Þjóðviljinn - 17.03.1982, Page 16
DIÚÐVUHNN
Miðvikudagur 17. mars 1982.
Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-2« mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn
hlaðsins i þessum stmum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbroí
8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i'af-
greiðslu blaðsins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og
eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 Í1348 afgreiðslu 81663
Engum samningum
- lögmæti kannað
segir Hjörleifur Guttormsson
Endurteknar hvatn-
ingar utanrikisráðherra
tii Almennu verkfræði-
stofunnar um málshöfð-
un á hendur iðnaðar-
ráðuneytinu hafa vakið
furðu. Við leituðum um-
sagnar Hjörleifs Gutt-
ormssonar um þetta
mál:
— Ósk min um að dokaö væri
við með framkvæmd þessa samn-
ings á milli Orkustofnunar og Al-
mennu verkfræðistofunnar var
fram borin til þess að ráðrúm
gæfist til að kanna lögmæti þess-
ara samninga, sem varða rann-
sóknir og hönnunarundirbúning i
mjög umdeildu máli, sem kunn-
ugt er.
— Hvaða atriði er þarna um að
ræða?
— Það eru m.a. atriði er varða
skipulagsmálin og stöðu þeirra
svæða sem samningarnir ná til
með tilliti til skipulagsákvæða.
— Þurfa erlendir aðilar ekki
sérstakt leyfi til að framkvæma
rannsóknir hér á landi?
lijörleifur Guttormsson
rift
— Þaðeratriði sem getur skipt
máli i þessu samhengi, en hefur
ekki ennþá verið athugað sér-
staklega.
Égleggáherslu á að ráðuneytið
hefur alls ekki rift þessum
samningum eins og gefið hefur
verið i skyn af talsmönnum utan-
rikisráðuneytisins og þrástagast
hefur verið á i Morgunblaðinu.
Það hefur jafnframt komið fram
af hálfu Orkustofnunar, að hún
telur ekki ástæðu til að ætla annað
en aðhún geti lokið verkinu á um-
sömdum tima, þótt þessi athugun
á vegum ráðuneytisins taki ein-
hvern tima.
— Þú býst þá ekki við lögsókn
vegna málsins?
— Ég teldi slikar aðgerðir með
öllu tilefnislausar, en hitt er ekki
siður ósvinna að látið er að þvi
liggja af talsmanni varnarmála-
deildar að erlendir aðilar verði
settir i þetta verk fyrirvaralaust.
—ólg
Lést af völdum
reykeitrunar
Ungur maöur, Garðar Ingi
Reynisson, lést af völdum reyk-
eitrunar i Grindavik um helgina.
Eldur kom upp i ibúðarherbergi
hans i verbúð Hafrenningarinnar
hf. i Grindavik.
Hann var látinn er að var komið
á sunnudagsmorgun. Garðar Ingi
var 19 ára gamall og átti lögheim-
ili i Kefiavik.
Alvarlegt
slys
í Eyjum
Alvarlegt vinnuslys varð i tsfé-
lagi Vestmannaeyja á mánudag.
Ungur maður við störf á lyftara
fékk yfir sig stæðu af kössum og
Landverndarmenn á fundi með fréttamönnum, frá v.: Ólafur R. Dýrmundsson, landnýtingarráöunaut-
ur Búnaðarfélags tslands, Gunnar Oddsson I Flatatungu, Eymundur Þórarinsson I Saurbæ, Kristján
Sigurpálsson, Birkimel, Þórarinn Magnússon, Frostastöðum, Guðrlður B. Helgadóttir, Austurhlíð og
Sigurgeir Hannesson, Stekkjardal. Mynd:—eik.
Stjórn Landverndarsamtaka vatnasvæðis Blöndu og Héraðsvatna
Ræðlr við ráðamenn
slasaðist hann allmikið.
Ungi maðurinn var að störfum i
frystiklefa hússins er slysið varð.
Hrundu kassarnir úr 5 metra hæö
og slasaðist maðurinn bæði á
höföi og i baki. Hann liggur nú á
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
—v
— Landverndarsamtökin vekja
sérstaklega athygli á, að sam-
kvæmt þeim samningum, sem nú
hafa verið undirritaðir skuldbind-
ur virkjunaraðili sig til þess að
hefja starfrækslu Blönduvirkjun-
ar með 220 Gl. miölun. Vatns-
iniðlun við Blöndu verði svo ekki
ÍDeila starfsfólks ríkisverksmiðjanna
j og vinnumálanefndar:
Vmnumálanefnd :
athugar kröfumar
„Viöræður okkar við fulltrúa
a vinnumálanefndar eru I hálf-
Igildings biðstöðu eins og sakir
standa. A fundi hjá sáttasemj-
ara á föstudaginn ræddum við
málin og lögðum okkar kröfur
a fram og þær eru nú I athugun
Ihjá vinnumálanefnd,” sagði
Halldór Björnsson hjá Dags-
brún er Þjóðviljinn innti hann
a eftir fréttum frá viöræðum
starfsfólks rlkisverksmiðjanna
og vinnumálancfndar, en þeim |
var visað til sáttasemjara I sið- a
ustu viku.
Halldór kvaðst eiga von á að I
athugun vinnumálanefndar tæki I
ekki of langan tima og viðræður I
gætu hafist i vikunni.
„Krafa okkar númer eitt, tvö ■
og þrjú er sú aö við fáum sam- I
ræmingu við Grundartanga- I
samninginn svokallaða,” sagði ,
Halldór. —hól. ■
aukin fyrr en nauðsynlegt er
vegna þarfa i landskerfinu.
