Þjóðviljinn - 16.12.1981, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 16.12.1981, Blaðsíða 2
2. Slöa — Jólablað Þjóöviljans Kjarnorkuvopn eru skýrasta táknið um heimsku og siðblindu mannskepnunnar Viötal viö E. P. Thompson sagnfræöing og framámann í bresku friöarhreyfingunni Einn kuldalegan dag I byrjun nóvember hélt sænski blaöamaö- urinn Ronny Ambjörnsson hjá Dagens Nyheter frá London á- leiöis til landamæra Wales. i fyrrverandi biskupssetri frá 16. öld fann hann Edward P. Thomp- son sem býr þarna ásamt konu sinni Dorothy sem einnig er sagn- fræðingur. Blaöamaöurinn fékk aö kynnast breskum húskulda þvi húsiö hélt hvorki vatni né vindi og þeir Thompson uröu aö ganga um gólf til aö halda á sér hita meöan þeir spjölluöu saman lengi dags. Blaöamanni Iék fyrst hugur á að fá skýringar á þvl hvaö Thompson á viö meö hugtak inu „gereyöingarstefna” (exterminism). Þetta hugtak notar Thompson mikið og segir aö þaö tákni siöasta æviskeiö vest- rænnar menningar. — Meö þessu á ég viö ákveöiö mynstur sem greina má undir yfirboröi kaldastriðsátakanna: þróun sem á sér staö beggja vegna viglinunnar, þróun sem lýtur sinum eigin lögmálum og felur i sér ógn sem öll venjuleg pólitisk starfsemi á engin svör við. Vopnaframleiðslan er stór þáttur þessarar þróunar, en vopnin eru hluti af stærri heild, vopnakerfum, sem krefjast á- kveðinnar skipulagningar á efna- hagslifi og þekkingu þjóðanna. Hergagnaiðnaöurinn er ekkert snikjudýr á þjóöfélaginu sem aö ööru leyti er friðsamlegt. Hann er svo voldugur að hann getur ráðiö framþróun þjóðfélagsins og sú þróun stefnir að gereyöingu. Þetta hefur i för með sér að i báðum risaveldunum eru til staðar áhrifaöfl sem eiga sér hlið- stæða hagsmuni og hafa æ við- tækari áhrif á félagslega og póli- tiska þróun þjóðfélagsins. 1 Bandarikjunum á ég við einka- fjármagnið sem hefur gifurlegra hagsmuna að gæta i vopnafram- leiðslunni, i Sovétrikjunum hefur skrifræðiö kallað fram þessa þró- un. Og þessi öfl eru háð hvort öðru: haukar i öðrum herbúðun- um efla hauka i hinum herbúðun- um. Blaöamaöur biður hann aö skýra þessa kenningu nánar. — í iðnrikjum Vesturlanda gætir ákveðins tviskinnungs i efnahags- lifinu: annars vegar á sér stað stöðnun i framleiðslu varnings og þjónustu sem uppfyllir friðsam- legar þarfir, hins vegar geysiör útþensla vopnaframleiðslu og -sölu. Þessi vaxtarbroddur efna- hagslifsins nærist á köldu striði, en hann eykur ekki atvinnuna, þar sem vopnaframleiðsla er gifurlega tæknivædd. Svipuð þróun virðist eiga sér stað i Sovétrikjunum. Hag- fræöingar hafa bent á að tilvera stórra herja, öflugs hergagna- iðnaðar og háþróaðar rannsóknir á sviði hergagnaframleiðslu auki nauðsyn þessháttar framleiöslu og efli með ráöamönnum þröng- sýn þjóöernissjónarmið. Hér má benda á raðsmiði stórra vopna- kerfa sem dæmi. Hergagnafram- leiðslan býr yfir ytri stöðugleika sem einnig má nefna tregðulög- mál gereyðingarinnar, sjálfstætt vaxtarlögmál. Eða hvað snýst kalda striðið eiginlega um? Ég fæ ekki séð að það snúist um annað en sjálft sig. Blaöamanni finnst litiö fara fyrir þróunarlöndunum I kenningum Thompsons. — Ég hef aldrei getað tekið heilshugar undir þá stefnu sem marxisminn tók á sjöunda og átt- unda áratuginum. Að svo miklu leyti sem barátta vietnömsku þjóðarinnar kallaði á hana var hún rétt, þvi sú barátta var sögu- leg nauðsyn. En samtimis ól þessi stefna á hernaðarlegu viðhorfi til sósialismans, ekki sist með þvi að kalda striöið var yfirfært á þró- unarlöndin, til dæmis Kúbu. Þetta viðhorf hefur haft verstu áhrif á þróun sósialiskra hugmynda hér á Vesturlöndum, þvi það mótaði alla pólitiska starfsemi i þessum heimshluta þar sem kalda striðiö á upptök sin. Enn er blaöamaöur óánægöur, nú finnst honum vanta hina hefö- bundnu aöferö marxista: aö leita orsaka atburöanna i þróun fram- leiösluháttanna. Honum finnst Thompson einskorða sig um of viö afleiðingarnar