Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 19. febrúar 1982 Viötal viö Elías Daviðsson kerfisfrœöing Mikil miðstýring og ógnvænlegt vald — Ég var starfsmaöur hjá einu stærsta fjölþjóö- lega fyrirtæki í heimi f 14 ár og er því gagnkunnugur hrikalegri miðstýringu og ótrúlegu valdi slíkra fyrir- tækja, sagði Elías Davíðs- son kerfisfræðingur í við- tali við Þjv. — Það var því byggt á töluverðri reynslu og þekkingu á þessum fyr- irtækjum innan frá, að ég tók til við rannsóknir á um- svifum Alusuisse. Alusuisse er fjölþjóölegt fyrir- tæki meö starfsemi vftt og breitt um heiminn. Auöhringurinn sam- an stendur af miklum fjölda dótt- urfyrirtækja sem sinna ýmsum verkefnum; efnaiönaöi, fram- leiöslu rafmagnsvéla og fleiru. Aöal starfsemin er þó i kringum áliönaöinn. Þá á fyrirtækiö loft- fyrirtæki, þ.e. fyrirtæki sem eru eingöngu til sem bókhaldsfyrir- tæki, i sambandi viö undanbrögö viö skattayfirvöld i hinum ýmsu löndum. Hér veröa nefnd til sögunnar tvö slik fyrirtæki, sem eru i eigu auöhringsins. Þau heita Alusuisse i Panama og Alusuisse Internat- ional N.V. i Curacao. Þessi fyrir- tæki bæöi hafa veriö skráöir aöal- eigendur hlutabréfa i Alverinu i Astraliu (Sviss Aluminium Austr- alia). Þaðfyrrnefnda varskráöur eigandi meirihluta hlutabréfa til 1977 en hiö siöarnefnda siöan þá. Pósthóli og bankareikningur Alusuisse starfar þannig aö það dreifir verkefnum sinum á hin ýmsu lönd, framleiðsla á áli á einum staö, söluskrifstofur á öör- um, fjármálastarfsemi á hinum þriðja, báxit-námur á fjóröa og höfuöstöövar á hinum fimmta staö. En pappirsfyrirtækin eru afar mikilvæg felufyrirtæki. — Alusuisse International i Curacao er þess háttar fyrirtæki og er ekki til nema sem pósthólf. Þar starfar enginn maöur, þaö gegnir engu ööru hlutverki en sem papplrsgagn. Þetta fyrirtæki er lika til að nafninu tii hjá svissneskum banka meö einn ákveðinn reikning. Isal greiðir þessu fyrirtæki háar upphæðir i vexti á hverju ári, þaö eru vextir af lánum. Alusuisse auöhringur- inn þarf þá ekki annað en láta fara fram millifærslu á reikning- um i þessum svissneska banka — til aö borga vextina fyrir tsal. öll vera þessa fyrirtækis, Alusuisse International, er semsé fólgin i þessum millifærslum. Svona loft- fyrirtæki borga skráningargjöld i viökomandi löndum, en aö ööru leyti eru þau sjónhverfing einsog ég hef lýst. — Annaö fyrirtæki af þessum toga er Alusuisse Panama S.A. Það fyrirtæki er nú skráö fyrir um 60% hlutabréfa i Alusuisse Australia, þaöan sem súrálið kemur til Islands. En fram til ársins 1977 voru þessi meirihluta- bréf í eigu hins loftfyrirtækisins. Þannig leikur auöhringurinn sér i þessu bókhaldsspili. Almenningsálitið — Auöhringurinn vinnur nær eingöngu viö framleiöslu iönaöar- vöru. Þessi viðskipti stundar auö- hringurinn viö önnur stórfyrir- tæki og stjórnvöld hinna ýmsu landa. Þetta þýöir, aö Alusuisse er ekki eins háö almenningsáliti og til dæmis framleiöendur neysluvöru. Þetta leiðir af sér að auðhring- urinn hefur mótaö ákveöna stefnu til „gestgjafarlkja” sinna. Sú stefna kemur einkar vel fram I eftirfarandi oröum aöalforstjóra Alusuisse: Hugmyndir aðalforstjóra ALU- SUISSE: „ALUSUISSE er félag, sem fæst við grundvallariðnað um all- an heim, og getur þvi ekki horft fram hjá vandamálum þverrandi hráefna og orkulinda. Við veröum aö gripa tækifærin, koma á vin- samlegum samböndum og styrkja jákvætt viðmót. Oöru hverju veröum viö einnig aö veita takmarkaöan fjárhagsstuðning. Aöeins