Þjóðviljinn - 16.03.1982, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN í>riöjudagur 16. mars 1982
Fjala-
kötturinn
Um þessar mundir
standa yfir í Fjalakett-
inum sýningar á myndum
héöan og þaöan og er það
enda yfirskrift dagskrár-
innar sem stendur yfir til
21. mars næstkomandi.
Alls eru sýndar fjórar
myndir, en þær eru: Hæg
hreyfing, Don Giovanni,
The Oberwald Mystery og
Loulou. Verður nú reynt að
gera nokkra grein fyrir
myndum þessum, og upp-
lýsingar sóttar í myndar-
lega sýningarskrá Fjala-
kattarins fyrir vormisserið
'82.
Þaö er enginn annar en
Jean-Luc Godard, sem leikstýrir
og skrifar handrit aö Hægri
hreyfingu. Kvikmyndina gerði
hann árið 1979, og eins og i fyrri
myndum sinum er still hans frá-
brugðinn þeim stil, sem við eigum
Úr Don Giovanni eftir Joseph Losey, sem reynir i
þessari mynd að gera sjálfstætt kvikmyndaverk úr
óperu Mozarts. Ekki er aö efa að þessi mynd er for
vitniieg, þegar haft er i huga, að um þessar mundir
Monica Vitti ieikur drottninguna i mynd Antonionis, gefst jafnframt færi á að sjá eitthvaö um Mozart I
The Oberwald Mystery. leikritinu Amadeus, sem sýnt er i Þjóðleikhúsinu.
Hæg hreyfing eftir Jean-Luc Godard. Tilraun til að
skapa ekki aðeins pólitiska kvikmynd, heldur að
skapa kvikmyndina pólitiskt.
listina. Hann lék og skrifaði bók-
mennta- og leikhúsgagnrýni og
rúmlega tvitugur var hann farinn
að leikstýra viða um landið. Hann
varð fyrir áhrifum af hugmynd-
um þýska leikhúsmannsins Bert-
olt Brechts og setti upp leikrit
hans, Galileo Galilei, i náinni
samvinnu við Brecht árið 1947. Sú
uppsetning opnaði honum
greiðari leiö inn i kvikmynda-
verin, en skömmu siðar varð
hann fyrir barðinu á hinni al-
ræmdu óamerisku nefnd, og var
settur á hinn svnefnda svarta
lista. Losey flutti þá til Bretlands.
Meðal mynda Loseys má nefna
The Go-Between (1971) og Mr.
Klein (1976), sem þykja meöal
bestu mynda hans.
Michelangelo Anotonioni er
leikstjóri og handritshöfundur
(ásamt Tonino Guerra) kvik-
myndarinnar The Oberwald
Mystery, og það þarf ekki aö
rekja litrikan feril hans. 1 þessari
nýjustu mynd sinni fetar hann
ótroðnar slóðir i kvikmyndagerð
og beitir m.a. videótækninni
mikið við gerö hennar. Ekki voru
Nýjar myndir héðan og þaðan
að venjast i kvikmyndagerð al-
mennt. Godard er fyrst og fremst
pólitlskur listamaöur, sem reynir
að tengja efni og aöferð órofa
böndum og reyna þannig ekki
aðeins að gera pólitiska kvik-
mynd — heldur að gera kvik-
myndina pólitiskt.
I kvikmyndinni Hæg hreyfing
sýnir Godard okkur inn i heim
þriggja persóna: sjónvarps-
mannsins Paul Godard, frétta-
mannsins Denise Rimbaud, sem
Paul tekur saman viö eftir skiln-
að, og hórunnar Isabelle Riviere,
sem komið hefur til borgarinnar
úr sveitinni. Myndinni skiptir
Godard i fjóra kafla, og hefur
hver sitt heiti, og er skipt milli
persónanna, þannig aö hver kafli
sýnir fyrst og fremst eina af
þessum þremur persónum, en i
siöasta kaflanum dregur hann
meginþemun saman, án þess þó
að um sé að ræöa lausn á kerfis-
bundinni uppbyggingu sögu-
þráöar — en um það verður ekki
nánar rætt, heldur visað á
myndina sjálfa i þvi efni.
Louiou er frönsk mynd, gecð
árið 1980 af Maurice Pialat, og
skrifar hann einnig handritið
ásamt Arlette Langmann. Loulou
fjallar um Nelly, sem býr með
André og vinnur einnig á skrif-
stofu hans. Leiðinn er þó farinn að
hrjá hana, og þegar hún hittir at-
vinnuleysingjann Luis (Loulou)
fer hún heim með honum og
kveður André endanlega. Nelly
og Luis flækjast svo um á öldur-
húsum, ræna verslun og eyða
miklum tima i rúminu — en eru
þó afskaplega ólik aö öllu leyti.
En Nelly verður barnshafandi, og
Luis lofar bót og betrun og kveðst
ætla að fara að vinna um leiö og
barnið er fætt. En ýmislegt
verður til þess að Nelly breytir
um háttu, hún lætur eyöa fóstrinu
og við það slitnar upp úr sam-
bandi hennar og Luis.
Leikstjóri Loulou, Maurice
Pialat, er fæddur 1925, en þaö var
ekki fyrr en 1958 sem hann fór að
fást við kvikmyndagerð. Aður
hafði hann haft ofan af fyrir sér
sem málari en hann haföLað baki
langt nám viö tvo franska lista-
skóla. Hann Jékkst auk þess við
ýmislegt annaö og vann meöal
annars af og til sem leikari.
