari Bene-
diktssyni faliö aö setja saman
stefnuskrá handa nýstofnubu
Framsóknarfélagi I Eyjafiröi. Viö
stefnuskrárstörfin varö honum
ljóst aö hann var sósialisti. Þegar
hann sagöi Jónasi Jónssyni frá
niðurstööunni, varö honum aö
orði: Fjandi var aö þú fórst aö
grufla út i þetta Gunnar.
Gunnar var maður hreinskipt-
inn og hvergi hálfur I starfi. Hann
tók aö boöa fagnaðarerindið um
bætt samfélag, en leiö kirkjunnar
þóttihonum of seinfarin aö þvi
marki. Hann baö hennar ágætu
þjóna og alla.sem teldu sig guös
vini, aö sýna trú sina i verki.
Hann klæddist hempu öðru hverju
og vann prestsverk fyrir vini sina
allt fram á siðustu árin, og tók
virkan þátt i félagsstarfi presta.
Hann var ósvikinn baráttu-
maöur fyrir breyttri samfélags-
skipan, átti sæti 1 stjórn
Kommúnistaflokks Islands
1934—38, en gerðist þá einn af
stofnendum Sameiningarflokks
alþýöu og sat I stjórn hans meðan
hann var. Gunnar var kommún-
isti á gamla og góöa visu og
óhvikull; ritaöi Sóknina miklu
1940 gegn svonefndum Finna-
galdri og stofnaöi Nýtt dagblað
þegar Þjóöviljinn var bannaöur
og ritstjórnin hemumin i breskt
fangelsi. Margir dáöu Gunnar
Benediktsson i þann tfð.
Gunnar var mikilvirkur rithöf-
undur. Eftir hann liggja tugir
bóka: trúfræöi, samfélagsmál,
pólitfk, skáldsögur, leikrit, ævi-
sögur, minningar, um daginn og
veginn.þýöingar og fjöldi blaða-
greina. Hann hóf feril sinn sem
rómantiskur rithöfundur en gerö-
ist siðan raunsætt sagnaskáld.
Skáldsagan Anna Sighvatsdóttir
1929 er nöpur þjóöfélagsádeila.
Eftir útkomu hennar mun kenni-
maöurinn Gunnar Benediktsson
hafa talið áhrifameira aö ræða
viö fólk á annan hátt en i skáld-
sögum. Hann kvaddi þó ekki
fagurfræðina, þvi aö siðar sendi
hann frá sér bæöi skáldsögur og
leikrit og nokkrar þýöingar.
Mestu ritverk sin vann hann sem
fræðimaður og ævisagna-
höfundur, og þykir mér vænst um
bókina, sem hann reit um Snorra
skáld i' Reykholti.
Herstövamáliö beindi sjónum
aldamótamannsins Gunnars
Benediktssonar aö Sturlungaöld,
þvi mikla örlagaskeiöi I sögu
okkar Islendinga. Saga þin er
saga vor kom út 1952 um her-
stöövamáliö, og annað bindi er til
ihandriti. Bókin tsland hefur jarl
birtist 1954 og þremur árum siðar
Snorri skáld i Reykholti. Fræöi-
menn höföu verið margsaga um
þann valdagráðuga meistara,
sem nægöi ekki minna viðfangs-
efni en heimskringlan sjálf, þegar
hann sat við skrifpúltið uppi I
Reykholtsdal. Hjá Gunnari
þjónaði höföinginn hinum
alskyggna rithöfundi, en rit-
höfundurinn ekki höföingjanum.
Halvdan Koht, mikilsvirtur
norskur sagnfræöingur og sér-
fræðingur i ritum Snorra, vottaði
Gunnari þakklæti sitt og aödáun á
verkinu.
Bjart og glatt er yfir endur-
minningum Gunnars Benedikts-
sonar, fjórum bindum. Hann
Stingur niður stilvopni 1973 og
kom Aö leikslokum 1978, áöur en
hann veiktist um haustið. Hinum
mikla baráttumanni þótti vænt
um fóik og hann var svo jákvæöur
igarð náungans.svo bjartsýnn,aö
hann átti sér ekki óvildarmenn,
þvi aö öll erum viö bestu skinn,
þegar aö kjarnanum kemur.
