Þjóðviljinn - 17.02.1982, Síða 11
Miövikudagur 17. febrúar 1982 ÞJÖÐVILJINN — StÐA 11
íþróttirg íþróttirg) íþróttir
ngólfur Hannesson simar frá Osló:
1200 blaða-
menn bíða HM
— íslendingunum gengur vel
Á morgun, fimmtudag, hefst
hér heimsmeistaramótið i
norrænum greinum skiöaiþrótta,
skiöagöngu, skiöastökki og
norrænni tvikeppni. Fjórir
tslendingar veröa meðal þátt-
takenda i göngu, þeir Magnús
Eiriksson, Siglufiröi, Einar
Ólafsson, tsafiröi og Haukur Sig-
urðsson og Jón Konráðsson,
Ólafsfiröi. Allir nema Haukur
hafa dvaliö hér viö æfingar og
keppni undanfarnar vikur i vetr-
ariþróttamiöstööinni i Geilo.
Þeim hefur gengiö mjög vel i
þeim mótum sem þeir hafa tekiö
þátt I og Jón vann hér héraösmót
á dögunum. Þeir hafa yfirleitt
veriö mjög áþekkir i þessum mót-
um, en á þvi siöasta var Magnús
nokkuö á undan hinum.
Sextán ára piltur frá Ólafsfiröi,
Axel Pétur Ásgeirsson, hefur
einnig dvalið hér að undanförnu
og staðið sig vel, meðal annars
unnið tvo bikara. 1 dag fer fram
timataka á þátttakendum i HM en
mótið sjálft verður sett á morgun.
tslendingarnir keppa i 30 km
skiöagöngu á laugardag og i 15
km skiöagöngu á þriðjudag. Aö
auki taka þeir þátt i boögöngu.
Biörn Þór Ólafsson, þjálfari
göngukappanna, er mjög ánægð-
ur með allan aöbúnaö hér i Osló
og list vel á aðstæður. Gifurlegur
áhugi er fyrir keppnina og eru um
1200 blaðamenn mættir á staðinn,
en þátttakendur koma frá yfir 50
þjóðum.
Þjóöviljinn mun fylgjast vel
meö gangi mála i Osló og birta
fréttir og væntanlega myndir
þaðan fyrir og eftir helgi.
— IngH / —VS.
Badminton:
KRISTJAN ARASON vippar skemmtilega yfir
Hellgren markvörö Svia úr vitakasti i leiknum I
gærkvöldi. Ljósm.: Ari.
Velheppnað UL-
mót á Selfossi
Unglingameistaramót tslands i
badminton 1982 var haldið á Sel-
fossi um siðustu helgi. Mikil þátt-
taka var á mótinu, 204 keppendur
frá 11 félögum og voru leikir alls
340. Keppt var i hnokka/tátu-,
sveina/meyja-, drengja/telpna-
og pilta/stúlknaflokkum, i ein-
liöa-, tviliöa- og tvenndarleikjum.
Snorri Ingvarsson TBR i drengja-
flokki og Þorsteinn Páll Hængs-
son TBR i piltaflokki urðu sigur-
sælastir allra, Islandsmeistarar i
einliöa-, tviliða- og tvenndarleik.
Árni Þór Hallgrimsson, tA, i
sveinaflokki, Ásta Sigurðardóttir,
IA, i meyjaflokki, Elisabet Þórö-
ardóttir, TBR, i stúlknaflokki og
Njáll Eysteinsson, TBR, i
hnokkaflokki, urðu hvert um sig
tvöfaldir Islandsmeistarar.
TBR átti flesta Islandsmeistara
á mótinu, 19 talsins. 1A átti tólf og
KR einn. Keppnin hófst á föstu-
dagskvöld og lauk undankeppni
ekki fyrr en seint á laugardags-
kvöld vegna hinnar miklu þátt-
töku. Úrslitaleikirnir fóru siðan
fram á sunnudeginum.
