Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 01.12.1981, Blaðsíða 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. desember 1981 Kellavik KEFLAVÍK Auglýsing um timabundna umferðartak- mörkun i Keflavik. Frá laugardegi 5. des. — fimmtudags 31. des. 1981 að báðum dögum meðtöldum er vöruferming og afferming bönnuð á Hafn- argötu á almennum afgreiðslutima versl- ana. Á framangreindu timabili verða settar hömlur á umferð um Hafnargötu og nær- liggjandi götur ef þurfa þykir, svo sem tekinn upp einstefnuakstur eða umferð ökutækja bönnuð með öllu. Verða þá sett- ar upp merkingar er gefa slikt til kynna. Keflavik 1. des. 1981 Lögreglustjórinn í Keflavik. i • Blikkiðjan Asgaröi 7/ Garðabæ önnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 OSBB!! v'öbJóóum °^pis ÁSKRriesen^ «ynnis?rFT W °kkar tyóóvih "Jdnum. stendui 'r í látió ^UjgERDAR Eflum fram- farir fatlaðra Bliss-nefndin þakkar Týsfélögum Félagar úr Lionsklúbbnum Tý afhenda islensku Bliss-nefndinni hjálpartækin. Doktor í stærðfræði í lok september varði Björn Birnir doktorsritgerð i stærðfræði við Courant stofnunina i New York. Ritgerðin fjallar um ólinu- legar diffurjöfnur og ber heitið': Complex Hills Jafna, Complex Korteweg-de-Vries flæði og Jac- obi Varieties. Andmælendur voru Peter Lax og George Papanic- oiaou, en ritgerðin var unnin við Oxford háskóla og Courant stofn- un New York háskóla undir hand- leiðslu Henry McKean. Björn Birnir er fæddur i Reykjavik árið 1953 sonur Jó- hönnu Kristinar og Einars Birnis. Hann stundar nú kennslu og rann- sóknir i ölinulegum diffurjöfnum við Arizona háskóla i Tuscon, að hluta til á styrk frá Visindasjóði íslands. Fullt verð fyrir nautakjöt Ákveðið hefur nú verið að end- urskoða búmark vegna nauta- kjötsframleiðslu, eins og eftirfar- andi tiilaga, sem samþykkt hefur verið af Framleiðsluráði land- búnaðarins, ber meö sér: „Framleiðsluráð landbúnaðar- ins ákveður að endurskoða bú- mark vegna nautakjöts með hlið- sjón af framleiðslu þess á árunum 1979,1980 og 1981. Til ársloka 1981 og þar til annað verður ákveðið skal nautakjöt greitt fullu verði. Nautakjöt skal ekki hafa áhrif á uppgjör á verði mjólkur og/isða kindakjöts”. Ljóst er þvi að framleiðendur eiga að fá fullt verðlagsgrund- vallarverðfyrir nautakjöt á þessu ári og sú framleiðsla hefur engin áhrif á uppgjör fyrir innlagða mjólk eða kindakjöt á árinu 1981. Jafnframt verður búmark endur- skoðað hjá þeim bændum, sem þess óska með tilliti til breytinga, sem orðið hafa á framleiðslunni árin 1979 - 1981. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Innheimta félagsgjalda Alþýðubandalagsfélagar i Reykjavik! Ljúkið greiðslu félagsgjalda fyrir árið 1981 fyrir áramót. — Stjórn ABR. Alþýðubandalagið á Akureyri Fundur um stefnumótun i fjölskyldumálum verður haldinn i Lárusarhúsi miðvikudaginn 2. desember kl. 20.30. Að þessu sinni verður fjallað um dagvistun og skólamál. Allt áhugafólk velkomið, f jöl- mennið og takið þátt i skemmtilegu starfi. Til innheimtumanna Happdrættis Þjóðviljans i Reykjavik. Núeru siðustu forvöð að gera skil i happdrætti Þjóðviljans. Hafið sam- band við skrifstofu félagsins og athugið, hverjir hafa borgað á skrif- stofunni — þaðsparar sporin. 1 dag verður opið til kl.19.30 og slmarnir eru 17500 til kl. 17.00og 17.504 frákl. 17.00—19.30. Alþýðubandalag Borgarness og nærsveita: Félagsfundur verður haldinn föstudaginn 4. desember kl. 20.00 að Kveldúlfsgötu 25. Fundarefni: 1. Fréttir af flokksráðsfundi. 2. Kynming á drögum að sam komulagi um sameiginlegt prófkjör stjornmálaflokkanna vegna sveitarstjórnarkosninganna. 3. önnur mál. — Mætið vel og stundvis- lega! — Stjórnin. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Suðurlandskjördæmi Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins i Suðurlandskjördæmi verðurhaldinn i ölfusborgum um helgina 5.-6. desember n.k. Fundur- inn verður settur kl. 13.30 laugardaginn 5. desember. — Stjórn kjör- dæmisráðsins. V iðsklptasamnmgur við Svisslendinga 26. nóvember s.l. var undirrit- aður i Genf viðskiptasamningur milli tslands og Sviss. Tryggir samningurinn tollfrelsi fyrir inn- flutning til Sviss á islenskum sjávarafurðum, sem ekki falla undir EFTA-sáttmálann. Er þar um að ræða ísfisk, heilfrystan fisk, saltfisk, saltsild og humar. Island hefur itrekað reynt að fá allar sjávarafurðir undir friversl- un i EFTA. Á ráðherrafundi sam- takanna i mai 1980 flutti Tómas Árnason viðskiptaráðherra til- lögu um að vörusvið EFTA-sátt- málans næði til allra fiskafurða. Sérfræðinganefnd var falið að at- huga málið en niðurstaöa varð sú. áð ekki væri grundvöllur fyrir samþykki tillögunnar. Niðurstaða þessi var kynnt á ráðherrafundi s.l. vor og lýsti viðskiptaráðherra vonbrigðum sinum með hana. Svisslendingar voru fylgjandi tillögu Islendinga og lýstu sig jafnframt reiðubúna til viðræðna um tvihliða samning um tollfrelsi fyrir allar sjávaraf- urðir. í reynd eru umsamin toll- friðindi að mestu leyti þegar i gildi á grundvelli tvihliða samn- ings Portúgals og Sviss, en sá samningur fellur úr gildi þegar Portúgal gerist aðili aö Efna- hagsbandalagi Evrópu. Leiðrétting 1 minningargrein um Jón Konráð Stefánsson Klemenzson varð sú villa, að i yfirfyrirsögn stóð „Kveðja frá dóttur”, en átti að vera „Kveðja frá ddtturdóttur”. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Þjóðviljlnn Áskriftarverð Þjóðviljans verður frá 1. desember kr. 100 á mánuði. Lausasöiuverð verður kr. 6.00 pr. eintak, en Sunnudagsbiaðið kostar kr. 9.00 pr. eintak. Grunnverð auglýsinga verður kr. 60.00 pr. dálk- sentimetra. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.