Þjóðviljinn - 16.12.1981, Side 5
JólablaO Þjóöviljans — SIÐA 5
Ræða flutt á fullveldisfagnaði stúdenta 1. des. 1981
eindasprengjunni sem djöfullegu
vopni, sem muni auka líkur á
kjarnorkustyrjöld. Það hefur
einnig hvatt þjóbir heims til þess
að vinna aö áætlunum um að
mynda kjarnorkuvopnalaus
svæði, sem smám saman muni
siðan teygja sig um heim allan.
Það hefur brýnt aðildarkirkj-
urnar til þess að hvetja til um-
ræðna meðal almennings um
málefni friðarins og efna til
friðarvaka, friðarsamkoma og
friðarvikna. Lútherska heims-
sambandið hefur tdcið i sama
streng.
Islenska þjóðkirkjan er aðili að
báðum þessum samtökum, enn er
eftir hennar hlutur, en minnumst
þess, að kirkjan erum við öll, sem
Að leika friðinn
Það fagnaðarerindi, sem
kirkjan flytur, kann þvi að boða
ymsum mikinn fögnuð en öðrum
litinn, það kann oft á tiðum aö
vera eins konar ögrun.Fagnaðar-
erindið merkir ekki aðlögun, ekki
þess háttar fögnuð, sem grund-
vallast á hugsunarlausri aðlögun
að rikjandi aðstæöum hverju
sinni. Það er árás á ill öfl i heim-
inum, hverju nafni sem þau
kunna að nefnast. Fagnaðarer-
indið erárás á þau niðurbrjótandi
öfl, sem vilja leiða sköpunar-
verkið til heljar. Sá fagnaðarboð-
skapur friðarins, sem friðarverð-
launahafinn séra Martin Luther
King flutti var árás á þá skerö-
ná sköpunarverkinu á sittvald og
leiða það til heljar.
Sá óvinur sem mannkynið berst
nú við, það afl, sem hefur tekið
valdið i sinar hendur og stýrir
• sköpunarverkinu til heljar birtist
okkur i vigbúnaðarkapphlaupi
risaveldanna. Bæði lita þau á
friðarumræðu kirkjunnar sem
ógnun og truflun við starfsemi
sina, bæði eru þau tilbúin að
stimpla kirkjunnar þjóna sem
nytsama sakleysingja í þágu and-
stæðingsins, það hefur borið við,
að prestar, jafnvel kirkjuleið-
togar og leiðtogar alþjóðlegra
kirkjusamtaka hafa verið kall-
aðir kommúnistar hér vestan-
tjalds en kapitalistar austan-
tjalds. Fagnaöarboðskapur
strið, sem merkir strið til varnar
gegn árásum. En til þessber ekki
aðeins að beita vopnum heldur
réttlátum vopnum og ennfremur
réttlátum aðferðum. NU spyrja
kristnir menn um hvort tveggja:
eru kjarnorkuvopn réttlát vopn,
eru þau aðeins til varnar, felur
notkun þeirra ekki i sér dauða
þúsunda ef ekki milljóna
óbreyttra saklausra borgara? Og
hvað um aðferðir, eru þær að-
ferðir i' anda kristinnar tnlar að
halda ibúum milljónaborga um
allt norðurhvel jarðar i gislingu
langdrægra, meðaldrægra og
skammdrægra eldflauga, sem
bera kjarnorkuvopn? Þessar
spurningar eru bornar fram i al-
vöru, getur kristinn maður gert
allt, sem honum er sagt að gera?
Atti — hann að hlýða þegar
honum varsagtað skrúfa frá gas-
inu i útrýmingarbúðum nasista.
þótt gasið væri kallað vopn?
Allt eru þetta spurningar um
gildismat, hvaða viðmiðun gildir
þegar þeim er svarað?
Og hvað svo um raunsæið?
Hinir fornu kirkjufeður voru svo
upplitsdjarfir, að þeir héldu þvi
fram, að hvar sem sannleikurinn
væri, þá tilheyrði hann okkur,
kristnum mönnum. Skv. þessu er
raunsæi, sem i sannleika er raun-
sæi, þ.e.a.s. leiðir til góðs þegar
upp verður staðiðekkii andstöðu.
við trúna. Þvert á mdti er trúin
skynsamleg þegar allt kemur til
alls, en hún hefur viðmiðun, sem
stundum kann að virðast dskyn-
samleg og draunsæ. Kristin tni
felst i þvi einu saman að taka
þessa viðmiðun gilda i einu og
öllu og sú viðmiðun er JesUs
Kristur sjálfur, sem var svo
óraunsær, aö láta krossfesta sig
fyrir augum hins volduga þögla
meirihluta.
