Þjóðviljinn - 17.04.1982, Side 15
Helgin 17.—18. aprO 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Drykkjuskapur kvenna getur verið til marks um sjálfstæði þeirra.
getið, þegar ritaö er um Chart-
ismann, þennan forvera Verka-
mannaflokksins að margra áliti?
Jú, segir Dorothy, það er einmitt
vegna þess að menn vilja gera
hreyfinguna forvera Verka-
mannaflokksins, að kvenna er aö
engu getiö. Sagnfræðingar vilja
gefa hreyfingunni virðulegt yfir-
bragð — og það segir sig sjálft,
ekki satt, að hreyfing sem hefur
fjölda kvenna innan sinna vé-
banda gott ef ekki i fylkingar-
brjósti á stundum — sú hreyfing
getur ekki verið virðuleg. Þá má
einnig minnast þess, að flestar
bækur um Chartismann eru skrif-
aðar á timum þar sem konur eru
ekki taldar til manna. Það
„gleymdist” þvi einfaldlega að
geta þáttar kvenna — eða þótti
ekki skipta máli.
Ummerkin um
þátttöku kvenna
Dorothy vék þvi næst að þvi aö
tina til dæmi úr sögunni um þátt-
töku kvenna i Chartismanum. Og
þar reyndist af mörgu að taka.
Dorothy hefur fundið i heimild-
um, aö árið 1839 hafi verið 70
kvenfélög, hvorki meira né minna
i hreyfingunni. Ariö 1847 er þess
getið i einni heimild, að fram-
bjóðandi Chartista hafi þegið te-
boð eftir kosningarnar og heim-
ildin getur sérstaklega, að fjöldi
kvenna hafi verið þar saman-
kominn með græna skýluklúta
eða hálsklúta til að fagna kosn-
ingunum.
Dorothy getur þess, að margar
heimildir eru til um hvernig búð-
areigendur og kráareigendur
voru meðhöndlaðir, allt eftir þvi
hvort þeir voru Chartismanum
vilhollir eöa ekki. Konur fóru þar
framarlega i flokki, og dæmi eru
um, aö þær hafi tekið saman lista
um vonda kaupmenn og látið þá
ganga.
Annað dæmi er, að árið 1839
tóku Chartistar sig til og héldu inn
i sóknarkirkjurnar og settust þar
sem þeim sýndist án þess að
spyrja prest. Þá var það þannig,
að menn þurftu að borga fyrir góð
sæti og verkalýðurinn — hann gat
sko staðið aftast og þagað i kirkj-
um sem annárs staðar. En nú
hélt þessi sami lýöur inn i kirkj-
urnar, settist I sæti annarra og fór
jafnvel fram á aö prestlingurinn
legöi út af alveg ákveönum texta.
Eitt dæmi er um, aö kvennahópur
hafi farið þannig að i a.m.k. einni
kirkju, án þess að karlmenn
kæmu þar nokkuð nærri.
Arið 1842 hélt breskt verkafólk
sinn siöasta stórfund. Það ár
komst Bretland næst þvi að hafa
uppiifaö allsherjarverkfall I iðn-
aðarhéruðum landsins. Annað
eins umrót og jrfri viðtækt hefur
ekki átt sér stað siðan.
1 Halifax steðjaði verkafólk inn
i allar verksmiðjur og stöðvaði
vélarnar.Ein samtimaheimild get-
ur þess, aö 5000 manns hafi farið i
einni fylkingu þessara erinda.
Þar stóðu konur fremst og það
voru þær sem sýndu af sér mesta
dirfsku og ögruöu lögreglumönn-
um af fullu kappi.
Dregur úr
umsvifumkvenna
Myndin sem heimildirnar gefa
er skýr, segir Dorothy. Konur
voru meö — konur voru virtar til
jafns við karla — konur voru á-
berandi innan hreyfingarinnar —
þær tóku fullan þátt i flestum að-
gerðum og áttu jafnvel stundum
frumkvæðiö.
Einhvers staöar við enda ára-
tugarins 1840-1850 fór siðan að
draga úr umsvifum kvenna. Þær
detta siðan úr sögunni og á siöari
hluta aldarinnar fer fjarska litiö
fyrir konum innan Chartismans
sem annars staðar. Nú beinast
kröfur kvenna aö pólitisku jafn-
rétti og þar koma efri stéttar- og
millistéttarkonur helst við sögu.
Blaöaskrif kvenna um fátækt, illa
meðferð og barnaþrældóm, sem
voru svo mikil á árabilinu 1834 -
1840, hverfa nú nær alveg; a.m.k.
komast þau hvergi nærri þvi
magni sem áöur var. Sömu sögu
er að segja af kröfugöngum og
fundum kvenna um þessi sömu
mál.