Hann var heilsteyptur maöur og
hreinskilinn, hraustur og hug-
fanginn af þvi sem hann fékkst
viö hverju sinni. Þess vegna ligg-
ur eftir hann mikiö dagsverk.
Gunnar var einn þeirra örfáu
manna, sem hafa vasast i pólitik
meö miklum árangri án þess aö
vera nokkru sinni aö pota sjálfúm
sér til svokaliaöra mannviröinga.
Hann haföi unun af þvi aö vinna
og skammaöíst sin siðustu árin
fyrirdugleysiö. Samtvarhann si-
vinnandi. Siöast vann hann að
sögu fullhugans séra Odds Gísla-
sonar frá Stað i Grindavik, og
honum tókst aö ljúka henni, áöur
en heilsan þraut algjörlega og
hann var lagöur á sjúkrahús
þremur vikum fyrir andlátiö.
Hann andaöist sáttur viö guö og
menn og haföi veriö þaö alla
daga. Baráttumái hans voru
björgunarstörf undan hinu illa og
boÖOTÖ hans var: Sýn mér trú
þina af verkunum.
„Maöurinn einn er ei nema
hálfur”, og jafnan er ekki hálf-
sögö sagan.efhelminginn vantar.
Gunnar var tvigifur. Fyrri kona
háns var Sigfiður Gróa Þor-
steinsdóttir sjómanns i Reykja-
vik. Þau áttu þrjá syni: Benedikt
tæknifræöing i Kópavogi, Styrmi
stýrimann á Akureyri og Þorstein
kennara I Kópavogi. Þau Sigriöur
skildu.
SRari kona Gunnars var Valdis
Halldórsdóttir bónda og skálds á
Asbjarnarstöðum. Þau áttu:
Heiðdlsi fóstru á Selfossi og
Halldór starfsmann hjá S.A.A.
Valdiser kennari, skáld og rithöf-
undur, og hefur birt sögur og
kvæði I timaritum, m.a. Perlum
og Emblu. Gunnar Benediktsson
átti sér traustan bakhjari um
dagana. Hann var óvenjulegt
karlmenni og drengur góöur.
Björn Þorstrinsson
Meö Gunnari Benediktssyni er
hniginn i valinn einn af merkustu
mönnum vorrar aldar. Hann
skildi samtið sina óvenjulega
djúpum skilningi og stóö jafnan i
fylkingarbrjósti og hiiföi sér
hvergi i þeirri orrustu upp á lif og
dauöa, sem háö hefur veriö næst-
um látlaust meöan hann dvaldist
meö okkur á þessari jörö. Samt
var hann aö allri gerðmiklu likari
bestu mönnum -éndurreisnar-
timabilsins en þeirri einhæfu
manngerö, er svo mjög einkennir
vora tima. En viö þurftum ein-
mitt harla mjög á slikum manni
að halda. Þessvegna var Gunnar
svo einstakur I okkar hópi. Sagan
heföi annan svip og minna
áunnist, hefði hans ekki notið viö.
Þaö voru stundir, þar sem enginn
gat komiö i hans staö. Þaö varöar
miklu bæöi fyrir nútft og framtið
að gera sér sem ljósasta grein
fyrir sögulegum staðreyndum
þessara örlagariku tima.
Og Gunnar vissi mjög vel um
gildi sögunnar. Þessvegna tók
hann sér fyrir hendur aö skrifa
pólitiska samtimasögu okkar.
Ariö 1952 kom út á forlagi Heims-
kringlu bók hans: „Saga þin er
saga vor”. Þaö er saga Islands
frá vordögum 1940 til jafnlengdar
1949, eins og stendur á titilblaöi.
Þetta var mikiö nauösynjaverk,
og ég sé þaö enn betur nú, eftir aö
hafa gluggaönokkub iskrif þeirra
manna um þetta timabil og
önnur, sem þekkja þau aðeins af
afspurn eöa skráðum heimildum.
