Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 1
Fleiri fluttust heim en til útlanda 1981’ UOWIUINN Föstudagur 19. febrúar 1982 — 40. tbl. 47. árg. I fyrsta slnn frá því 1974 Hárgreiðslumeistarar níðast á nemum: Greiða ekki lágmarks- laun og hóta uppsögnum Hárgreiðslumeistarar hafa ekki samþykkt samning þann er gerður var milli ASt og Vinnu- veitendasambandsins i haust. Iiafa þeir neitað að greiða hárgreiðslunemum lágmarks- tekjur þær, sem ákvæöi voru um i samningnum og er hárgreiðslu- nemar eini hópur iðnnema sem býr við slik kjör. Vinnuveitendasambandið sam- þykkti áðurgreindan samning i nóvember sl. með fyrirvara um samþykki félaga i sambandinu. Var hann samþykktur i öllum meistarafélögunum, nema hjá hárgreiðslumeisturum, en þeir sóttu þó um hækkun á þjónustu sinni til verðlagsráðs stuttu eftir samningagerðina i nóvember. Um miðjan janúar boðaði Vinnu- veitendasambandið til fundar með fulltrúum Iðnnemasam- bandsins um kjör hárgreiðslu- nema og lýstu fulltrúar hárgreiðslumeistara þar yfir að þeir myndu ekki greiða lág- markstekjurnar, en buðu greiðslu 3,25 prósentanna ásamt visitölu- bótum. Þessu mótmæltu fulltrúar iðnnema. Viku siðar var haldinn annar fundur með fulltrúum iðn- nema og þeim tilkynnt þar að hárgreiðslumeistarar hefðu fellt samning ASÍ og VSÍ. Á þessum fundi kom fram að hárgreiðslumeistarar myndu beita sér fyrir þvi að enginn hár- greiðslunemi, sem væri að koma til starfsþjálfunar úr iðnskóla fengju námsstað og myndu þannig koma i veg fyrir að þeir gætu lokið námi sinu. Jafnframt yrði þeim nemum i hárgreiðslu, sem nú væru i starfsþjálfun sagt upp ef lágmarkstekjur tækju gildi. Mikil aðsókn er i þessa iðn- grein og er þvi staða nemanna veik. Hefur i siauknum mæli borið á þvi að meistarar notfæri sér þetta ástand og hafa þeir greitt nemum lág laun, allt niður i 12 krónur á klukkustund. Enn- fremur hafa þeir þverbrotið samninga, lög og reglugerðir um iðnfræðslu. Að sögn forsvars- manna iðnnema er erfitt fyrir hárgreiðslunema að ná rétti sinum vegna þessa ástands. Þessir tveir heiðursmenn hafa sett mikinn svip á 10. Alþjóðlega Reykjavikurmótið, bæði sem skákmenn og persónuleikar. Báðir eru þeir með hæstu mönnum, upp undir tveir metrar á hæð og eins og sjá má, æði svipmiklir. Til vinstri er Abramovic, sem náði efsta sætinu i gærkveldi, með þvi að sigra Gurevic, en hinn er Sahovic og hann sigraði Helga Óiafsson. Crslit f 8. umferð sem tefld var i gærkvöldi er að finna á bls. 7. Mynd —eik— Samkomulag í deilunni á Kleppi og Kópavogshæli: Starfsfólkið snýr til vinnu Eftir fjögurra tima storma- saman fund i gær samþykkti starfsfólk á Kleppsspitala og Kópavogshæli að snúa aftur til vinnu á miðnætti i nótt, með ráð- hcrrabréf uppá vasann um það, að i komandi kjarasamningum muni fjármálaráðuneytið beita sér fyrir jöfnun kjara ófaglærðs starfsfólks á heilbrigðisstofnun- um rikisins. Þegar blm. Þjóðviljans kom á fundinn hafði hann þegar staðið i tvær klukkustundir. Asmundur Stefánsson, forseti ASl, og Einar Ólafsson, formaður Starfs- mannaíélags rikisstofnana, höfðu skýrt sjónarmið sin i deilunni og umræður voru i gangi. Var mikiil hiti i þeim og hópurinn ekki á eitt sáttur, hvöttu sumir til þess, að gengið yrði til samkomulags en aðrit voru þvi mótfallnir og vildu fá fram meira en kemur fram i bréfi fjármálaráðuneytisins og halda