Þjóðviljinn - 22.01.1982, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 22.01.1982, Qupperneq 1
Framkvœmdastjórn Framsóknar DWÐVIUINN Föstudagur 22. janúar 1982 —16. tbl. 47. árg. Ræddi Helguvík 1 gær var haldinn framkvæmdastjórnarfundur i Framsóknar- flokknum til þess aö ræöa ákvöröun utanrikisráöherra i svoköll- uöu Helguvikurmáli, sem Þjóöviljinn greindi frá i gær. Agrein- ingur er um máliö i Framsóknarflokknum og telja ýmsir fors- varsmenn hans aö máliö sé ekki útrætt innan hans, þar á meöal Sambandsmenn. óiafur Jóhannesson var ekki á fundinum vegna veikinda. —ekh Tveir belgískir sjómenn og tveir íslenskir björgunarmenn týndu lífi Harmleikur við bæjar- dyr Vestmannaeyinga Belgiski togarinn Pelagus strandaði við Nýjahraun i Vest- mannaeyjum i fyrrinótt. Togar- inn hafði slitnað aftan úr öðrum belgískum togara, sem var að draga hann til hafnar, eftir að vél Pelagusar hafði bilað. Björgun- arsveitarmenn i Vestmannaeyj- um unnu að þvi allan seinnipart fyrrinætur og fram á dag að bjarga skipverjum, en svo hörmulega fór að tveir belgiskir sjómenn og tveir tslendingar, sem unnu að björguninni drukkn- uðu. Þaö var klukkan 3.25 aö lög- reglunni i Vestmannaeyjum var tilkynnt að maöur heföi séö blys á lofti fyrir ofan Eldfell. Lögreglan fór strax á stúfana og ók austur fyrir eyna til aö kanna máliö. Sá lögreglan ljós i fjörunni i Nýja- hrauni. Munu þaö hafa verið ljós- in i siglunni á togaranum. Allt tiltækt björgunarliö var kvatt út og voru menn komnir á strandstaöinn um kl. hálf fimm. Tókst aö koma linu yfir i skipiö og bjarga fljótlega fjórum skipverj- um. Þegar birti af degi og komin varfjara fóru tveir íslendingar út I Pelagus og fundu þrjá skipverja fram undir hvalbaki. Komu þá þrir Islendingar til viðbótar fram i skipið til aöstoðar. Tókst að koma tveim skipverjum klakklaust i land, en þegar koma átti þeim þriðja i stólinn, reiö sjór yfir skipiö og tók út einn björg- unarmann og skipverja af tog- aranum. Annar björgunarmaður festist i neti og tókst ekki aö ná honum þrátt fyrir itrekaðar til- raunir. Drukknuðu þeir allir þrir. Þá drukknaöi annar belgiskur sjómaöur, sem fariö haföi i gúm- bát er hvolfdi i öldurótinu við skipshliö. Islendingarnar sem fórust hétu Belgíska togarann Pelagus rak stjómlaust uppí fjömna \dð Nýjahraun Kristján K. Vikingsson heilsu- gæslulæknir i Vestmannaeyjum, en hann lætur eftir sig konu og tvö börn, og Hannes Óskarsson starfsmaður Ahaldaleigunnar i Vestmannaeyjum og lætur hann eftir sig unnustu. Er blaöamaður Þjóöviljans kom á slysstaö i gær var skipiö mjög fariö að hallast á aðra hlið- ina. Sjór var nokkuö mikill og skall aldan óbrotin upp aö landinu og yfir skipiö sem liggur i fjör- unni fyrir neöan allháa hraun- hamra, sem mynduöust i Vest- mannaeyjagosinu. Vegna þessa er aöstaöa til björgunar erfið og hættuleg. Greinilegt var aö skipið er fariö aö liöast i sundur, göt voru komin á botn þess og oliu- brák lagöi frá þvl inn meö strönd Nýjahraunsins. Svkr. Sjóirnir gengu stanslaust yfir Pelagus þar sem hann lá á hliðinni um 30 metra undan klettafjörunni. Nánari frásagnir af strandinu eru á bls. 3 og 16

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.