Þjóðviljinn - 28.10.1981, Side 2

Þjóðviljinn - 28.10.1981, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 28. október 1981 KÆRLEIKSHEIMILIÐ viðtalið Á ég ekki að flengja sjónvarpið eins og mamma gerir alltaf? Þúsund andlit Fellinis Enginn hefur skoöaö rækileg- ar fjölbreytilegt útlit mann- fólksins en itaiski kvikmynda- stjórinn Frederico Fellini. Og hann er ekki aö leita aö Friöa manninum eða Fögru konunni — hann hefur ótakmarkaöan áhuga á hverju þvi andliti sem lætur eitthvaö sérstakt uppi: á trúönum, á madonnunni, á fá- ráðlingnum, á þeim spakvitra. Hann er óþreytandi aö tala viö fólk, prufuljósmynda þaö i ýms- um örsmáum hlutverkum, sem kannski eru ekki fólgin i ööru en aö telja upp aö fimmtán — siöan er prófaö aö láta atvinnuleikara lesa inn einhvern texta sem viö á. Fimmtiu þúsund myndir á Fellini af manngeröum allskon- ar, og alltaf bætir hann drjúgum hópi viö safniö sitt fyrir hverja nýja kvikmynd. — Hér aö ofan eru nokkur sýnishorn. Fjölbreytt félagslíf í Mosó! Þeir eru fe'Iagslyndir f Mos- fellssveitinni eftir því sem Mos- fellspótuturinn segir. i nýjasta tölublaðinu er m.a. sagt frá nýj- um skátaklúbbiog einum kiúbbi til: brandaraklúbbnum. Um hann segir: Stofnaöur hefur verið nýr klúbbur i sveitinni og nefnist sá Brandarakarlar. t klúbbnum eru menn sem kunna alla brandara utanbókar. Hver brandarier númeraður, þannig að þegar þessir karlar segja brandara þurfa þeir ekki aö gera annaö en að segja ákveöiö númer. Þá vita allir hvaö um er aö vera. Á dögunum héldu þeir mikla veislu i Hlégarðiog voru ósparir á að segja brandara meöan á sameiginlegu borðhaldi stóö. — Svo sagöi einhver nr. 704 og aQir hlógu eins og vera ber, en þó hló einn félaginn lengst alira. Tárin runnu niöur kinnar hans og hann hló og hló! Hvers vegna skyidi hann hlæja svona að þessu, hvislaði einn af félögunum i eyra ann- ars. Hann er nýgenginn i klúbbinn og hefur sennilega aldrei heyrt hann fyrr, svaraöi sessunautur- inn. Pálmar Halldórsson formaður Iðnnemasam- bandsins: Jðn- nemar eru láglauna- stétt” „Iðnnemar eru um 3000 I landinu. þannig að þarna er um mjög störa starfsstétt að ræða, en hún ein færekki að semja um kaup sitt og kjör. Viö íiönnema- hreyfingunni erum ekki ánægöir mcð að láta skammta okkur kaupiö úr hnefa. Það eru mann- réttindi að hafa eitthvað um kaup sitt og kjör að segja,” sagði Pálmar Halldórsson ný- kjörinn formaður Iðnnemasam- bands islands i viðtali við blað- ið. Pálmar er sjálfur i mat- reiðslunámi og er á fjóröa námsári. Hann sagöi að innan Iönnemasambandsins væru nemendur iönskólanna og nemendur á tæknisviöi i fjöl- brautaskólunum. „Iðnnemasambandiö rekur sina eigin skrifstofu með starfs- manni og er reksturinn fjár- magnaður meö staðfestingar- gjöldum, sem greidd eru af nemum og meisturum og rennai fræðslu - og menningarsjóð sam- bandsins. Einnig greiða aðildarfélögin skatt til starf- sem innar. Við höfum ekki beina aöild að ASl, við teljum okkur ekki hafa fjárhagslegt bolmagn til þess. Hins vegar höfum við samstarfssamning við Alþýðu- sambandiö þar sem kveöið er á um hvernig samstarfinu skuli háttað.” „Iðnnemar hafa þvi miður ekki verkfalls- eöa samnings- Pálmar Halldórsson, nýkiörinn formaöur Iðnnemasambands tslands. rétt, en það er starfandi nefnd um iðnnemakjör og semur hún um sérkjör iönnema i lcdc aðal- kjarasamnings. Vinnuveitenda- samtökin hafa ekki viljaö fallast á samningsrétt okkur til handa, þó ljósthafi verið aðsum