Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. desember 1981 UODVIUINN Mátgagn sósíalisma, verkalyds- Hreyfingar og þjódfrelsis titgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Fréttastjórí: Alfheiöur Ingadóttir. ■Umsjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir. Afgreiðslustjóri: Valþór Hlööversson. Blaöamenn: Auöur Styrkársdóttir, Magnús H. Gislason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson. iþrótta- og skákfréttamaður: Helgi Ólafsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Gubjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson. Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson. Auglýsingar: Hildur Kagnars, Sigriður Hanna Sigurbjörns- dóttir. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir. Simavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmunds- son. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jóns- dóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Siðumúla 6, Keykjavik, slmi 81333 Prentun: Blaðaprent hf. Hernám hugarfarsins # Hálf ur mánuður er nú liðinn síðan ólafur Ragnar Grimsson, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins kynnti á Alþingi gögn frá svokallaðri Menningar- stofnun Bandaríkjanna á íslandi þar sem opinskátt var rætt um f járveitingar stofnunarinnar í því skyni að gera sem flesta íslenska áhrifamenn í stjórn- málum og á fleiri sviðum auðsveipa þjóna bandarískrar utanríkismálastef nu # f íslenskum fjölmiðlum öðrum en Þjóðviljanum, hefur verið býsna hljótt um þá opinberu og grófu íhlutun risaveldisins í allt stjórnmálalíf á íslandi, sem þarna var rækilega kynnt. 0 I þessari skýrslu ,,Menningarstofnunarinnar" sem kynnt var á Alþingi og Þjóðviljinn birti segir m.a. orðrétt: 0 „ Aðalmarkmið okkar eru að ef la stuðning islend- inga við dvöl bandaríska varnarliðsins og áfram- haldandi þátttöku Islands í NATO. Við þurfum einnig að stuðla að því að stuðningur Islendinga við stefnu Bandaríkjanna í kjarnorkuvopnamálum og afvopn- unarmálum sé fyrir hendi. Til þess að ná þessum markmiðum leggjum við sérstaka áherslu á að rækta samband við íslenska stjórnmálamenn, sem láta utanríkis- og öryggismál til sín taka." 0 Og það eru ekki bara stjórnmálamenn okkar sem „ræktaðir" eru með þessum hætti samkvæmt skýrslu „Menningarstofnunarinnar". í skýrslunni segir orðrétt: # „Þær stofnanir og einstaklingar, sem við munum sérstaklega rækta í þessu sambandi eru Junior Chamber hreyfingin, Þjóðhagsstofnun, fjármála- ráðuneytið, utanrfkisráðuneytið, fjölmiðlarnir, viðskiptadeild Háskóla Islands, Stjórnunarfélagið, Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Flugleiðir og Alþýðusambands islands." # Talað er í skýrslunni um vikulega fundi á fimmtu- dögum með fulltrúum frá blöðunum,og á einum stað segir: — „Við munum einnig kynna okkur möguleika á því að við fjármögnum aðgerðir, sem beinast að stjórnendum safna, meðlimum í rithöfundasamtök- um, kennurum í tónlistarskólum og öðrum félögum." p Heilaþvottarstöðin bandaríska við Neshaga í Reykjavík, ætlar sér greinilega ekki lítinn hlut við að dusta aldagamalt ryk af Islendingum og að steypa okkur í mót hins ameríska draums. — „Ferðalög sem við höfum f jármagnað til Bandaríkjanna og á vegum NATO hafa reynst árangursríkasta aðferðin til að fá islendinga til að átta sig á öryggis- og varnarmálum", segir þar! Hér er ekkert til sparað svo heilaþvotturinn megi hafa sinn gang og umskiptingunum fjölgi dag frá degi, árfráári. # Var nokkur aðtala um mútur? # Það er frumregla í samskiptum sjálfstæðra ríkja um allan heim, að erlendir sendimenn skipti sér ALLS EKKI af stjórnmálum í því ríki sem þeir dvelja i. Og komist upp um tilraun erlendra sendimanna til að hafa pólitísk áhrif