Það er hugrekki krossins og
hins krossfesta, sem kallar
kirkjur heimsins til ábyrgðar i
dag. Sá, sem vegur að þvi hug-
rekki vegur um leið að einni
sterkustu rót vestrænnar menn
ingar, þeirri rót, sem birtist i
þessum að þvi er mörgum virðist
óskynsamlegu orðum Fjallræð-
unnar: „Þér hafið heyrt að sagt
var: elskið náunga yöar en hatið
óvini yðar en ég segi yður elskið
óvini yðar og biðjist fyrir þeim
sem ofsækja yður”. í þessum
orðum felst séreinkenni krist-
innar trUar og eina leið, sem
kirkjan þekkir til þess að hatri og
ótta verði bægt frá.
Svo framandi og ókunnug er
rödd þessi orðin i heimi gagn-
teknum af hatri og gereyðingar-
tólum,aðþað fyrsta sem mörgum
dettur i hug, þegar á þau er bent
er „kommúnistaáróður”, svo
gleymd eru þau rök orðin, sem
kristnir menn hafa fært fyrir li'fs-
skoðunsinnii'tvöþúsund ár. Orðin
úr Fjallrasðunni setja veruleika
óvináttu og haturs i dýpra sam-
hengi, fela i sér spurningu um
óvininn, hver er hann, er ég
dvinur i augum náungans, ðttast
hann mig, kannski meira en ég
hann?
Fagnaðarerindi
friðarins
Alþjóðleg kirkjusamtök hafa
fordæmt vigbúnaðinn, sömuleiðis
rómversk-kaþólska kirkjan. Þau
hafa fm-dæmt risaveldin fyrir að
snúa sér ekki af alefli að þvi að
ráðast sameiginlega að rótum
vandans, sem er efnahagslegt
misrétti i heiminum, skerðing á
mannréttindum og fleiru. Alþjdð-
leg kirkjusamtök hafa hvatt risa-
veldin til þess að verja sttírfé til
verkefna, sem tryggja varan-
legan frið i heiminum og eyða tor-
tryggni milli þjóða, til þess eru
ótal leiðir. Alkirkjuráðið, sem eru
stærstu kirkjusamtök heims og
sameina kirkjudeildir bæði
austan járntjalds og vestan, bæði
rikar þjóðir og fátækar, hefur for-
dæmt árdður risa veldanna, þar
sem þau draga miskunnarlaust
upp grýlumyndir af andstæðing-
um sínum og undirbúa þannig
jarðveg striðsins, sem er hatur og
ótti. Alkirkjuráðið hefur lýst nift-
henni tilheyrum. Hin alþjoðlegu
kirkjusamtök hafa einnig hvatt
kirkjurnar til þess að ganga til
samstarfs við hvern þann aðila,
sem hefur góðan vilja til þess að
tryggja friðinn og að rækta þann
jarðveg.sem hann getur þrifist i.
Og það er ekkert nýtt, aö kirkjan
gangi til samstarfs við aðila sem
vinna að sama marki og hún þótt
munursé á aö öðru leyti. Kirkjan
er ekki fædd i gær, hún hefur i
2000 ára sögu sinni ekki óttast
samstarf við fólk af ýmsum
stjdrnmálaskoðunum og ólikum
trúarskoðunum og þannig er það
enn i dag, stdr hluti heimskirkj-
unnar er nú i löndum austur-
blokkarinnar og sumir segja, að
þar sé hún ekki veikust, þján-
ingar og pislarvættir hafi aukið
hana þrótti. Ég minni á Pólland.
Kirkjan byggir ekki upp múra
milli manna nú á timum það er i
andstöðu við hlutverk hennar i
heiminum. „Hafið frið við alla
menn” sagði Páll postuli. Kirkjan
á samleið með einum i dag og
öðrum á morgun, hún lætur
stjórnmálamenn ekki segja sér
fyrirverkum, hvorki frá hægri né
vinstri, kirkjan hefur aðeins
skyldur við einn: Jesúm Krist.
