Þjóðviljinn - 04.09.1981, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 04.09.1981, Blaðsíða 7
Föstudagur 4. september 1981 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7 = aö gerast, sannfæra fólk um hve aumt þaö væri aö viöurkenna meö sjálfum sér aö eitthvert málefni væri í alla staöi þarft og gott en leggja svo hvorki orö né verk aö mörkum til þess aö þaö næöi fram aö ganga. Mér er lika I fersku minni ódrepandi úthald hans viö aö finna sameiginlegan starfsgrund- völl handa fólki af óliku tagi og meö mismunandi skoöanir. Ofan á þetta bættist svo að Gunnari fannst ekkert eölilegra en þaö aö öllum þætti þjarkiö skemmtilegt, jafnt pólitiskum andstæöingum sem samherjum. Þeir, sem þessi orö kynnu aö lesa, veröa aö hafa i huga, aö hér er engin tilraun geröi til aö draga upp neina heildarmynd af lifi eöa starfi Gunnars Benediktssonar. Engu aö siöur er mér ljóst aö starfsævi hans var óvenjulega löng, vinnuafköst hans ótrúleg og fátt lét hann sér óviökomandi. Nú er mér sagt aö Gunnar sé allur. Ekki trúi ég þvi. Hann og hans likar halda áfram meö okk- ur á göngunni, bara á ofurlitið annan hátt en áöur. Aö lokum vil ég svo senda Val- disi og aöstandendum þeirra hjóna bestu kveöjur minar. Þórgunnur Björnsdóttir Gunnar Benediktsson hitti ég fyrst haustið 1970 er ég réöst til kennslu viö Gagnfræöaskdlann i Hverageröi. Ég vissi ýmiss deili á honum áöur — haföi bæöi heyrt sitthvaö um manninn sem vakti áhuga minn og einnig haföi ég lesið nokkrar af bókum hans. Það var þvi meö nokkurri eftirvænt- ingu aöég beiö þeirrar stundar aö hitta hann á kennarastofunni, en Gunnar var stundakennari við skólann þann vetur. Og svo rann stundin upp. Ég stóö allt i einu augliti til auglitisviö þann mann sem ég haföi svo oft heyrt talað um, og mig haföi lengi langaö til aö hitta og kynnast. Mann sem hafði veriö allt I ^enn umtalaöur, umdeildur og dáour og siöast en ekki sist.þarna var maöurinn sem skrifaö haföi bókina Saga þin er saga vor. Þó aö þaö væri ótal margt sem mig langaöi aö tala um viö Gunn- ar þegar ég hitti hann þarna fyrst fór mér nú eins og ýmsum öörum viö áþekk tækifæri aö ég vissi ekki hvaö segja skyldi og greip þvi til þess umræöuefnis sem Is- lendingum er hvaö nærtækast, þ.e.a.s. veðrið. Já, sagöi Gunnar: „Viö skúlum tala um eitthvaö annaö en veöriö,þaö er ekki ndgu skemmtilegt umræöuefni”, þetta sagöi hann meö þeim gáska og þeirri einlægni sem honum var svo lagin. Ég man þaö örugglega rétt aö I þau 11 ár sem siöan eru liöin hefur tiðarfar og veörátta aldrei boriö á gdma i viöræöum okkar! Ég hygg aö stjórnmál og rit- störf hafi staðið hjarta Gunnars næst en maðurinn var of m ikillar geröar til þess aö áhugi hans af- markaðist við eitthvert mjög þröngt sviö. Áhugamál hans voru mörg og þekking hans ótrúlega viötæk. Hann var ákaflega opinn fyrir ölhi þvi sem var aö gerast bæöi heima og erlendis og fylgdist meö af eldlegum áhuga. Mig undraöi þaö oft hve þekking hans var mikil og hvaö dómgreind hans og næmi fyrir atburöum og ýmsu þvi sem benti til breytinga ekki sist á þjóömálasviðinu var mikiö. Ýmsar minningar leita á hug- ann. Ég minnist ógleymanlegs dags þegar við vorum aö prófa gagnfræöaskólanema i munnlegu bókmenntaprófi voriö 1971. Ég minnistþesser ég sóttiGunnar og Valdisi' austur I Hverageröi snemma vors 1977 þar sem þau höföu dvaliö um hriö — en svo haföi talast til milli min og Gunnars aö hann skiröi dóttur mina þegar hann kæmi aö austan. Þessi skirnardagur dóttur minn- ar er okkur hjónunum ákaflega eftirminnilegur og ekki sist fyrir þaö aö þaö var Gunnar sem skiröi og Valdisog hanneyddu meðokk- ur ógleymanlegri stund þennan dag. Ég get ekki stillt mig um aö láta eina minningu enn fljóta meö en hún lýsir áhuga Gunnars vel. Kosiö var til alþingis eins og menn muna I júni 1978. Um há- degiö hringir Gunnar i mig til þess aö ræöa kosningaúrslitin. Ég spyr hann þá hvort.hannhafivak- aö lengi f ram eftir. Þaö stóö ekki á svarinu: ég er nú ekkert farinn aö sofa ennþá! Ég ætla mér ekki aö lýsa I ævi- starfi Gunnars eöa lifshlaupi.