Fyrstu myndir hans voru allar
stuttar, og hlaut ein þeirra,
L’Amour existe, verðlaun á kvik-
myndahátíðinni i Feneyjum.
Hann vann við franska sjónvarpiö
um margra ára skeið, en fyrsta
leikna kvikmynd hans i fullri
lengd var L’Enfance nue (Nakin
barnæska), sem hann geröi árið
1968. Myndin þótti bæði hjartnæm
og hrifandi, þótt einföld væri að
allri gerð, og hún vann til verð-
launa árið eftir. Myndir Pialats
hafa þótt vera einlægar i allri frá-
sögn og samúöin með sögu-
persónum fölskvalaus.
Don Giovanni er hvorki meira
né minna en kvikmynd gerð eftir
samnefndri óperu Mozarts, og
leikstjóri er Joseph Losey, sem á
einnig heiöur af handriti ásamt
Patriciu konu sinni og Frantz
Salieri, en handritið er byggt á
uppsetningu Rolf Liebermanns á
óperunni. Myndin er gerð af
Frökkum, ttölum og Vestur-Þjóð-
verjum áriö 1979.
Sagan af hinum nautnasjúka
Don Juan er fyrir löngu orðin vel-
þekkt á Vesturlöndum, og ófáir
höfundar hafa reynt aö vinna úr
hliðstæðu efni um flagarann, sem
skirrist ekki við aö fremja morð
og storka dauöanum.
Heldur hefur litið verið gert af
þvi að kvikmynda óperur, það er
að segja, að færa óperur yfir á
mál kvikmyndanna, þótt allal-
gengt sé að færa uppsetningar
óperuhúsa yfir á filmu. Það var
eitt af meginmarkmiöum Loseys
að láta einmitt reyna á hvort ekki
væri mögulegt að láta kvik-
myndamáliö ráöa ferðinni, og i
þvi skyni beitir hann margvis-
legum brögðum, t.d. með þvi að
láta söngvarana syngja ariurnar
með kvikmyndavélarnar á ferð
og flugi i kringum þá, með þvi að
beita lýsingu óspart, og svo ekki
sist með þvi aö leggja áherslu á
byggingastil 18. aldarinnar og þá
staðreynd, að óperan er skrifuð
aðeins tveimur árum fyrir
frönsku byltinguna, 1789, Losey
reynir þvi að benda á hlut
alþýðunnar og magnar andstæður
milli hennar og úrkynjaðs aðals-
ins.
Það ætti aö vera óþarfi aö
kynna leikstjóra Don Giovannis,
Joseph Losey, en þó skal sitthvað
rifjað upp: hann er fæddur árið
1909 i Bandarikjunum og varpaöi
öllum fyrirætlunum um lækna-
nám fyrir róða til góða fyrir leik-
nú allir af eldri kynslóð kvik-
myndagerðarmanna ánægðir yfir
hinni nyju tækni Antonionis,
þegar þeir sáu árangurinn á
Venica Film Festival 1980, og
myndin fékk slæma útreið og
m.a. sagt að myndin heföi orðiö
köld og óraunveruleg i höndum
Antonionis. En hann segir
sjálfur: ,,Ég hef verið gagn-
rýndur fyrir að skoða allt úr fjar-
lægð, en á það verður aö lita að
þetta er einungis min aðferð til
þess að segja söguna. Mér tekst
að búa til sögu en ég get ekki leik-
stýrt henni. Kannski er það vegna
þess að ég er á undan öllum
öðrum...”
Að lokum er svo vert aö hvetja
alla þá, sem áhuga hafa á kvik-
myndum til að sjá ekki aðeins
þær myndir, sem greint hefur
verið frá hér að ofan, heldur og
aörar dagskrár Fjalakattarins,
sem er kvikmyndaklúbbur fram-
haldsskólanna með aðsetur i
Tjarnarbiói. Til frekari upp-
lýsinga er svo aö endingu birt
sýningarskráin frá þriðjudegi til
sunnudags:
Þriðjudagur 16. mars:
19 :00 Don Giovanni
22.00 The Oberwald Mystery
Miðvikudagur 17. mars:
19:30 The Oberwald Mystery
22:00 Loulou
Fimmtudagur 18. mars:
19:00 Don Giovanni
22.: 00 Hæg hreyfing
Laugardagur 20. mars:
17:00 Loulou
19:30 Don Giovanni
Sunnudagur 21. mars:
17:00 The Oberwald Mystery
19:30 Hæg hreyfing
22:00 Loulou
Miðasala fer fram I Tjarnarbiói
klukkutima fyrirhverja sýningu.
—jsj-
Aðalfundur / Flugfreyjufélags Islands verður haldinn i Leifsbúð Hótels Loftleiða miðvikudaginn 24.3. kl. 20.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin
ÚTBOÐ Raímagnsveitur rikisins óska eftir tilboð- um i 1150 tréstaura fyrir Suðurlinu. Út- boðsgögn verða seld á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins Laugavegi 118, 105 Reykjavik frá og með þriðjudeginum 16. mars n.k. og kostar hvert eintak kr. 100. Tilboðum skal skila til skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins fyrir kl. 14.00 föstu- daginn 30. april 1982 merkt RARIK 82015 og verða tilboöin þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Reykjavik 12. mars RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS