Þjóðviljinn - 17.04.1982, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 17.04.1982, Blaðsíða 30
30 StÐA — ÞJÓÐVIL'JINN Helgin 17.—18. april 1982 Verðlaun veitt fyrir skipulagstil-1 lögur að íþrótta - og útivistar-1 svæði í Suður- Mjódd Arkitektarnir Guðni Pálsson og Dagný Helgadóttir hlutu i gær fyrstu verðlaun i hugmyndasam- keppni Reykjavikurborgar um skipulag iþrótta- og útivistar- svæðis I Suður-Mjódd. t umsögn dómnefndar segir m.a. að tillaga þeirra geri heildarskipulagi mjög góð skil og sýni jafnframt frumleika og hugmyndaauðgi. Alls bárust 12 tillögur i samkeppnina og voru 11 þeirra teknar gildar. 5 tillögur voru verölaunaðar og hefur dómnefnd gert það aö tillögu sinni, að höf- undum þeirra allra verði gefinn kostur á að taka þátt i samkeppni um nánari útfærslu skipulags i Suður-Mjódd og hönnun helstu mannvirkja á svæðinu. Keppendum vord gefnar mjög frjálsar hendur viö úrlausn verk- efnisins og lét dómnefndin heild- aryfirbragö tillagna og áberandi kosti ráöa meiru viö mat þeirra en hvort tillagan fullnægði i smá- atriðum öllum kröfum. Athyglisvert við veröiaunatil- lögur þeirra Guöna og Dagnýjar er, að hún byggir skipulag svæð- isins að verulegu leyti á tjörnum og vatnavegum, sem ganga eftir endilöngu svæðinu. ,,Þaö er litil á fyrir á þessu svæði og við leyfðum okkur að færa það i nyt, og tengja það I beinu framhaldi af skauta- svelli sem gert er ráö fyrir I út- boðsgögnum”, sögðu verölauna- hafarnir i örstuttu spjalli I gær, þegar verðlaun voru afhent, en sýning á verðlaunatillögum verð- ur um helgina á Kjarvalsstöðum Frumlegar og merkar 1 verölaunatillögu þeirra Guðna og Dagnýjar er gert ráð fyrir að syösti hluti svæðisins veröi ein- göngu helgaður útivist — skokk- brautir, hjóla- og göngustigar I breytilegu landslagi. Knatt- spyrnuvöllum, tennisvöllum og öðrum æfingasvæðum auk litils útileikhúss og sundlaugar. Þá er gert ráð fyrir stórri iþróttamið- stöð sem er hugsuö sem keppnis- og sýningarhöll og með aðstöðu til tónleikahaids og annarra listvið- burða, en i tengslum við aðal- iþrótta- og samkomuhús eru hugsaðar smærri iþróttahallir fyrir hinar ýmsu iþróttagreinar. 2.verðlaun I samkeppninni hlutu arkitektarnir, GIsli Halldórsson, Halldór Guðmunds- son, Jósef Reynis, og Bjarni Mar- teinsson. 3. verðlaun hlutu arki- tektarnir, Börkur Bergmann, Geirharður Þorsteinsson, Hró- bjartur Hróbjartsson, Richard Briem og Sigurður Björgúlfsson. Þá voru einnig keyptar tvær til- lögur. Annars vegar eftir arki- tektana Hilmar Þór Björnsson og Finn Björgvinsson og hins vegar eftir arkitektana Björn Kristleifs- son og Þórarinn Þórarinsson. -»g- Verðlaunahafarnir: arkitektarnir Guðni Pálsson og manni Þjóðviljans á Kjarvalsstöðum i gær. Dagný Helgadóttir kynna tillögur sinar fyrir blaða- Mynd — gel. Þróttmlkið þlng iðn- verkafólks „Það hafa verið miklar og fjör- ugar umræður á þinginu, og mik- ill hugur i fólki”, sagði Guð- mundur Þ. Jónsson formaður Landssambands iðnverkafólks i samtali við Þjóðviljann i gær, en 5. þing sambandsins hófst I gær að Hótei Esju og veröur fram- haidið i dag, og er ráðgert að Ijúka þvi I kvöld. „Þetta er