meö þeim hætti tekst okk- ur siðar meir aö ná yfirráöum og afgerandi stjórn á hinum fjöl- þjóölegu samstarfsfyrirtækjum, sem viö eigum aðild aö.” (Emmanuel R. Meyer, Hlut- hafafundur Alusuisse 1978) Glansmyndir og leyndarhjúpur — Segja má að tvenns konar upplýsingar komi frá Alusuisse, glansmyndir og þögn. Auöhring- urinn keppist við aö gefa mynd af sér I gegnum stærstu fjölmiöla sem þjóöþrifafyrirtæki. Þessi mynd er ósköp afskræmd, aö minnsta kosti miðað viö raun- veruleikann. Þessar glansmyndir sem fyrirtækiö gefur af sjálfu sér eru ekki I neinu innra samræmi, þvert á móti. Þaö er talaö og sagt frá,allt eftir þvi sem hverjum hóp kann aö hugnast best. Tilhöföunin er sjaldnast sú sama til hinna ýmsu aðilja. Um þetta eru eftir- farandi dæmi: Hvað er sagt við íslend- inga? „Fyrirtækiö er Islenskt, þótt það styöjist við erlent fjármagn.” (Forstjóri Isal, Mbl. 23.11’77) „Isal er alfarið stjórnað af Is- lendingum.” (Forstjóri Isal, útvarpsviðtal 27.12.’79) „Eigendur fyrirtækisins, hinn erlendi aöili Alusuisse, hefur hins vegar ekki fariö vel út úr þessum rekstri.” „....Reksturinn hefur barist I bökkum stundum verið verulegt tap eöa i besta falli hefur rekstur- inn staöiö i járnum.” (Forstjóri Isal, Mbl. 17.11.’79) Hvað er sagt í Sviss? „Framleiðslugeta álvers okkar á Islandi var nýtt aö 97%.” (Forstjóri Alusuisse á aöal- fundi hluthafa 1978) „Ariö 1976 .... neyddumst viö til aö selja undir kostnaöarveröi i alllangan tima, og einkum I Bret- landi.... Kostnaöurinn var borinn af dótturfyrirtækjum okkar á Is- landi og i Noregi, en endanlega af Alusuisse.” (Aðalfundur hluthafa Alusuisse 1977, ræöa forstjórans) „Nýting verksmiöja okkar i Noregi og á tslandi var 90% og 97% áriö 1977. Rekstur beggja verksmiöja var arövænlegur.” (Aöalfundur hluthafa Alusuisse 1978, ræða forstjórans) „Rekstur beggjá álvera á Noröurlöndum, á Islandi og i Nor- egi, var meö eölilegum hætti.” (Aöalfundur hluthafa Alusuisse 1979, ræöa forstjórans) Svona er aö hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri. Hins vegar er einkennandi fyrir slik fyrirtæki hversu þykkur leyndarhjúpur er sveipaður um upplýsingar varö- andi rekstur fyrirtækisins. Slikar upplýsingar liggja yfirleitt ekki á lausu. Þaö er ekki nóg meö aö slikum upplýsingum sé haldiö leyndum fyrir venjulegum þegn- um, heldur fá þingmenn ekki slik- ar upplýsingar, ekki stjórnvöld, ekki einu sinni dómstólar. Þessi leynd og pukur vex I hlutfalli við stærö og umfang fyrirtækisins. Þaö er lika þess vegna aö engar tölur t.d. um launakostnað Isal og þess háttar eru birtar opinber- lega. Heragi og miðstýring Þetta leiðir hugann aö öörum þætti þessa máls. Fyrirtækin eru ólýöræöisleg i uppbyggingu sinni. Þarna rikir heragi sérstaklega hjá fólki I trúnaöarstöðum; slik fyrirtæki eru miöstýrö einsog sovésku rfkisfyrirtækin. Þaö má alveg likja fjölþjóölegu fyrirtækj- unum hér vestra viö kerfiö austan járntjalds, amk. hvaö varöar áhrif sem þessi fyrirtæki hafa á sitt félagslega umhverfi og stjórnmál. Þaö er ekki aö furöa að flest fyrirtæki sem komiö hafa á viðskiptatengslum viö löndin austan járntjalds, eru einmitt fjölþjóðlegu fyrirtækin og eiga þau jafnvel dótturfyrirtæki þar. — Almenn regla er sú aö þess- um fyrirtækjum finnst auöveld- ara aö stunda viöskipti sin þar sem rikir einræöi og gerræöi, heldur en þar sem lýöræöi er I heiöri haft. I einræbisrikjum er litil hætta á aö breytt valdahlut- föll á þjóðþingum kynnu aö breyta starfsskilyröum