Þjóðviljinn - 07.11.1981, Page 11
Helgin 7.-8. nóvember 1981 WÓÐVILJINN — SIÐA 11
Kafbátsstrandið
og
kjarnorkuógnin
Þjóöviljinn leitaði í gær álits nokkurra forystumanna
Alþýðubandalagsins og formanns Samtaka herstöðva-
andstæðinga á nýjustu upplýsingum um strand sovéska
kjarnorkuvopnakafbátsins í Svíþjóð. Inn í samtölin
blönduðust einnig yfirlysingar bandarískra ráðamanna
að undanförnu um möguleika á takmarkaðri kjarnorku-
styrjöld í Evrópu og áætlanir NATó um að nota kjarn-
orkuvopn í viðvörunarskyni í Evrópu/ ef um stórárás
með hefðbundnum vopnum yrði að ræða frá Sovétmönn-
um.
„Talandi
dæmi um
stórvelda-
hræsni”
,,Að undanförnu hafa verið að
magnast átök milli stórveld-
anna um yfirráO á höfunum. ViO
íslendingar höfum ekki fariö
varhluta af þessu, þar sem ijóst
er aö bigbúnaður stórvcldanna
á Norður Atlantshafi hefur tekiö
á sig hrikalegri myndir að und-
anförnu en nokkru sinni fyrr,”
sagði Svavar Gestsson formaö-
ur Alþýöubandalagsins.
,,Sú staOa, sem nú viröist
liggja fyrir, að Sovétmenn búi
gamla kafbáta kjarnorkuvopn-
um, er staOfesting á þvi i fyrsta
lagi að smáþjóðirnar þurfa aö
gæta sin, ef þær eiga að halda
lifi i þessum darraðardansi og i
öðru lagi að yfirlýsingum stór-
veldanna um friðarvilja er jafn-
an vart að treysta.”
„Að undanförnu höfum við
lagt megináherslu á nauðsyn
þess að efla skilning á þeim
hættum, sem striðsógninni
fylgja. Þessi hætta er i nábýli
við okkur þar sem er banda-
riska herstöðin og menn hafa i
vaxandi mæli gert sér ljóst hver
hætta getur verið samfara
henni.”
„Atburðurinn i Sviþjóð þar
„Þessir
menn eru
gjörsamlega
klikkaðir”
„Þessir menn eru gjörsam-
lega klikkaöir, þetta framferöi
Rússa er algjörlega andstætt
öllum sjónarmiðum um afvopn-
un og friö. Eftir þetta framferöi
veröur aö efast veruiega um aö
Rússar meini nokkurn skapaö-
an hlut meö tali sfnu um aö
draga úr vigbúnaði á Eystra-
salti,” sagöi Pétur Reimarsson
formaöur miönefndar Samtaka
herstöövaandstæöinga.
„Þessi atburður og þaö, að
kafbáturinn er búinn kjarnorku-
vopnum er svo ótrúlegt, að það
ereins og mennirnir séu bilaöir!
Það hafa oft áður fundist kaf-
bátar á sveimi I landhelgi Svi-
þjóöar, en aö kjarnorkuvopna-
búnir kafbátar væru aö þvælast
inni i fjöröum, þvi hefði vart
verið trúað.”
Svavar Gestsson: Yfirlýsingum
stórveldanna um friöarvilja er
ekki aö treysta.
sem kafbátur meö kjarnorku-
vopn veður upp að strönd rikis,
sem er hlutlaust , er enn ein
staðfesting á þvi að vera vel á
verði. Þetta er ekki sist at-
hyglisvert, þegar þess er gætt
að Sovétmenn hafa undanfarið
lýst áhuga i oröum á kjarnorku-
vopnalausum Norðurlöndum og
hefur sérstaklega um áratuga
skeið látið i veðri vaka áhuga á
að lýsa Eystrasalt/,,haf friöar-
ins.” Hér höfum viö þvi talandi
dæmi um þá hræsni, sem iðu-
lega birtist i utanrikisstefnu
stórveldanna,” sagði Svavar að
lokum.
Svkr
Pétur Reimarsson: Sýnir hve
hættulegt er aö tengjast stór-
veldunum
„Þessi uppákoma mun nátt-
úrulega skaða alla umræðu
varðandi friðarhreyfinguna, en
þetta sýnir bara hve hættulegt
er að tengjast stórveldunum,
sem einskis svifast i þessum
efnum.” — Svkr.
„Oft þörf
en nú
nauðsyn”
„Siðustudaga daga hafa gerst
tveir atburöir, sem sýna aö hafi
áöur veriö þörf aö framkvæma
stefnu friöarhreyfingarinnar
um kjarnorkuafvopnun, þá er
nú nauösyn”, sagöi Ólafur
Ragnar Grimsson formaöur
þingfiokks Alþýöubandalagsins.
„Hinar furöulegu ferðir so-
vésks kafbáts og sú ósvifni að
sigla meö kjarnorkuvopn upp i
kálgarða sýnir að það er rétt,
sem við höfum verið aö segja á
siðustu mánuöum, aö Noröur-
löndum dugi dtki almenn yfir-
lýsing um kjarnorkuvopnalaust
svæði, heldur verður að gera
lögformlega alþjóðlegan sa.mn-
ing um kj arnorkuvopnalaus
Noröurlönd. Setja þarf á fót al-
þjóðlegan eftirlitsaðila, sem
fylgist meö þvi, að slíkur samn-
ingur veriö ekki brotinn”.
„Yfirlýsing Haig utanrfkis-
ráðherra Bandarikjanna, sem
um árabil var æðsti yfirmaöur
herja Nató I Evrópu, að Banda-
rikin gerðu ráð fyrir þvi i áætl-
unum sinum að verða fyrri til að
beita kjarnorkuvopnum, sannar
þá kenningu forsvarsmanna
friðarhreyfingarinnar, að I
hernaðaráætlun Natð, sé reikn-
að með að nota kjarnorkuvopn
til fyrstu árásar”.
„Framferði Sovétmanna gagn-
vart Sviþjóð og upplýsingar
Haig sýna að brýn nauðsyn er
nú á þvi' að hinum þremur
meginkröfum friðarhreyfingar-
innar verði hrundið i fram-
kvæmd. Fyrsta krafan er bann
við framleiðslu nýrra tegunda
vopna. önnur krafan er tafar-
lausar afvopnunarviðræöur um
kjarnorkuvigbúnaðinn i heild og
þriðja krafan að Evrópa veröi
kjarnorkuvopnalaust svæði og
þar gangi Norðurlönd á
undan.—Sams konar samn-
ingur verði geröur um okkar
heimsálfuog gerður hefur verið
um kjarnorkuvopnaleysi S.-
Ameriku. Sá samningur hefur
verið virtur. Alþjóölegur aöili
hefur eftirlit með framkvæmd
hans”. Alþjóölegur aðili hefur
eftirlitmeö framkvæmd hans”.
„Sovéski kafbáturinn i Svi-
þjóð og yfirlýsing utanrikisráð-
herra Bandarikjanna ættu að
verða til að tviefla sókn friðar-
hreyfingarinnar gegn kjarn-
orkuvigbúnaði risaveldanna”,
sagði Ölafur Ragnar. Svkr.
•<------------m.
Ólafur Ragnar Grimsson:
Framkvæma þarf stefnu friöar-
hreyfingarinnar um kjarnorku-
afvopnun.
„Evrópa
án
kjarnorku-
ógna”
„Ferö sovésks kafbáts I
sænskri landhelgi er enn eitt
dæmiö um yfirgang risaveldis
gagnvartsmáriki. Krafa friöar-
hreyfinga i Evrópu beinist ekki
siöur að Sovétrikjunum en
Bandarikjunumsagöi Ragnar
Arnalds fjármálaráöherra.
„Markmiöið er: Evrópa án
kjarnorkuógna. Aleiðinni að þvl
marki verður aö gjalda varhug
við áleitni Sovétmanna hvar
sem er og þá ekki sist forkast-
anleg framkoma þeirra gagn-
vart sósialiskum frelsishreyf-
ingum í Austur Evrópu, um leið
og viö vestanmegin reynum aö
Ragnar Arnalds: Við þurfum aö
losa okkur dr kjarnorkugripum
stórveldanna.
losa okkur úr kjarnorkugripum
Bandaríkjanna.” — Svkr.
„Frekjan
og hættan
fylgir
yfirfullum
vopna-
búrum”
„Sigling sovésks kafbáts meö
kjarnorkuvopn og flota foringja
innanborös upp i sænska land-
steina er svíviröilegt brot gegn
Guörún Helgadóttir: Brýnt að
efla friöarhreyfinguna eftir
megni.
hlutleysi og landhelgi Sviþjóöar
og sorglegt dæmi um frekju og
yfirgang herveldis.”
„Þessi atburöur ásamt nýleg-
um ummælum Reagans og Haig
um notkun kjarnorkuvopna i
Evrópu sýna okkur glögglega
brýna nauðsyn þess að efla frið-
arhreyfinguna sem allra mest
og knýja með fullri hörku á um
afvopnun og raunhæfa friðun.”
„Það er þess vegna hrapaleg-
ur misskilningur ef menn reyna
aðnota þennan atburö sem rök-
semd fyrir nauðsyn þess að efla
Atlantshafsbandalagið sem
mest — frekjan, yfirgangurinn
og styrjaldarhættan fylgir yfir-
fullum vopnabúrum, hvaða
stjórnvöld, sem yfir þeim
ráða,” sagði Guðrún.
— Svkr.