þróttmesta þing sem við höfum haldið hingað til og umræður hafa verið mjög al- mennar. Þær hafa aðallega snúist um kjaramálin, bónus og at- vinnumál auk þess sem menn hafa komið viðar við i ræðum sinum”, sagði Guðmundur. -»g. Riflega 40 fulltrúar sitja 5. þing Landssambands iðnverkafólks. Mynd _ eik. íjánblendiverksmiðjan á Grundartanga 1 jHrapalleg místök Barnatíminn Bryndís er ekki að hætta „Það hefur komið fram i dag- blöðum að Bryndís Schram sé að hætta sem umsjónarmaður barnatima sjónvarpsins, en eftir þvi sem ég best veit þá er þetta nú ekki rétt”. sagði Tage Ammen- drup hjá Lista- og skemmtideild sjónvarps aðspurður um fyrir- komulag barnatima sjónvarps næsta vetur. „Bryndis hefur á hinn bóginn óskað eftir þvi að vera i hálfu starfi þannig að auglýst hefur verið eftir umsjónarmanni á móti henni”, sagði Tage. 11 manns hafa sótt um starfið og það eru: Sigriður Sigurðar- dóttir, Asta Helga Ragnarsdóttir, Guðrún Birgisdóttir, Þorsteinn Marelsson, Kolbrún Halldórs- dóttir, Oddur Albertsson, Sigrún Björnsdóttir, Sólveig Halldórs- dóttir, Sigriður Guðjónsdóttir og Ólafur H. Torfason. Einn um- sækjandi óskaði eftir nafnleynd. titvarpsráð mun nú taka af- stöðu til umsóknanna. —hól. IHarðvítugar deilur urðu i efri deild alþingis i gær þegar þeir Hjörleifur Guttormsson og ■ Stefán Jónsson öttu kappi við Italsmenn Sjálfstæðisfiokksins Þorvald Garðar og Lárus Jóns- son. Sagðist Stefán vilja fjalla ■ um þetta mál i sögulegu sam- Ihengi og vitna til ummæla iðnaðarráðherra þegar ákvörð- unin var tekin um Járnblendi- • verksmiðjuna á Grundartanga. IÞáverandi iðnaðarráðherra var Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra en hann var ekki við- • staddur umræðuna i gær. Hét IStefán þvi að þetta mál yrði ekki afgreitt frá dcildinni fyrr en farið hefði verið I forsöguna. Þá * hefði ýmsum andþingræðis- Iiegum og ólýðræöislegum að- ferðum verið beitt til að koma verksmiöjunni i gegn. ■ Hjörleifur Guttormsson og IStefán Jónsson voru samdóma um að þann lærdóm ætti að draga af starfsemi þessarar • verksmiðju, að betur hefði átt — sögðu Stefán Jónsson og Hjörleifur Guttormsson um stofnun verksmiðjunnar að vanda til undirbúnings við verksmiðjureksturinn — og væri mönnum hollt að minnast þess nú. Talsmenn Sjálfstæðis- flokksins sögðu hins vegar að draga ætti þann lærdóm af núverandi örðugleikum verk- smiðjunnar að Islendingar ættu ekki einir að taka alla áhættu heldur ættu útlendingar að eiga verksmiðjurnar að hluta. Stefán Jónsson sagði m.a. að sjálfsagt væri að iðnaðarnefnd deildarinnar fengi þá sér- fræðinga til viðtals sem á sinum tima hefðu gefið út álit um að I stofnsetja ætti Járnblendiverk- I smiðjuna á Grundartanga. A I áliti þeirra hefðu þeir þingmenn • byggt afstöðu sina sem greiddu I atkvæði með þvi að hún skyldi I sett á laggirnar. Hins vegar I hefðu framkvæmdir verið • hafnar á Grundartanga áður en I verksmiðjan hafði hlotið sam- I þykki á aiþingi. Nú þyrfti að I greiða aukalega með henni fjár- ■ upphæð, sem samsvaraði þeirri I upphæð sem nægði til að setja varanlegt slitlag á 3/4 hluta | hringvegarins um landið. ■ Hjörleifur Guttormsson lagði I áherslu á að Járnblendiverk- I smiðjan hefði góðu starfsfólki á | aðskipa, en bersýnilegt væri að ■ fljótagangur hefði verið á undir- I búningsvinnu fyrir Járnblendi- I verksmiðjuna. „Leiða má I sterkar likur að þvi að ákvörð- ■ unin um byggingu þessarar I verksmiðju hafi verið hrapalleg I mistök frá efnahagslegu sjónar- I miði” sagði Hjörleifur orðrétt. • J Yfirlýsing vegna um- ræðna um skólamáltíðir Vegna umræðna á siðasta borgarstjórnarfundi um skóla- máltiðir og frásagna af þeim i fjöl- miöium skal eftirfarandi tekið fram: Það sem sagt var i dreifiritum frá Alþýðubandalaginu um skóla- máltiðir er ekki byggt á sam- þykktum fræðsluráðs. Engin samþykkt hefur verið gerð um það mál önnur en sú að fræðslu- ráð kaus 1. mars s.l. tvo fulltrúa úr ráðinu til að taka sæti I starfs- hópi til að fjalla um „skólamál- tiðir og samfelldan skóladag nemenda” og beindi jafnframt þeim tilmælum til borgarlæknis, skólayfirlæknis og skólafulltrúa að þeir tækju sæti í hópnum ásamt fulltrúum frá Skólastjóra- félagi Reykjavikur, Kennara- félagi Reykjavikur og nefnd sem þrjú ráðuneyti hafa skipað til að gera tillögur um svipað efni. 1 fundargerð kemur fram að „Óskað er eftir að nefndin athugi annars vegar, hvernig hægt væri að koma á til frambúðar sam- felldum skóladegi og aðstöðu til að neyta máltiðar 1 skólanum og hins vegar, hvort hægt væri að gera tilraun næsta skólaár með að hefja þetta starf i einhverjum skólum, þar sem aðstaða væri talin fyrir hendi og áhugi aö koma á þessari breytingu á skóla- starfi”. Skilja mætti á umræddum dreifiritum að fræðsluráð heði samþykkt framkvæmdir I málinu næsta vetur og hlutverk nefndar- innar væri einungis að fjalla um tilhögun þeirra. Þar sem fræðslu- ráð kaus mig á sinum tima for- mann starfshópsins þykir mér miður aö slíkur skilningur skyldi komast á þrykk, en ég hafði aldrei tækifæri til að leiörétta hann þar sem ég hafði engin af- skipti af gerð bæklingsins. Hins vegar vænti ég þess að þetta verði ekki til að hindra framgang málsins og sem viðtækust samstaða myndist um framkvæmdir þegar næsta vetur. Hörður Bergmann Hvað gerist við skilnað? Félag einstæðra foreldra heldur almennan fund um bama- lögin á Hótel Heklu þriðjudaginn 20. april kl.20.30. Ólöf Péturs- dóttir fulltrúi í dómsmálaráðu- neytinu hefur framsögu um barnalögin með hliðsjón af s k i 1 n a ð a r m á 1 u m . Sál- fræðingarnir Alfheiður Stein- þórsdóttir og Guðfinna Eydal tala um foreldraráðgjöf með sérstöku tilliti til skilnaðarmála. Asdls J. Rafnar lögfræðingur FEF svarar fyrirspurnum. Fundurinn er op- inn öllum og er áhugafólk um málefni barna og foreldra í skiln- aði sérstaklega hvatt til að fjöl- menna. • • Orn Bjarna- son for- stjóri Holl- ustuverndar ríkisins Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið hefur i dag skipað öm Bjarnason, skólayfirlækni, til þess að vera forstjóri Hollustu- verndar rikisins skv. lögum nr. 50/1981, um hollustuhætti og heil- brigöiseftirlit, en stofnunin tekur til starfa 1. ágúst n.k. Auk hans sótti um stöðuna Eggert Asgeirsson, fv. fram- kvæmdastjóri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.