Þjóðviljinn - 16.03.1982, Page 5
Þriðjudagur 16. mars 1982 þjóÐVILJINN — SÍÐA 5
Mikil framleiðni í bandarískum landbúnaði
Bygglst á skammsýimi
rányrkju
A hveitiakri: uppblásturinn er a.m.k. þrisvar sinnum hraðari en jarð-
vegsmyndunin.
Á siðastliðnum áratug jókst
framleiðni i bandariskum iðnaði
sáraiitið. Hinsvegar jókst fram-
ieiðni i landbúnaði um 5,5% á ári
og hefur sú aukning verið nefnd
m.a. til að sýna fram á ágæti
kapitaiismans i heimi sem skortir
korn. En færri hafa veitt þvi at-
hygli, að hin miklu afköst i
bandariskum landbúnaði eru
skammgóður vermir: þau byggja
að vcrulegu leyti á stórhættulegri
rányrkju.
Um þetta efni er fjallað fyrir
skömmu i forystugrein i
Washington Post verður efni
hennar rakið hér á eftir.
Eins og námugröftur
Blaðið segir að aðferðirnar sem
notaðar eru i bandariskum land-
búnaði séu i raun ósköp svipaðar
og þær sem notaðar eru við
námagröft. Að visu er jarðvegur
sifellt að myndast — en hann
myndast hægt. Það tekur náttúr-
una hundrað ár eða þúsund ár aö
bæta á sig þumlungi gróður-
moldar sem eyðst hefur. Þvi er
það svo i reynd, að bandariskir
bændur eru að eyða gróðurmold-
inni með svipuðum hætti og eytt
er náttúruauðlindum sem sifellt
gengur á eins og oliu og kolum.
Meðalveðrun á bandarisku
búskaparlandi er einn þumlungur
á þrjátiu árum. 1 frjósömustu
héruðum kornræktarbeltisins
fýkur jarðvegur eða skolast burt
með tvisvar sinnum meiri hraða,
og á viðkvæmustu svæðum eyðist
þumlungur moldar á aðeins
tveim árum.
Markaðslögmál
Allir viðurkenna að hér sé mikil
hætta á ferðum, segir Washington
Post, og að það þurfi að gripa til
róttækra ráðstafna til að stöðva
hana. Og menn vita lika ofurvel
hvernig á að koma i veg fyrir
eyðingu jarðvegs eða stöðva hana
eftir að hún er af stað farin. Það
má gera með sáðskiptum, með
því að láta samsetningu jarðvegs
á hverjum stað ráða þvi
hvað ræktað er, með skjólbeltum,
með þvi að skilja alla afganga af
uppskerunni eftir á ökrunum
o.s.frv. En þetta dugir skammt
þegar ýmislegar hagrænar
ástæður og markaðslögmálin
frægu toga i aðrar áttir en lang-
sýn sjónarmið þeirra sem vilja
varðveita þá auðlind sem gott
gróðurland er.
Þessu lýsir Washington Post á
svofelldan hátt: i bandariskum
landbúnaði er gifurlega mikið
notað af vélum, eldsneyti, áburði
og eiturefnum. Þetta þýðir að
uppskera eykst verulega en
kostnaður sömuleiðis og hagn-
aður af hverri ekru skreppur
saman. Þetta hefur freistað
bænda til að taka lakara land i
ræktun, bæta við sig — með þvi
móti fá þeir enn stærri uppskeru
og þá aftur lægra verð fyrir af-
urðir og minni hagnað. Þörfin
fyrir útflutning landbúnaðaraf-
urða, sem nú ræður mjög miklu
um viðskiptajöfnuð landsins,
hefur skapað aukinn þrýsting á
meiri framleiðslu. Hækkandi
markaðsverð á landi hefur leitt til
þess að meira er en áður um að
spekúlantar, sem hvergi eru
nærri sjálfir, eignast land og
leigja það til skamms tima. Allar
þessar aðstæður leiða til þess að
menn leggja höfuðáherslu á að fá
fé sitt fljótt aftur. en hugsi þvi
minna um afkastagetu landsins
til lengri tima. Land sem gæti
með réttri umhyggju borið gbðan
ávöxt um alla framtið er nú eyði-
lagt á svosem þrem misserum.
Og svo er það Reagan
Blaðið segir að einhverjar
breytingar til batnaðar séu að
verða með lagasetningu og
búskaparaðferðum nýjum. En
þær breytingar eru aíar hægfara,
og rammir kraftar toga i aðra
átt: margir skilningsgóðir
bændur, segir blaðið, hafa ekki
efni á þeim landverndarráðstöf-
unum sem þeir gjarna vildu gripa
til. Og i Bandarikjum Reagans
eru jafnt og þétt skornir niður
opinberir sjóðir sem eiga að
stuðla að landvernd.
áb tók saman.
Pravda ræðst á ítalska
og spænska kommúnlsta
Beitir fyrir sig þeim rétttrúuðu
Pravda, málgagn sovéska
kommúnistaflokksins hefur enn
ráðist á forystumenn italska og
spænska kommúnistaflokksins
fyrir gagnrýni þeirra á Sovétrik-
in, sem mjög er tengd síöustu at-
burðum i Póllandi. Uppgjörið um
Pólland sýnist raunar ætla að
verða mjög afdrifarikt í komm-
únistaflokkum Evrópu og svo
meðal þeirra sem nokkuð sam-
starf hafa átt i vissum máium við
UTBOÐ
Sjóeínavinnslan h.f. óskar eftir tilboðum i
jarðvinnu vegna byrjunaráfanga sjóefna-
vinnslu á Reykjanesi.
Verkinu skal lokiö 3. mai 1982.
