Þjóðviljinn - 19.02.1982, Blaðsíða 15
Föstudagur 19. febriiar 1982 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 15
Hringiö í síma 81333 kl. 9-5 alla
virka daga, eða skrifiö Þjóöviljanum
Svör óskast
Félagi i Starfsmanna-
félaginu Sókn skrifar:
,,Mig langar aö fá svör viö
nokkrum spurningum i tilefni
þess sem ég las i blööum um
deilu þá er starfsfólk Klepps-
spitala og Kópavogshælis
stendur í.
1. Trilir þetta fólk á það að það
sé til framdráttar fyrir verka-
fólk og félagsskap þess, að
koma ólöglega fram?
2. Er það framtiðin að hópar úr
stéttarfélögum taki sig saman
og reyni að ná fram betri kjör-
um en aðrir vegna þess að það
hefur aðstöðu til þess?
3. Er það til fyrirmyndar að
ráðast á forystu stéttarfélags,
sem ekki gerir annaö en skyldu
sina?
Ég veitekki hvað þetta fólk er
margt, en i Sókn eru yfir 4
þúsund félagar. Er ekki skyn-
samlegra að ræða málin og hafa
sinar kröfur tilbúnar þegar
samningar erulausir, og standa
þá þétt saman að réttlátum
kröfum? Ég hef ekki verið i
stéttarfélagi nema 6 ár, en ekki
hefur mér þótt mjög mikill
áhugi á félagsmálum. Það er
venjulega sama fólkið sem
kemur á fundi og ef maður
hittir aðra og spyr: Hefur þú
ekki áhuga á þinu félagi?þá er
áhuginn venjulega mjög litill.
Svo geta nokkrir tugir fólks
hrópað og svivirt sina félaga ef
þeir eru ekki studdir i' ólöglegri
baráttu. Þetta hlýtur að vera
mjög duglegt fólk ef það beitti
sér i löglegum aðgerðum. Við
skulum reyna aö skilja hvert
annað og taka tillit til annarra
þvi þá verður lika tekið tillit til
okkar. Og við eigum ekki að
henda skit i þá sem við höfum
kosið til að vera i forystu fyrir
okkur. Ef við erum óánægð,
eigum við að ræða málin á
fundum. en ekki haga okkur
eins og heimskingjar, þótt við
séum ófaglært verkafólk.
-3942-4525.
Það hafa viöa veriö vatnavextir
á höfuðborgarsvæðinu undan-
farið og ekki vanþörf á að ná
stiflum úr niðurföllum. Ljósm —
eik
Aur og bleyta 1 Seljahverfi
Ólöf hringdi:
Mig langar að vekja athygli
borgaryfirvalda á svæðinu m illi
Grófarsels hérna uppi i Selja-
hverfi og Seljaskólans. Þetta er
stórhættulegt að fara fyrir börn,
þvi i rigningum safnast
þarna vatnselgur og börnin
koma blaut og slæpt heim úr
skólanum. Við erum margbúin
að tala um þetta við skóla-
stjórann i skólanum og borgar-
yfirvölden ekkerter gert ímál-
inu.
Er kannski verið að biða eftir
að stórslys verði?
Útvarp
kl. 20.40
Kvöíd-
vaka
Fjölbreyttefnieraðvanda á
dagskrá Kvöldvökunnar i
kvöid. Þar má m.a. nefna ein-
söng Elisabetar Erlingsdótt-
ur, en hún syngur nokkur iög
cftir Sigursvein D. Kristins-
son. Guðrún Kristinsdóttir
leikur með á pianó.
Aö söng Elisabetar loknum
hefst frásöguþáttur eftir Svein
Sveinsson á Selfossi. Hann
rekur sögu íjárflutninganna
1952.
Oldungsþankar koma þar á
eftir, en þá verður lesið úr
nýrri ljóðabók Gunnlaugs F.
Gunnlaugssonar.
Þvi næst ílytur Agúst Vig-
lússon frásöguþátt sem hann
nefnir Horít til baka og er þar
m.a. sagt frá pólitisku arga-
þvargi á Borðeyri fyrir meira
en háll'ri öld.
Öskar Ingimarsson les þar á
eftir pistil eftir Halldór Pjet-
ursson sem hann kýs að nelna
Gamlar lækningaraðferðir og
hreinlætisvenjur. Að lokum er
svo á Kvöldvökunni kórsöngur
Karlakórs Reykjavikur en
hann flytur islensk lög undir
stjórn Sigurðar Þórðarsonar.
Halidór Pjetursson
Agúst Vigfússon
Sumsé eitthvað við margra
hæfi á Kvöldvökunni i kvöld.
ö Sjónvarp
O kl. 20.40
Allt í
gamni...
Biessaður heiliakariinn
hann Ilarold Lloyd er á dag-
skránni i kvöld og auðfúsu-
gestur öllum sjónvarpsáhorf-
endum. Það er hreint með
ólíkindum hvað þessi gamla
kempa getur stytt manni
stundirnar og enda þótt hann
sé auðvitað aftur og aftur að
gera sömu brellurnar viröist
, maður vart taka eftir þvi.
Góður gamanieikari.
Harold Lloyd hóf sinn feril á
að stæla Chaplin en innan
skamms fann hann sinn eigin
stil. Hann túlkaði öðrum betur
hinn ameriska meöalmann:
fullan af draumum um aö
verða ríkur.
Harold Lloyd var fæddur i
Bandarikjunum 1893 og
byrjaði sinn kvikmyndaferil
1913. Innan fimm ára var hann
orðinn stjama. Hann gerði
yfir 90 myndir um piltinn með
gleraugun auk fjölda annarra.
Hljóðmyndirnar komu honum
á kné eins og fleirum.
Beethoventónleikar
Útvarp
kl. 17.00
Fyrir þá sem hafa gaman af
klassiskri tónlist er vert að
benda á siðdegistónleikana i
dag, en þá veröur leikin tónlist
eftir Ludvig van Beethoven.
Það er Júli'us Katchen sem
leikur á pianó með kór og
Sifnfóniuhljómsveit Lundúna
„Kóralfantasiu” op. 80 og
einnig stjórnar Ferenc
Fricsay Filharmóniuhljóm-
sveit Berlinar, sem leikur
Sinfóniu Beethovens nr. 7 i A-
dúr, op. 92.
Beethoven
Breyting
á sjónvarps-
dagskránni!
Sjónvarpsdagskráin i kvöld
breytist allverulega af eir.-
hverjum orsökum. I stað
Reykjavikurskákmótsins
strax á eftir fréttir verður
þátturinn Á döfinni en að hon-
um loknum kemur Allt i
gamni með Harold Lloyd.
Fréttaspegillinn kemur þessu
næstkl. 21.15 og þegarhanner
á enda koma skákskýringar
frá X. Reykjavikurskákmót-
X.REYKJAVIKUR
SKÁKMOTIÐ
inu. Þá loks er svo poppþátt-
urinn, Poppaö á siðkvöldi og
dagskráin er svo á enda kl.
tæplega hálf tvö um nóttina!