Þjóðviljinn - 01.12.1981, Side 15
Þriöjudagur 1. desember 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
|\/| Hringiö í síma 81333 kl. 9-5
alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum
fra
Frönskukennari
óskar eftir
pennavinum
Þjóöviljanum hefur borist
bréf frá Frakklandi þar sem
óskaö er eftir pennavinum á
íslandi. Bréfiö er skrifaö á
ensku og er svohljóöandi: Ég
er frönskukennari, 26 ára
gömul og ætla aö heimsækja
tsland næsta sumar. Timann
þangaö til vil ég gjarnan nota
til aö skrifast, á viö tslend-
inga á frönsku, ensku eöa
norsku.
Nicole PRÉZEAU
23 Avenue Stephen PICHON
75013 PARIS
FRANCE
lesendum
Þarna eru krakkarnir á Sólborg á Seltjarnarnesinu búnir aö króa
eina fóstruna sina af. Ljósm. — eik.
Islensku máli misþyrmt
Sjónvarpsáhorfandi
hringdi og sagðist ekki
geta orða bundist vegna
þeirra þýðinga# sem
þjóðinni væri boðið upp
á í sjónvarpinu.
A miövikudaginn heföi t.d.
veriö á dagskrá i sjónvarpinu
þátturinn Fólk aö leik. Þar
heföi mátt heyra málsgrein
sem þessa: „Viska og sálarró
skina af andlitum þeirra”, og
ennfremur: „Fólkið var að
gera eitthvað i morgunsár-
inu”.
Skilyröi fyrir þvi aö fólk
væri fært um aö þýöa erlend
mál yfir á islensku væri kunn-
átta bæði hvaö varöaöi er-
lenda máliö og islenskuna.
Þessari kunnáttu heföi ekki
veriö fyrir aö fara hjá þýö-
anda. En þó tæki steininn úr,
þegar islenskumaöurinn
Guöni Kolbeinsson, sem heföi
tekið aö sér aö leiöbeina þjóð-
inni i notkun málsins, léti áö-
urgreindar ambögur út úr sér
óleiðréttar.
Vísur frá
Lesandi gaukaöi aö okkur
þessum visum um daginn og
lét eftirfarandi formála fylgja
þeirri fyrri:
Skoffin er sagt aö sé af-
kvæmi tófu og kattar og er
kötturinn móðir. Veröa þvi
skoffin ætiö drepin áöur en
þau komast upp (úr Þjóösög-
um Jóns Arnasonar).
Ef svo héldi áfram, aö óhæf-
ir þýðendur yröu látnir eyöi-
leggja islenskuna, þá væri
kannski best aö leggja hana
niöur og sleppa henni viö að
þola slikar misþyrmingar.
lesanda
Eykst nú vinþekkjarnans vandi
varla mun hann smakka meir,
þegar blaösins forni fjandi,
fer aö vinna fyrir geir.
Ellert
Eitt sinn var hann áfjáöur,
i aö gerast einráöur,
ætli hann veröi útmáöur,
eöa gerist óháöur?
^/\&Bi
J L \{J s/t£ óí/ oocB-
lA AV A/4 j ó l/ M
h *> /I b'Ð i f A 0 (j1 j.
'AI4.
Barnahornid
KISA
eftir Jóhönnu
Jóhanna er 5 ára og
býr að Ystafelli 35 i
Reykjavík. Hún sendi
okkur myndina af kisu
og meðfylgjandi texta:
Pabbi, sagði Dísa,
viltu vera svo góður að
ná í kisu mína. Já, sagði
pabbi.
STELPAN
OG KISAN
U.G., 9 ára, sendi okk-
ur þessa sögu um stelp-
una sem var vond við
kisuna sína:
Einu sinni var stelpa.
Hún átti eina kisu og
togaði alltaf í skottið á
henni. Einu sinni
dreymdi hana að kisa
væri hún og hún væri
kisa. Hún (kisa) togaði í
skottið á henni (stelp-
unni). Hún öskraði og
mamma hennar kom
hlaupandi. Hún sagði
henni allan drauminn og
hætti að vera vond við
kisu.
HELSTEFNA
EÐA
LÍFSSTEFNA
Útvarp
kl. 14.15
Stúdentar munu ao
venju minnast full-
veldisdagsins i dag
með samkomu i Há-
skólabiói. útvarpað
verður beint frá sam-
komunni, en þar mun
Visnaflokkurinn Hrim
syngja, hópur úr Al-
þýðuleikhúsinu flytja
frumsaminn leikþátt,
Bubbi Morthens syng-
ur og stúdentar flytja
ræðu og lesa ljóð. Að-
alræðumaður á sam-
komu stúdenta er sr.
Gunnar Kristjánsson
að Reynivöllum i
Kjós.
Dagskráin verður
helguð þeirri umræðu
um kjarnorkuvigbún-
að, sem svo mjög hef-
ur einkennt þjóðmála-
umræðuna i Evrópu i
ár. Yfirskrift dag-
skrárinnar er: Kjarn-
orkuvigbúnaður:
HELSTEFNA EÐA
LÍFSSTEFNA.
„Kjarnorkuvigbúnaöur: Hel-
stefna eöa lifsstefna” heitir
hátiöarsamkoina stúdenta i
dag, fullveldisdag tslendinga.
Aöalræöumaöur samkomunn-
ar er sr. Gunnar Kristjánsson
aö Reynivöllum i Kjós.
Nýr flokkur:
Refskák
í kvöld heldur innreið sina i
sjónvarpið nýr breskur
njósnamynda flokkur. Fyrsti
þátturinn ber heitið Sex litlar
mýs, en alls veröa þættirnir
átta, og eru þeir eftir Philip
Makcie. Hver þáttur er sjálf-
stæöur, en þó tengjast þeir I
heild.
1 þáttunum segir frá TSTS,
deild i bresku leyniþjónust-
unni, sem sér um hæfni um-
sækjenda til njósnastarfa.
TSTS h/f hefur aösetur i miö-
borg Lundúna. Starfseminni
stjórnar Cragoe, aðstoöar-
maður hans heitir Zelda.
Wigglesworth og Herbert sjá
um að prófa væntanlega
njósnara.
Leikstjóri er Alan Cooke en
meö helstu hlutverk fara
Sandra Dickinson, Clive Arr-
indell, Nicholas Jones, Mal-
colm Terris, Alan Howard,
Alan Howard i hlutverki sinu
sem Cragoe, yfirmaöur TSTS
h/f.
Sarah Porter og Richard Mor-
ant. Þýöandi er Ellert Sigur-
björnsson.
Sjónvarp
fiy kl. 21.25
Robbi og Kobbi
Sjónvarp
O k*- 20.40
Að afloknum fréttum,
auglýsingum og dag-
skrárkynningu verður
sýndur þáttur úr tékk-
neska teiknimynda-
flokknum Robbi og
Kobbi. Þættir þessir eru
vel gerðir og óhætt að
mæla með þeim fyrir
fullorðna jafntsem börn
— ef þau eru þá ekki
komin í háttinn blessuð
þegar hann byrjar.
Fyrir börnin: tciknimyndaflokkurinn Robbi og Kobbi er á dag-
skránni I kvöld.