Þjóðviljinn - 17.03.1982, Blaðsíða 3
I----------------------------------------1
j Vinnuveitendasambandið:
j Snýst gegn átaki ASÍ
| um vinnuvernd
I — Aukin vinnuvernd hlýtur uö vera hags-
munir allra, segir Ásmundur Hilmarsson
Vinnuveitendasamband
islands hefur með bréfi dag-
settu 9. mars sl. beint þeim ein-
dregnu tilmælum til meðlima
sinna að þeir hafi á sér sér-
stakan vara gagnvart „einhliða
málflutningi fulltrúa Vinnu-
verndarráðs ASi innan veggja
fyrirtækjanna.”
Eins og kunnugt er hratt Al-
þýðusamband íslands nýverið
af stað herferð, sem hafa skal
að markmiði aðkoma i veg fyrir
vinnuslys og atvinnusjúkdóma á
vinnustöðum eftir þvi sem
kostur er á. Þessi fræðsluher-
ferð er mjög i anda laga sem
sett voru 1980 um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum og gengu þau i gildi 1.
janúar 1981. Er m.a. ætlunin að
fram fari fræðsla innan fyrir-
tækjanna sjálfra með fundar-
höldum þar, veggspjöldum,
bæklingum o.fl.
1 þessu bréfi vinnuveitenda
kemur fram greinileg andstaða
gegn allri viðleitni alþýðusam-
Ukanna til að gera starfsum-
hverfi launafólks þvi bærilegra.
Sérstaklega er hnýtt i Vinnu-
eftirlit rikisins og þess m.a.
krafist að áður en nýjar reglur
verði settar, fari fram mat á
kostnaði er af þeim kann að
leiða og atvinnurekstrinum er
ætlað að bera. Þá hefur sam-
bandið komið á fót sérstakri
eftirlitsnefnd og er mæst til þess
við eigendur fyrirtækja að þeir
leiti umsagnar nefndarinnar
um:
„Allar beiðnir fulltrúa „Vinnu-
verndarársins” um
kynningarfundi og þess
háttar i fyrirtækjum.
Veggblöð, dreifirit o.þ.h. sem I
túlka einhliða afstöðu stéttar- I
félaga til atvinnuumhverfis- *
og öryggismála og ætluð eru I
til dreifingar innan fyrirtækj- |
anna.
■
Hverskyns einhliða málflutning I
annan innan fyrirtækja um |
atvinnuumhverfis- og |
öryggismál”.
Við leituðum álits Asmundar |
Hilmarssonar, starfsmanns |
Vinnuverndaráðs ASl og hann ■
sagði: „Þessi viðbrögð hauk-1
anna i Vinnuveitendasambandi |
Islands koma i sjálfu sér ekki á |
óvart. 1 þeim gætir auðvitað •
óþarfa tortryggni, þvi við höfum |
alltaf litið svo á að baráttan |
fyrir vinnuvernd væri til hags-1
bóta fyrir bæði launþega og þá ■
sem bera ábyrgð á fyrirtækj- I
unum. Hér má segja að gæti |
svipaðra viðhorfa hjá atvinnu- |
rekendum og tiðkaðist á fyrri ■
hluta aldarinnar, þegar svo var I
litið á að hvers kyns samtök |
launþega væru tilræði við fyrir- |
tækin”, sagði Asmundur ■
Hilmarsson að lokum. |
Nútíma-
tónlist í
Nýlista-
safninu
Peter van Riper
flytur eigin verk á
sópransaxófón og
ásláttarhljóðfæri
A morgun og á föstudag verða
haldnir tónleikar i Nýlistasafninu
við Vatnsstig i Reykjavik á
vegum Musica Nova. Það verður
bandariski tónlistarmaðurinn
Peter van Riper sem kemur fram
og flytur eigin verk fyrir sópran-
saxófón og ásláttarhljóðfæri.