auöhring- anna. — Hins vegar reyna þeir hjá auðhringnum aö sjálfsögöu aö notfæra sér pluralismann (fjöl- flokkakerfiö) I lýðræðisrikjum meö þvi að ala á sundurlyndi til að ná sem heppilegustum samning- um. 1 lýöræðisrikjum eru alltaf mismunandi viöhorf uppi um hvernig eigi að mæta auöhringn- um, en hann er alltaf einhentur viö samningaboröiö. Sá andlýðræðislegi hringur — Uppbygging slikra fyrir- tækja er i beinni mótsögn viö grundvallarhugsjón lýöræöisins. Þeir sem meta lýöræöið einhvers geta ekki pólitiskt séö sætt sig viö gerð þessara fyrirtækja, þvi þau eru andlýðræðisleg um margt, dreifingu valdsins, miölun upp- lýsinga ofl. Akkillesarhæll slikra fyrirtækja er leyndin og pukriö. Þvi þegar þau eru afhjúpuö og standa eftir I nekt sinni, skreppur vald þeirra saman svo um mun- ar. Alusuisse hefur til dæmis neit- aö I yfirstandandi deilu viö tsland aö leggja fram frumskjöl, sem maöur skyldi ætla aö þeir vildu endilega leggja fram — til aö sanna „sakleysi” sitt. Oijarlar í öllu tilliti? — Þegar ég er spurður aö þvi hvort islenska þjóöin hafi aö minu mati bolmagn til aö standast slíku fyrirtæki snúning, þá verö ég þvi miður aö svara neitandi. Smá- þjóöir eru afar viökvæmar I at- vinnu- og félagslegu tilliti og ekki i stakk búnar til aö hýsa slik skrimsl. Ég hef alltaf haldiö þvi fram, jafnvel áöur en meint svik Alusuisse hér komu fram, að ís- lendingar hefðu ekki bolmagn til aö hýsa hér fyrirtæki sem heföi meira vald en islenska þjóöin. Reynslan hefur sýnt að það er óforsvaranlegt aö hleypa slikum aöiljum inn fyrir dyr litilla sam- félaga. Væri tsland hins vegar þjóðfélag margra miljóna manna, þá munaði ekki jafn mik- ib um útibú stórs fyrirtækis. Alu- suisse hefur meiri veltu en nemur öllum þjóðartekjum tsiendinga. Munurinn er náttúrlega sá að annars vegar er um vinnu yfir 200 þúsund frjálsra einstaklinga aö ræða en hins vegar er um vald á nánast einni hendi aö ræða. önn- ur efnahagslega heildin verður aö taka tillit til ólikra sjónarmiöa en hins vegar ræöur eitt sjónarmið rikjum þar sem fyrirtækið á i hlut. Hér er ekki um jafningja viö samningaboröiö aö ræba; þetta eru ekki sambærilegar vaidaein- ingar. Þvi leiða náin samskipti smáþjóða viö slika viöskiptarisa oft á tiöum til samþjöppunar valds I viðkomandi þjóörikjum til hvers konar leynimakks og spill- ingar. Þaö er ekki tekib út með sæld- inni að standa i samningum viö svona fyrirtæki og kann stundum að veröa á kostnaö lýðræðisins. — Ég hef starfab 114 ár hjá IBM einu stærsta fjölþjóölega fyrir- tæki i heimi og hef lært mina lexiu af reynslunni. Þaö er hreint ógur- leg miðstýring sem slik fyrirtæki eru byggö upp á. — Ég er ekki á móti samstarfi viö erlend fyrirtæki. En slik fyrir- tæki veröa að vera af þeirri stærðargráðu aö við ráðum við þau. Þaö mega ekki vera risafyr- irtæki á sinu sviöi sem gætu drekkt okkur meö fjárhagslegum yfirburðum og einokun þekking- ar. I öbru lagi má ekki hleypa slikum fyrirtækjum inn I islenska efnahagslögsögu þvi þá má búast viö aö þau beiti pólitiskum þrýst- ingi til aö verja hagsmuni sina hér. Ég hygg aö enginn mæli meö þvi aö erlendir aöiljar fari að skipta sér af Islenskri pólitik. — óg ALUSUISSE Skyggnst Inn í myrkviðu auðhríngsins Föstudagur 19. febrúar 1982 þjóÐVILJINN — SIÐA 9 ií; andormurinn um efhahagsmál: Þingsjá Fylgt úr hlaði í gær i gær mælti Ragnar Arnalds fjárniálaráð- herra fyrir frumvarpi rikisstjórnarinnar um efnahagsmál sem sagt var frá i Þjv. i fyrradag. Miklar