aðgerðum áfram. Að lokum var gengið til at- kvæðagreiðslu og féll hún þannig: auðir seðlar voru 4,jásögöu 61 og nei 35.Afstöðu til málsins tóku þvi 100 af þeim 214 sem upphaflega lögðu niður vinnu á Kleppsspitala og Kópavogshæli. Þjóðviljinn birtir bréfið frá fjármálaráðuneytinu á baksiðu. Sjá ennfremur viðtal við Asmund Stefánsson, forseta ASÍ. ast ✓ Anægður með samkomulagið Asmundur á fundinum i gær segir Asmundur Stefánsson, en kveðst vona að viðræður hef jist nú þegar „Við Einar ólafsson hvöttum fólkið til að hefja störf aö nýju. Ég er ánægður með þann sterka meirihluta, sem fékkst fyrir þvi á fundinum, og 'ég er þess einnig fullviss, að fólkið hcfur fullan vilja til að vinna að sinum málum innan stéttarfélaganna,” sagði Asmundur Stefánsson við Þjóð- viljann i gær um þá lausn, sem fengist hefur i deilu starfsfólks á Kópavogshæli og Kleppsspitala. Asmundur sagði ennfremur, að það væri augljóst, að vandræði sköpuðust innan stofnana þar sem starfsfólk væri i tveimur stéttarfélögum, en ynni sömu störf. Hann sagði, að Alþýðusam- bandið og Sókn heföu unnið i þessu máli lengi og myndu vinna áfram að lausn þess. ASl og Sókn tóku upp viöræður við fjármálaráöuneytið fyrir jólin til að fá fram launajöfnun milli starfsfólks heilbrigðisstofnan- anna. A Þorláksmessu gerði fjár- málaráðherra samkomulag viö sókn um desemberuppbót, en hana höfðu opinberir starfsmenn fengið nokkuð lengi. Jafnframt gaf ráðherra yfirlýsingu um áframhaldandi viðræður um jöfn- un kjara milli starfsfólks heil- brigðisstofnana. Asmundur kvaðst vona, að viö- ræðurnar drægjust ekki fram að næstu samningum. Þær heföu veriö komnar i gang, og Alþýðu- sambandið og Sókn hefðu treyst á að samkomulag næðist fyrir vor- ið. 1 bréfi ráðuneytisins til stétt- arfélaganna er einungis fyrirheit um lausn málsins i komandi kjarasamningum. ast i janúar-hefti Hagtiðinda er skýrt frá þvi að árið 1981 fluttu 1603 islendingar af landi brott en 1688 lslendingar fluttu heim er- lendis frá. Og er þetta i fyrsta sinn siöan 1974 að fleiri landar koma heim en flytja utan. Oft hefur verið talað um landflótta hin síðari ár, en nú er greinilegt að sú þróun hefur snúist við. I Hagtlöindum er talfa sem sýnir aðflutta og brottflutta islenska rikisborgara frá 1972 til 1981 og litur hún svona út: Ar Aðfluttir Brottfluttir 1972 1037 881 1973 734 1082 1974 982 902 1975 806 1135 1976 706 1701 1977 867 2034 1978 1141 1794 1979 1354 1902 1980 1414 2056 1981 1688 1603 1 rannsóknum sem Stefán ólafsson lektor hefur gert á eðli og umfangi brottfluninga af land- inu kom fram að samhengi væri á milli brottflutnings fólks af landinu og minkandi kaupmáttar. Þegar kaupmáttur er hvað mestur minnki brottflutningur fólks en hár kaupmáttur skiii fólki aftur á móti ekki sjáifkrafa til landsins aitur. Fleiri þættir kunni að koma þar við sögu og t.d. veröbólgustig, félagsleg þjónusta og festa i þjóðmálum o.sfrv. S. dór. j Síðasti j i dagur i ■ . Ií dag er síðasti dagur I opinberrar heimsókn- | , ar forseta íslands, ■ IVigdísar Finnboga- I dóttur til Bretlands. I | dag fer forsetinn til . Ifæðingarbæjar Shake- I speares, Stratford up- I on Avon og skoðar kon- J * unglega Shakespeare i I leikhúsið þar. Forset- I inn kemur heim með • . Flugleiðavél kl. 3 á j I sunnudag. Sjá baksiöu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.