Þjóðviljinn - 28.10.1981, Síða 3
Miðvikudagur 28. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Skjald-
hamrar
/ •
a svioi
í norsku
leikhúsi
t lok janúar verður frumsýnt
hjá norska leikhúsinu Sogn og
Fjordane Teater ieikritiO Skjald-
hamrar eftir Jónas Árnason og
heitir Operasjon Skjoldhammar á
norsku. LeikhúsiO er héraOsleik-
hús fyrir Sognfylki, sem telur sig
nátengt lslandi i sögu og menn-
ingu.
I kynningu á leikritinu segir á
þá leiö, aö i þessum gamanleik
frá striðsárunum hittist tvær
mjög ólikar manneskjur — bresk
njósnakona og islenskur vita-
vörður. Mikið af góðum húmor
kemur út úr þessum fundi i vitan-
um — á dapurlegu baksviði striðs
og njósna. Ljóðræn ástarsaga
fylgir meö og á bak við allt saman
hlý kennd fyrir lifi náttúrunnar og
sterk ósk um frið og samkennd
manna.
Skjaldhamrar hafa verið leikn-
ir i Finnlandi, Texas, á Irlandi og
i Færeyjum. Leikstjóri þessarar
Norræna húsið og sænska sendiráðið!
S trlndb ergskynning
Norræna húsið og sænska sendiráðið halda upp á
Strindbergsárið með þvi að Jón Viðar Jónsson fjall-
ar um leikritun Strindbergs á fimmtudagskvöldið
29. okt. kl. 20:30 og sýnd verður kvikmynd um
Strindberg sem listmálara.
Sviar hafa minnst Strindbergs
á þessu ári með leiksýningum,
fyrirlestrum og annarri dagskrá,
t.d. helgaði Dramaten i Stokk-
hólmi honum næstum allt vorið
1981 og sýndi leikrit hans. Utan
heimalands sins er Agúst Strind-
berg (1849—1912) liklega sá rit-
höfundur sænskur sem mest er
lesinn og viðkunnastur hefur orð-
ið, og leikrit hans eru sviðsett oft-
ar en nokkurs annars landa hans.
Sænsk kvikmyndagerð leitar
stöðugt fanga i hinum margvis-
legu verkum Strindbergs, og
sjálfur var hann alla tið hleypi-
dómalaus gagnvart kvikmynd-
um. „Kvikmyndið leikritin min
eins og ykkur lystir”, þannig
hljóðaði simskeyti sem hann
sendi kvikmyndafélagi einu löngu
áður en þessi listgrein hefði slitið
barnsskónum. Ef Strindberg væri
á meðal okkar i dag hefði hann ef-
laust orðið mikilvirtur og hæfur
kvikmyndahöfundur, sjálfstæður
og sérlundaður og hrist upp i fólki
eins og fyrrum.
Eftir fyrirlestur Jóns Viðars
Jónssonar verður sýnd kvikmynd
um Strindberg, sem nefnist
Strindberg sem listmálari. Það er
sænska útvarpið sem framleiddi
myndina og Bengt Lagerkvist
stjórnaði töku hennar. 1 þessari
kvikmynd er reynt að kynna
Strindberg sem málara og ljós-
myndara. Jafnframt er brugðið
upp myndum úr lifi hans, eins og
það endurspeglast i málverkum
hans, frá hinni leitandi myndum
æskunnar til tjáningarikra verka
ellinnar.
A laugardaginn 31. okt. og
sunnud. 1. nóv. kl. 13:00 verða
sýndar tvær kvikmyndir i Regn-
boganum, sem gerðar hafa verið
eftir leikriti og sögu eftir Strind-
berg. FAÐIRINN, gerð 1969 undir
stjórn Alfs Sjöbergs eftir sam-
nefndu leikriti og GIFTAS, sem
gerð var 1926 undir stjórn Olofs
Molanders og byggir á smásög-
unni Mot betalning, sem birtist i
Giftas II. Kvikmyndirnar verða
sýndar i B og D sal, og er aðgang-
ur ókeypis-
Ferðamenn
og fjallagarpar!
Kennt á
áttavita
Hjálparsveit skáta i Reykjavik
gengst að venju fyrir námskeiði i
meðferð áttavita og landabréfa
fyrir ferðamenn og stendur það i
kvöld og annaðkvöld i kjallara
Armúlaskóla, og hefst kl. 20 bæði
kvöldin. Þátttökugjald er kr. 50.
Nánari upplýsingar eru gefnar i
Skátabúðinni viö Snorrabraut,
simi 12045.
Safnráð Lista-
/
safns Islands:
Kosningu
lokið
Kosningu i safnráð Listasafns
tslands er lokið. Forstöðumaður
safnsins er formaöur ráðsins,
menntamálaráðuneytið skipar
einn mann og varamann hans eft-
ir hverjar alþingiskosningar, en
islenskir myndlistarmenn kjósa
þrjá menn i safnráð til fjögurra
ára i senn. tvo iistmálara og einn
myndhoggvara og jafnmarga til
vara.
Kosningu hlutu myndlistar-
mennirnir Hringur Jóhannesson
og Edda Jónsdóttir og mynd-
höggvarinn Magnús Tómasson.
Varamenn eru myndlistarmenn-
irnir Einar Hákonarson og
Kristján Daviðsson og mynd-
höggvarinn Sigurjón Ólafsson.
Fulltrúi menntamálaráöuneytis-
ins i safnráði er Svava Jakobs-
dóttir. —ekh
Jónas Arnason
sýningar er Karvel Hlavaty frá
Tékkóslóvakiu ættaður
Frumsýningin fer fram i
Florö.
Nýjung í kjötpökkun:
stað grisju
Hrjúfur piastpokinn er hitaður i ofni og herpist hann þá að skrokknum.
Frá tilraununum í sláturhúsi KÞ á Húsavik.
Plast í
( Sláturhúsi Kaupfélags
þingeyinga á Húsavík og
víðar er nú verið að gera
tilraunir með að pakka
dilkaskrokkum í nýjar
plastumbúðir á vegum Bú-
vörudeildar SIS, Plast-
prents h.f. og finnska fyr-
irtækisins Wiig og Hög-
lund.
Tvær aðferðir eru reyndar,
annarsvegar er skrokkur settur i
frostþolinn plastpoka og grisju
slegið utanum, og hinsvegar er
skrokkurinn klæddur i poka úr
plasti með mjög hrjúfu yfirboröi.
Skrokknum er siðan rennt i gegn-
um ofn, sem hitar plastið upp
þannig að það herpist aö skrokkn-
um. Þetta hrjúfa plast er nýjung
og er framleitt af finnska fyrir-
tækinu Wiig og Höglund.
Pökkunin með báðum þessum
aðferðum hefur gengið vel, en eft-
ir er að fá á það reynslu hvernig
kjötið geymist i plastinu. Verður
sérstaklega fylgst meö þvi á
næstu mánuðum. Vænst er að
þessar nýju plastumbúðir hindri
þornun og upplitun kjötsins og
verji þaö betur gegn óhreinindum
og rýrnun i geymslu og flutningi.
1 frétt um málið frá þeim sem
fyrir tilrauninni standa segir að
gerðar séu siauknar kröfur um
meðferð matvæla, og t.d. sé út-
flutningur á dilkakjöti til Banda-
rikjanna i hinum gömlu og al-
kunnu grisjupokum útilokaöur
meðöllu. —ekh
Sinfónían:
Þriðju áskriftartónleikarnir
Þriðju ’ áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitarinnar verða i
kvöld ki. 20.30 i Háskólabiói. A
efnisskrá eru Konsert fyrir tvö
pianó eftir Bruch, Rondo fyrir tvö
pianó eftir Chopin og Sinfónia nr.
6 eftir Dvorák. Stjórnandi er
Jean-Pierre Jacquillat, og ein-
leikarar eru tveir, þau Anna Mal-
friður Sigurðardóttir og Martin
Berkofsky.
Þetta er i fyrsta sinn sem Anna
Málfriður kemur fram með Sin-
fóníuhljómsveitinni i Reykjavik,
en hún hlaut mjög lofsamlega
dóma er hún lék ásamt Martin
Berkofsky með Sinfóníunni i Tri-
er i Þýskalandi. Aöur hefur Anna
Málfriöur leikið með hljómsveit-
inni á Akureyri. Parisarbúinn og
Bandarikjamaðurinn Berkofsky
hefur á siðustu árum vakið æ
meiri athygli fyrir snilldarlegan
leik á verkum rómantisku pianó-
meistaranna og telst t.d. meöal
allra fremstu Lisztspilara nútim-
ans. Hann hefur einnig lagt
drjúgan skerf til að endurvekja
áhuga manna á gleymdum tón-
verkum, og m.a. flutt óþekkt verk
eftir Mandelsohn, Bruch og Liszt
við mikla hrifningu segir i frétt
fráSI. —ekh
Rodkál
Rödkal
ogrnmn