Þjóðviljinn - 21.04.1982, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. apríl 1982
LÞÝOUBANDALAGIÐ
Frá kosningamiðstöö
Viötalstimi borgarfulltrúa
Frá klukkan 8 á i'östudagskvöld verður heitt á
könnunni i kosningamiöstöðinni að Siðumúla 27.
Guðrún Ágústsdóttir, varaborgarfulltrúi, verður
með viðtalstima þetta kvöld.
Guðrún
Ertu á kjörskrá?
Kosningastjórn ABR hvetur i'ólk til að kynna sér það hið fyrsta
hvort þaö sé á kjörskrá. Einnig brýnir kosningastjórn það fyrir for-
eldrum námsmanna erlendis, að athuga hvort börn þeirra sé að
finna á kjörskránni.
Finni fólk sig ekki á kjörskránni néheldur aðra þá sem það veit að
þar eigiaðvera mun G-listinn veita fóiki alla þá þjónustu, sem þarf
viö kjörskrárkærur
Athugiö sem allra fyrst hvort þiö eruð á kjörskrá, þvi fyrr sem
kærur berastrétum aöilum, þvi auðveldara er meðþær aðfara.
Kosningastjórn G-listans
Alþýöubandalagiö
á Akureyri
Almennurfélagsfundur verður haldinn i Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18
fimmtudaginn 22. april ki. 20.30. Dagskrá 1) Afgreiðsla á stefnuskrá
vegna bæjarstjórnarkosninganna. 2) önnurmál. — Stjórnin.
Alþýðubandalagsfélag Húsavikur
Kosningaskrifstofan verður opnuð sumardaginn fyrsta kl. 15.00 i Snæ-
landi. A boðstólnum verður kaffi og bakkelsi. Félagar fjölmennið og
gerum kosningastarfið lifandi.
Opið virka daga frá 22. april frá 20—22, og laugard. 14—16.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Kosningaskrifstofa
Höfum opnaö kosningaskrifstofu i Lárusarhúsi Eiösvallagötu 18. Opn-
unartimi fyrst um sinn kl. 17-19. Simar: 21875 og 25875. — Litið við, næg
verkefni. — Munið kosningasjóðinn. — Kosningastjórn.
Alþýðubandalagið I
Borgarnesi og nærsveitum
Kosningaskrifstol'a hefur verið opnuð að Brákarbraut 3 i Borgarnesi.
Hún verður opin næstu daga frá kl. 20—22 á kvöldin. Félagar eru hvatt-
ir til þess aðhafa samband við skrifstofuna. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið
Neskaupsstað
Kosningaskrifstofa Alþýðubandaiagsins i Neskaupstað að Egilsbraut
11 verður opin um helgar og á virkum dögum kl. 17.00—19.00 og
20.00—22.00. Simi (97) 7571. Tekið er við framlögum i kosningasjóð á
skrifstofunni. — Kosningastjóri.
Kosninga miðstöð Alþýðubandalagsins
i Reykjavik, Siðumúla 27
Skrifstofa kosningamiðstöövar Alþýöubandalagsins i Reykjavik er að
Siöumúla 27.
Simarnir eru 39816 (Úli'ar) og 39813 (Kristján)
Kosningastjórn ABK
(Jtankjörfundakosning
Miðstöð utankjörfundarkosningar verðurað Grettisgötu 3, simar 17504
og 25229. — Athygli er vakin á þvi að utankjörfundarkosning hefst 24.
apriln.k. Upplýsingar varðandi kjörskrár og kjörskrárkærur veittar.
Umsjónarmaður er Sveinn Kristinsson.
Alþýðubandalagið Egilsstöðum
Kosningaskrifstofa G-listans á Egilsstöðum er að Tjarnarlöndum 14.
Skrifstofan er opin mánudaga - föstudaga frá 20.30 - 22.30 á kvöldin.
