Þjóðviljinn - 17.02.1982, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.02.1982, Blaðsíða 1
Lýsissendingin til Póllands UOÐVIUINN Miðvikudagur 17. febrúar 1982 —38. tbl. 47. árg. Dreift á heilsu- gæslustöðvum Vigdís komin til Lundúna Opinber heimsókn Vig- dísar Finnbogadottur for- seta íslands hefst í dag, en i gær kom forsetinn til Lundúna. í dag mun for- setinn m.a. ræða við Mar- gréti Thatcherog heiðra þá sem björguðu áhöfn Tungufoss i fyrra. Þá mun Ólafur Jóhannesson ræða við Carrington utanríkis- ráðherra og er gert ráð fyrirað Rockall málið beri þar á góma. Rætt var við forsetann í BBC í gær- kvöldi og bresku blöðin The Times og The Guardian hafa gefið út sérstök blöð um heimsóknina og l'sland. Konuglegi breski flugherinn stóö heiöursvörö er forseti tslands, Vigdis Finnbogadóttir kom til Lundúna- flugvallar kl. 11 i gærmorgun. Ljósm. —gel— »u Tyrklandstillaga tvær vikur að velkjast í utanríkismálanefnd: Framsókn og íhald óákveðin og hikandi Komið 1 veg fyrir að ísland taki þátt í undirbúningi kæru á hendur tyrknesku herforingjastjóminni Utanrikismálanefnd hefur nú haft tvær vikur til að hugleiða til- lögu um fordæmingu á her- foringjastjórninni i Tyrklandi. I tillögunni cr lýst y fir stuðningi við samþykkt Evrópuráðsins og ályktað að islenska rikisstjórnin eigi að hafa samvinnu við aðrar rikisstjórnir um að kæra hcr- foringjastjórnina fyrir brot á mannréttindum. Alþýðuflokk- urinn hefur lýst stuðningi við þe ssa tillögu Alþýðubanda- lagsins, og einstaka þingmenn Framsóknarflokksins hafa lýst sig fylgjandi henni f einka- viðræðum. Hinsvegar hafa full- trúar Framsóknarflokksins i utanrikismáianefnd ekki enn tekið afstöðu til hennar, og sama gildir um fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Ein klukkustund — tvær vikur „Þessi tregða fulltrúa tveggja stærstu flokkanna til að styðja samþykkt Evrópuráðsins um að fordæma stjórnarfarið i Tyrk- landi fer að vekja ýmsar spurn- ingarum heilindi þessara flokka i baráttunni fyrir mann- réttindum”, sagði Ólafur Ragnar Grimsson sem er flutningsmaður tillögunnar i samtali við blaðið. „Það er greinilega ekki sama hvar herforingjastjórnir eru. Þegar herforingjastjórn tók völdin i Póllandi sameinaðist u ta nr ikis m á 1 a ne f nd um fordæmingarályktunina á einni klukkustund, en þegar her- foringjastjórn i NATÓ-rikinu Tyrklandi á i hlut er greinilegt, að Framsóknarl'lokkur og Sjálf- stæðisflokkur þurfa meira en tvær vikur til þess að hugsa málið. Þó er grimmdin gagnvart verkalýðshreyfingunni og verka- lýðsforingjum ennþá meiri i Tyrklandi en i Póllandi, þar eð Tyrknesku herforingjarnir hyggjast dæma forystumenn verkalýðssamtaka til dauða.” Tregðan skilur okkur frá Norðurlöndum Þessi tregða Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur þegar valdið þvi að Island hefur ekki getað orðið samferöa öðrum rikjum Norðurlanda i undir- búningi að þvi að kæra tyrknesku herforingjastjórnina fyrir mann- réttindaneínd Evrópuráðsins. 1 byrjun febrúar komu fulltrúar rikisstjórna Noregs, Sviþjóðar og Danmerkur ásamt fulltrúum rikisstjórna Hollands og Frakk- lands saman i Kaupmannahöfn til að undirbúa kæruna og var Islendingum formlega boðið að eiga þar fulltrúa. Tregða Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins kom i veg fyrir að þaö boð yrði þegiö. Annar fundur þessara rikja veröur i dag, miö- vikudaginn 17. febrúar. „Ég lagði það til á fundi utan- rikismálanefndar”, sagði Ólafur Ragnar i gær „að íslendingar ættu að minnsta kosti áheyrnar- fulltrúa á undirbúningsfundinum i ljósi þess að Tyrklandstillagan væri enn tii meðferðar i utan- rikismálanefnd. Sömu flokkar virðast einnig andvigir þvi að lsland eigi slikan áheyrnarfull- trúa. Afstaða verður knúin fram Ég lýsti þvi yfir á mánudaginn að á næsta fundi nefndarinnar Framhald á 14. siðu Vika til atkvæðagreiðslu um EBE á Grænlandi: Færeyingar safna fé L Nú er aðeins vika þangað til Grænlendingar kjósa um úrsögn úr Efnahagsbandalaginu og hcfur mikil umræða farið fram um málið á Grænlandi, Dan- mörku og Færeyjum aö undan- förnu. Færeyingar hafa nú safnaö um 50 þúsund d.kr. til stuðnings Grænlendingum sem vilja segja sig úr Efnahags- bandalaginu, en stuðningsmenn EBE á Grænlandi hafa fengið riflegan fjárstuðning frá banda- laginu sjálfu. Við ræddum við islenska konu i Færeyjum, Auðbjörgu Þor- steinsdóttur, sem búiö hefur þar ytra i 4 ár og tekið virkan þátt I söfnuninni að undanförnu. „Þessi söfnun hófst fyrir u.