Þjóðviljinn - 05.09.1981, Blaðsíða 15
Helgin 5. — 6. september 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
dægurtónlist
FALL
tólfta mun Mike Pollock og
Purrkur Pillnikk koma fram og
verður þaö i fyrsta sinn sem
Purrkurinn kemur fram eftir
sumarfri.
S*Kou
Frá Fjölbrauta-
skólanum Selfossi
i
Skólinn verður settur sunnudaginn 13.
sept. kl. 15.00 i iþróttasal Gagnfræðaskól-
ans.
Stundatöflur og bókalistar nemenda verða
afhent að lokinni skólasetningu gegn
greiðslu nemendagjalda kr. 250.00
Kennsla hefst mánudaginn 14. sept.
Aðstandendur nemenda eru boðnir sér-
staklega velkomnir að skólasetningu.
Skólameistari
Ritarar/Sendlastörf
Óskum eftir að ráða skrifstofufólk með
góða vélritunarkunnáttu, sem fyrst.
Einnig viljum við ráða unglinga til sendla-
starfa i vetur.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
Nú eftir helgi mun
breska hljómsveitin Fall
leggja leið sína hingað og
halda hér þrenna tónleika.
Þann níunda og tíunda á
Borginni og þann tólfta í
Austurbæjarbíói.
Jón Viðar
Sigurðsson *
skrifar
____________
Góður kjami
Fall var stofnuð i Manchester i
upphafi árs 1977 og hélt sina
fyrstu hljómleika þar i mai sama
ár. Hljómsveitin vakti þegar
athygli fyrir liflega sviösfram-
komu og beinskeytta texta i garð
tónlistariðnaðarins.
Fyrsta breiöskifa hljóm-
sveitarinnar. Live At The Witch
Trails.kom út hjá Step Forward i
mars 1979. Ekki sátu þeir kappar
auðum höndum það áriö þvi i
nóvember sendi hljómsveitin frá
sér aðra breiðskifu, Dragnet.
Þessar hljómplötur unnu hljóm-
sveitinni litla hylli, samt var
þröngur kjarni i Manchester sem
fylgdi hljómsveitinni dyggilega
að málum.
Þegar líöa tók á árið 1979 fór aö
gæta óánægju Fall i garð Step
Forward. Þaö kom þvi engum á
óvart að þriöja breiðskifa Fall,
Totales Turn, skyldi koma út hjá
öðru fyrirtæki. Fyrir valinu varð
Rough Trade, sem frá stofnun
hefur verið i röð framsæknustu
útgáfufyrirtækja Breta og hjá
þvi fyrirtæki hafa allar hljóm-
plötur Fall komiö út.
Með Totales Turn skapaöi
hljómsveitin sér umtal. Vinsældir
Totales Turn urðu þó nokkrar og
náði platan inn topp tiu á
„independent” listanum en hann
er algerlega óháður þessum sem
flaggað er i blöðum hér heima.
Fjórða breiðskifa Fall Grotesqu
(after the gramme) kom út fyrir
seinustu áramót. Naut hún
mikilla vinsælda á „independent”
listanum. Sömu sögu er að segja
af Slatc 10” seinasta afkvæmi
hljómsveitarinnar sem naut
gifurlegra vinsælda á þessum
lista.
Vinsældir
Vinsældir Fall koma skýrt fram
iseinustu kosningum hjá Zig Zag.
Þar voru þeir kosnir fjórða besta
tónleikahljómsveit seinasta
árs. Onnur besta hljómsveitin.
„How I Wrote Elastic Man” var
kosið fjórða besta lagið og
Grotesqu var kosin fjórða besta
breiðskifa siöasta árs. Eins og
sést á þessu þá nýtur Fall ein-
göngu hylli á þessum „inde-
pendent” lista.
Mannaskipti hafa veriömjög tið.
Allt I allt hafa útgáfur af hljóm-
sveitinni verið i kringum fjórtán.