—VS
Heílsurækt í
Hainarftrði
Þrir iþróttakennarar undirbúa
nú opnun nýrrar heilsuræktar-
miðstöðvar að Dalshrauni 4 I
Hafnarfirði. Þeir eru Geir Hall-
steinsson, Páll ólafsson og Niels
Árni Lund, æskulýðsfulltrúi rikis-
ins. Húsakynnin verða um 6—700
fermetrar aö flatarmáli með
stórum leikfimisal fyrir hress-
ingarleikfimi, herbergi f. þrek-
þjálfun, aðstöðu fyrir blak, körfu-
knattleik og innanhússknatt-
spyrnu. Þá verða á staðnum
gufuböð, heitir pottar, sjúkra-
nudd og ljósbað, tvöfalt af öllu
þannig að bæði kynin geti stundað
staðinn á sama tima. Einnig er
gert ráð fyrir setustofu, hvildar-
herbergjum, veitingaþjónustu og
iþróttavöruverslun. Þá er i bigerö
að setja upp heita potta utanhúss
og koma upp leiktækjum eins og
borðtennis og billjardborðum.
Getraunir:
Tveir með 12 rétta
HÖRMUNG!
— átta marka tap á heimavelli gegn
Svíum er einum of mikið af því góða
Hvert stefnir Islenskur hand-
knattleikur? Þessi spurning er
áleitin og nagandi eftir hrakfarir
gegn Svium i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi, 25—17 uröu lokatölur
leiksins. Leikur íslenska liösins
var svo hörmulegur aö ekki var
hægt annaö en aö brosa aö
sumum tilburöunum. Meö þessu
áframhaldi föllum viö niöur i
C-riöil I heimsmeistarakeppninni
og lendum i sama flokki og
Bretar, Færeyingar, Finnar og
Luxetnburg. Þaö þarf aö gera
stórátak, efniviðurinn er fyrir
hendi og vel það en það er bara
ekki nóg.
Eftir 5 sek. leik i gærkvöldi rétti
Ólafur Jónsson fyrirliöi Svium
knöttinn sem þökkuðu fyrir sip og
skoruðu. Þeir komust i 3—0, Þor-
bergur og Kristján minnkuðu
muninn i 3—2 en eftir þaö var
forysta Svia örugg. Þeir komust i
11—7 en Gunnar og Páll löguðu
stöðuna i 11—9 fyrir leikhlé og
gáfu mönnum auknar vonir um
að úr rættist.
Þvi var svo sannarlega ekki að
heilsa. Eftir 9 min. af siöari hálf-
leik var staðan orðin 17—11 og enn
ein flengingin i uppsiglingu. Þá
kom skásti kafli islenska liðsins,
staðan löguö i 18—14 en eftir það
stóð ekki steinn yfir steini.
Siðustu fjórar minúturnar
skoruðu Sviar fimm mörk gegn
einu og þurftu ekki aö hafa mikið
fyrir þvi. Atta marka tap á
heimavelli gegn þjóö sem við
höfum yfirleitt verið nálægt þvi
að sigra fær bjartsýnustu menn
til að hrista höfuðið.
Leikur islenska liðsins, ef leik
skyldi kalla var glórulítill mest
allan timann og glórulaus i lokin.
Páll Ólafsson og Kristján Arason
komust best frá sinum hlut-
verkum, svo og Gunnar Gislason i
vörninni en i sókninni geröi hann
slæmar villur eins og flestir aðrir.
1 sókninni brá ekki fyrir svo
miklu sem visi að leikfléttu og
ráðleysið var allsráðandi. Vörnin
var hriplek og markvarslan slök
lengst af og Sviarnir, sem vart
teljast til stórsnillinga á hand-
knattleikssviðinu, gengu þar inn
og út eins og ekkert væri.