Breytingar
á hreyfingunni
Þá er að velta fyrir sér skýring-
um á þessari breytingu. Hvað
veldur þvi, að konur hverfa svo
skyndilega og nær að fullu og öllu
úr hreyfingu Chartista?
Dorothy sagðist geta varpað
fram þrenns konar skýringum,
sem að sinu mati væru heldur
léttvægar, en mætti taka til at-
hugunar.
1 fyrsta lagi gerðist hreyfingin
miklu harðari en áður og barátt-
an sömuleiðis. Lögreglan fór að
koma fram með meira offorsi og
meiri hætta varð þvi á slysum á
fundum og i kröfugöngum. Þessi
þáttur kann að hafa fælt konur
frá.
1 ööru lagi jókst skrifræði
hreyfingarinnar mjög á þessum
tima. Miðstýringu var komiö á,
félagatali með félagsgjöldum og
ýmsu öðru, sem slikri stýringu
fylgir. Þetta fyrirkomulag var
mjög óhentugt fyrir ýmsa hópa
sem ekki voru i reglulegri vinnu,
svo sem irsk þjóðarbrot og konur.
Þeir hópar gátu ekki borgað fé-
lagsgjöld reglulega og hurfu þvi
af sjónarsviði hreyfingarinnar.
I þriðja lagi breyttist pólitikin
og áróöurinn I þjóðfélaginu mjög.
Komin voru til sögunnar mjög
sterk öfl, sem lögðu alla áherslu á
bliðu konunnar og „kvenlega”
eiginleika aðra. Óhemju magn af
blööum um þetta efni var gefiö út,
segir Dorothy. 1 þeim var gassa-
gangur kvenna i verkalýðsstétt
mjög gagnrýndur en konur þar
höfðu unnið sér þann orðstir aö
vera kjaftforar meö afbrigðum og
sinna ekki sinum heimilum. Þá
var einnig barist hart gegn
drykkju kvenna og fór þar bind-
indishreyfingin aö sjálfsögðu
fremst i flokki, en innan hennar
voru konur einmitt mjög áber-
andi. Dorothy nefnir sem dæmi
um þennan bátt, að á fyrri hluta
aldarinnar sáust konur jafnt sem
karlar lyfta bjórglösum á teikn-
ingum. Þvi er ekki að heilsa á sið-
ari helmingi aldarinnar. Þá voru
konur komnar „heim”.
Þetta voru þó smámunir hjá
hinu, sem gerðist innan veggja
heimilisins, segir Dorothy. Vinn-
an, þessi grundvallarþáttur
mannlifsins, fluttist nefnilega á
brott og inn i sérstök húsakynni,
fjarri heimilum manna.
Aður fyrr tóku konur fullan þátt
i vinnu karla sinna, þótt ekki
hlytu þær iönmenntun og starfs-
þjálfun. Vinna karlanna var inn-
an veggja heimilanna og allir
heimilismenn þekktu til hennar
og gátu jafnvel tekið til hend;ekki
sist eiginkonurnar, þegar karlinn
þurfti að bregða sér frá.
Þróunin gekk hins vegar i þá átt
að aðskilja þetta tvennt, eöa öllu
heldur að færa allt til aukins sam-
ræmis fjöldaframleiðslunnar.
Brátt fór karlinn aö hverfa að
heiman lungann úr deginum til
vinnu, sem spúsa hans kunni ekki
lengur skil á. Umræöur um vinn-
una uröu þvi heldur litlar. Karl-
inn og konan hættu aö kunna skil
á hvors annars verkum.
Þótt útivinna kvenna hafi veriö
meiri en hægt er að fá heimildir
um i t.d. manntölum, vill Dorothy
meina að sú vinna hafi ekki fært
konum neina mannviröingu. Þær
unnu mikil láglaunastörf, svo
sem við skúringar og þvotta, og
langflestar voru þjónustustúlkur.
Heimili manna verða nú ein-
vöröungu heimili. Starf kvenna
léttist til muna, þvi nú þurftu þær
ekki að kunna skil á öllum hlutum
— en um leið minnkaði virðing
þeirra i mannfélaginu. Völd
kvenna minnkuðu tökin á börnun-
um og uppeldi þeirra hvarf mikið
til skólanna, sem komu til sög-
unnar á siðari hluta aldarinnar,
eða um leiö og þessar breytingar
allar áttu sér stað. Hlutverk skól-
anna er alls ekki aö kenna börn-
um að lesa eða skrifa, segir Dor-
othy — heimildir þessara tima
eru besta vitniö um það. Skólarn-
ir voru settir á laggirnar til þess
að vaka yfir siðgæði manna — og
menn sögöu það hreint út þá.
