Þjóðviljinn - 16.03.1982, Blaðsíða 16
DWÐVIlllNN
Þriðjudagur 16. mars 1982
Kröfur Alþýðu-
sambandsins:
Kröfur alþýöusamtak-
anna nú eru sem fyrr 13%
grunnkaupshækkun á
tveggja ára tímabili, að
vísitölubætur verði i fullu
samræmi við hækkanir á
framfærsluvísitölu og að
eftirvinna verði afnumin í
áföngum, auk sérkrafna.
Þetta kom fram á fyrsta
viðræðufundi samninga-
nefnda ASI og vinnuveit-
enda í gær.
A fundi 72ja manna nefndar
ASI, sem haldinn var á föstudag,
var undirnefnd þeirri sem kjörin
var s.l. haust til að fara með við-
Fulltrúar launþega og atvinnurekenda hittust i gær: kröfur um 13%
grunnkaupshækkun og óskertar visitöiubætur á laun. Ljósm. —eik.
13% grunnkaups-
hækkun, óskertar
verðbætur launa
Beint framhald viðræðna frá í haust
ræður við atvinnurekendur falið
að koma á fundum með atvinnu-
rekendum. 1 henni eiga sæti auk
Ásmundar Stefánssonar forseta
ASI, formenn 8 landssamtaka -
innan ASl, 1 fulltrúi iðnnema, 2
frá verslunarmönnum, 6 frá
Verkamannasambandinu, 1 frá
starfsfólki á veitinga- og matsölu-
stöðum og einn fulltrúi frá Iðju.
Við undirritun skammtimasamn-
inganna sl. haust var ákveðið að
þráðurinn skyldi tekinn upp að
nýju, ekki siðar en 15. mars.
Fram kom hjá Ásmundi
Stefánssyni eftir fundinn með
vinnuveitendum i gær að svo yrði
að lita á aö hér væri um að ræða
beint framhald þeirra viðræðna
sem fram fóru i haust. — Þá var
kröfum aðeins ýtt til hliðar um
tima en ekki teknar af borðinu og
standa þær þvi allar enn. Nýgerð
athugun Kjararannsóknar-
nefndar sýnir að atvinnurekendur
telja sér fullfært að greiða hærri
taxta en samtök atvinnurekenda
hafa verið reiðubúin til þess að
semja um. Það hlýtur því að vera
lag til betri samninga, laun-
þegum til handa.
Samkomulag varð um það milli
aðila á fundinum i gær að næstu
fundir yrðu á vettvangi sátta-
semjara og sáttanefndar siðar i
þessari viku.
Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins fannst í Borgarfirði
Mikil afturför
ef horfið verður
aftur til gamla
tímans og flokks-
pólitísks borgar-
stjóra, segir
Sigurjón Pétursson
„Borgarstjóri er nú óhlutdræg-
ur starfsmaður allra Reykvik-
inga og reynslan af þessari skip-
an hefur verið ákafiega góð”,
sagði Sigurjón Pétursson forseti
borgarstjórnar i samtali við blað-
ið I gær. ,,Nú hefur Sjálfstæðis-
fiokkurinn tilkynnt að hann hygg-
ist berjast fyrir þvi að horfið
verði aftur tii gamla timans og
settur flokkspólitlskur borgar-
stjóri, borgarstjóri Sjálfstæðis-
flokksinsjlann yrði yfirlýstur
borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins
og mun eðli sinu samkvæmt haga
sér I störfum I samræmi við það”.
Borgarstjórnarefni Sjálfstæðis-
flokksins Davið Oddsson.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins héldu um helgina fund i
Borgarfirði, og var niðurstaða
hans sú að Albert Guðmundsson
og Markús Örn Antonsson báru
upp og fengu samþykkta tillögu
um að Davið Oddsson, efsti mað-
ur listans, yrði borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins. „Valið i vor
stendur um það hvort borgar-
stjóri verður starfsmaður Reyk-
vikinga allra ellegar borgarstjóri
Sjálfstæðisflokksins. Borgarbúar
hafa nú i fjögur ár getað leitað
með sin mál til borgarstjóra i
fullri vissu um að ekki verði farið
með erindi þeirra á flokkspóli-
tiskan hátt eða þau metin út frá
hagsmunum eins flokks, einsog
tiökaðist I valdatið Sjálfstæðis-
flokksins. Sú óhlutdrægni sem nú-
verandi borgarstjóri hefur fest i
sessi er mikils metin, og ég á bágt
með að trúa að Reykvikingar vilji
skipta á henni og flokkspólitisk-
um borgarstjóra Sjálfstæðis-
flokksins”, sagði Sigurjón Pét-
ursson.
—ekh
flJppstlllmgarlundur
í Hafnarflrði í kvöld
IAIþýðubandalagsfélagið i
Hafnarfirði gengst fyrir fundi I
kvöld að Strandgötu 41 (Skálan-
! um) klukkan hálf niu.
• A fundinum leggur uppstill-
I ingarnefnd fram tillögur sinar
I um skipan lista fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar 1982.
Endanleg ákvöröun um skipan
listans verður tekin af félags-
mönnum.
Ragnar Arnalds og Geir
Gunnarsson mæta á fundinn og
ræða stjórnmálaviðhorfin. Allir ■
stuðningsmenn G-listans vel-
Ragnar
Geir
komnir. Kaffiveitingar á staðn
um.
Varþað
einmitf
svong
semþu
vildir
hafa
TREFJAJÓGÚRT
Með jarðarberjum, rúsínum,
eplum og grófu kornhismi
SANNKALLAÐ
HEILSUFÆÐI