Svo mæltist stjórnarmönnum
Landverndarsamtaka um vatna-
svæði Blöndu og Héraðsvatna á
fundi með fréttamönnum i gær.
— Hér er boðið upp á tilhögun I
með minni miðlun, segja þeir
norðanmenn ennfremur. Þeir
teija, að þó að orðalag samnings-
ins sé viða óljóst verði að ætla, að
virkjunin verði starfrækt eitt-
hvert árabil með þessari miðlun.
Fjármálaráðherra hefur skýrt
þetta ákvæði svo, að hér væri um
að ræða 5 ára timabil. Hrepps-
nefndarmenn i Lýtingsstaða-
hreppi, sem undirrituðu samn-
inga setja það sem skilyrði, að
ekki verði hækkað í lóninu fyrr en
reynsla er komin á notagildi upp-
græðslu og sá reynslutimi hlýtur
að vera nær 10 en 5 árum. Fyrst
virkjunaraðili býðst til að ganga
til samninga um tilhögun I með
minni miðlun, er það einföld
krafa Landverndarsamtakanna,
að miðlun verði færð að Sandár-
höfða eða virkjað verði eftir til-
högun II með sömu miðlun og nú
er í boði, með 220 Gl. Með þvi yrði
lónsstærðin um 27 ferkm. og
gróðureyðing minnkaði um 50%,
sögðu talsmenn Landverndar-
samtakanna. Kostnaður við þá
tilhögun yrði aðeins 3% hærri en
við tilhögun I með sömu miðlun,
samkv. skýrslu VST frá 6/4 1981.
Sámunur jafnaðist að fullu vegna
minni bótagreiðslna og auk þess
fengist 10% betri nýting á
miðlunarorku vegna minna yfir-
borðs á lóninu. Skaðleg um-
hverfisáhrif frá lóninu minnkuðu
einnig i hlutfalli við minna yfir-
borð.
Um þá lausn, sem hér er kraf-
ist, ættu allir að geta sameinast
og hér er i raun sú eina lausn, sem
hægt er að ná um viðunandi sam-
stöðu og samkomulagi um sögðu
landverndarmenn.
1 tillögu þeirri um Blönduvirkj-
un, sem nú liggur fyrir Alþingi, er
ekki gert ráð fyrir öðrum verk-
framkvæmdum á þessu ári, fyrir
utan verkhönnun og gerð útboðs-
gagna, en vinnu við tilraunagöng,
vegagerð, lagningu vinnuraf-
magns, sima og uppsetningu
vinnubúða. Þessar framkvæmdir
er eins hægt að vinna þótt stifla
verði færð.
I dag gerðu landverndarmenn
ráð fyrir að ræða við iðnaðarráð-
herra, samgönguráðherra, land-
búnaðarráðherra og þingflokk-
ana. —mhg
jSérleyfishafar
láAust^öröum
'hætta starf-
Isemí sinni
Nú liggur fyrir álit
I skipulagsnefndar um
| fólksf lutninga varð-
■ andi leyfi til ferða yfir
I sumartímann á milli
» Mývatns og Seyðis-
J fjarðar annarsvegar
I og Seyðisfjarðar og
| Hafnar i Hornafirði
* hinsvegar. Nefndin
I hefur gert tillögu til
| samgöngumálaráð-
. herra» Steingríms Her-
I mannssonar, um að
I leyfi þessi verði endur-
J veitt til Ferðaskrif-
■ stofu Akureyrar og
I Austurleiða á Hvols-
I velli. Ferðaskrifstofa
J Akureyrar á sam-
] kvæmt tillögu nefndar-
I innar að fá leið: Mý-
■ vatn — Seyðisf jörður
og Austurleiðir fá þá i I
sinn hlut: Seyðis- '
fjörður— Höfn. Vegna
■ tillögu skipulagsnefnd-
Iarinnar hafa Sér-
leyfishafar á Aust-
■ f jörðum nú tilkynnt að
Ifrá og með mánudeg-
inum, 15. mars, séu
, þeir hættir öllum ferð-
Ium um Austfirði.
Vegna máls þessa sneri
Þjóðviljinn sér til Helga
■ Seljan sem vildi að eftirfar-
Iandi kæmi fram: „Það er
full ástæða til að benda á að
Sérleyfishafar á Austfjörð-
• um hafa mörg undanfarin ár
Ihaldið upp samgöngum um
alla Austfirði, yfirhöfuð við
erfið skilyrði. Sérleyfishafar
■ hafa i samvinnu við Aust-
Ifirðinga byggt upp öflugt
þjónustukerfi og þvi er það
álit okkar þingmanna
• Austurlandskjördæmis, að
Iþessi leyfi til flutnings til og
frá Seyðisfirði, séu best
komin hjá Sérleyfishöfum.
■ Mergurinn málsins er sá,
Iað fólksflutningar þangað
eru afar tiðir yfir sumartim-
ann, einkum og sérilagi
• vegna ferða Smyrils og það
Ier i hæsta máta óeðlilegt að
þessir tveir aðilar, þ.e.
Austurleiðir og Ferðaskrif-
■ stofa Akureyrar, skuli ná
Igróðatoppnum á meðan
engar aðrar kröfur eru
gerðar til þeirra á hinum
■ erfiðu ferðum um Austfirði.
IEnn sem komið er þá er
málið i biðstöðu, þvi Stein-
grimur Hermannsson, sem
• tekur afstöðu til tillögu
Iskipulagsnefndarinnar, seg-
ist ekki veita ferðaleyfin
fyrr en eftir viðræður við
* fulltrúa Sérleyfishafa. Þær
Iviðræður fara fram ein-
hverntimann i vikunni,”
sagði Helgi.