Þjóðviljinn - 21.04.1982, Síða 7
Miðvikudagur 21. apríl 1982 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 7
tap verði á rekstrinum fyrsta ár-
ið, þ.e. 1985 um 38 milljónir króna,
en upp frá þvi verði um hagnað að
ræða. Þannig er áætlað aö tekjur
fyrir skatta verði árið 1986 um 33
milljónir króna, og eftir það um
55-65 milljónir króna á ári.
Hér er um meðaltalstölur að
ræða, en ljóst er að verðið mun
sveiflast eftir markaðsástandi
hverju sinni og þarf að kappkosta
að draga úr áhrifum þeirra með
einhvers konar jöfnunarsjóði.
Gert er ráð fyrir að okruverðið
fyrstu 10 árin þ.e.a.s. 1985-1994
verði 15 mills/kWh en 20
mills/kWh á árunum 1995-2004. í
báðum tilvikum er miðað við
verðlag 1. mars 1982 en miðað er
viö að orkuverðið verði að fullu
verötryggt.
Afkastavextir fjárfestingar-
innar hafa veriö áætlaðir og er
niðurstaðan sú að arðsemi
heildarfjárfestingar verði 10,4%
fyrir skatta á föstu verðlagi.
Verður þessi arðgjöf að teljast vel
viðunandi, þegar haft er i huga að
tæknileg áhætta i þessum rekstri
er svo til engin, að vaxandi
markaður er fyrir afurðir verk-
smiðjunnar og að raunvextir á
alþjóðlegum lánamörkuðum eru i
dag um 6%, og likur til að þeir
verði enn lægri i framtiðinni.”
Viðunandi orkuverð
til álfélagsins
„...Gerð hafa verið drög að
orkusölusamningi milli verk-
smiðjunnar og Landsvirkjunar.
Er þar gert ráð fyrir að
samningstiminn verði tuttugu ár
og orkuverðið 17,5 aurar á kWh
að meðaltalj, en það samsvarar
17,5 mills/kWh á þvi gengi sem
miðað er við i samningsdrögum.
Gert er ráð fyrir að orkuverðið
verði að fullu verðtryggt en verð-
tryggingaákvæði og hækkanir á
grunnverði á samningstimanum
yrðu háð nánara samkomulagi.
Með hliðsjón af þvi að verksmiðj-
an þarf að bera þungan fjár-
magnskostnað á fyrstu strafsár-
unum er æskilegt fyrir verk-
smiðjuna að i fyrstu verði orku-
verðið hlutfallslega lægra, en
aftur á móti hlutfallslega hærra
siöar þegar greiðslufjárstaða
verksmiðjunnar er orðin betri.
Landsvirkjun hefur þann fyrir-
vara á varðandi samningsdrögin
að lokið verði framkvæmdum við
Kvislaveitu og Þórisvatnsmiðlun
1985/86 og nauðsynlegri aukningu
uppsetts afls á Þjórsársvæðinu.
Samningsdrögin eru einnig
byggð á þeirri forsendu að
samningar takist milli rikisins og
Landsvirkjunar um byggingu og
rekstur nýrra virkjana og yfir-
töku fyrirtækisins á byggðalinu-
kerfinu. Einnig telur Landsvirkj-
un nauðsynlegt að núverandi
fjárhagsstaða fyrirtækisins verði
tryggð á viðunandi hátt þannig að
hæfilegt fé fáist úr rekstri til fjár-
mögnunar nýrra virkjana án þess
að lántökur i þvi skyni verði meiri
en góðu hófi gegnir.
Varðandi siðast nefnda fyrir-
varann skiptir mestu máli að
veruleg hækkun fáist á orkuverði
til Islenska álfélagsins h/f.
Orkuverð það sem hér er lagt til
grundvallar viö rekstur kisil-
málmverksmiðjunnar er byggt á
áætluðum framleiðslukostnaði á
orku frá næstu virkjunum, en það
hefur veriö talið liggja á bilinu
15-20 mills/kWh miðað við 6%
reiknivexti.
