Þjóðviljinn - 24.09.1981, Page 14

Þjóðviljinn - 24.09.1981, Page 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. september 1981 Fuglaskilti viö ljornina Umh verf ismálaráö Reykja- vikur hefur gengist fyrir þvi, aö fugiaskilti hafa veriö sett upp viö Tjörnina meö litmyndum af 23 fugla tegundum, sem hafa dvöl á tjarnarsvæöinu um leugri eöa skemmri tima árlega. Myndir þessar ættu aö auövelda fólki aö grcina allar heistu fuglategundir sem fyrir augu ber á tjarnar- svæöinu. Tjörnin (fugialif og um- hiröa) heyrir undir umsjá garö- yrkjudeiidar borgarmnar. Reykjavikurtjörn og Vatns- mýrin fóstra fjölbreytt fuglalif. Ferskvatn frá hæðunum og mýr- lendinu safnastfyriri' tjw-ninni og Vatnsmýrinni en Tjörnin hefur frárennsli til sjávar um lækinn, sem hefur veriö lagður i holræsi undir miðri Lækjargötunni. Með vaxandi byggð og holræsa- gerð hefur vatnsmagn er safnast fyrir i tjörnina farið minnkandi á siðari árum. Vatnsborði tjarnar- innar er haldið i 2.40 m hæð miðað við sjávarmál, með stiflu við út- rennsli hennar, sem er i norð- vestur horni tjarnarinnar hjá Búnaðarfélagshúsinu. Allir fuglar sem á tjörninni dvelja eru fleygir og frjálsir ferða sinna og fara þeir vitt um ná- grenni borgarinnar til fæðuöfl- unar, en á veturna þegar lang- varandi frosthörkur eru, er fóður flutt til þeirra, jafnframt þvi sem brotnar eru vakir á tjörnina svo fuglarnir geti náð til vatns. Stjöðugt eftirlit er haft með tjörninni og fuglalifinu allan árs- ins hring. Á tjarnarsvæðinu verpa um 20 tegundir fugla, en jafnan sjástum 40 tegundir við tjörnina árlega og eru þá ekki taldir með spörfpglar sem oft halda mikið til i trjágörðum i nágrenni tjarnar- innar. Fátitt eða algjört einsdæmi mun það vera að kriur hafi varp- stöð inni i miðri borg, en við Reykjavikurtjörn verpa árlega um 130 kriupör og um 150 anda- pör. Mið j ubandalagið Framhald af bls. 5 flokknum látið i ljósi áhyggjur af þvi að hinir nýju bandamenn muni frekir til þingsæta — en bandalagiðfelst i þvi að flokkarn- ir styðja frambjóðendur hvors annars á vixl. Strax eftir að samþykkt banda- lagsins var gerð, var önnur sam- þykkt á þingi Frjálslyndra sem reynir nokkuð á samheldnina. Meirihluti fulltrúa samþykkti, gegn vilja Davids Steels flokks- formanns, ályktun um stuðning viö Evrópu án kjarnavopna og átti að byrja á þvi aö flokkurinn reyndi að stööva staösetningu bandarlskra stýriseldflauga á bresku iandi. Steel og Sósial- demókratar vilja ekki slíkar ein- hliða aðgerðir, heldur vilja þeir biða eftir niðurstöðum af samn- ingum Bandaríkjamanna og Sovétmanna um þessi mál. — áb Skiltiö viö suövesturhorn Stóru Tjarnarinnar. Ljósm. -eik-. Könnun hjá dagmœdrum i Kópavogi: F æðiskostnaður 430 kr. á mánuði t sumar var gerö könnun i Kópavogi á fæöiskostnaöi barna hjá dagmæörum. Niöurstaöan varö sú aö fæöiö kostar 430 kr. á mánuöi. sem skiptist þannig: morgunveröur 95 kr., siödegis- hressing 102 kr., hádegisveröur og annaö 233 kr. Þessi könnun var gerð vegna þess að nokkurrar óánægju og óvissu hefur gætt meðal dag- mæðra og foreldra vegna þessa kostnaðarliðar. Það var Félags- málastofnunin í Kópavogi ásamt dagmæðrum þar i bæ sem að könnuninni stóð i samráði við sér- fræðinga. Framkvæmdin var þannig að i tvo daga var allur matur viktaður og mældur ofan i um 50 börn hjá 15 dagmæðrum og niðurstöðurnar skráðar. Siðan var verð varanna kannað í þrem- urverslunum i bænum og meðal- talsverö notað til grundvallar. Tekið var tillit til rýrnunar m.a. vegna suðu, beina o.fl. 1 ljós kom að morgunverður var næróháður aldri, en hádegisverð- ur og siðdegishressing nokkuð dýrari fyrir elstu börnin. Ákveðið var að hafa fæðiskostnað óháðan aldri barna eldri en 8 mánaða. Eftir að niðurstöður voru fengnar voru