Tónlist Ripers þykir undir
austurlenskum áhrifum og einnig
koma fram i verkum hans áhrif
frá tónlistarhefð indiána i
N-Ameriku. Byggir hann tónlist
sina á náttúruhljóöum og þeim
hljómburði sem salarkynni gefa á
hverjum stað. Riper hefur einnig
fengist við myndlist og verða
myndverk eftir hann til sýnis i
l
Nýlistasafninu. Myndin hér til
hliðar er úr seriunni „draumtón-
list”, — e.k. myndræn nótna-
skrift, — en þær myndir verða
m.a. til sýnis. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30 bæði kvöldin.
Smíðakennarar sýna
í Námsgagnastofnun
Logsuðutæki
fyrir börn
Félag islenskra smiðakennara
opnaði nýlega sýningu á smiða-
tólum sem notuð eru á grunn-
skólastiginu. Sýningin fer fram á
sýningarsvæði Námsgagnastofn-
unarinnar að Laugavegi 166 (i
Viðishúsinu).
Þar gefur að lita flest þau tæki
sem ættu að vera i kennslustofum
smiðakennara um ailt land.
Smiðakennslan er viða vanbúin
og smiðakennarar halda einmitt
samhliða sýningunni, ráðstefnu
sem fram fer i Tónabæ þar sem
rætt er um landsins gagn og nauð-
synjar og ekki sist það sem stend-
ur smiðamennt helst fyrir þrifum
hér á landi.
Það kennir ýmissa grasa á
sýningunni i Námsgagnastofnun.
Með þvi athyglisverðara er log-
suðutæki sem ætlað er sem
kennslugagn á grunnskólastiginu.
Logsuða hefur hingað til ekki
verið talin barnameðfæri, en hið
nýja tæki er búið ýmsum ágætum
eiginleikum sem gerir þaö mun
hættuminna í notkun en eldri
tækin. —hól
8I8|1I§!1
Þessu myndarlega skipi, Val RE 7, var slðastliðinn sunnudag hleypt af stokkunum hjá Bátalóni I
Hafnarfirði. Skipið er hið þriðja I röðinni I sérstakri raðsmlði Bátalóns. Tvö hin fyrri voru Halldór Run-
ólfsson NS 301 og Már NS 87. Skipið er 30 brúttólestir að þyngd. Eigendur eru Ingólfur Kristjánsson og
synir hans Birgir Ingólfsson og örn Ingólfsson. Fjórða skipið I raðsmiði Bátalóns mun vera tilbúið
seinni part aprilmánaðar. —hól
Miðvikudagur 17. mars 1982. ÞJÖÐVILJINN — StÐA 3
Tveir af forsvarsmönnum hins nýja blaðs, Tryggvi Hansen og
Guttormur Sigurösson, en hann er ritstjóri blaðsins.
Nýtt síðdegisblað
Nýtt siðdegisblað hóf göngu
sina f gær. Blað þetta, sem gefiö
er út af Sóteyjarsamtökunum i
Reykjavik, mun þó fyrsta kastiö
a.m.k. ekki koma út nema einu
sinni I viku hverri, en vonast er
til að blöðum fjölgi eftir þvi sem
útgáfustarfseminni vex fiskur um
hry gg.
Talsmenn hins nýja blaðs, sem
ber heitið Siðdegisblaöið, sögðu á
blaðamannafundi sem haldinn
var i gær i húsakynnum Sóleyjar-
samtakanna, að blaðið myndi að
mestu leyti fylgja eftir megin-
markmiöum samtakanna, sem
væru að berjast gegn efnahagsi-
tökum auðhringa, auka viðsýni og
gildismat hins almenna borgara,
berjast gegn stóriðjufram-
kvæmdum i þeirri mynd sem þær
kæmu fyrir i dag o.s.frv. Þá vilja
samtökin beita sér fyrir þvi að
tslendingar nái fullkominni yfir-
stjórn á vörnum landsins og aö
auki vilja þau skera upp herör
gegn mörgu þvi menningar-
glundri sem flæðir yfir þjóðina og
ógnar öllu frumkvæði okkar i
menningarmálum, eins og það er
orðaö I stefnuyfirlýsingu samtak-
anna.