á heimafólk með fégjöfum eða gylliboðum, þá eru slíkir sendimenn umsvifalaust reknir heim, sem sjálfsagt er. # Hér virðist heilaþvottinum stóra hins vegar svo langt á veg komið, að f jöldinn allur af stjórnmála- mönnum og f jölmiðlafólki taka skýrslu „Menningar- stofnunarinnar" sem sjálfsögðum hlut, ánægjulegum eða ekki umtalsverðum. # Það er hernám hugarf arsins, sem hér segir til sín. Það hernám er öllum vopnum hættulegra, því lak- astur er sá kostur að lif a við skömm. # I dag, fyrsta desember, eru rétt 63 ár liðin f rá því að ísland varð f ullvalda ríki. Aldir erlendrar kúgunar lifðum viðaf sem þjóð, þótt þröngt væri löngum fyrir dyrum. Nú er spurt þann 1. des.: Hvar er þjóðieg sjálfsvitund okkar og sjálfsvirðing á vegi stödd? Sú spurning verður ætiðáleitin við lestur þeirrar skýrslu, sem hér hefur verið vitnað til, og við umhugsun um móttökurnar sem plagg þetta fékk á Alþingi og f f jöl- miðlum. # Svarið mun hins vegar ekki birtast f orðum,heldur í verkum okkar á komandi tímum, þeirrar þjóðar sem i landinu lifir. Hernám hugarfarsins er sá f jötur sem brjóta verður;eigi íslensk þjóðað lifa. ALÞYDUBANDALAGID Virkur í dag ,,Betra a6 veravirkur í dag en geislavirkur á morgun” segja þeir i bresku friöar- hreyfingunni og i þessu slag- oröi felst raunar einkar vel kjarninn í baráttunni Jyrir kjarnorkuafvopnun. Þjóöviljinn hefur fyrir sitt leyti lagt sig fram um aö kynna þessa baráttu á siöustu mánuöum, og æ fleiri aöilar á Islandi leggja henni nú liö. Alþýöubandalagiö hefur látiö gera barmmerki og limmiöa undir merkjum friöarhreyfingarinnar og rennur þessi varningur lit eins og heitar lummur. Ný merki Hér er um aö ræöa tvö barmmerki og tvo limmiöa. A annaö barmmerkiö er letraö Kjarnorkuvopnalaus Noröurlönd ásamt friöar- merkinu og undirskrift Al- þýöubandalagsins. A hin er letraö Herinn burt ásamt friöarmerkinu. A annan lim- miöann er letraö Herstöb er skotmarkásamt skotskifu og undirskrift Alþýöubanda- lagsins, A hinn er letraö Kjarnorkuvopnaiaus Noröurlönd ásamt friöar- merki. Merkin og lim- miöarnir eru f rauöu, hvitu og svörtu. Af limmiöunum eru tvær geröir og miöast önnur viö aö miöunum sé > komiö fyrir á bilrúöum. j Merkin eru afgreidd frá I skrifstofu Alþýöubandalags- J ins og kosta kr. 10 en flokks- • félög og félagasamtök geta I fengiö þau á kr. 6 gegn staö- | greiöslu. Betra aö vera J virkur i dag en geislavirkur . á morgun. 1. des merki 1. des. nefnd stúdenta sem i dag efnir til dagskrár undir nafninu Kjarnorkuvig- búnaöur: Helstefna eöa lífs- stefna? Stúdentar hafa og gert barmmerki og plaköt þar sem' m.a. stendur: Kjarnorkuvopn—Nei. klippt Vísislikiö Visir heitinn var eina blaöiö sem ekki fjallaöi um tslands- áætlun bandarisku upplýsinga- þjónustunnar, þegar Ólafur Ragnar Grímsson kynnti hana á Alþingi. Nú ris Visislikiö upp frá dauöum á siöum Dagblaösins og hefur gagnsókn bandarisku upplýsingaþjónustunnar meö viötali viö Thomas Martin for- stööumann Menningarstofnun- ar Bandarikjanna á Islandi. ,,Þaö má^segja aö Menningar- stofnunin hafi sama hlutverk og Norræna húsiö, þaö er aö stuöla aö sem bestum menningarleg- um tengslum og samskiptum milli Bandarikjanna og ts- lands”, segir m.a. i viötalinu. Svarthöföi benti okkur oft á þaö I Visi aö Norræna húsiö væri nokkurskonar erlend herstöö i okkar menningarhelgi, og af þvi stafaöi margvisleg hætta, m.a. sú aö norræna herstööin væri mótvægi viö þá bandarisku. hennar. Newsweek skýrir frá þvi 16. nóvember aö ýmsum starfsmönnum þjónustunnar þyki sem horfiö hafi veriö aftur til lýöskrums kalda striösins. Hinn nýi boöskapur USICA — en svo er þjónustan nefnd i stytt- ingi — felst i „Aætlun sann- ieika”, sem beinist aö þvi aö greina og hrekja áróöur, lygar og