Hugmyndir mæðranna tóku aö
dynja á daufum eyrum barnanna.
A siðari helming 19. aldarinnar
eru allar hreyfingar fyrir karla
eingöngu. Innan þeirra fór litiö
fyrir konum — ef þær á annað
borð voru nokkuö með. Völd
þeirra fóru þverrandi og virðing
er ekki borin fyrir konum.
Hvað getum
við lært?
Þessi saga felur i sér mikla
reynslu og lærdóm eins og allar
góðar sögur. Hún felur m.a. i sér
ábendingu til kvennasögurýn-
enda um það, aö i guðanna bæn-
um skyldu menn rýna i fleira en
kosningaréttinn einan og kröfuna
um pólitiskt jafnrétti kynja. Hún
felur i sér ábendingu um þaö, aö
völd kvenna geta verið mikil þótt
þeirra sé i engu getið i lagaheim-
ildum. Lög eru eitt og þjóðfélög
annað.
Sú spurning var borin fram i
lokin til Dorothy Thompson hvort
saga kvenna i hreyfingu Chart-
ista á 19. öldinni feli kannski i sér
þá visbendingu, að auöveldara sé
fyrir konur aö taka þátt I smáum
einingum en stórum — svonefnd-
um „grasrótarhreyfingum” þar
sem miöstýring er litil ef nokkur
og þar sem allir þekkja alla.
Dorothy sagðist svara spurn-
ingunni hiklaust játandi. Konur
séu t.d. ekki áberandi á breska
þinginu, en i bæjar- og sveitar-
stjórnum séu þær öllu fleiri og
hafi ávallt verið.
Dorothy sagðist einnig bera
kviðboga fyrir þjóðfélögum á
borð við Amerfku og Indland.
Stærð þjóðfélaganna, svo og sú
pólitik sem rekin er, býður ekki
upp á starfsemi kvenna.
Þá var hún einnig spurð hvers
vegna svo fáar konur tækju þátt i
pólitikinni nú þrátt fyrir fullan
kosningarétt og rétt til að ráða
eignum sinum sjálf.
Ef kona tekur sér ekki félags-
hlutverk karls, getur hún ekki
staöið i póiitlsku starfi, segir Dor-
othy. Hún verður sem sé að afsala
sér heimili og börnum. Starf
þingmanna er t.d. sniðið aö karl-
mönnum — þing byrjar ekki fyrr
en kl.2 á daginn og fundir standa
siðan fram á miðnætti. Engin
kona með börn getur unað þess-
um vinnutima.
— Þarf þá ekki að breyta starf-
inu?
Jú, vissulega.Undir það getum
við öll tekið.
— ast.
4=^. Alþydubanklnn hf
Aðalfundur
Alþýðubankans h/f árið 1982 verður hald-
inn i Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavik, laug-
ardaginn 24. april 1982 og hefst kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins er:
a) Venjuleg aðalfundarstörf i samræmi
við ákvæði 18. gr. samþykkta bankans.
b) Samþykktir og reglugerð bankans.
c) Tillaga um heimild til bankaráðs um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæða-
seðlar verða afhentir i aðalbankanum,
Laugavegi 31, dagana 20.,21. og 23. april
n.k. og við innganginn á fundarstað.
F.h. bankaráðs Alþýðubankans h/f
Benedikt Daviðsson, formaður
Þórunn Valdimarsdóttir, ritari.
Afgreiðslustarf
Óskum eftir að ráða starfsmann, til fram-
búðarstarfa við afgreiðslu á varahlutum.
Enskukunnátta svo og þekking á vélum
æskileg.
Umsóknareyðublöð hjá starfsmanna-
stjóra, er veitir nánari upplýsingar.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉ1AGA
STARFSMANNAHALD
Tfl sölu
MinoltaXD-7 myndavél, 135 mm linsa f2.8
(Vivitar), 35 mm linsa f2.8 (Minolta), 500
mm linsa fl.7 (Minolta), Auto winder,
zoom flass (Vivitar 285) og taska. Upplýs-
ingar isima 36513.
^|ÚTBOЧ||
Tilboð óskast i að leggja Reykjaæð 1, endurnýjun á Ar-
túnsholti.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi
3 gegn 1.500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á
sama staðmiövikudaginn 28. apriln.k. kl. 11 f.h.
INIMKAUPASTOFNUN REYKJ AVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Búðarhreppur
Fáskrúðsfirði
óskar eftir að ráða verkstjóra.
Umsóknarfrestur er til 25. april.
Upplýsingar i sima 97-5220.
Rafmagnsverkfræðingur
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen
óskar að ráða sterkstraumsverkfræðing
til starfa sem fyrst.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
ARMÚU 4 REYKJAVlK SlMI 84499