Kristján Arason var marka-
hæstur Islendinganna með 6
mörk. Páll Ólafsson skoraði 4,
Þorbergur Aðalsteinsson, sem
vill áreiðanlega gleyma þessum
leik hiö fyrsta, skoraði 3, Sigurður
Sveinsson 2, Gunnar Gislason og
Óttar Mathiesen eitthvor.
Ribendahl skoraði 6 mörk fyrir
Svia, Andersson 4, Bengtsson 3,
Friedvall 3, Hansson 3, Abra-
hamsson 2, Rasmussen 2,
Augustsson 1 og Magnusson 1.
Vestur-þýsku dómararnir
dæmdu ágætlega en voru kannski
með strangasta móti.
VS
Brazil
skoraði
fimm
Alan Krazil skoraöi 5 mörk
fyrir Ipswich i gærkvöldi er liö
hans burstaöi efsta liö 1. deild-
ar ensku knattspyrnunnar,
Southampton, 5—2 i Ipswich.
Ilavid Puckett og Kevin Keeg-
:an svöruöu fyrir Southamp-
ton. Sjö ár eru siöan einn og
sami lcikmaður skoraöi siöast
5 inörk i 1. deildarleik. Þaö
geröi Roger Davies fyrir
Derby gegn Luton um pásk-
ana 1975. önnur úrslit i 1.
deild: Arsenal—Middlesbro
I—0, Birmingham—Sunder-
land 2—0, Coventry—Notts
County 1—5, Swansea—Liver-
pool 2—0, Wolves—Nottm.
For. 0—0. Leighton James og
Alan Curtis skoruöu mörk
Swansea. Crystal Palace
tryggöi sér sæti i 8—liöa úr-
slitum bikarkeppninni meö
0—1 sigri á útivelli gegn Ori-
ent. VS
(Engin Arabfuferð?
I 23. leikviku Getrauna komu
fram 2 raðir með 12 réttum og
nemur vinningur fyrir hvora röö
65.415.00 en með 11 rétta voru 119
raöir og vinningur fyrir hverja
röð kr. 471.00. Annar „tólarinn”
var á einfaldan seöil úr Reykja-
vik, en hinn á kerfisseðil frá
Keflavik, og veröur vinningur
fyrir þann seöil alls kr. 67.299.00.
Leikir úr bikarkeppninni ensku
eru alltaf erfiðir fyrir þátttak-
endur i Getraunum og þeim
mörgum hvimleiöir, nægir þar að
minnast á leikinn Shrewsbury —
Ipswich, 2—1, en þeir voru heppn-
ir að sleppa við.leikinn Chelsea —
Liverpool, en hann var ekki á
seölinum, þar sem ekki er hægt
aö biöa eftir að jafnteflisleikir séu
útkljáðir, vegna hins skamma
tima á milli umferöa. Næsta
umferð bikarkeppninnar verður
laugardaginn 6. mars, en þá fer
fram 6. umferðin, sem veröur á
getraunaseðli nr. 26.
„Enska feröaskrifstofan vill
ekki viðurkenna ósigur sinn i
þessu máli og hefur krafist út-
skýringa frá Kuwait og Qatar og
hyggst jafnvel fara i skaöabóta-
mál”, sagði Ellert B. Schram for-
maður KSl i samtali við Þjóð-
viljann i gær. Skeyti barst i fyrra-
dag frá þessum þjóðum þar sem
sagt var aö þær gætu ekki tekiö á
móti islenska landsliðinu i knatt-
spyrnu eins og fyrirhugað var.
Ellert taldi liklegt að umræddar
þjóðir heföu fengið tilboð frá
sterkari þjóöum á knattspyrnu-
sviðinu og þvi hætt við aö leika
gegn Islandi.
Þá kom fram að falli leikirnir
við Kuwait og Qatar niöur verður
ekkert af ferðinni þar sem tilboö
Egypta, sem höfðu lýst yfir áhuga
á ab fá islenska landsliðið i heim-
sókn, stendur ekki lengur.
—VS