oröróm sem Kremlverjar breiöa út til þess aö sverta ímynd Bandarikjanna i augum heimsins. Wick er sagöur vinna aö þvi meö bandarisku leyni- þjónustunni, utanrikisráöuneyt- inu og varnarmálaráöuneytinu aö koma „Project Truth” á skriö. Liöur I þessari viöleitni er aö sýna fram á tengsl Sovét- manna viö friöarhreyfingar i Vestur-Evrópu, og hafa örygg- isþjónustur ýmissa landa lagt Wick liö I þeim efnum. Þaö heyrir einnig til aö birta ýmsar upplýsingar sem koma illa viö Sovétrikin. Þannig hefur Þjóö- viljinn m.a. fengiö nýlega frá útibúi USICA á Islandi lista yfir sovéska listamenn sem flúiö hafa land, og annan lista yfir sovéska sendiráösstarfsmenn sem reknir hafa veriö frá ýms- Menningarstofnunin heyrir undir bandariska sendiráöiö, en þessar stofnanir lúta þó mis- munandi yfirvaldi i Washing- ton, sú fyrrnefnda Upplýsinga- þjónustu Bandaríkjanna og hiö siöarnefnda utanrikisráöuneyt- inu. Nánar um þaö siöar. Bandarískar dyggðir Úr viötalinu i DagblaösVisin- um saknar maöur ýmissa spurninga. Til aö mynda þeirrar hversvegna bandariska Nor- ræna húsiö á tslandi er aö skipu- leggja og borga fyrir NATO-feröir áhrifamanna á Is- landi og næturdvöl I flugmóöur- skipum? Þá kemur fram aö for- stööumaöur stofnunarinnar var m.a. I Vietnam. „Þar var ég á meöan átökin voru hvaö höröust og megniö af timanum dvaldi ég út á iandsbyggöinni þar sem skæruhernaöur var i algleym- ingi.”Hvaö var blessaöur maö- urinn aö gera? Var hann aö kynna bandariska menningu, setja upp sýningar, dreifa bók- um og timaritum? Stofnunin sem Menningar- stofnun Bandarikjanna á ts- landi er hluti af nefnist á ensku U.S. International Communic- ation Agency. — Alþjóöasam- skiptastofnun Bandarikjanna — Ronald Reagan mun hafa i hyggju aö endurskira hana, og taka aftur upp gamla nafniö Upplýsingaþjónusta Bandarikj- anna — U.S. Information Ag- ency. Hún var stofnuö áriö 1953 á hápunkti kalda stríösins, og meginhlutverk hennar var aö sögn Newsweek, aö básúna bandarlskar dyggöir og sovéska lesti. Reagan-stjórnin hefur i hyggju aö nýta þessa stofnun betur i oröastriöinu viö Sovét- rikin, og einn af eldhúsdrengj- um forsetans, Charles Z. Wick, hefur veriö útnefndur forstjóri --------------03 um löndum. Þá hefur USICA dreift upplýsingum bandariska utanrikisráöuneytisins um meintan eiturefnahernaö Sovét- rikjanna og vopnasmiöi þeirra almennt. Voða, voða saklaust Hagspeki Reagans kemur niöur á USICA meö 12% niöur- skuröi I ár, en Wick, sem I máli starfsmanna er nefndur eftir lofthreinsileginum „Air-Wick”, leysir máliö meö þvi aö skera niöur menningarsamskipti og feröaheimboö. Til þess aö hjálpa upp á sakirnar i áróörin- um gegn Sovétrfkjunum hefur hann hinsvegar sett á stofn sjálfboöaliöasveitir góöra bandariskra borgara, sem eiga aö hjálpa USICA til þess aö draga hlassiö. Newsweek segir aö margir USICA-starfsmenn séu skelfingu lostnir yfir þess- um útblásna einangrunarsinna á forstjórastólnum sem skilji ekki hina flóknu heimsmynd nú- timans. Reagan og hann vilji selja heiminum ákveöna mynd af Bandarikjunum, en hafi litla þekkingu á markaönum, sem þeir ætla aö selja á. Haft er eftir USICAsnanni i Vestur-Evrópu: „Ef viö reyndum að segja fólki aö friöarhreyfingin sé rekin af Sovétmönnum myndi þaö álita okkur drukkna, brjálaöa eöa hvorutveggja.” Samt er reynt. t Visi er okkur greint frá bandariska Norræna húsinu á tslandi sem sé voða, voöa sak- laust...enda passar ekki aö pólitiskir fulltrúar séu meö puttana ofaní menningarstarf- ' semi af þessu tagi. Þá er hætt viö aö þeir reyni aö stjórna of miklu, setja menninguna á póli- tiskan bás.” Segir maöurinn sem hleypur erinda Charles Z. Wick á Islandi. — ekh. shorfo

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.