Orkuverðið 17,5 mills/kWh að
meðaltali með fullri verð-
tryggingu virðist þvi raunhæf við-
miðun, en gert er ráð fyrir að
verksmiöjan kaupi einungis for-
gangsorku.
Lægra orkuverö en þetta mundi
að sjálfsögðu bæta verulega af-
komu verksmiðjunnar, en ég tel
að það eigi að vera grundvallar-
atriði i uppbyggingu orkufreks
iðnaöar hér á landi aö hann greiði
viðunandi orkuverð sem sé
breytilegt með tilliti til verðbólgu
og ekki það lágt að almenningur
þurfi að greiða hærra raforku-
verð með stóriðju en án.”
Innlend
eignaraðild tryggð
,,... Frumvarpið gerir ráð fyrir
að rikissjóöur eigi tryggan meiri-
hluta i fyrirtækinu og meirihluta i
stjórn þess. 1 hlutafélagalögum er
ákvæði er vernda rétt minni-
hlutaeigenda. Þar sem ráð er
fyrir þvi gert i frumvarpinu að
rikið geti boðið öðrum samstarf
sem minnihlutaeiganda er eðli-
legt að nota umrætt félagsform
um reksturinn.
1 sambandi við 2. gr. frum-
varpsins er rétt að geta þess að
ekki er talið nauðsynlegt að
erlendir aðilar eigi hlut i félaginu.
Er við það miðað að islenskir að-
ilar standi að þvi einir, að
bygging og rekstur, þar með talin
hráefnaöflun og markaðssetning,
verði ávallt undir ótviræðu for-
ræði islenskra stjórnvalda.
Greinin felur i sér það nýmæli
að öðrum islenskum aðilum en
rikinu er nú gefinn kostur á að
taka þátt i uppbyggingu orku-
freks iðnaðar. Það gæti m.a.
verið um að ræða sveitarfélög,
innlend hlutafélög, samvinnu-
félögogaðrainnlendaaðila. Þess
má geta að fram hefur komið á-
hugi hjá sveitarfélaginu, þótt
tæpast sé hægt að gera ráð fyrir
að hann verði stór.”
,,... Loks er i 11. gr. ákvæði er
stefnir að aukinni samvinnu
stjórnenda og starfsfólks fyrir-
tækisins. Með stofnun samstarfs-
nefndar er mótað fast samstarfs-
sem minnihlutaeiganda er eðli-
indum og ábyrgð starfsfólks á
vinnustað i þeim tilgangi að efla
lýðræði i atvinnurekstri og ná
betri árangri i framleiðslu.
11. gr. kveður, ásamt heim-
ildarákvæðinu um fulltrúanefnd i
6. gr. 2. mgr., á um afar
þýðingarmikil atriði, sem varða
stöðu starfsmanna innan fyrir-
tækja og áhrif á starfsumhverfi.
Hugmyndir um aukinn hlut og á-
byrgð starfsmanna i stjórnun og
rekstri fyrirtækja eru nú mikið
ræddar i flestum löndum
Vestur-Evrópu, þ.3 m. á öörum
Norðurlöndum.
Hér á landi hafa þessi mál ekki
verið eins mikið til umræðu i
samtökum launafólks eða á
stjórnmálavettvangi og hefði
mátt vænta, en áhugi þó vaxandi.
Eðlilegt er að rikisvaldið sem at-
vinnurekandi gangi á undan meö
góðu fordæmi i þessu efni.”
„Eitt höfuðmarkmið efnahags-
stefnu núverandi rikisstjórnar er
að efla atvinnulif landsmanna. 1
þvi skyni hefur veriö unnið að
athugunum á iðnaði, sem rennt
geti fleiri stoðum undir efnahags-
starfsemina. Efst á blaði i þeim
efnum er frekari nýting á
náttúruauölindum landsins.
Orkulindirnar eru ein þerra '
náttúruauölinda sem Islendingar
geta i auknum mæli hagnýtt til að
bæta og jafna lifskör i landinu.
Nýting þeirra verður að vera i
samræmi við almenn þjóðhagsleg
markmið um
• fulla atvinnu
batnandi lifskjör
0 yfirráö landsmanna yfir
náttúruauölindum,
• öruggt islenskt forræöi i at-
vinnulifinu,
• stööugleika i efnahagsmál-
um.