Oft er maöur i besta falli jafnnær
eftir þann lestur og stundum er
verr fariö en heima setiö. Maöur
situr þá eftir með alrangar eða
brenglaöar hugmyndir um það,
sem mestu máli skiptir, ef maöur
veit ekki betur. En saga
Gunnars er lifandi saga. Hún er
skrifuö af manni, sem
liföi sjálfur þá sögu, er hann var
aö skrifa. Hann var i senn
sögumaður og ein af söguhetjun-
um, þótt hann fliki þvi litt. Aö þvi
leyti má likja skrifum hans viö
hina ágætu bók Einars
Olgeirssonar: Island i skugga
heimsvaldastefnunnar. Þeir, sem
ekki hafa lifaö þessa tima, vita
harla litiö um veruleika þeirra, ef
þeir hafa ekki lesið siikar bækur.
En Gunnar lét ekki sitja viö aö
skrifa sögu þessa timabils. Ef
hann vissi um óunnið nauösynja-
verk, þá vann hann þaö, æ tti hann
þess nokkurn kost. Hann hélt
áfram sögunni allt fram til 1971.
Þaö varö mikib verk, tvö bindi.
Hann hefur fyrir löngu lokiö þvi,
en þaö er ennþá i handriti, óút-
gefiö. Ég hef ekki lesið handritið,
en nú spyr ég útgefendur og þó
fyrst og fremst Heimskringlu og
Máiog menningu: Hversvegnaer
þetta handrit ekki gefið út?
Ég átti þess kost að sannreyna
aö Gunnar var sjálfum sér
samkvæmur, trúr sjálfum sér og
lifsköllun sinni til hinstu stundar.
Ég ieit inn til hans á Borgar-
spitalanum rétt fyrir andlátiö.
Gunnar vissi þá vel aö hverju dró.
Ég spuröi um liðan hans. Þá
svaraði þetta einstaka ljúfmenni
og prúömenni: „Ég er reiöur,
mjög reiöur”. Gunnar var mjög
skapheitur maöur en svo stilltur,
aö ég sá hann aldrei reiöast. En
nú var hann reiöur viö dauöann,
kominn hátt á niræöisaldur og
haföi þá skilaö lifestarfi, sem
mjög er fágætt á okkar tímum,
staöið alla tiö i eidi baráthinnar
til varnar lifinu og skrifaö yfir 30
bækur. Aður en hann fór á sjúkra-
húsiö haföi hann lagt siöustu hönd
á nýja bók, sem ég geri ráð fyrir
aö komi út á næstunni. En allt
þetta var honum ekki nóg. Honum
fannst hann ætti fjölmargt ógert
i þjónustu lifsins. Og nú kom eitt-
hvert framandi afl, sem vildi taka
i taumana og stööva ferð hans.
Það var eins og hann viidi skora
dauðann á hólm. Þetta var hinn
sanni Gunnar Benediktsson,
ávallt reibubúinn aö berjast tií
þrautar f yrir lifiö þótt viö ofurefli
væri að etja, jafnvel sjálfan
dauðann.
Við tókum nú upp léttara hjal,
sem færöi mér heim sanninn um,
að ekki hafði Gunnar glatað hinni
sérstöku kimnigáfu sinni. Gunnar
haföi aldrei hugsaö mikib um
dauöann. Hann hafbi i allt ööru ab
snúast um dagana, sem honum
fannst mikilvægara. En nú sagöi
hann, ab það hlyti að vera fróðleg
reynsla, sem hann ætti fyrir
höndum, aö deyja. Viö komum
okkur saman um, aö þaö hlyti aö
vera mikil lifsreynsla. Og nú
hefur hann fengið hana. Þvi
miður getur hann ekki miölað
henni til okkar, sem eftir lifum.
Hana veröur hver og einn aö
reyna sjálfur. Ég veit ekki neitt.
Ég get aðeins tekiö undir meö
Jónasi Hallgrimssyni: „Sist vil
ég tala um svefn viö þig”. Og ég
kann enga betri ósk en þá, sem
hann lét fylgja þessum orðum, ,aö
vinur minn fái „meira aö starfa
guös um geim”.
Valdisi og börnum Gunnars
sendi ég innilegar samúöar-
kveöjur og ég samhryggist þeim
við hinn mikla missi. En ég
samgleöst Valdisi lika, aö hafa
átt þvi láni að fagna að eiga
slikan lifsförunaut á virkasta og
gifturikasta skeiði hans.
Brynjólfur Bjarnason.
Sjá næstu síðu