þaö munu vafalaustýmsiraörir gera. Mig langar aöeins til að vikja aö einu atriöi: Á sinum tima skrifaöi hann bókina Saga þin er sága vor sem kom út áriö 1952. Þessi bók fjallar um afdrifarikustu atburði Islandssögunnar á þessari öld enda spannar hún timabiliö frá hernámi Breta 1940 til bess tima ;er litilsigldir alþingismenn vél- uöu tslendinga inn i Nató á vor- dögum 1949. Þessi bók þykir ómetanleg heimiid um sögu ts- lands á þessu timabili enda mikiö lesin og notuö af þeim sem vilja kynna sér þessa atburöi sem best. Upp Ur 1970 tók Gunnar sér þaö fyrir hendur þá nær áttræður aö skrifa framhald þessarar bókar, þ.e.a.s. aö skrifa pólitiska sögu tslands frá vordögum 1949, þar sem Sagan þín er saga vor endar, til ársins 1971 aö viöreisnin tapar meirihluta. Þegar Gunnar vann aö þessu verki bjó hann I Hvera- geröi en ýmsar heimildir sem hann þurfti aö nota var fyrst og fremst aö hafa á söfnum i Reykjavik. Þvi var þaö aö Gunn- arfóroftdag eftir dag til Reykja- vikur og sat þar á safni lungann úr deginum til þess aö viöa aö sér efni og kanna heimildir. Hann vann af miklu kappi og áhuga enda skrifaöi hann tvær stór- merkar bækur um timabilið 1949—1971. Bækur segi ég — þvi miður eru þetta aöeins handrit ennþá — fullfrágengin fyrir 6—7 árum frá hendi Gunnars — en hafa ekki enn veriö gefin Ut. Ég hef lesiö bæöi þessi handrit og ég fullyröi aö þau eigi ekki siöur erindi til okkar en Saga þin er saga vor. Þaö er ekki vansalaust fyrir Islenska sdsíalista og sam- tök þeirra hvernig hér hefur veriö aö málum staöiö. Um þaö dug- leysi sem lýsir sér I þvi aö þessi merku riteru enn i handritimætti hafa mörg orö en þaö veröur ekki gert hér. Ég vil aö lokum þakka fyrir þau kynni og þærstundir sem viö höf- um átt saman um leiö og ég votta eftirlifandi konu Gunnars, Valdisi Halldórsdóttur, svo og öörum aö- standendum samúö mina. Ægir Sigurgeirsson. Gunnar Benediktsson var fæddur 9. okt. 1892, sonur hjón- anna Alfheiðar Siguröardóttur og Benedikts Kristjánssonar, sem siöast bjuggu búi sinu aö Einholti, Mýrahr., A-Skaftafellssýslu. Venjulega held ég aö Gunnar hafi látið sér þessa ættfærslu nægja og þaö mun ég lika gera i þetta sinn. Gunnar var stoltur af ætt sinni þó hún væri ekki lengra rakin en til foreldra hans. Sumir kölluöu hana Einholtsætt. Gunnar var frændrækinn i besta lagi og náöi reyndar frændrækni hans og ætt- rækni langt út fyrir Einholtsætt- ina. Meö lif og starf Gunnars er likt og ættfærsluna: Þaö er ekki unnt aö skýra frá þvi I stuttu máli svo allt komi til skila. Hann er raunar löngu þjóökunnur maöur og segja má aö hann lifði mikinn hluta ævi sinnar á opnu sviöi þjóölifsins. Sjálfur reisti hann sér, meö starfi sinu, þann bautastein sem óbrot- legastur er og erfitt mun um aö bæta. Enginn, sem man eöa hefur kynnt sér lifskjör tslendinga I upphafi þessarar aldar og ber saman viö þau sem eru i dag, getur neitaö þvi aö þar hafi orbiö byltingarkennd breyting til batnaöar. Til þess aö svo mætti veröa lagöi Gunnar fram allt sitt afl og allt sem hann haföi aö tapa. Þar lögöu vissulega fleiri hönd á plóg, en mér finnst allir tslend- ingar, aldnir og óbornir, standa i þakkarskuld viö hann fyrir fram- lag hans til þeirra mála. Ég hef þó fleiri og betri ástæöur til þess aö þakka honum en flestir abrir. Þótt persónuleg kynni min af Gunnari yröu ekki