umræður urðu af þessu tilefni og notuðu þá þingmenn tækifærið og fjölluðu um efna- hagsmál almennt. Fyrstir af staö voru tveir fyrr- verandi fjármálaráðherrar þeir Sighvatur Björgvinsson og Matthias A. Mathiesen. Auk þeirra tóku þau Magnús Magnús- son. Jóhanna Siguröardóttir, ■ Guðmundur Þórarinsson, Sverrir Hermannsson og Arni Gunnars- son til máls. Stjórnarand- stæðingarnir voru þeirrar skoð- unar að þetta frumvarp væri kák eitt og væri „sama gamla sag- an”. Sighvatur Björgvinsson fór með þuluna um tjónkun Fram- sóknarílokksins við Alþýðu- bandalagið, að Framsóknarmenn féllu frá öllum sinum úrræöum i efnahagsmálum vegna Alþýðu- bandalagsins. Hins vegar sagði ílokksbróðir hans Arni Gunnarsson að hann undraðist þolinmæöi Aiþýðu- bandalagsins gagnvart Fram- sóknarflókknum, sem greinilega væri að verja sérstaka hagsmuni sina i þessum aðgerðum. Stjórnarandstæðingarnir töluöu um visitöluleik rikisstjórnarinnar og höíðu allt á hornum sér i þvi sambandi. Alþýðul'lokksmennirn- ir sögöust vilja algeran uppskurð á efnahagskeriinu, og það þótt sumir hópar þyritu að f'inna fyrir þvi (litið til Framsóknarmanna) sérstaklega þyrfti að endurskoða kerfið i kringum landbúnaðinn. —óg Lækkun launaskattsins: Guðmundur Þórarinsson með og á móti Samstaða um aðgerðir I umræðunum um frumvarp rikisstjórnar- innar um efnahagsmál, bar sem gert er ráð fyrir lækkun launaskatts i út- flutnings- og sam- keppnisiðnaði, sagði Ragnar Arnalds og frumvarpið væri flutt á vegum rikisstjórnar- innar og að alger sam- staða hefði rikt um það meðal stjrnarliða. Hins vegar kom fram breytingartillaga frá Guðmundi G. Þórarins- svni um að bessi lækkun næði til allra atvinnu- rekenda i iðnaði. Guömundur gat þess einnig i ræöum sinum á alþingi i gær aö hann væri andvigur höröum viöurlögum á borö viö dráttar- vexti við brot á lögum um launa skatt. Kallaöi þingmaöurinn þessi ákvæði „villimennsku” i frum- varpinu. Þingmenn stjórnarandstöö- unnar geröu harba hrið að Guðmundi vegna þessa máls. sögöu hann hafa átt þátt i að búa þetta frumvarp Ur garöi og undr- uðust stórum þessa framkomu og einn þingmaöur kvaö svo aö orði að hann undraðist „geðslag” þeirra sem störfuöu meö sli'kum manni. Urðu a 11 harkalegar umræöur um Guömundarþátt i málinu og féllu mörg orö og ljót áöur en umræðunni lauk i gær og frum- varpinu visaö til nefndar og annarrar umræöu. —óg Sveitarstjórnarlögum fylgt úr hlaði Tvö frumvörp um s veitast j órnarmál \ fundi efri deildar alhingis i gær mælti Svavar Gestsson félags- málaráðherra fyrir tveim frnmvörpum um sveitarstjórnarmál sem sagt var frá i blaðinu í gær. Auk Svavars tóku bau Eiður Guðnason, Salome Þorkelsdóttir, Stefán Jónsson og Guðmundur Bjarnason til máls og höföu ýmsar athugasemdir fram að færa við frumvarpið. Athugasemdir þingmannanna gengu aðallega út á þaö hvort ekki kæmi til álita aö hafa allar sveitastjórnarkosningar á sama degi, en nú eru kosningarnar i fá- mennum hreppum haldnar i júni. Svavar Gestsson geröi grein fyrir andstæöum viöhorfum um þetta mál og að hann teldi ekki óeölilegt að siöar yrði reynt að breyta þessu. En þarsem frumvarpiö þyrfti skjóta afgreiöslu nú, væri eðlilegra aö láta slikar hugsan- legar breytingar biöa enn um sinn. Þá hafði einnig komið fram athugasemd um að sumir gætu kosið tvisvar samkvæmt frum- varpinu i sveitastjórnarkosning- um. Taldi ráöherra sjálfsagt aö breyta orðalagi til að taka af öll tvímæli um þetta atriði. óg Svavar Gestsson Forseti skakar