Þjóðviljinn - 12.11.1981, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 12. nóvember 1981
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-
hreyfingar og þjódfrelsis
(Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Álfheiöur Ingadóttir.
Umsjónarmaður sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiðslustjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Magnús H. Gislason, Óskar
Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson.
tþrótta- og skákfréttamaður: Helgi Ólafsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglýsingar: Hildur Ragnars, Sigriður Hanna Sigurbjörns-
dóttir.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
HUsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bilstjóri: SigrUn Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds-
son.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns-
dóttir.
útkeyrsla. afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúla 6,
Reykjavik, simi 8133J
Prentun: Blaöaprent hf.
Þarna liggja 27
miljarðar gamlir
# Það sem langmestu máli skiptir í ákvörðunum ríkis-
stjórnarinnar f fyrradag er það samkomulag, sem nú
hef ur tekist um að nota hagnað Seðlabankans í þvf skyni
að létta undir með útf lutningsatvinnuvegunum.
# Hér í Þjóðviljanum var f gær frá því skýrt að á síð-
ustu þremur árum, frá árslokum 1977 til ársloka 1980,
hefði eigið fé Seðlabankans vaxið um hvorki meira né
minna en 27 miljarða gamalla króna að raungildi. Þessar
upplýsingar eru ekki hafðar eftir neinum ótraustum
heimildum, heldur er hér um að ræða tölur sem bankinn
hefur sjálfur staðfest.
# Þegar fjallað var um efnahagsaðgerðir af hálfu
ríkisstjórnarinnar fyrir síðustu áramót lagði Alþýðu-
bandalagiðríkaáhersluá aðgróði Seðlabankans yrði not-
aður til stuðnings atvinnulífinu og í því skyni að forða
kjaraskeðingu. Það er hins vegar f yrst nú sem verulegt
tillit er tekið til þessarar kröf u Alþýðubandalagsins við
ákvörðun um stuðning við úrflutningsatvinnuvegina.
# Allttil þessa hafa f lestir látið eins og þeir hefðu ekki
hugmynd um hinn gífurlega hagnað sem myndast hefur
hjá Seðlabankanum á síðustu árum, og Alþýðubandalag-
ið hef ur verið eitt um að benda á hann.
En sannleikurinn er svona:
% Eigið fé Seðlabankans var í árslok 1977 (án endur-
mats fasteigna) 2.67 miljarðar gamalla króna. Til að
halda verðgildi sínu hér innanlands hefði þessi sami
sjóður áttað standa í um 9 miljörðum gamalla króna um
siðustu áramót. I reynd var eigið fé Seðlabankans í árs-
lok 1980 hins vegar ekki 9 miljarðar heldur 36.45 miljarð-
ar.
# Mismunurinn sem er beinn hagnaður á þessum
þremur árum er því rösklega 27 miljarðar gamalla
króna, þar af 15—16 miljarðar á síðasta ári. Fróðlegt
væri að kanna raunverulegt tap útflutningsfyrirtækj-
anna i landinu á sama tíma og bera þær tölur saman.
# Nú kynni einhver að spyrja hvernig Seðlabankanum
haf i tekistað áavaxta fé sitt, miðað við að mælikvarðinn
sé ekki innlendar vístölur heldur gengi dollarans. — Þá
líta málin svona út:
# Á árinu 1978 óx eigið fé Seðlabankans um 133.7% í
krónum talið, en dollarinn hækkaði þá í verði um 49.3. Á
árinu 1979 óx eigið fé Seðlabankans um 113.1% í krónum
talið, en á þvi ári hækkaði dollarinn í verði um 24.1%. Á
árinu 1980 óx eigið fé Seðlabankans enn og þá um 174.5%
í krónum ta lið, en það ár hækkaði dollarinn um 58%.
# Með öðrum orðum sagt: Eigið fé Seðlabankans var i
árslok 1977 2.67 miljarðar gamalla króna. Til þess að
halda verðgildi sinu í dollurum hefði þessi sjóður átt að
nema tæplega 8 miljörðum um síðustu áramót, en í
sjóðnum voru ekki bara 8 miljarðar heldur 36.45 miljarð-
ar. i dollurum mælt var Seðlabanki islands því 28—29
miljörðum gamalla króna ríkari um síðustu áramót
heldur en þremur árum fyrr.
# Það er sem sagt sama hvort mælt er á kvarða inn-
lendrar verðlagsvisitölu, ellegar spurt um verðmæti i
dollurum. i báðum tilvikum er niðurstaðan sú að eigið fé
Seðlabanka islands hefur vaxið að raungildi um 27—29
miljarða gamalla króna á aðeins þremur árum, 1978,
1979, og 1980.
Á sama tima hefur fjármagnskostnaður verið að
drepa fjölmörg þjóðnýt fyrirtæki í landinu.