löng mun ég alltaf minnast hans þegar ég heyri góös manns getið. Ég votta eftirlifandi eigin- konu, börnum og öbrum abstand- endum samúb viö andlát hans og jarðarför. Gunnar Einarsson Banda- mannasaga í skóla- útgáiu Bandamanna saga er nýlega komin út i útgáfu, sem sérstak- lega er ætlub til lestrar i skólum. Óskar Halldórsson hefur séö um útgáfuna, en Iöunn gefur út. Gerir Óskar grein fyrir gerö sögunnar, listrænni byggingu og stil I for- mála og f jallar einnig um handrit hennar, en hér er birtur texti Mööruvallabókar, sem talin er næstur frumtextanum. Banda- manna saga er sautjánda bókin I flokknum Islensk úrvalsrit i skólaútgáfum. Sveitastjórnarmál Endursala íbúða í verka- manna bústöðum I þriöja tölublaði Sveitar- stjórnarmála á þessu ári er m.a. grein um framkvæmdaáætlun Vestmannaeyjakaupstaöar 1977—1986, eftir Pál Zóphónias- son, bæjarstjóra. Logi Kristjáns- son, bæjarstjóri I Neskaupstaö, á grein, er nefnist Stækkun sveitar- félaganna er forsenda aukinnar þjónustu þeirra. Garöar Ingvars- son, hagfræðingur i Seölabank- anum, skrifar um orkufrekan iönaö á Austurlandi: Magnús R. Gislason, tannlæknir, á grein um skipulag tannlæknaþjónustu á lslandi og dr. Guöjón Magnússon, aðstoðarlandlæknir, skrifar um flúorblöndun neysluvatns. ólafur Jónsson, stjórnarformabur Hús- næöisstofnunar, skrifar um endursölu Ibúöa I verkamanna- bústöbum, Siguröur Grétar Guðmundsson, fv. bæjarfulltr. kynnir nýjar aöferöir viö lagn- ingu veitukerfa, fréttir eru frá landshlutasamtökum sveitar- félaga og kynntir nýir bæjar- og sveitarstjórnir. Jökull Jökull, 30. ársrit Jökla- rannsóknafélags tslands er nýkomiö út. I ritinu rekur Jón Eiriksson sögu jaröfræöirannsókna á Tjör- nesi, en fá árinu 1972 hafa jarö- fræðingar við jaröfræöideild Raunvisindastofnun Háskólans fengist viö samfelldar rannsóknir á Tjörnesi. Sagt er frá samanburði á aur- burði i Skeiöarárhlaupunum 1972 og 76. Agúst Guömundsson menntaskólanemi viö Sund lýsir og skýrir út sprungusvæöi viö Voga á Reykjanesi. Siguröur Þórarinsson skrifar um gjósku- fali úr þremur Kötlugosum, 1525, 1660 og 1755. Sagt er frá skriöi Hagafells- jökuls, rifjuö upp vorferð á Vatnajökul 1971 og Sigurður Þórainsson segir frá þeim er gengu fyrstir svo vitað sé á hæstu fjöll á tslandi og segir einnig frá fyrstu göngum tslendinga á nokkur erlend fjöll. -lg. Húsnæðisstofnun ríkisins Tæknideild Laugavegi 77 R Simi28500 Útboö Tilboð óskast i byggingu botnplötu fyrir ibúðir aldraðra Hofsósi, sem skila skal fullgerðri 31. des. 1981. Afhending útboðsgagna er á skrifstofu sjúkrahússins á Hofsósi og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar rikisins frá 4. sept. gegn kr. 500.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu sjúkra- hússins þriðjudaginn 15. sept. kl. 11.00 að viðstöddum bjóðendum. F.h. stjórnar byggingarnefndar Tæknideiid Húsnæðisstofnunar rikisins. Laus staða Staða ritara hjá samgönguráðuneytinu er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist ráðuneyt- inu fyrir 10. sept. 1981. Reykjavik 1. sept. 1981 Sa m gön gur á ðuney tið. LaunadeUd ijármálaráðuneytísins Sölvhólsgötu 7 Öskar að ráða starf sfólk til ritarastarfa og til launaútreiknings. Laun skv. launakjörum rikisstarfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar fyrir 10. þessa mánaðar. Kennarar Einn kennara vantar að Grunnskóla Hris- eyjar við kennslu yngri bama. Upplýsingar i sima 96 - 61757 og 91 - 32521. Áskrif t - kynning vlttvanwjk LAIJNAFOLILS vió bjódum nýjum lesendum okkar ÓKEYPIS ÁSKRIFT til næstu mánaóamóta. Kyrinist blaóinu af eigin raun, látió ekki aóra segja ykkur hvaó stendur í Þjóóviljanum. PlOOVIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.