Þjóðviljinn - 28.10.1981, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 28.10.1981, Qupperneq 7
Miðvikudagur 28. október 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Arni Reynisson Frá flutningi óperunnar La Traviata á sl. vetri Það er trúlega orðið á vitorði Reykvíkinga, flestra a.m.k., og áreiðanlega ýmissa fleiri, að stofnaður hefur verið félagsskapur, sem nefnist íslenska óper- an. Nafniðsegir okkur allt um eðli félagsskaparins og tilgang. Eðlilegt þykir að hverskonar félög og samtök ráði sér framkvæmdastjóra og það þó að verkefni séu smærri í sniðum en þau, sem islenska óperan hefur á prjónunum. Framkvæmdastjóri óperunnar hefur ver- ið ráðinn Árni Reynisson, kunnur fyrir ágæt störf á vegum Náttúruverndarráðs, en framkvæmdum þess hefur hann stjórnað um árabil. Okkur lék forvitni á að fræðast um hið nýja starf Árna, sem tók þeirri mála- leitan Ijúfmannlega, og mæltum við okkur mót í húsa- kynnum Söngskólans eina síðdegisstund í næstliðinni viku. Ekki svo mjög fjarskylt — Er það ekki töluverð breyt- ing, Árni, að vera nú allt i einu farinn að fást við að koma á fót is- ienskri éperu i stað þess að hlynna að og gæta dýrgripa is- lenskrar náttúru? — Svo kann nú að virðast, i fljótu bragði a.m.k. Og þó er þarna, með vissum hætti, um hliðstæð störf að ræða. Bæði eru störfin I þvi fólgin, að koma þvi i verk, sem gera þarf. Þú talaðir um verndun dýrgripa islenskrar náttúru. Jú, það er rétt. En með starfi minu við óperuna tel ég mig aftur á móti vera að stuðla að þvi, að þjóöin fái að kynnast dýrgrip- um, þar sem eru óperuverkin. Þetta er kannski ekki svo mjög fjarskylt. Ég var búinn að gegna störfum hjá Náttúruverndarráði nokkuö lengi. Og það er alltaf hvild i þvi að skipta um viðfangs- efni og umhverfi. Aður voru vinnustaðir minir einir 50 til 60, dreifðir um allt land. Þeytingur- inn vill verða þreytandi til lengd- ar. 1 þessu starfi er auövitað i mörg horn að lita. Maður leysir ekki öll viðfangsefni sitjandi hér i stóln- um. En ferðirnar verða þó a.m.k. yfirleitt styttri en áður. Undraðist ráðninguna — Nú varst þú hættur hjá Nátt- úruverndarráöi nokkru áður en þú réðist til óperunnar. — Já, ég var það og var farinn að vinna i stjórnarráðinu. t upp- hafi var svo ráð fyrir gert að ég ynni þar aö ákveðnu verkefni eitt- hvað fram á næsta ár. En svo var þess óskað að verkinu yrði hraðað alveg sérstaklega og þegar þvi var svo lokið þá nennti ég ekki að sitja þarna lengur og naga á mér neglurnar á kostnað rikisins. — Og þá datt þér í hug að sækja um framkvæmdastjórastarfið við óperuna? — Datt i hug og datt ekki i hug. I raun og veru bjó litil alvara að baki þeirri hugmynd til að byrja með. Ég sá starfið auglýst og spurði kunningja minn einn i hverju það mundi einkum vera fólgið. Hann upplýsti mig um það i stórum dráttum. Ég hugsaði sem svo, að ekki væri hundrað i hættunni, gaf mig fram við stjórn óperunnar og var ráðinn, sjálfum mér til mikillar undrunar. Stöku sinnum hitt á réttan tón — Það þarf náttúrlega ekki að spyrja að þvi, að sá, sem sækir um svona starf, hefur áhuga á músik. — Já, ég hef alltaf verið áhuga- maöur um músik en þó kannski sist óperutónlist, svo kátlega sem það kann nú að hljóma. Söngmað- ur er ég ekki þótt komið hafi það fyrir mig að hitta á réttan tón. Ég býst nú lika við að svo verði einn- ig eftirleiðis að ég geri meira af þvi að hlýða á söng en að taka þátt i honum. Ætli ég láti það ekki öðrum eftir. En svo að það misskiljist nú ekki, sem ég sagði um óperutón- listina, þá vil ég benda á, aö það er auðvitað allt annað að hlýða á hana af plötum en að sjá hana og heyra flutta. Óperuflutningur á sviöi er lifandi, hann er bæði fyrir augaö og eyrað, hann er tjáning bæði i fasi og söng, jöfnum hönd- um leiklist og sönglist. Fyrsta verkefnið — Núertþú tiltölulega nýtekinn við þessu starfi. Hvert var eða er þitt fyrsta verkefni? — Fyrsta verkefniö er að koma óperunni i hús. Stjórn óperunnar hefur alið með sér þann draum, aö geta heilsað nýju ári með óp- eruflutningi. Að þvi er stefnt að setja óperu á svið næsta nýárs- Aö fara fram úr sjálfum sér dag. Og þá er það Sigaunabarón- inn, sem hafður er i sigti. Fyrir þennan tima þarf husnæði að vera fengið og annaö það, sem til sviö- setningarinnar þarf. Æfingar eru þegar byrjaðar og að mestu búið að ráða i hlutverkin. Það er auð- vitað bjartsýni að ætla sér að koma öllu þvi i verk sem gera þarf til að koma óperu á svið á þessum stutta tima, sem eftir er fram að áramótum en þetta ætl- um við okkur nú samt aö