skellu sinni I þeirri liflegu umræðu um efnahagsmál á alþingi i gær bar töluvert á frammiköllum og upp- hrópunum I þingsalnum. Þurfti forseti óspart að berja i bjöllu sina og krefjast þagnar i salnum. Eitt sinn sem oftar þegar Sig- hvatur Björgvinsson var i ræöu- stól, kallaði ólafur Þórðarson skrifari neöri deildar frammi. Snöri Sighvatur sér þá aö Sverri Hermannssyni forseta deildar- innar og spurði hvort forseti gæti ekki þaggab niöur I skrifara. ,,Ég er aö skaka skellu minni”, sagði forseti neðri deildar, Sverrir Her- mannsson, um leiö og hann sló i bjölluna. —óg Nýtt frumvarp um samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti Samkeppnisnefnd feUd niður Verðgæsla í stað beinna verðlagsákvæða t framhaldi af skýrslu rikis- stjórnarinnar scm lögö var fram i janúar hefur nú verið lagt fram nýtt fruinvarp til breytinga á lögum um verðlag, samkeppnis- hömlur og óréttmæta viðskipta- hætti. Meöal nýmæla i frum- varpinu eru ákvæöi um að fella niður samkeppnisnefnd en verö- lagsráö taki við störfum nefndar- innar. Einnig er lagt til aö ný ákvæöi komi unt verðútreikninga i þvi skyni aö auövelda verð- gæslu. 1 skýrslu rikisstjórnarinnar var sagt um verðlagsmál: „i verð- lagsmálum verður við það miöað aðdragaúropinberum afskiptum af verðmyndun og auka sveigjan- leika i verðmyndunarkerfinu”. I Þar segir enn fremur aö tekiö verði upp nýtt fyrirkomulag, sem miðarað þvi að verðgæsla komi i vaxandi mæli i stað beinna verð- lagsákvæða. Frumvarpið sem nú hefur verið lagt fram er i þessum anda. Lagt er til aö samkeppnisnefnd verði lögð niður en verölagsráð taki við störfum nefndarinnar. Þetta er gert til að verksvið þess- ara tveggja aðila skarist ekki. Breytingin mun einnig horfa til einföldunar og vinnusparnaöar. Þá er lagt til að sett verði á laggirnarþriggja manna nefnd til að undirbúa mál sem lögð verða íyrir verðlagsráö. Nefndin á að tryggja vandaöri og hraðari málsmeöferö hjá ráðinu. I þeirri nefnd eiga sæti verblagsstjóri, og fulltrúar tilnefndir af ASI annars vegar og Vinnuveitendasam- bandinu hins vegar. Þá er einnig lagt til að sam- þykktir um hámarksverö sem nú eru i gidi, skuli vera þaö áfram. Verðlagsráð geti tekið ákvarö- anir um breytingar á verð- lagningu. i undantekningatil- fellum getur Verðlagsráð einnig ákveðið: 1) Hámarksverð og hámarksálagningu. 2) Gerö veröútreikninga eftir nán- ar ákveönum reglum. 3) Verðstöövun i allt að sex mánuði i senn. 4) Setningu annarra reglna um verðlagningu og viðskiptakjör sem verðlagsráð telur nauðsyn- leg hverju sinni. Þetta opnar möguleikann fyrir verðlagsráð að geta gripið til ákveðinna aðhaldsaðgeröa, þ.á.m. hámarksverðs og hámarksálagningar, ef sam- keppni er takmörkuð eða önnur tilgreind skilyrði eru til staðar á sviði þar sem verðlagning er frjáls. Þá eru ákvæði um verðútreikn- inga i þvi skyni aö auðvelda verð- gæslu. Þar segir að innflutnings- aðilum sé skylt að senda verð- lagsstofnun verðútreikninga yfir þær vörur sem þeir ílytja inn og skulu útreikningar hafa borist stofnuninni eigi siðaren 15dögum eftir að vara er tollafgreidd. Útreikningar þessir eru grund- vallargagn við verðlagningu inn- fluttra vara. Með frumvarpinu er verölagsráði einnig auðveldað að koma málum fyrir dómstóla Vegna vanskila á verðútreikn- ingum. Loks er kveöiö skýrar á um þaö en áöur hvenær brot sem felst i vanskilum á veröútreikn- ingum til verðlagsstofnunar telst fullframiö. —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.