meist- arasambönd hafi ekki verið á móti þessarikröfuokkar.Engin haldbær rök eru fyrir þessari afstööu Vinnuveitendasam- takanna, þetta er bara eitthvert prinsipmál hjá þeim. Meðal annars af þessum sökum eru iðnnemar láglaunastétt”. ..Iönnemasambandiö var meö ráöstefnu um daginn um stöðu iðnmenntarinnar. Menn telja að færa eigi verknámið sem mest inn i verkmenntaskólana, en þá þarf aðsjá til þess, að nemend- urnir fái þá starfsþjálfun, sem þarf til að vinna að iðn sinni. bað er framtiðarmál að skapa nauðsynleg tengsl á milli at- vinnuli'fsins og skólans. Meistarakerfið er úr sér gengið, verkmenntaskólamir hafa yfir- burði menntunarlega séð, en það þarf að samræma hlutina.” Segöu mér fra síðasta þingi ykkar. „Þingið fór í alla staði vel fram, þar komu margir hæfir einstaklingar saman og lögðust á eitt um að standa saman um eflingu iönnemahreyf ingar- innar. Aöalmálaflokkar þings- ins voru iðnfræðslan, kjaramál, félagsmál og þjóðmál. Nefndir störfuöu á þinginu um þessa málafiokka.” Hverjar voru niðurstööur þingsins um þessi mál? „Helstu niðurstöðurnar eru tengdar hverju máli fyrir sig. Varðandi iðnfræösluna var samþykkt að berjast fyrirþviaö hún færöist sem mestinn iverk- námsskólana. Lögð var áhersla á að bæta þyrfti húsnæði og tækjakost skólanna. Þá átaldi þingið seinagang þann, sem orðið hefur á samþykkt frum- varpsins um samræmdan fram- haldsskóla, og jafnframt var lýst yfir stuðningi við það, þó gera bvrfti breytingar á þvi. Þá var fagnað samþykkt nýrrar reglugerðar um iðnfræðsluna... Ályktað var um málefni fatlaðra ogmöguleika þeirra til að stunda iðnnám.Taldi þingið, aö ekkert ætti að standa i vegi fyrir þvi, að fatlaðir gætu stundað slikt nám, nema húsnæðið sem skólarnir eru i. I kjaramálum var lögð áhersla á aö ná samningsrétti og verk- fallsrétti til handa iðnnemum. Það er rétt að taka fram i sam- bandi við þetta að i siðustu samningum náðust fram ýmis atriði til gagns og hagsbóta fyrir starfsþjálfunarnema og yfirlýs- ing ASI um rétt til að túlka kjarasamninga um iön- nemakjör. Oðrum kröfum, sem ekki náðust þá fram, verður reynt að tryggja framgang nú. A þinginu var jaínframt ályktað um húsnæðismál, dagvistunar- mál, jafnréttismál og sérstak- lega um málefni fatlaðra.” Eitthvaö aö lokum. „Það er ljöst að til þess að stjórnin nái árangri i baráttu- málum iðnnema þurfa félagar i Iðnnemasambandinu að vera virkir og vakandi. Þess vegna þarf að efla hina félagslegu þátttöku allra til stuðnings við stjórnina”, sagði Pálmar Hall- dórsson. — Svkr. Vegir golfkúlunnar Slys geta hent bestu menn. Til dæmis kom það fyrir Bernard Langerfsumar, en hann er kall- aöur besti golfleikari Þýska- lands, aöhann sló kúlu sinni upp I eikartré. Vinsamlegir áhorf- endur lyftu honum upp I tréö til aö hann gæti slegiö kúluna þaðan og komist hjá refsistig- um — eins og myndirnar sýna. Ýmsar uppákomur undar- legar geta verið i golfi. Þannig erfrá þvisagt, að Bretinn Nigel Denham, hafi fyrir nokkrum árum slegið kúlu sinni i gegnum glugga golfklúbbsins og lenti hún við barinn, Denham gekk sig ihúsið inn, opnaði gluggann og sló kúlunni Ut um hann og út á völlinn. Dómarar dæmdu honum samt tvö refsi- stig —hann heföi ekki átt að opna gluggann! ■< ■Q O Hvaöan kemur J Þetta er sót og , allt þetta ryk á 1 skítur utanfrá. hverjum degi?' J 71 Æk o O 1 sóAlÍlgg] J 1 í Og ég sem hélt aö þaö nuddaöist svolltiö af okkur J á hverjum degi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.