Hið nýja rit er unniö I sjálfboða-
vinnu, en ritstjóri þess er Gutt-
ormur Sigurðsson. Ritstjórn
skipa meölimir samtakanna sem
samkvæmt upplýsingum munu
vera á bilinu 10-20 talsins. A-
byrgðarmaður er Sigmar E.
Arnórsson. Forsvarsmenn blaðs-
ins töldu það ekkert tiltökumál að
hefja útgáfu á nýju riti og kváðu
kostnað sama sem engan.
Sóleyjarsamtökin hafa reyndar
veriö tengd hinum alþjóðlegu
Anada Marga samtökum, en for-
svarsmenn blaðsins höfnuöu
þeim tengslum.
Blaöið er ekki ýkja stórt, 4 siður
alls, en það atriöi mun standa til
bóta með kaupum á prentvélum.
Megin uppistaða hins nýja blaðs
er almenn umræða um þjóö-
félagsmál, en i skúmaskotum
þess má finna ábendingar um
hvernig bæta megi mataræði, s.s.
með neyslu jurtafæðu.
—hól.
/
Landsliðsflokkur á Skákþingi Islands
Guðmundur Pálmason
hugsanlega með á ný
Landsliðsflokkur á Skákþingi
islands fyrir árið 1982 verður
háður i Norræna húsinu og fer
fram dagana 2.-14. aprll. Mjög
verður vandað til mótsins og þess
má geta að hugsanlegt er að
Guðmundur Pálmason, einn
sterkasti skákmaður islendinga
um árabil, verði meðal þátttak-
enda. Iiann hefur ekki teflt á
opinberu skákmóti siðan 1966.
Verðlaun i landsliðsflokki nema
samtals 34 þúsund krónum. 1.
verðlaun verða 15þús.,2. verðlaun
9 þús. krónur, 3. verðlaun 6 þús.
krónur,4. verðlaun 3. þús krónur.
Keppni i öðrum flokkum á skák-
þingi verður háð i skákheimili
Taflfélags Reykjavikur að
Grensásvegi 46dagana 3-12. april
höl.
I----------------------------------------
! Framleiðslusamvinnufélag iðnaðarmanna:
jBauð lægst í
iSultartanga
ISmiði og uppsetningu á lokum ásamt tilheyrandi búnaði fyrir
Sultartangastiflu skal framkvæma á þessu og næsta ári. A föstu-
daginn siðasta voru opnuð tilboð til þessa verks hjá Landsvirkjun og
reyndist Framleiðslusamvinnufélag iðnaðarmanna vera með tvö
I lægstu tilboðin.
I Eftirfarandi tilboð bárust i verkið:
I Bjóðcndur
I* Framleiðslusamvinnufélag iðnaðarmanna
Framleiöslusamvinnufélagiðnaðarmanna
Vélsmiðjan Stál h .f.
• Landssmiðjan
IVevey SA
GanzMávag
Stálsmiðjan h.f.
• VélsmiðjaOrmsog Viglundars.f.
IZschokke Wartman AG
Stálsmiðjan h.f.
Newton Chambers Eng. Ltd.
• Sorefame
IGránges Hedlund
Normi h.f.
Glenfield & Kennedy Ltd.
■ SumitomoCorporation
Tilboðsfjárhæð
ikrónum (gengi 12.03.82)
7.883.300
8.694.646
8.806.000
9.337.200
9.741.857
9.770.031
9.929.682
10.170.132
10.599.340
10.759.909
11.207.827
11.480.570
13.461.772
14.391.720
14.901.233
16.324.103
Aætlun ráðunauta Landsvirkjunar
10.889.000
L
Tilboðin verða könnuð nánar með tilliti til útboðsgagna og borin
endanlega saman. Að þvi loknu mun stjórn Landsvirkjunar taka af-
stöðu til þeirra.
/