Marteinn LUther sagði, að
kirkjan hefði ekki aðeins hlýðnis-
skyldur við réttlátt yfirvald
heldur einnig óhlýðnisskyldur við
óréttlátt yfirvald. Séu pólitisk
yfirvöld eða stjórnmálastefnur i
andstöðu við þá viðmiðun, sem
kristinn maður getur eina tekiö
gilda,þáberhonum aðsýna þeim
andóf.
ingu á mannréttindum sem svert-
ingjar urðu fyrir i landi hans, en
sú árás var án valdbeitingar. Sá
fagnaðarboðskapurfriðarins sem
brasiliski erkibiskupinn og
friðarverðlaunahafinn Helder
Camara flutti sinni þjóð var
einnig árás á ómannúðleg sam-
félagsöfl i landi hans, þar sem
fáir lifðu í ómældum munaði en
þorri ibúanna bjó við hungur-
mörkin. Sá fagnaðarboðskapur
friðarins sem erkibiskupinn i E1
Salvador, Oskar Romero flutti
þjóð sinni, var samstaða með
hinum þjáðu og gagnrýni á guð-
lausa rikisstjórn. Hann galt fyrir
þann friðarboðskap með li'fi sinu
er hann var skotinn fyrir altarinu
i dómkirkjunni i San Salvador
fyrr á þessu ári.
t þessu sambandi kemur mér i
hug saga Dostojewskijs um rann-
sóknardomarann mikla, þar sem
skáldið dregur upp mynd af of-
sóknarbrjálæði, sem hafði gripið
um sig i Evrópu á timum rann-
sóknarréttar kaþolsku kirkj-
unnar. Rannsóknardómarinn átti
að finna hvern þann sem boðaði
falska kenningu og útþurrka hann
af yfirborði jarðar, ef svo bar
undir. Dag einn er það enginn
annar en Kristur sjálfur, sem er
hinn seki og færður fram fyrir
rannsóknardómarann mikla. Þá
verður dómaranum að orði:
„Hvers vegna kemurðu til þess að
trufla okkur”. Skilningur
Dostojewskijs á fagnaðarboð-
skapnum kemur raunar fram i
þessum orðum, fagnaðarerindið
truflar þau niðurrifsöfl sem vilja
friðarins kallar fram þess háttar
viðbrögð þeirra afla, sem vilja
ekki láta truflast við þá iðju sina
að leiða sköpunarverkið tilheljar.
Sá friðarboðskapur, sem kirkj-
an flytur er ekki friður kirkju-
garðsins, ekki sá friður, sem mun
eiliflega hvila yfir þessari jörð fái
regnið svarta að leggja sina köldu
blessun yfir hana. Sá friður sem
elsta kveðj a kirkjunnar snýst um,
friðarkveðja hins upprisna
Krists, er lifandi friður, heitur og
skapandi friður, sem horfist i
augu við raunveruleikann en
gefst ekki upp. Margir sjá þess
þegar merki, að örvænting sé
farin að gripa um sig viða um
heim.
Sliku vonleysi afneitar kristin
trú.hún býður öllu vonleysi byrg-
inn og mætir þeim fáránleika,
sem leiðir til heljar með þvi fifl-
djarfa hugrekki sem á krossinn
að viðmiðun. Þess vegna gat
Marteinn LUther sem lifði á tim-
um mikilla heimsendaspádöma
sagt: ,,Jafnvel þótt ég vissi, að
heimurinn ætti að farast á
morgun og ég hefði ákveðið að
gróðursetja eplatré i dag, þá
myndi ég samt gera þaö”. Til
þess að bjóða þeim marghöfða
þurs vi'gbúnaðarins byrginn
nægir manninum ekkert minna
en slikt hugrekki og sllk fullvissa
um að hann beri að sigra og hann
muni að lokum falla.
A þessari fullveldisháti"ð hef ég
reynt að leiða hugann að spurn-
ingum um gildismat, lifskoðun,
um þau hamingjuskilyrði sem
börnum framtiðarinnar eru búin i
þessum heimi og hér á landi.
Kjarnorkuvigbúnaður er ekki
einkamál risaveldanna, sú tvi-
ræða leiö ógnarjafnvægis, sem nú
virðist vafasamari en nokkru
sinni fyrr er eina leiðin, sem risa-
veldin hafa látið sér detta i hug til
þess að tryggja frið i þessum
heimi. En allir sjá, að um leið eru
ragnarök mannkyns undirbúin.
tsland mun ekki standa utan
þeirra ragnaraka. Nú þegEæ er
landi okkar og fiskimiðum og þar
meö lifsgrundvelli þjdðarinnar
ógnaö af fjölda kafbáta risaveld-
anna,allirvita, hvaö það merkir,
ef þeim hlekkist alvarlega á i haf-
inu kringum landið. Kjarnorku-
vigbúnaður er þvi einnig okkar
mál, þvi fagna ég þvi, að þings-
ályktunartillaga um friöun At-
lantshafsins liggi fyrir Alþingi,
þvi að hver einasti kjarnorkukaf-
bátur á Atlantshafi er vissulega
ógnun við tilveru okkar allra, sem
byggjum þetta þetta land. Um
slik mál eiga smáþjdðir að taka
höndum saman og mynda kjam-
orkuvopnalaus svæði, sem smám
saman teygja sig um allan heim
og knýja á þann hátt risaveldin til
afvopnunar. Ef vopn kjarnorku-
kafbáta við tsland tala, segjum
vegna mistaka, þá tala þau
hvorki ensku né rússnesku, þá
tala þau sama tungumál, tungu-
mál dauðans.
Aldrei fyrr hafa almennir borg-
arar i' Vestur Evrópu staöið eins
einhuga um að láta friðinn sigra
og nú á þessu ári, þrátt fyrir
linnulausan áróður þeirra sem
eiga allt sitt undir auknum vig-
búnaði hafa menn fjölmennt i
milljónatali út á götur og torg
stórborga Evrópu til þess að leiða
hugann að friði. Hugtakið friður
er nú orðið hættulegt hugtak, það
er ekki i' fyrsta sinn.
Kirkjan mun ekki láta viögang-
ast að boðskapur hennar verði
tortryggður.
Látum umræðu um friðinn ekki
slita sundur friðinn milli okkar
sjálfra, iðkum málefnalega um-
ræðu, látum engan slá okkur út af
þvi lagi.
Stigum fyrstu skrefin til friðar,
sem er málefnaleg umræða,
sjálfsgagnrýni, slökunarstefna i
stóru sem smáu, reynum að eyða
tortryggni i stað þess að auka
hana. Striðsleiki kunnum við frá
þvivið vorum börn, striðsleikföng
umlykja börn þessarar þjóöar á
báðar hendur, breytast ekki sum
barnaherbergi á sjálfri hátið
friðarins, jólunum, i vigvöll, þar
sem finna má eftirlikingar af öll-
um helstu drápstólum? Er það
kannski að undirbúa friðinn? Er
nóg að læra aö undirbúa striðið?
Er ekki hin gamla viska hinna
fomu og vitm Rómverja um að sá
sem vilji undirbúa friðinn hann
undirbúi striðið löngu orðin úrelt?
Vopnin tryggja ekki lengur frið-
inn, sú viska er ekki lengur i fulllu
gildi;GeorgeOrwellsáþetta fyrir
þegar hann ritaði bókina „1984”
þar sem hermálaráðuneytið er
kallað friöarmálaráðuneyt®. Ott-
umst ekki friðinn, óttumst það
sem er óttalegt,óttumst það sem
getur tortimt þessari jörð, kjarn-
orkuvopn og allt sem þeim til-
heyrir, þeim til huggunar, sem
óttast,aðþá sé ekki lengurtilnóg
af vopnum skal það sagt, að nóg
er til af venjulegum vopnum til
þess að leggja heimsbyggðina
rækilega i rúst og Evrópu
mörgum sinnum.Sinnum þvisem
sinna ber, vinnum aö þvi að gera
heiminn byggilegan án skugga
gereyðingar.
RUssneski barnabdkar-
höfundurinn Marschak var einu
sinni að horfa á nokkur 6 og 7 ára
börn að leik. „1 hvaða leik eruð
þið” spurði skáldið. „Við erum i
striðsleik” svöruðu börnin. Þá
sagði skáldið: „Hvað eruð þið að
leika ykkur istriðsleik, af hverju
leikið þið ekki heldur friðinn?”
„Það er ekki svo vitlaus hug-
mynd” sögðu börnin þá. Svo
þögnuðu þau smástund,
hvfsluðust á, þögnuðu svo aftur.
Þá sté eitt barnanna fram og
sagði: „Heyrðu gamli maður,
hvemig á að leika friðinn?”
Leitum svars við þeirri spurn-
ingu, reynum að leika friðinn,
tökum þá áhættu, það væri lifs-
tefna, sem við getum öll tekið.