Þjóðviljinn - 17.03.1982, Side 7
MiOvikudagur 17. mars 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Umbætur að hefjast
á horni Lækjargötu
og Bókhlöðustágs
Svona litur horniO út i dag.
Byrjað að smíða
y erðlaunagö gnln
,,Umhverfismálaráö
Reykjavikur efnir til
samkeppni um uppdrætti
af götugögnum til nota á
strætum og torgum
Reykjavikur, skv. út-
boöslýsingu þessari og
gildandi samkeppnisregl-
um Arkitektafélags ís-
lands."
„ Heitiö götugögn er hér
valið með hliösjón af orð-
inu húsgögn, sem allir
þekkja."
Svo segir i verkefnislýsingu i
samkeppni þeirri um götugögn,
sem efnt var til, til að leita eftir
hugmyndum að nytjahlutum i
umhverfi okkar, sem gætu auk-
ið á gildi torga, garða og gatna
borgarinnar, ,,i þeirri vissu að
fallegt og notalegt umhverfi
hafi jákvæð áhrif á alla okkar
liöan”, eins og segir i niðurstöð-
um dómnefndar.
Svo sem sagt hefur verið frá i
fréttum hefur dómnefnd i sam-
keppninni nú skilað niðurstöð-
um. Voru veitt þrenn verðlaun
og samþykkt að kaupa að auki
tvær tillögur. Fyrstu verðlaun i
samkeppninni hlutu þau Dagný
Helgadóttir, arkitekt og Sigurð-
ur Hallgrimsson bygginga-
fræðingur. Við ræddum stutt-
lega við þau um tillögu þeirra:
Sigurður og Dagný taka viö
verölaununum úr hendi Hjör-
leifs Stefánssonar, formanns
dómnefndar.
,,Við völdum hornið á Lækjar-
götu og Bókhlöðustig, þar sem
okkur sýndist tilvalið að reyna
að lifga upp á það og bæta aö-
stöðuna fyrir fólk sem þarna fer
um eða biður eftir strætisvögn-
um. Götugögnin sem við teikn-
um fyrir þetta horn má nota
viðar, enda gert ráð fyrir að
setja megi upp t.d. bekki, ljós-
ker og fleira úr teikningunni á
öðrum stöðum. Við erum með 3
litamöguleika, þannig að hægt
er að velja úr eftir þvi hvar i
bænum götugögnin eru sett
upp,” sagði Sigurður og Dagný
bætti við:
„Það hefur nú verið ákveðið
að hefja smiði á götugögnum
fyrir hornið i Lækjargötunni, en
eins og Sigurður sagði er gert
ráð fyrir að hægt sé að koma
«• <;
<\A ■ 7
þessum hlutum fyrir á fleiri
stöðum.
Við höfum byggt hugmynd
okkar i kringum strætisvagna-
skýli eins og það sem stendur
annars staðar i Lækjargötunni
og gert ráð fyrir að hlutirnir
sem við teiknum falli vel að um-
hverfinu þarna. Við gerum ekki
ráð fyrir neinum meiriháltar
breytingum á garðinum, en
smávegis lagfæringum. Trén og
gróðurinn verður allt óhreyft.”
Við spurðum þau Dagný og
Sigurð hvort ekki væri erfitt aö
vera tvö um svona tillögugerð.
Bæði svöruðu neitandi, en
töldu að reynsla þeirra i dag-
legu samstarfi (þau vinna á
sömu teiknistofunni) og sú
staðreynd að þau eru bæöi
menntuð i Danmörku, hefði gert
þessa vinnu tiltölulega létta og
árangursrika. Þess má geta að
þetta er i þriðja sinn sem Dagný
hlýtur verðlaun i opinberri sam-
keppni, en hún hefur áður hlotið
verðlaun (ásamt með ólafi
Sigurðssyni og Guðmundi Kr.
Guðmundssyni) fyrir teikningar
af húsum við Eiðsgranda og
einnig hlaut hún önnur verðlaun
i samkeppni um safnahús i
Borgarnesi. ,
A fundi i Umhverfismálaráði i
s.l. viku var ákveðið að veita 360
þús. krónum i að hefja smiði
bekkja, ljóskera, ruslakörfu,
veggspjaldasúlu og blómakerja
sem væntanlega verður svo
komið á sinn stað á horninu við
Lækjargötuna fyrir sumarið.
— þs
Svona á hornið aö líta út samkvæmt tillögunni.
Torg
Strætisvagnar
Svarfdælir
Ræða um riðuveikina
Kiöuveiki hefur aö undanförnu
herjað töluvert á sauðfé Svarf-
dæla og raunar gert sig heima-
komna viöar i byggðum Eyfirö-
inga. Siöastliöinn föstudag boö-
uðu búnaöarfélög Svarfdæla og
Dalvikur til fundar aö Grund þar
sem rætt var hvernig bregöast
skyldi viö þessum vágesti. Jó-
hann Ólafsson, á Ytra-hvarfi for-
maður Búnaöarfélags Svarfdæla
sagöi okkur aö um 70 manns
heföu mætt á fundinum, þar á
meöal Sigurður Siguröarson,
dýralæknir.
Jóhann ólafsson kvað riöuveik-
ina hafa verið aðsópsmikla i
Svarfaöardal undanfarin ár en þó
einkum I vestanverðum dalnum.
Hefði hennar orðið vart á um
helmingi bæjanna og breiddist
alltaf fremur út. Á sumum bæjum
væru vanhöld af völdum veikinn-
ar oröin mjög veruleg.
Fundurinn samþykkti að skipa
nefnd er heföi með höndum aö
gera tillögur um aðgerðir jafn-
framt þvi sem þeirri áskorun var
beint til sýslunefndar og stjórnar
Búnaðarsambandsins að þessir
aðilar sæju um að kosnar yröu
eða skipaöar „riðunefndir” i
hverjum hrepp sýslunnar, svo
sem lög mæla raunar fyrir um.
—mhg
SIS selur eign
ir sínar við
Grandaveg
Nýlega var gengið frá samn-
ingum viö Reykjavikurborg um
aö hún keypti mestan hluta af
eignum Sambandsins viö
Grandaveg.
Nánar til tekið er um að ræða
allar vörugeymslur Skipadeildar,
þar og um 9 þús. ferm. lóð, en
Sambandið á enn 4 þús. ferm lóð
þar. Jafnframt var gengiö frá
leigusamningi þess efnis, að
Skipadeild hefur áfram afnot af
þessum eignum þar til aðstaöan
viö Holtabakka verður tilbúin til
notkunar. —mhg.