Kosningasiminn er 1676. Stuðningsmenn G-listans eru hvattir til að láta
skrifstofuna vita um kjósendur, sem verða f jarverandi á kjördag. Utan
skrifstofutima er tekið við skilaboðum i slma 1444 (Magnús) og i 1620
(Þorsteinn). Stuðningsfólk Alþýðubandalagsins, komið til starfa!
Kosningastjórnin.
Fundarboð
Aðalfundur Hagvangs h.f. verður haldinn i
húsakynnum félagsins, Grensásvegi 13,
Reykjavik, miðvikudaginn 28. april 1982
og hefst kl. 17.15. Venjuleg aðalfundar-
störf.
Hagvangur hf.
Bráðum kemur betri tíð ...
Sérstök afmælisútgáfa Helgafells með völdum ljóðum Halldórs
Laxness. Ragnheiður Jónsdóttir hefur myndskreytt bókina
Bráðum kemur betri tið...., er
yfirskriftin á bók sem Helgafeil
gefur út i tilefni áttræðisafmælis
llaildórs Laxness og inniheldur
drval Ijóða skáldsins. Þessi bók
var siðastliðinn þriðjudag kynnt
af aðstandendum hennar, en hún
hefur þá sérstöðu aö vera fyrsta
bók Halldórs sem myndskreytt er
af islenskum listamanni. Ragn-
lieiður Jónsdóttir myndlistar-
kona, hefur myndskreyttbókina á
afar sérstæðan cn skemmtilegan
hátt.
„Ég hef haft þann háttinn. á.að
láta myndirnar horfa viö lesanda
bókarinnar á sama hátt og skáld-
inu, þær sjást út um glugga
skáldsins,” sagði Ragnheiður á
blaðamannafundi sem Helgafell
hélt i gær. „Myndirnar hef ég
unnið i einni striklotu frá jólum.
Gluggann hef ég úr ýmsum átt-
um. A kápumyndinni t.d. horfir
skáldið út um gluggann sem er
við vinnustofu þess i Gljúfra-
steini. Þarna eru lika gluggar
fengnir úr Unuhúsi, Árbæ og fleiri
stöðum. Ragnheiður mynd-
skreytti ekki einasta bókina, hún
hannaði hana og sá um útlit.
Kristján Karlsson
valdi Ijóðin
Kristján Karlsson bókmennta-
fræðingur valdi ljóðin i bókina og
ritaði formálsorð. Hann kvað ljóð
úr Kvæðakveri Laxness vera i
miklum meirihluta, einnig væru
þarna að finna 2 þýdd ljóð og
einnig ljóðið Gluggann, úr Sjö-
meistarasögu.
,,Ég hef nú valið þessi ljóð að
eigin sérvisku.Halldór heíur ekk-
ert komið þar nærri. Ég á von á
að þetta séu bestu ljóðin eítir
skáldið,” sagði Kristján. Bókin
hefst á, Bráðum kemur betri tíð
með blóm I haga/ sæta langa
sumardaga....Niðurlag hennar er
fengið úr Kvæðakverinu, Ég er
brott frá þér bernska.
Gefin út i takmörkuðu
upplagi
Ljóðabókin kemur út i mjög
takmörkuðu upplagi, eitthvað i
kringum eitt þúsund eintökum.
Hún kostar 580 krónur og hefst
sala hennar i dag. Setningu ann-
aðist Prentstofan Blik, en lit-
greiningu Prentsmiðjan Grafik
hf. Hefur tekist sérstaklega vel
með allan frágang bókarinnar og
má sem dæmi nefna að myndir
Ragnheiðar eru unnar i 4 litum.
Tónleikar i Norræna
húsinu
1 tengslum við útkomu bókar-
innar munu þau Kristinn Sig-
mundsson og Sigriður Ella Magn-
úsdóttir syngja lög við ljóð eftir
lialldór á tónleikum sem haldnir
verða i Norræna húsinu á morg-
unn, sumardaginn fyrsta. Undir-
leikarar verða Jónina Gisladóttir
og Jórunn Viðar. Tónleikarnir
hefjast kl. 17. Alls hafa 9 tónskáld
Komið með hamar
Þeir félagar sem kunna að lemja með hamri eru beðnir að mæta til
vinnu i kosningamiðstöðina að Siðumúla 27 kl. 10 á laugardagsmorgun
þann 24. april og hjálpa til við að innrétta vinnuaðstöðu fyrir deildirnar.