# Það er að vísu gott að f járgæslumenn kunni vel að
ávaxta pund sinnar stofnunar, en það þarf líka að hugsa
um pund hinna — þeirra sem eiga að greiða fólkinu kaup.
# Krafa Alþýðubandalagsins er ekki sú að sjóðir
Seðlabankans verði brenndir til ösku, en Alþýðubanda-
lagið hefur lengi boriðfram þá kröf u að hluta af þessum
mikla hagnaði verði varið til að blása meira lífi í fram-
leiðslustarfsemina. Fyrst nú hef ur verið komið að marki
til móts við þær kröfur, en hér gæti þurft að ganga
lengra.
# Sums staðar erlendis, t.d. í Svíþjóð er sá háttur hafð-
ur á, að allur hagnaður af starf i Seðlabanka rennur beint
írfkissjóð. k.
Plássleysið
Sagt er aö helsta vandamál
kvennaframboös I Reykjavík
sé aö þar sé ekki pláss fyrir
konur.
Fœði og húsnœði
Alþýöubandalagsmenn
naga sig nú i handarbökin yfir
þvi að Morgunblaði og Þjóð-
vilja skyldimistakast sú ætlan
sin að gera Ragnhildi Helga-
dóttur að varaformanni Sjálf-
stæðisflokksins. Sýnt þykir að
hún hafi ekki stöðu til þess nú
aö koma þvi áhugamáli sinu
fram að setja alla Alþýðu-
bandalagsmenn á opinbert
framfæri i fangelsum landsins
vegna öryggishagsmuna
rikisins. Kommar hafa lengi
viljaö mata krókinn hjá þvi
opinbera og eru súrir yfir glöt-
uðu tækifæri til þess aö kom-
ast i fritt fæði og húsnæði hjá
rikinu.
Annars hefur Ragnhildur
sent þættinum nótu þar sem
þvi er mótmælt að hún hafi
viöurkennt aö þaö hafi verið
rétt að Ólafur Thors hafi ólm-
ur viljað fá kommúnista með I
rikisstjórnina. Þá hafa eyrun
brugðist á þeim sem viöstadd-
ir voru á landsfundi ihaldsins,
ef hún sagði ekki einmitt, að
Ólafur Thors heföi viljaö ef
allir væru þvi sammála i þing-
flokki Sjálfstæðismanna. Þar
væri munurinn á honum og
Gunnari Thoroddsen. Hvernig
væri aö Ragnhildur birti ræöu
sina. Hún hlýtur aö vera til á
Valhallarspólu.
Frjálshyggjan
Aöalgúrú ungra Sjálfstæðis-
manna, Jónas Haralz, segir I
-viötali við Stefni, að frjáls-
hýggjumenn séu I öllum flokk-
jim. Frjálshyggjan sé ekki
einkamál neins flokks. Jafnvel
sósialistar verði að átta sig á
þvi að hugsjón þeirra var i
öndverðu frjálshyggjuþjóðfé-
lag. „Frjálshyggjumenn eiga
þvi að vinna stefnu sinni fylgis
i öllum flokkum en ekki að
binda sig viö einn flokk”. Mik-
ið er fjálshyggjuhugtakið orð-
ið rúmt og huggulegt.
Bara formaður
Sjálfstæðismenn eiga sér
formann og varaformann. En
eins og Guðmundur Glslason i
Kópavogi sagöi á landsfundi
er fortiöin þó sýnu fegurri en
nútiðin. „Aður áttu Sjálf-
stæöismenn foringja, en nú
klÍPPt Herœfingar
ÍMdsoZZ
Ragnhildur Helgadóttir er
góöur fulltrúi ofstækisfyllsta
arms Sjálfstæðisflokksins.
Margir kunna þvi að hafa haldiö
aö tal hennar á Alþingi um
nauösyn öryggislögreglu til þess
að berja á kommum o.s.frv. sé
ekki I takt viö meginstefnu inn-
an Sjálfstæöisflokksins. Það er
þó mikill barnaskapur að halda
aö svo sé. I raun komu ofstækis-
fyllstu vigbúnaöarsinnarnir
kringum Geir Hallgrimsson öllu
sinu fram á landsfundi varðandi
utanrikis-og öryggismál, og ber
sú stefnuyfirlýsing ljósan vott
um þaö hvers er að vænta, þeg-
ar leiftursóknarliöiö kemst til
valda.
íslensk rannsókn á varnar-
þörfinni og fyrirkomulagi varn-
anna mundi einnig taka til at-
hugunar núverandi stað varnar-
stöðvarinnar. Mörg fleiri atriði
þarf aö rannsaka i sambandi við
varnir íslands! Sumt liggur þó i
augum uppi án sérstakrar at-
hugunar.