allar tölur hækkað- ar i samræmi við hækkanir á vöruverði og allt hækkað um 5% tilöryggis, m.a. „vegna mismun- andi verðs á brauðum, sem i dag- legu tali nefnast heilhveitibrauö, en ganga undir ýmsum dulnefn- um og eru þá á hærra verði” segir i fréttatilkynningu Félagsmála- stofnunar Kópavogs. Sem áður segir reyndist kostn- aður á mánuði vera 430 kr. og munu dagmæður i Kópavogi nota könnunina til viðmiðunar taxta sinum framvegis. Innri erjur Framhald af bls. 5 þótti það kjör bera vott um vinstrisveiflu, — hefur og áhyggj- ur af uppgangi Tony Benns. í ný- legrigrein i Guardian reifar hann ýmis ágreiningsmál þeirra — meðal annars andmælir hann þeim boðskap Tony Benns, að þingmenn skuli rigbundnir af samþykktum flokksþinga. Mich- aelFootkveðst vilja bera tilhlýði- lega virðingu fyrir samþykktum flokksþinga, en vill meira svig- rúm fyrir þingmenn. Þá er einnig uppi ágreiningur milli Foots og Benns um samskipti rikisstjórnar (Verkamannaflokksins) og verkalýðsfélaga — en Foot vill reyna að gera stór samflot i samningum að lið i heildarstefnu I efnahagsmálum. Hinir róttæk- ari i flokki og verkalýðshreyfingu vilja engin fyrirheit gefa um sjálfsaga i kaupkröfum og vilja láta reyna á mátt launþegasam- taka án samræmingar af þvi tagi sem Foot mælir með. Meðan þessu fer fram i Verka- mannaflokknum heldur frú Thatcher áfram á hægribrautum sinum, þótt menn svo teldu að hún væri komin eins langt á þeim og fært væri. Hún rak eða færði til fjóra þá ráðherra sina, sem helst voru frjálslyndir taldir. Þeirra á meðal er James Prior verka- málaráðherra, sem hefur i hálft þriðja ár reynt að hamla gegn þvl, að frú Thatcher geri meiri- háttar atlögu gegn réttindum verkalýðsfélaga. Nú var hann settur á þann úriapóst sem staða ráðherra Norður-Irlands er. 1 stað hans kemur einkavinur járn- frúarinnar úr seðlahyggjunni, Norman Tebbit, sem mun hafa i undirbúningi lagafrumvörp gegn verkalýðshreyfingunni — sem ganga lengra en þau, sem á sin- um dma urðu stjórn Edwards Heath að falli. Eins og að likum lætur efla þessar breytingar það álit, að Ihaldsstjórnin gæti aðeins þröngra afturhaldssjónarmiða — og þar eftir aukast möguleikar miðjumanna, sem fyrr segir. ábtóksaman. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagsfélagar í Reykjavik Giróseðlar vegna árgjalds fyrir 1981 hafa veriö sendir til félags- manna. Hvetur stjórn félagsins félaga til að greiða árgjöldin við allra fyrstu hentugleika. — Stjórn ABR. Kjördæmisráð Alþýðubandalags- ins Austurlandi: Flokksstarfið og kosningaundir- búningur Aðalfundur Kjördæmisráðs Alþýðubandalags- ins i Austurlandskjördæmi verður haldinn i barnaskólanum á Seyðisfirði helgina 26. - 27. september nk. og hefst kl. 13 á laugardag. Aðal- umræðuefni fundarins er flokksstarfið og undir- búningur undir sveitarstjórnarkosningar á næsta ári. Einnig verða rædd byggðamál og drög að stefnumótun i þeim efnum. Helgi Seljan alþingismaður og Hjörleifur Guttormsson iönaöarráöheraflytja ávörp i upp- hafi fundar. Einar Már Sigurösson og Stefán Thors hafa framsögu um flokksstarfið og kosningaundir- búning. Halldór Arnason fjallar um byggðamál, drög að stefnuskrá i atvinnu-, félags- og samgöngu- málum. Fundarslit eru áætiuö kl. 16 á sunnudag. -w-.- Hjörleifur Guttorinsson iBn Heigi Seljan STAÐA KVENNA í ALÞÝÐUBANDALAGINU Umrœöufundur sem boöaö er til afkonum í stjórn ABR Konur i stjórn Alþýdubandalagsins i Reykjavik boda til um ræðufundar um ofanskráð efni að Hótel Esju fimmtudaginn 24. september kl. 20:30. Framsögumenn: Guðrún Helgadóttir og Helga Sigurjónsdóttir Fundarstjóri: Margrét S. Björnsdóttir Margrét Guörún ALLT ALÞÝÐUBANDALAGSFÓLK VELKOMIÐ Helga KONUR I STJÓRN ABR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.