— Kosningastjórn.
Aðalfundur G.deildar
Aðalfunndur 6.deildar ABR verður haldinn þriðjud. 27. april að Siðu-
múla 27, kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosningastarfið. — Stjórnin.
Alþýðubandalagið Kópavogi — Kosningaskrifstofa
Þinghól, Hamraborgll
Kosningaskrifstofan er opin frá 13.00 fyrst um sinn. Siminn er 41746.
Sjálfboðaliðar. Haíið samband við skrifstofuna og skráið ykkur til
starfa.— Kosningastjórn.
Hafnarfjörður —
kosningaskrifstofa opnuð
Laugardaginn 24. april verður kosningaskrifstofa G-listans opnuð kl. 2
e.h. aðStrandgötu 41 (Skálanum)
Dagskrá.
1. Magnús Jön Árnason kennari flytur ávarp.
2. Gils Guðmundsson rithöfundur les úr ritsafninu „Mánasilfur”.
3. Rannveig Traustadóttir þroskaþjálfi kynnir drög að stefnuskrá
Alþýðubandalagsins sem mun liggja frammi i fjölriti. A eftir verða
umræður og stefnuskráin borin undir atkvæði.
4. Kosinkosningastjórn.
Myndlistarsýning verður á skrifstofunni fram að kosningu. Sýnd eru
verk eftir Ingiberg Magnússon myndlistarmann. Kaffi og kökur á
staðnum. Simi kosningaskrifstofunnar er 53348.
samið lög við þau ljóð Halldórs
sem þarna verða flutt. Eitt þess-
ara laga sem verður flutt, Glugg-
inn eftir Jórunni Viðar, er samið
að ósk Ragnars Jónssonar i
Smára, sérstaklega fyrir þetta
afmæli.
— hól
Sparisjóður
vélstjóra
20 ára
Aðalfundur Sparisjóðs vél-
stjóra var haldinn að Borgartúni
18 laugardaginn 27. mars s.l. A
fundinum flutti formaður
stjórnar sparisjóðsins, Jón
Júliusson, skýrslu stjórnarinnar
fyrir árið 1981 og Hallgrimur G.
Jónsson, sparisjóðsstjóri, lagði
fram og skýrði ársreikning spari-
sjóðsins.
Á siðasta ári voru liðin 20 ár frá
þvi að Sparisjóður vélstjóra tók
til starfa. A þeim tima hefur verið
stöðugur uppgangur i starfsemi
sparisjóðsins, en ekkert starfsár
hefur verið honum hagstæðara en
þetta afmælisár. Jókst t.d. hlut-
deild sparisjóðsins 1 innlánsfé
sparisjóðanna i landinu úr 6,4%
1980 i 7,3% 1981.
A fundinum var stjórn Spari-
sjóðs vélstjóra endurkjörin, en
hana skipa: Jón Júliusson, for-
maður, Jón Hjaltested og
Emanúel Morthens, en sá siðast-
nefndi er kjörinn af borgarstjórn
Reykjavikur.
Heimdallur
Framhald af 1
Algengt er að stofnanir sem
annast skoðanakannanir noti þá
aðferð að heimsækja fólk sem
lent hefur i úrtaki til þess að
trýggj3 sem bestar heimtur á
svörum. 1 þeim tilfellum er um að
ræða tryggingu fyrir naí'nleynd
og að upplýsingar um skoöanir
verði ekki nýttar óviðurkvæmi-
lega. Stjórnmálaflokki sem við-
hefur þessa aðferð er hins vegar i
lófa lagið að misnota þær
persónuupplýsingar sem hann
safnar með þessum hætti.
—ehk
SETUR ÞÚ
STEFNULJÓSIN
TIMANLEGA A?
||UMFERÐARRÁÐ