en lita framhjá or- sökunum. Þaö er eins og Bomban eigi sér sjálfstætt lif, segir hann og spyr: stríöir slik kenning ekki gegn allri skynsemi? — Nei, mér finnst það þvertá- móti mjög óskynsamiegt aö ein- blina á framleiðsluhættina og hirða ekkert um hvað er fram- leitt. Bæði framleiðslukerfin — það sovéska og það bandariska — framleiða gereyðingu og gereyð- ing verður æ stærri hluti út- flutningsins, til dæmis til þró- unarlandanna. Þar að auki lit ég á kalda striöið sem sjálfstætt fyrirbæri sem ekki er hægt að skýra eingöngu sem ólika hags- muni rikja og stétta. Blaðamaöur spyr hvort þetta geti ekki leitt menn inn á hættu- legar brautir og nefnir dæmi af stigmögnun Vietnamstrlösins. Þá mátti skilja á mörgum aö hún gerðist af sjálfu sér án þess aö nokkur mannlegur máttur fengi rönd við reist. Hann spyr hvort slikar kenningar séu ekki til þess eins fallnar aö fela þá staöreynd aö bakviö tjöldin séu ýmsir skuggabaldrar sem hafa hags- muna aö gæta og reyna þvi aö flýta þróuninni. — Þessu vil ég ekki afneita. En ég sé ekki að þetta stangist á við röksemdafærslu mina. Mér er fullljóst að Reagan komst til valda fyrir tilstuðlan afla sem ráða yfir stærstum hluta her- gagnaiðnaöarins og búa yfir miklu fjármagns- og fjölmiðla- valdi. Og auðvitað eiga þessi öfl, eða öllu heldur menn, mikilla hagsmuna að gæta i þvi að hernaðarútgjöldin aukist sem mest. Ég get lika gert mér i hugarlund aö svipaöir hlutir eigi sér stað i Sovétrikjunum þar sem mikil togstreita er á milli hinna ýmsu hluta stjórnkerfisins. I þeirri orrahrið hefur hergagna- iðnaðurinn greinilega undirtökin. En það kemur ekki i veg fyrir að þessi öfl — sem eiga sér rætur i ákveðnu samhengi þar sem reglur skynseminnar eru i fullu gildi — verði einhverri vitfirringu að bráð, vitfirringu sem meira að segja getur reynst eiginhagsmun- um þeirra skeinuhætt. Litum á fasismann. Auðvitað á hann sér rætur i kapitalismanum þar sem ákveðin lögmál skynseminnar- innar eru i heiðri höfð, þar sem hagsmunir ákveðinna stétta ráða þróuninni. En það er ekki hægt aö skilja séreinkenni fasismans i ljósi slikra hagsmuna. Ég er á þvi að stærstu mistök nútima marx- isma séu einmitt þessi tilhneiging að leita skynsamlegra skýringa á öllum fyrirbærum mannlifsins. Skynsamleg kenning verður að gera ráð fyrir vissri vitfirringu' Blaöamaöur ber upp á Thomp- son að hann sé á valdi tæknilegrar nauöhyggju þar sem vopnakerfin beini þjóöfélaginu inn á brautir þar sem mannlegur máttur má í þeirri umræðu sem orðið hefur um afvopnun og friðarhreyfingar hér á landi og í Vestur-Evrópu hefur einu naf ni skotið æ oftar upp: E. P. Thomp- son. Hver er þessi Thompson sem Svarthöfði sakar um fylleríisraus? 57 ára breskur sagnf ræðingur og só- síalisti, einn ötulasti talsmaður friðar- hreyfingarinnar, sítalandi á fundum hennar jafnt í London sem Brussel, Bonn sem Newcastle. Hann nýtur mikillar virðingar fyrir skrif sín og rannsóknir á sviði sagnfræði. Eins og áður segir er Thompson sósíalisti. Hann var félagi í breska kommúnistaflokknum fram til 1956. Þá fyllti hann hóp þeirra sem ekki gátu skrifað undir aðfarir Sovétmanna í Ungverjalandi. Síðan hefur hann verið virkur þátttakandi í umræðum vinstri- manna og verið ófeiminn við að segja félögum sínum til syndanna ef tilefni hafa gef ist. Nú er hann félagi í Verka- mannaf lokknum. Það er honum að vísu ekki til óblandinnar ánægju en eins og hann segir sjálf ur er það nú orðið „eins og að tilheyra mannkyninu" að vera þar í flokki. Friðarhreyfingin hefur löngum átt hug hans því á sjötta áratugnum þegar baráttan gegn Bombunni var mál mál- anna var hann þar að f inna. Það er þess vegna ekkert undrunarefni að hann skuli nú vera í fylkingarbrjósti þeirrar f jöldahreyfingar sem ekki á sinn líka síðan seinni heimsstyrjöldinni iauk. Kjarnorkuvigbúnaði mótmælt í Amsterdam ... og I Róm

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.