þ.b. 1 mánuöi, og hefur hún gengið mjög vel. Með al- mennum fjársöfnunum hafa komiðinn um 25 þús. kr„ verka- lýðsfélögin hafa gefið 20 þús. og nú nýlega var haldinn mikill fundur til stuðnings andstæð- ingum EBE á Grænlandi i Kennarahöllinni. Þar voru seld merki, veggspjöld og fleira og þar söfnuöust um 5 þúsund d.kr. Þessir peningar ganga allir beint til Grænlands, en mikill kostnaður fer i ferðir innan Grænlands hjá þeim sem skipu- leggja kosningabaráttu and- stæðinga EBE. Nú s.l. þriðjudag sýndi sjónvarpið hér mynd um þetta mál og var hún mjög upp- lýsandi. Ég tel aö það seú miklar líkur á aö úrsögn úr EBE verði samþykkt i atkvæða- greiðslunni á Grænlandi þann 23. þ.m., en eigi úrsögnin að verða að veruleika þarf mikinn meirihluta með henni. V.ið hér i Færeyjum höfum reynt að styðja Grænlendinga eftir getu i þessu máli, bæði fjárhagslega og siðferðilega og við vonum að tslendingar geri það einnig”, sagði Auðbjörg að lokum. Þess má svo geta að girónúmer söfnunarinnar Þórshöfn i Færeyjum er 305 og er tekið á móti fjárframlögum hvaðanæfa að. Nánar segir frá þessu máli i opnu i dag. i • J Björn Tryggvason sendimaður Rauða kross tslands er kominn heim frá Póllandi, en þangað fór hann i síðustu viku til að fylgja eftir sendingu Rauða krossins á lýsi þangað. A blaðamannafundi i gær skýröi Björn frá ferð sinni. Sagði hann að Rauöi krossinn hefði sent 30 tonn þorskalýsis til Póllands eða um 8400 dósir og væri lýsið nú komiö i hendur Polverja. Sagði hann að lýsið yröi sett i glös og þvi dreift á heilsugælsustöðvum. t ferö sinni sagðist Björn hafa sannfærst um aö sendingarnar færu örugglega til þeirra sem þyrftu þeirra meö, enda væri Rauöi krossinn i Póllandi vel skipulagöur og fulltrúar Alþjóða Rauða krossins heföu sina menn i landinu. Björn greindi frá þvi sem hann hafði séö i Póllandi, greinilegt væri aö skortur væri á flestu og stæöi fólk i biörööum bæöi viö verslanir og útdeilingarstaöi hjálparstofnana. Vörur væru af- greiddar gegn framvisun skömmtunarseöla og þeir, sem nytu aöstoöar hjálparstofnana yröu einnig aö sýna sérstök kort til að tryggja að þeir sem hjálpar þyrftu fengju hana. Hann gat þess aö ástandiö i landinu væri mis- jafnt, best væri þaö i borgunum, en ekki væri eins mikið vitaö um þaö á landsbyggöinni, þó væri ástandiö verst á flóöasvæöunum. Andrúmsloftiö væri ekki mjög ólikt þvi sem áöur var i Varsjá, en i Gdansk væri meiri spenna. Alls staðar væru hermenn á kreiki og vigvélar brunuðu um stfæti. Ólafur Mixa læknir skýröi frá þvi að hafin væri söfnun lyfja og tækja á sjúkrahúsum i iandinu og væri meiningin að senda það til Póllands, en þar væri skortur á sliku. Gengi sú söfnun vonum framar. Jón Asgeirsson sagöi frá þvi aö nú væri fariö aö huga aö þeim mörgu Pólverjum, sem væru staddir utan heimalands sins, meöal annars væru um 50 þúsund i Austurriki og heföu þar- iendir áhyggjur af þvi. Rikis- stjórn tslands heföi fyrir nokkru ákveöiö aö taka viö 20—25 Pól- verjum og væri Rauði krossinn farinn aö undirbúa komu þeirra, ef til hennar kæmi. Svkr Stjómarkosning í S tarf smannaf élagi Reyk j avíkurborgar: Haraldur Hannesson kjörinn fórmaður I Eyþór Fannþerg feítdur Sljórnarkosningu I Starfs- mannafélagi Reykjavikur- borgar lauk i gær og' voru at- kvæði talin i gærkvöldi., Þau tiðindi gerðust aö Eyþór Fann- berj; sem gegnt hefur for- mennsku undanfarin ár var felldur i formannskjöri en i hans stað kosinn Haraldur Hannes- son vélstjóri hjá Hitaveitu Iteykjavikur. Hlaut Haraldur 505 atKVæði en Eyþór 478 at- kvæði. A kjörskrá voru 2570 en alls kusu 1005 eöa 39.1%. Þjóöviljinn náöi sambandi viö einn af stuðn- ingsmönnum Haralds seint i gærkvöldi, Þóri Isfeld, og sagöi hann þessi úrslit mikinn sigur fyrir stuöningsmenn Haralds og væru þau tilkomin vegna óánægju með lágdeyðu i starfi félagsins aö undanförnu. Sagði hann að Haraldur mundi fyrst og fremst bera hagsmuni laun- þega fyrir brjósti. —GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.