Útboðsgögn veröa afhent hjá Hönnun h.f.,
Höfðabakka 9, Reykjavik og á skrifstofu
Sjóefnavinnslunnar h.f., Vatnsnesvegi 14,
Keflavik,frá 16. mars kl. 13.00.
Tilboð verða opnuö á skrifstofu Sjóefna-
vinnslunnar h.f. kl. 14.00 þriðjudaginn 23.
mars 1982.
Fyrir þá bjóðendur, sem áhuga hafa á þvi
að skoöa byggingasvæðið, verður efnt til
skoðunarferðar. Farið verður frá Steypi-
stöð Suðurnesja Y-Njarðvik fimmtudag-
inn 18. mars kl. 14.00.
Sjóefnavinnslan h.f.
Árshátíð
Sjálfsbjargar
í Reykjavík
Árshátið félagsins verður haldin laugar-
daginn 27. mars að Ártúni, Vagnhöfða 11.
Borðhald hefst kl. 19.30.
Skemmtiatriði og dans.
Borða og miðapantanir á skrifstofu fé-
lagsins Hátúni 12, simi 17868.
þá kommúnista sem enn hafa til-
hneigingu til að fylgja Sovét-
mönnum að málum.
Aðferð Prövdu hefur m.a. verið
sú, að vitna óspart til erlendra
kommúnistaforingja sem hafa
skammað Itala og Spánverja.
Einn daginn er vitnað til Kash-
tans, formanns Kommúnista-
flokks Kanada, annan til Gus
Hall, formanns Kommúnista-
flokks Bandarikjanna. Haft er
eftir Gus Hall að „nýleg ummæli
bæði italskra og spænskra
kommúnista innihaldi beint og
óbeint nákvæmlega sömu falsanir
og afbakanir og afturhaldsöfl hafi
verið að dreifa um kommúnism-
ann og Sovétrikin i sextiu ár”. Þá
hefur Gus Hall sakað fyrrnefnda
flokka um að bregðast Sovétrikj-
unum með þessum hætti til þess
að verða „gjaldgengir” i pólitik
eða fá „góðan uppslátt” hjá fjöl-
miðlum.
Hvað birtist hvar?
Þeir kommúnistaflokkar sem
Pravda getur vitnað i sér til
stuðnings eru yfirleitt mjög smáir
og áhrifalitlir, að undanteknum
hinum portúgalska og hinum
franska. Ein aðferðin er sú, að
minna á það i hinu sovéska blaði,
að kinversk blöö hafi með vel-
þóknun birt ádrepur italska
kommúnistablaðsins l'Unitá á
Sovétmenn en samkvæmt for-
múlu Prövdu hlýtur hver sá að
vera á mjög háskasamlegri braut
sem Kinverjar taka undir við.
ítalir hafa reyndar birt svar-
greinar Prövdu, við málflutningi
italskra kommúnista i Unitá
óstyttar — og haía kvartað yfir
þvi um leið að ekki detti sovésk-
um i hug sú lágmarkskurteisi að
sýna sovéskum lesendum hvað
það er, sem ltalir eru að segja:
ekkert af þeim greinum hafa
sovésk blöð birt.
Friðarráðstefna
1 fyrri viku uröu tvö dæmi sem
sýna hver áhrif Póllandsumræð-
an er að hafa um þessar mundir. 1
Róm leystist upp alþjóðleg
kvennaráðstefna um friðarmál.
Italska kvennahreyfingin og
kommúnistar flestir höfðu dregið
sig út úr þeirri ráðstefnu, vegna
þess að undirbúningsneíndin vildi
ekki ræða Póllandsmál i tengsl-
um við friðarvandann. Konur frá
öðrum löndum vissu ekkert af
þessu fyrr en til Rómar kom. Þar
vilduýmsar þeirra taka upp m.a.
Póllandsmál, en ráðstefnan leyst-
ist upp i framiköllum og jafnvel
handalögmálum.
Fyrsti mai
1 Danmörku hefur
Kommúnistaflokkur landsins
klofið sig út úr umræðu um sam-
eiginlega fyrstamaigöngu
vinstriflokka. SF, Sósialiski
alþýðuflokkurinn vildi ekki sætta
sig við minna en að i göngunni
væri haft uppi vigorðið „Við
styðjum baráttu pólskra verka-
manna fyrir frjálsum verkalýðs-
samtökum”. Þetta vildu danskir
kommúnistar ekki og ætluöu aö
bjarga sér fyrir horn með þvi að
stinga upp á vigorðinu” við styðj-
um baráttu fyrir frjálsum verka-
lýðsfélögum i öllum löndum” —
og skilji það hver á sinn hátt. A
þetta var ekki sæst.
AB tók saman.
Námsstyrkur
í tileíni af ári aldraðra hefur Stjórn
sjúkrastofnana Reykjavikurborgar
ákveðið, að veita hjúkrunarfræðingi
námsstyrk, að upphæð kr. 50.000.00 til sér-
hæfingar i öldrunarhjúkrun.
Styrkurinn miðast við háskólanám á
þessu sviði.
Umsækjandi skuldbindi sig til að gegna
stöðu hjúkrunarframkvæmdastjóra við
öldrunardeildir Borgarspitalans, að
minnsta kosti i 2 ár.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri i
sima 81200.
Umsóknir sendist sama aðila fyrir 1. mai
1982.
Reykjavik, 12. mars 1982.
Stjórn sjúkrastofnana
Reykjavikurborgar.
(||ÚTBOÐ=]=
Tilboð óskast i DUCTILE IRON vatnspipur fyrir Vatns-
veitu Reykjavikur.
Tilboðin verða afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi 3,
Reykjavik.
Tilboðin verða opnuð á sama staö þriðjudaginn 20. april
n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
Ffíkirkjuvegi 3 — Sími 25800