Þjóðviljinn - 12.01.1982, Side 15

Þjóðviljinn - 12.01.1982, Side 15
Þriöjudagur 12. janúar 1932 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Hringiö í síma 81333 kl. 9-5 alla virka daga, eða skrifið Þjóðviljanum fra lesendum Dallas, — fyrsta, annars eða þriðjaflokks rusl? Oánægður með sjónvarpið Karl Sveinsson skrifar: Af hverju er isienska sjón- varpið svona leiðinlegt? Þessi spurning brennur á margra vör- um i videotiðinni. Ég hef nú mina skoðun á þvi, mér finnst að það ætti að efla islenska sjón- varpið, þannig að það gæti gert fleiri og vandaðri islenska þætti. Ilvernig væri að það yrðu geröir fréttaskýringaþættir — þarsem málin yröu tekin aðeins gagn- rýnum tökum. Hvernig væri nú að sjónvarpið fengi fleiri til liðs við sig um gerð menningarlegs efnis — það kostar auðvitað meiri peninga, en auðvitaö vill fólk alveg eins borga meira fyrir áhugavert efni, eins og þeir vilja borga meira sem ánetjast videoinu. Auk þess langar mig til að benda á, að sjónvarpiö mætti vel gera meira af þvi að leita til Skandinaviu, Bretlands og Þýskalands svo eitthvað sé um efni bæði pólitik og skemmtiefni i stað þess að liggja alltaf undir þessu þriðja flokks rusli frá Bandarikjunum. Þaö er merkilegt, að það er alltaf verið aö segja manni frá skemmtilegum kvikmyndum og vönduðum og gagnrýnum póli- tiskum fræðsluþáttum i öllum þessum löndum, sem af ein- hverjum ástæðum sjást aldrei hjá þessari stofnun hérna. Ætli vandaðir og gagnrýnir sjón- varpsþættir frá Sviþjóð og Dan- mörku séu dýrari en pólitiskir „fræösluþættir” frá Bandarikj- unum? Karl Sveinsson s jónvarpsáhugamaöur. Brúðuleikhúsið heimsækir fötluð böm f tilefni af ári fatlaðra kynntu nem- endur i forskóladeild Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands sér fötlun þeirra sem eru heyrnarlausir, blindir, hreyf ihamlaðir og vangef nir. Kveikjan að þessu var heimsókn brúðuleikhúss sem nú ferðast á milli skólanna á vegum Alfa nefndarinnar. Börnin heimsóttu Heyrnleysingjaskól- ann, Blindraheimilið, Hjálpartækja- bankann. Einnig fengu þau að skoða verkefni sem nemendur i Fossvogs- skóla höfðu unnið um fötlun. Drengir úr Lyngási komu í heimsókn í skólann og tóku þátt í skólastarf inu einn dag. Börnin unnu úr þessum heimsóknum með því að semja saman ferðasögur um það sem þeim þótti markverðast. Einnig teiknuðu þau myndir og skrif- uðu hvert fyrir sig um það sem þeim Barnahornið varð eftirminnilegt. Bókasafnsverðir skólans sýndu þeim efni frá Alfa- nefndinni skyggnur og snældu með texta sem fjallaði um fötlun. í dag og næstu daga birtast myndir og annað efni eftir krakkana hér í Barnahorninu. Sagan um fötlun Sagan um fötlun Brúðan var í hjólastól. Hann var lamaður í fótunum. Hann var með hjálm á höfðinu. Hann talaði skringilega. Strákurinn hafði hjólastólinn fyrir kappakstursbíl. Hann hét Markús. Hinn strákurinn hét Rögnvaldur. Hann var með blindrastaf og blindrabókog blindraúr. Græni hópurinn. nóv.'81. Þetta er eitt brotabrotið af þvi krlli sem alheimurinn er og er úr þættinum I kvöld. Alheimurinn Það leggst ekkert litið fyrir kappana sem gera þáttinn sem sýndur verður i kvöld. Efniö er ekkert smálegra en alheimurinn gjörvallur. Ahorfendur fá væntanlega aö ferðast um þann ómælda geim. Þetta er þriðji þáttur i röð um stjörnufræði og geim- visindi. Leiðsögumaður er Carl Sagan. Eddi þvengur stendur I ströngu i nýjum sakamálaþætti. Nyr sakamálaflokkur um plötusnúð Eddi þvengur á skjáinn Sjónvarp kl. 21.40 t kvöld hefur göngu sina nýr framhaidsmyndaflokkur af breskum uppruna. I kynningu frá sjónvarpinu myndaflokkur um einkaspæj- arann og plötusnúöinn Edda Þveng. Hann var áður forrit- ari en ákveöur aö hefja störf á öðrum vettvangi. Hann fær starf við útvarpsstöð og er jafnframt einkaspæjari sem tekur að sér verkefni frá hlustendum. Og nú færist væntanlega fjör i leikinn. Ópbjöllumiar ■|É[É| Útvarp '%/p kl. 21.45 Thor Vilhjálmsson rithöf- undur les nú 21. lestur sögu sinnar Óp bjöllunnar i kvöld. Lesendur Sunnudagsblaðs Þjóöviljans hafa nú um skeið átt kost á að njóta snilldar skáldsins — og sjálfsagt fylgj- ast margir þeirra með lestri Thors á Ópinu... Fj árf estingin Jón Danielsson kennimaður, •Útvarp kl. 20.40 skáld og strætisvagnastjóri i Sviþjóð les i kvöld, þýðingu sina á „Fjárfestingin”, smá- sögu eftir ónnu Dahl. Jón hef- ur þýtt margar smásögur og lesiö sumar góðar i útvarpið.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.