• gott vinnuum h verfi og
verndun islenskrar náttúru
gegn mengun.
Bygging kisilmálmverksmiöju
hér á landi fellur vel aö þessum
markmiðum, og með lögfestingu (
þessa frumvarps væri stigið
mikilvægt skref i atvinnusögu
Islendinga, og mikilvægur áfangi
næðist i uppbyggingu stóriðju
undir forystu og stjórn lands-
manna sjálfra. Kisilmálm-
verksmiðja á Reyðarfirði gæti
þannig orðið fyrsta stóriöjufyrir-
tækið algjörlega i innlendri eigu.
Þótt nú styttist óðum i starfs-
tima þessa þings vænti ég að
frumvarp þetta veröi að lögum
fyrir þinglok, m.a. meö samvinnu
iðnaðarnefnda beggja deilda við
athugun málsins. Herra forsetj,ég
legg til að frumvarpinu verði að
lokinni þessari umræðu visað til
háttvirtrar iönaöarnefndar”.
Lýðræðið eflt
í atvinnurekstri
Mikilvægur
áfangi í uppbyggingu
iðnaðarins
Fjármál sjúkrahúsanna til umræðu á alþingi
12% halli síðasta árs
Þegar tekin ákvörðun
um að verja yfir 50
miljónum vegna
hallareksturs
sjúkrahúsanna á
þessu ári, sagði
Svavar Gestsson
Miklar umræöur uröu I neöri
deild alþingis á föstudaginn um
daggjaldakerfi sjúkrahúsa og
fjármál þeirra almennt. Guörún
Helgadóttir mælti fyrir áliti
meirihluta heilbrigöis- og trygg-
inganefndar um frumvarp sem
gerir ráö fyrir aö hægt sé aö taka
fleiri sjúkrahús en ríkisspitalana
inná fjárlög. Sjúkrastofnanir eru
yfirleitt fjármagnaöar meö svo-
kölluöu daggjaldakerfi, en
rekstur rikisspitalanna er nú
fjármagnaöur meö beinum fjár-
framlögum frá rfkissjóöi. Mælti
meirihluti nefndarinnar meö
samþykki frumvarpsins.
Pctur Sigurösson mælti fyrir
áliti minnihluta nefndarinnar og
lýsti yfir andstöðu sinni viö frum-
varpið. Hann vildi að eitt ákveðið
sjúkrahús t.d. Fjórðungssjúkra-
húsiö á Akureyri yröi tekið inn á
fjárlög og séð hvernig það reynd-
Hörkuumræður
um flugmál á þingi
Ráðherra
ásakaður
um „hringL
andahátt”
Þegar Arni Gunnarsson mælti
fyrir þingsályktunartillögu Al-
þýöuflokksmanna um stefnu i
flugmálum sl. fimmtudag var
hann mjög þungoröur i garö
Steingrims Hermannssonar flug-
málaráðherra fyrir þaö sem hann
nefndi „hringlandahátt”. Garðar
Sigurðsson og Skúli Alexanders-
son gagnrýndu fjölmörg atriði í
tillögum Alþýöuflokksins.
Ásakaði Arni ráðherra um að
hafa enga stefnu i flugmálum.
Ráðherrann heföi ekki efnt til
neinnar samkeppni með veitingu
flugleyfa. Sagði hann að milli-
rikjasamningar heimiluðu ráð-
herra að veita eins mörg flugleyfi
og honum þóknaðist og þarmeð
væri brostin forsenda fyrir kaup-
um Arnarflugs á Iscargo. Það
hefðu verið ástundaðar blekking-
ar við þessi kaup. Þá sagöi Arni
m.a. að aldrei hefði átt að styrkja
Flugleiðir hf til Noröur-Atlants-
hafsflugsins, þaö heföi verið
endemis endaleysa. Þá sagði
hann að staðsetning Reykja-
vikurflugvallar væri til hagræðis
en I þingsályktunartillögunni er
kveðið á um að sá flugvöllur verði
„framtiðarflugvöllur” Reykvik-
inga.
Steingrímur Hermannsson vis-
aði öllum aðdróttunum aö sér á
bug og kvað málflutning Arna
einstrengingslegan og engu væri
likara en hann væri sérstakur
málsvari Flugleiða. Garöar
Sigurösson gerði margar athuga-
semdirbæði við málflutning Arna
og þingsályktunartillögu þeirra
Alþýðuflokksmanna. Til dæmis
benti hann á að Reykjavikurflug-
völlur væri i hjarta borgarinnar
og væri gott framtiðar
byggingarsvæði fyrir borgarbúa.
Svavar Gestsson: Ctgjöld til heil-
brigöismála nema 8,5% af
þjóöarframleiöslunni. Ariö 1950
nam þessi útgjaldaliöur 3% af
þjóðarframleiöslunni.
ist. Hann væri almennt á móti þvi
að sjúkrahús yrðu rekin með
þessum hætti. Með þessu fyrir-
komulagi væri komin alltof mikil
miðstýring. Pétur og margir aðr-
þingsjá
ir þingmenn fjölluðu um dag-
gjaldanefnd og lýstu yfir óánægju
sinni með það kerfi. Pétur vitnaöi
enn fremur i viötöl við ýmsa
Arni Steingrímur
Gunnarsson Hermannsson
Garöar Skúli
Sigurðsson Alexandersson
Það væri nokkur hætta vegna
þessarar staðsetningar vallarins
og væri sjálfsagt að leita annarra
staða fyrir framtiðarvöll t.d. á
Alftanesi.
Þá furðaði Garðar sig á þvi að
Arni segðist skammast sin sér-
staklega i samfylgd útlendinga
fyrir flugstöðina og Natóskiltin á
Keflavikurflugvelli. Og þetta
væri kommunum að kenna segöi
Arni. Það væri i sjálfu sér
fagnaðarefni að þessi gamli her-
magnaraflokkur, Alþýðuflokkur-
inn, væri farinn að skammast sin
fyrir Natóherstöðina. En hitt væri
með öllu óskiljanlegt að komm-
unum væri kennt um ófögnuðinn,
einmitt þeim sem vildu losna við
þessa forsmán sem herinn væri
hér i landinu. Mér ofbýður þessi
málflutningur sagöi Garöar.
Ölafur Þóröarson, Guömundur
Þórarinssonog Skúli Alexanders-
son gagnrýndu ailir ýmis atriði i
máli og tiilögu Arna og þeirra Al-
þýðuflokksmanna. Friörik
Sophusson fór hlýlegum oröum
um tillöguna sem og Sighvatur
Björgvinsson.
Skúli Alexandersson og fleiri
bentu t.d. á að sú hugmynd þeirra
Alþýðuflokksmanna um að flogið
yrði á stórum flugvélum á nokkr-
um aðalflutningsleiöum útum
landið en siöan með smærri flug-
vélum til stóru staðanna frá þeim
minni, væri ekki samgöngum til
bóta. Þá sagði Skúli þaö einnig
vafasama ráðstöfun að ætla að
gefa út sérleyfi til aðalflugleiða
innanlands. Reynslan af slikum
sérleyfum væri ekkert of góð,
landsbyggðin hefði ekki haft jafn
góða þjónustu og hún hefði nú
þrátt fyrir allt.
— óg
sjúkrahúsmenn, þar sem kvartaö
er undan bágum fjárhag sjúkra-
húsanna.
Svavar Gestsson heilbrigðis-
ráðherra sagði að hér væri verið
að fjalla um mikilvægt mál, f jár-
mögnun á grundvallarþætti I heil-
brigðisþjónustu landsmanna, —
og með hvaða hætti alþingi kýs aö
verja peningum til þess að reka
þessar stofnanir. Tók Svavar
undir gagnrýni á daggjaldakerfið
þó á öðrum forsendum en Pétur
Sigurðsson. Ég tel ekki, sagði
Svavar, að daggjaldakerfiö og
fjármögnun þess tryggi nægilega
trausta stjórn ríkisvaldsins á
hverjum tima á þeim fjármunum
sem fara til heilbrigðisþjónust-
unnar i landinu. Hins vegar væri
ekki verið að leggja til að þessu
daggjaldakerfi yrði velt með
þessu frumvarpi, heldur ein-
göngu að fá heimildarákvæði i lög
til þess að alþingi sjálft geti
ákveðið hverju sinni hvernig það
vill fjármagna spitalana i land-
inu. Sagði Svavar að heilbrigðis-
ráðuneytið neitaði aö borga sjálf-
virkt hvaða hallareikninga sem
væri frá spitölunum. Það væri
ekki að furöa að staldrað hefði
veriö við i janúarmánuði þegar
upplýsingar bárust um að hallinn
á spitölunum á sl. ári væri i kring-
um 12%. Þetta heföi þótt sér-
kennilegt i ljósi þess að á sl. ári
hefðu verið samþykktar veruleg-
ar hækkanir á rekstrardaggjöld-
um sjúkrahúsa. Vitnaði Svavar i
bréf til forstöðumanna sjúkra-
húsanna um endurskoðun dag-
gjaldakerfisins og tillögur til úr-
bóta á rekstri sjúkrahúsanna.
Heilbrigðisráöherra leggur til
að rekstrargjöld verði hækkuð og
að auki yrði um 5% hækkun upp i
hallann á siðasta ári, sem hefði i
för með sér að daggjöld hækkuðu
um 13-14% 1. mars sl. Þannig
hefur á þessu ári verið tekin
ákvörðun um að verja milli 50-60
miljónum króna vegna halla-
reksturs á sl. ári. Þá rakti Svavar
hvernig hallinn hefði verið al-
mennt á sjúkrahúsum mörg und-
anfarin ár. Halli á sjúkrahúsi
sýndi i rauninni ekki annað en aö
teknar hefðu verið ákvaröanir um
rekstur umfram heimiluð dag-
gjöld. Helstu orsakir hallans að
mati daggjaldanefndar væru:
1. Siaukinn fjármagns-
kostnaður vegna hækkandi vaxta
á þessu timabili. Nemur fjár-
magnskostnaðurinn um 14% af
hallanum undanfarin tvö ár. 2.
Kostnaður af flutningi sjúklinga á
milli sjúkrahúsa hefur lent á
þeim sjúkrahúsum sem senda
sjúklinga frá sér. 3. Rekstrar-
breytingar á sjúkrahúsum sem
hafa i för með sér fækkun legu-
daga valda halla. 4. Efnt hefur
verið til meiriháttar tækjakaupa,
endurnýjunarframkvæmdir við
sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir
sem jafnvel hefur verið lagt út i
án samráðs við daggjaldanefnd.
5. Ekki nógu skörp skil milli
reksturs heilsugæslustöðva sem
eru i sama húsnæði og sjúkrahús
og þeirra sjálfra.
Svavar Gestsson og fleiri þing-
menn nefndu og til sögunnar visi-
tölu sjúkrahúskostnaðar, en útfrá
henni er sjúkrahúskostnaður
reiknaður i áætlunum. Voru þing-
menn á einu máli um að þessi
visitölugrundvöllur væri vitlaus.
Heilbrigðisráðherra hefur farið
fram á endurskoðun þessarar
visitölu.
í máli sinu minnti Svavar einn-
eigin á það að útgjöld til heil-
brigðismála á Islandi væru um
8,5% af þjóðarframleiðslunni, en
til samanburðar var þessi út-
gjaldaliður 3% af þjóðarfram-
leiðslunni árið 1950. Ef ætti að
auka heilbrigðisþjónustuna þá
kostaði það fjármuni sem annað-
hvort verða að fást með viðbótar-
skattlagningu á landsmenn eða
með sparnaði og tilfærslu i þeirri
þjónustu sem fyrir er. Kostnaður
rlkisspitalanna einna er miklu
meiri en allar tekjur islenska
rikisins af eignarsköttum.
Kostnaður við rekstur allra
sjúkrahúsanna i landinu er mun
meiri en nemur öllum tekjum is-
lenska rikisins af beinum skött-
um, bæði tekju og eignarsköttum.
—óg