Þrátt fyrir hin tiðu mannaskipti
hefur tekist aö halda uppi þeim
góða anda sem jafnan hefur rikt i
og umhverfis hljómsveitina. Þaö
eru aöeins þeir Mark E. Smith og
Mike Riley sem verið hafa með
frá upphafi. Aðrir i hljómsveit-
inni eru Steve Hanley sem leikur
á bassa, Paul Hanley trommur og
Craig Scanlan sem leikur á gitar
og hljómborö. Mark E. Smith sér
um sönginn en Riley er .aðal
gitarleikari hljómsveitarinnar.
Beinskeytt pólitík
Pólitik hijómsveitarinnar er
mjög beinskeytt og þá sérstak-
lega i garð tónlistariðnaðarins.
„Það er gallinn við tónlistar-
iönaöinn að hann reynir sifellt aö
mjólka það besta út úr hverjum
hlut og það er leiðinlegt”. Eða
skot eins og „hversu lengi þarftu
að vera i bransanum til aö skilja
að 99% af þessu öllu saman er
drasl og það verður einhver að
standa upp og segja það”. 1
blaðaviðtali ekki alls fyrir löngu
var Mark E. Smith spurður af þvi
hver staða Fall væri i tónlistarlifi
Breta i dag? Svariö var á þá leiö
að staöa Fall væri svipuö i tón-
listariðnaðinum og hjá manni
sem skrifaði bækur um það
hversu bækur væru ónauösyn-
legar.
Tónlistagagnrýnendur skiptast
i tvær algerlega andstæðar fylk-
ingar þegar Fall ber á góma.
Annars vegar þá sem elska
hljómsveitina og hina sem hata
hana. Það virðist sem enginn
millivegur sé til þegar Fall er
annars vegar.
Góðir gestir munu troða upp
með Fall. Þann niunda munu
Fræblarnir og Bodies þ.e.a.s. þeir
Mike og Danny Pollock, Magnús
Stefánsson og Rúnar Erlingsson
koma fram. Þann tiunda mun
Q-4-U og Þeyr koma fram og þann
Húsnæði óskast
Kennaraskólanemi og skrifstofustúlka
óska eftir 2 - 3ja herbergja ibúð sem fyrst.
Upplýsingar i sima 35571 og 71516 á kvöld-
in eða á daginn i 84111.
Líf eða dauði
Full ástæða er til að hvetja alla
til að mæta þvi nú er um lif eða
dauða að tefla. Þvi ef aðsókn
verður dræm þá er hætt við að
það verði eingöngu listahátið sem
flytji inn hljómsveitir. Ef tap
verður af þessum tónleikum,og
þá er koma Any Trouble höfð i
huga, þorir enginn að flytja inn
erlenda hljómsveit hversu ódýr
sem hún er. Fall taka aðeins 900
pund fyrir þessa þrjá tónleika,
neðar er varla hægt aö fara.
Spurningin er, viltu að þáttur
sem þessi verði hluti af okkar
menningu? Ef svo er þá mætirðu
og nú duga engar afsakanir.
Forsala aðgöngumiöa er i
hljómplötuverslunum Fálkans og
er miðaverö kr. 90.
$
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
Fóstra
Óskum að ráða fóstru á dagheimilið
Dyngjuborg frá miðjum október. Upplýs-
ingar hjá forstöðumanni i sima 31135.
Húsaeinangrun
í Reykjavík og nágreni
Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 91-22866.
HÚSÆIWNGRUN
Aöferðin er einföld. Viö borum iítið gat í veggi og gólf
ogblásum „ROCKWOOL” steinull inn í tóm
holrúm meö 70 kg. þrýstingi á rúmmetra.
Þessi aðferð sparar ótrúlega mikinn tíma og fyrirhöfn.
„Rockwool” steinull er í svokölluðum A-gæðaflokki.
Hún er vatns fráhrindandi og mjög eldþolin.
Látið einangra
fyrir veturinn
¥ið blásuni
steinull
í tóm hoirum