gera. — Islensk ópera er sem sé oröin staöreynd á þvi herrans ári 1981. Garöar Cortes, formaður ts- lensku óperunnar frá byrjun og var endurkosinn s.l. laugardag. — Já, islensk ópera er ekki lengur neinn loftkastali eða draumur. Hún er til i formi sjálfs- eignarstofnunar og öflugs styrkt- armannafélags. Góðar horfur með húsnæði — Hverjar vonir gerið þið ykk- ur um að ná eignarhaldi á hent- ugu húsnæði? — Mér sýnist mjög góðar horfur á að það takist. — Nú hefur maður einkum heyrt minnst á Gamla bió i þessu sambandi. Lýst ykkur best á það hús til svona starfsemi? — Kaup á Gamla biói eru eink- um i sigtinu, þvi er ekki að neita. Við höfum ekki komið auga á annað hús hentugra. Og núna, bara á næstu minútum, mun stjórn óperunnar ganga til samn- inga við eigendur Gamla biós. (Viðtal þetta fór fram sl. fimmtu- dag). Takist samningar verða þeir lagðir fyrir styrktarmanna- félagsfund á laugardaginn en hann hefur úrslitavaldið. Mér kæmi ekki á óvart þótt Gamla bió ætti eftir að verða fyrsta óperu- hús á Islandi og væri það vel við hæfi. (Nú, þegar þetta viðtal birt- ist, hefur verið gengið frá kaup- um íslensku óperunnar á Gamla biói og er kaupverðið 8,5 milj. kr. Baróninn eða eftirkomendur hans þurfa þvi ekki að ganga i Leigj- endasamtökin). — Er nokkuð farið að huga að þvi verkefni, sem við tæki af Bar- óninum? — Rætt hefur verið um að taka fyrir annað verkefni slðar i vetur ef vel gengur meö þetta en það verður á valdi næstu stjórnar óp- erunnar að ákveöa það. — Og þið óttist ekki að reisa ykkur fjárhagslegan hurðarás um öxl með húsakaupunum? — Nei.það gerum við ekki. Með hinni stórmannlegu dánargjöf þeirra hjóna, Sigurliða Kristjáns- sonar og Helgu Jónsdóttur, er fjárhagshlið húsakaupanna leyst. Við gerum ráð fyrir að sú fjárhæð nægi fyrir kaupum á húsinu og nauðsynlegum breytingum á þvi. Teljum að bjart sé til lofts — En nú er ekki nóg að eignast hús. Rekstur óperu hlýtur að vera dýr. Vex ykkur hann ekki i aug- um? — Það er rétt, óperuflutningur er kostnaöarsamur þvi þar hljóta jafnan margir að koma við sögu. A hinn bóginn hefur það aldrei tiðkast á Islandi að þeir, sem list- sýningar sækja, greiði allan kostnað við þær með verði að- göngumiða. Við gerum ekki ráð fyrir að sala á aðgöngumiðum greiöi meira en beinan kostnað við hverja sýningu fyrir sig en þá er eftir að standa straum af ótal mörgum útgjöldum öðrum. En styrktarmannafélag okkar telur nú þegar nokkur hundruð manns og við höfum fyllstu ástæðu til að ætla að það verði liðtækt við f jár- öflun. Ýmsir aðilar aörir hafa styrkt okkur á einn og annan veg og sjálfur er ég að velta fyrir mér ýmsum f járaflaplönum. Við væntum okkur einnig einhvers styrks frá þvi opinbera og þá gjarna þannig, að nokkrir söngv- arar viö óperuna fái laun á svip- aðan hátt og aðrir túlkandi lista- menn. Söng- og tónlist nýtur mik- illa vinsælda á Islandi, eins og glöggt má marka af ötulu starfi kóra og tónlistarfélaga vitt og breitt um landið. Ég kviði þvi ekki að aöstoð skorti til þess að halda verði aðgöngumiða i þvi hófi, að almenningur geti notið óperulistarinnar þvi hún má aldrei verða forréttindi þeirra efnuðu. Ég hef mjög viða orðið var við mikinn áhuga fólks á þessu „ævintýri”, sem sumir kannski nefna svo, og er þvi fyrir mitt leyti nokkuð viss um góðar undirtektir og stuðning almenn- ings. óttast ekki skort á söngv- urum' — Nú hafa heyrst efasemdir um að við eigum á að skipa nægilega mörgum góðum söngvurum til þess að við völdum reglubundn- um óperuflutningi. Það er kannski óþarft að spyrja þig um álit þitt á þvi? — Ég hygg að viö þurfum engan ótta að ala um það. Við eigum margt hæfileikafólk, sem lagt hefur fyrir sig langt og dýrt söng- nám án þess að geta búist við að hafa nokkurn tima nokkurn hlut út úr þvi nema ánægjuna. Ekki er að efa, að stofnun óperu verður til að hvetja söngfólk til þess að þroska þessa hæfileika sina svo að hér verði enn meira úrval góöra söngvara en nú, — og er þó ekki litið. — Má það ekki kallast ærið af- rek hjá rúmlega 200 þúsund manna þjóð að koma á fót og reka óperu? — Afrek? Jú, sjálfsagt má segja þaö. En er það ekki lfka ótrúlegt afrek, út af fyrir sig, af ekki fjölmennari þjóð norður i hafsauga, að halda uppi sjálf- stæðu menningarþjóðfélagi? Með rekstri óperu má kannski segja að við séum að fara fram úr sjálf- um okkur en þvi skyldi okkur ekki takast þaö? —mhg islenska óperan hefur nú fest kaup á Gamla bíoi og þar með hafa Islendingar eignast sitt fyrsta óperuhús.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.