Ef lagðir veröa nýir milli-
landaflugvellir, þarf t.d. að
huga aö vörnum þeirra. (Sbr.
tillögur Björns Bjarnasonar um
herstöð á Sauðárkróksflugvelli
— aths. klippara).
Við þurfum að efla almanna-
varnir og auka skilning á nauö-
syn þeirra.
Við þurfum að taka þátt i
áætlunum og heræfingum
Atlantshafsbandalagsins, sem
Ragnhildur Helgadóttir
Ragnhildur Helgadóttir gerði
litið annað á þinginu en lesa upp
úr ályktun landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins um utanrikis-
mál. Hún vitnaði m.a. til þess-
arar málsgreina i ályktuninni:
„tslensk varnarstefna felst i
þvi að tslendingar geri sinar
eigin tillögur um varnir, meti
varnarþörfina og fyrirkomulag
varnanna.” — Og nokkrum
setningum siöar segir svo:
„Jafnframt þarf að huga að
örygginu inn á við og gera nauð-
synlegar ráðstafanir til að er-
lend riki eða útsendarar þeirra,
útlendir eða innlendir grafi ekki
undan öryggi rikisins og sjálf-
stæði þjóðarinnar innan frá.”
Nýjar
herstöðvar
Nú er þetta almennt orðað, og
mönnum getur dulist hvað I
raun er átt við. En athyglisvert
er aö þessar setningar koma
nær orðréttar fyrir I texta sem
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
, flokksins og hermálafræöingur,
las á ráöstefnu flokksins um ut-
anríkismál. Og þar kemur skýrt
fram hvaö að baki býr. „Við
eigum að gera okkar eigin til-
lögur um varnirnar, meta varn-
arþörfina, og fyrirkomulag
varnanna.” — (Islendingar
koma i staðinn fyrir VIÐ i
Landsfundarályktuninni, —
aths. klippara). „Liklegt er aö
slikt mat mundi t.d. leiöa i ljós
aö ekki ætti aöeins aö heimila
smiði þeirra þriggja sprengju-
heldu flugskýla, sem nú þegar
hefur verið leyft að reisa, heldur
allra skýlanna sem varnarliðiö
hefurfarið fram á.Slik flugskýli
eru nauðsynlegur þáttur i ör-
yggi varnarstöðvarinnar.
Þá gæti innlend athugun á
fyrirkomulagi varnanna leitt til
þess, aö óskað yröi eftir smiði
nýrrar ratsjárstöövar á Langa-
nesi til aö bæta enn eftirlit meö
ókunnum flugvélum.
----------------oa
Kjartan Gunnarsson
snerta ísland. Þaö væri t.d. ekki
óeðlilegt, aö tslendingar færu
fram á, að herafli sá, sem ætti
að hafa afnot af landinu i ófriði,
æföi hér hlutverk sitt, þ.á.m.
liðs- og birgöaflutninga til
landsins. Þannig gætu islensk
stjórnvöld fengiö að kynnast
þeim vandamálum, sem þessu
væru samfara.
Viö þurfum einnig aö efla
öryggi i landinu inn á viö og
hugleiða, hvernig við brygð-
umst best við hugsanlegum
styrjaldarátökum. Og við þurf-
um að kanna rækilega hvort Is-
lendingar geti sjálfir á einhvern
hátt tekið meiri þátt I vörnum
landsins en þeir gera nú. Minn-
umst þess og, að i 75. grein
stjórnarskrárinnar er sérhverj-
um vopnfærum manni beinlinis
lögð á heröar sú skylda, að taka
þátt i vörnum landsins.”
Það sem
koma skal
Þetta voru orð Kjartans
Gunnarssonar og lykilsetningar
þessa texta er aö finna i utan-
rikismálaályktun landsfundar-
Sjálfstæöisflokksins: Nýjar her-
stöðvar á tslandi við flugvelli og
á útnesjum, stórfelldar heræf-
ingar á Islenskri grund, stofnun
islensks herstyrks og einhvers-
konar öryggislögreglu til innan-
landsnjósna, simhlerana og
annarra þarfaverka i nafni
rikisöryggis. Þetta er það sem
koma skal nái leiftursóknarliðið
völdum á ný i islenskum stjórn-
málum. Vinstri menn á íslandi
þurfa aö huga vel aö þessum
viðhorfum sem leiftursóknarliö-
ið hefur fengið landsfund Sjálf-
stæðisflokksins til þess aö skrifa
uppá. Ýmiskonar lúxusóánægja
veður uppi á vinstri væng
stjórnmálanna, en það er hollt
að hafa það hugfast, aö verði
látið undan leiftursóknaröflun-
um hefst hér „blitzkrieg” i ut-
anrikis- og efnahagsmálum,
sem munu færa okkur hiö
evrópska 10—15% atvinnuleýsi
og stóraukin hernáðarumsvif.
— ekh
skorio